Morgunblaðið - 14.06.2021, Síða 4

Morgunblaðið - 14.06.2021, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JÚNÍ 2021 Hotel Rosamar 4* Levante ströndin BENIDORM 01. - 08. júlí Flug og gisting með ALLT INNIFALIÐ! Skemmtilegur sundlaugargarður og stutt frá strönd www.sumarferdir.is | info@sumarferdir.is | 514 1400 verð frá 136.900kr. á mann miðað við 2 fullorðna og 2 börn Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir niður- stöðu prófkjörsins í Suðvesturkjör- dæmi bera vott um stuðning til þing- manna kjördæmisins. Bjarni bauð sig einn fram til forystu í kjördæm- inu og hlaut sannfærandi kosningu í oddvitasætið, eða 3.825 atkvæði. Í öðru sæti hafnaði Jón Gunnars- son, ritari flokksins, en hann hlaut 1.134 atkvæði í 1.-2. sæti. Einung- is munaði þrettán atkvæðum á hon- um og Bryndísi Haraldsdóttur, sem hlaut 1.121 atkvæði í 2. sæti, en hún fékk þriðja sætið á listanum með samtals 1.616 atkvæði í 1.-3. sæti. Spurður hvernig úrslitin horfi við honum segir Bjarni: „Ég auðvitað gleðst yfir því að fá mikinn stuðning. Mér fannst fín þátttaka í þessu próf- kjöri og það er nú oft sagt að það sé erfitt að hreyfa við þingmönnum í prófkjörum en það er nú ekki algilt. En það er ljóst að niðurstaðan sýnir stuðning við þingmenn kjördæmis- ins,“ segir Bjarni. Hann bætir við að prófkjör séu af hinu góða og þátttakan muni veita flokknum mikinn styrk inn í haustið. „Síðan er ég nú bara mjög ánægður með hvernig prófkjörið fór fram. Það var uppbyggilegur tónn og mjög bjart yfir þeim sem tóku þátt,“ segir Bjarni. Bryndís Haraldsdóttir er eina konan sem náði kjöri í efstu fimm sætin en Sigþrúður Ármann hafnaði í því sjötta. Vakti hún máls á því í samtali við mbl.is í gær að sér hefði þótt listinn sterkari með fleiri konur í efstu sætum. Spurður um þessi um- mæli segir Bjarni: „Ég virði alveg þessa skoðun og það má vera að þetta sé rétt. Ég held engu að síður að þetta sé sterkur listi og vonast til þess að hún verði með okkur í sjötta sætinu og að við getum farið í kosn- ingabaráttuna til þess að bæta við okkur þingmönnum,“ segir hann. Öllum prófkjörum flokksins er nú lokið að Norðvesturkjördæmi und- anskildu, þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, nýsköpunar- og ferðamálaráðherra, og Haraldur Benediktsson þingmaður berjast um fyrsta sætið. Gleðst yfir miklum stuðningi - Bjarni Benediktsson segir niðurstöðu prófkjörsins í Suðvesturkjördæmi sýna stuðning við þingmenn - Jón Gunnarsson varð hlutskarpari í baráttunni um annað sætið - Aðeins Norðvesturkjördæmi eftir Bjarni Benediktsson Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Sviðsstjóri hjá Hafrannsóknastofnun segir að vatnsleysi í farvegi Gren- lækjar í Skaftárhreppi sé umhverfis- slys. Og því miður sé þetta ekki í fyrsta skipti sem það gerist. Athugun Hafró á Grenlæk sýnir að efstu ellefu kílómetrar lækjarins, á svæðinu ofan við Stórafoss, eru nán- ast þurrir. Vatn situr eftir í pollum sem ekki flæðir á milli. Guðni Guð- bergsson, sviðsstjóri ferskvatnssviðs hjá Hafrannsóknastofnun, segir að eðlilega þrífist ekki mikið líf í þurrum farvegi. Ein helstu hrygningar- og uppeldissvæði sjóbirtings sem ein- kenna lindarlækinn eru á þurra svæðinu og telur stofnunin að hann hafi orðið illa úti þar sem nær öll seiði á þessu svæði hafi drepist, eða 2-3 ár- gangar. Síðar muni koma í ljós hversu alvarlegur skaði hafi orðið á fullorðnum fiski en líkur taldar á að hluti stærri fiska hafi náð að forða sér neðar í lækinn þar sem enn er vatn og út í sjó. Ekki í fyrsta skipti Guðni segir að vatnsþurrð hafi haft slæm áhrif á lífríki Grenlækjar árin 2008 og 2016. Á síðara árinu var hluti sjóbirtingsstofnsins genginn til sjáv- ar og skilaði sér til baka síðsumars og um haustið til hrygningar eftir að vatn var aftur tekið að renna. Vatnabúskapur Grenlækjar er háður því að nægjanlegt vatn flæði úr Skaftá og út á Eldhraun. Því rennsli er stýrt og deilur hafa lengi verið um það, meðal annars á milli Land- græðslunnar og bænda. Guðni vekur athygli á því að verð- mæt veiðihlunnindi eru í Grenlæk. Þykir honum einkennilegt að menn standi í vegi þess að veita vatni út á hraunið til að tryggja svæði á nátt- úruminjaskrá. Grenlækur sé eitt af fágætum íslenskrar náttúru og slík svæði finnist óvíða í veröldinni. Hafrannsóknastofnun telur að finna þurfi leiðir sem til frambúðar tryggi háa grunnvatnsstöðu í hraun- um á svæðinu svo vatnsrennsli til lindarvatna verði nægt til að viðhalda vatnsrennslinu og því ríkulega líflíki og fiskgengd sem þar er að finna. Ellefu kílómetra farvegur Grenlækjar nánast þurr - Tveir til þrír árgangar af sjóbirtingi hafa drepist í læknum Grenlækur Farvegurinn er nánast þurr en vatn situr þó eftir í litlum ein- angruðum pollum. Lífríkið hefur beðið tjón af vatnsþurrðinni. Klifurskríkja er nú í heimsókn á Íslandi eftir flug yfir Atlantshaf frá vesturheimi. Litli flækings- fuglinn er aðeins 11-13 cm að lengd og hefur undanfarna daga haldið til á Snæfellsnesi. Sam- kvæmt upplýsingum frá sr. Sig- urði Ægissyni er þetta einungis í fjórða sinn sem sést hefur til klifurskríkjunnar hérlendis en áður sást hún árin 1970, 1991 og 2020. Klifurskríkja verpir í Norður- Ameríku og vetrarstöðvarnar ná frá Suðurríkjum Bandaríkjanna, suður um Mið-Ameríku og Vest- ur-Indíur til Ekvador, Kólumbíu og Venesúela. Klifurskríkja heldur sig eink- um í votlendum laufskógum. Flestar tegundir ættarinnar tína skordýr af laufblöðum, en klif- urskríkjan fetar sig eftir trjá- stofnum og stórum greinum og leitar skordýra í holum og rifum, ekki ósvipað og glókollur og mús- arrindill gera. Af þessu dregur hún nafn. Klifurskríkjan sem nú er í heimsókn hérlendis er karlfugl. Ljósmynd/Mikael Sigurðsson Sjaldséður gestur á Snæfellsnesi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.