Morgunblaðið - 14.06.2021, Side 8

Morgunblaðið - 14.06.2021, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JÚNÍ 2021 Mönnum kom saman um að ljós-móðir væri það orð meðal orða sem hvað mest hlýja stafaði frá. En nýverið kom, að sögn Páls Vilhjálmssonar, fulltrúi Biden- stjórnarinnar „fyrir þingnefnd og sagði orðið móðir mannréttinda- brot á þeim sem hvorki eru karl eða kona. Það ætti að tala um „fæðing- arfólk“ í stað mæðra. Á ensku „birthing people“. - - - Í Bretlandi er þaðað frétta að kona þurfti að fara fyrir dómstóla til að fá þann úrskurð að það væri ekki haturs- orðræða að tjá þá skoðun að kynin væru tvö, karl og kona. Breska kon- an, Maya Forstater, missti vinnuna fyrir að hafa þá skoðun að maður gæti ekki breytt líffræðilegu kyni. - - - Maya Forstater segir í viðtali aðkarlar leiki þann leik að þykj- ast konur og fá aðgang að kvennaklósettum til að þjóna eðli sínu með viðskeytið „trans“ að vopni. Karlar sem þykjast konur taka gullið í kvennaíþróttum án þess að hafa mikið fyrir því. Um 40 prósent meintra kvenna á lesb- ískum stefnumótasíðum eru í raun transkarlar. Allt er þetta undir þeim formerkjum að maður geti sjálfur ákveðið af hvaða kyni mað- ur er. - - - Nonni getur sem sagt verið Jón-ína þegar hann vill á kvennaklósettið eða komast á verð- launapall á Ólympíuleikunum. - - - Dæmin tvö frá Bandaríkjunumog Bretlandi sýna að helsta áhugamál frjálslyndra og vinstri- manna nú um stundir, er að brjóta tungumálið undir ímyndun þeirra veruleikafirrtu.“ Joe Biden Ljósfæðingarfólk STAKSTEINAR Páll Vilhjálmsson Bílds 577- Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Elsti Íslendingurinn, Dóra Ólafs- dóttir, er nú níundi elsti íbúi á Norð- urlöndum, 108 ára og 343 daga, samkvæmt tölum sem finna má á vefsíðunni Gerontology Wiki. Þetta kemur fram á Facebook- síðunni Langlífi, sem Jónas Ragn- arsson rithöfundur heldur úti, en þar er fjallað um langlífa Íslendinga, haldgóð hjónabönd, stóra systk- inahópa og þess háttar. Dóra er ættuð úr Eyjafirði og bjó lengi á Akureyri. Hún hefur verið á Skjóli við Kleppsveg í Reykjavík síð- ustu átta árin. Anna Greta Carlson í Svíþjóð er elst á Norðurlöndum, 109 ára og 220 daga, en landi hennar Ingrid Svens- son er 109 ára og 111 daga gömul. Elsti Finninn, Astrid Qvist, er 109 ára og 22 daga og er hún þriðja elsta manneskjan á Norðurlöndum. Elsti Daninn er Else Rehling, en hún er 108 ára og 276 daga gömul, en hún er jafnframt 11. elsti Norður- landabúinn. Þá er elsti Norðmað- urinn 107 ára skv. Langlífi, elsti Færeyingurinn 105 ára og elsti Grænlendingurinn 102 ára. Fimm Íslendingar, allt konur, hafa orðið 109 ára og getur Dóra náð þeim áfanga hinn 6. júlí næstkomandi. Dóra níunda elst á Norðurlöndum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Langlífi Dóra Ólafsdóttir er nú níunda elst á Norðurlöndum. Karlmaður á þrítugsaldri var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna stunguárásar sem átti sér stað í Hafnarstræti aðfaranótt sunnudags. Mað- urinn sem um ræðir er grunaður um að hafa stungið annan mann í kviðinn með hníf fyrir utan veitingastaðinn Fjallkonuna. Maðurinn var leiddur fyrir dómara í gær og úr- skurðaður í fimm daga gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna, eða til 18. júní. Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn fer með rannsókn málsins og miðar henni vel að sögn lögreglu. Fórn- arlamb árásarinnar, sem er á svipuðum aldri og árásarmaðurinn, liggur þungt haldið á gjörgæslu- deild Landspítalans. Enn liggur ekkert fyrir um aðdraganda árásarinnar og er árásarvopnið enn ófundið. Hvað varðar tengsl mannanna hefur lög- regla ekkert gefið upp. Allir sem tengjast málinu eru Íslendingar. Sömu nótt var kveikt í bíl við íbúðarhús í Kópavogi. Rannsókn málsins miðar að því að tengsl séu milli árásarinnar og íkveikjunnar en þó er ekkert enn staðfest í þeim efnum. Lög- reglan biður þá sem kunna að hafa orðið vitni að líkamsárásinni að hafa samband í tölvupósti á net- fangið abending@lrh.is. ari@mbl.is Stunguárás við Hafnarstræti Morgunblaðið/Eggert Árás Maðurinn verður í varðhaldi til 18. júní. - Sá grunaði úrskurð- aður í gæsluvarðhald

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.