Morgunblaðið - 14.06.2021, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JÚNÍ 2021
• Verð frá: 250.000 m/vsk.
• Stærðir 3-600 persónueiningar
• Ekkert rafmagn
• Meira en 2ja þrepa hreinsun
• Verð frá 510.000 m/vsk.
• Stærðir 3-1500 persónueiningar
• Rafræn vöktun (valkvæmt)
• Getur hreinsað eColi allt að 99,9%
INNIFALIÐ Í VERÐI
ANAEROBIX HREINSIVIRKI
með síu yfir 90% hreinsun
ONE2CLEAN HREINSISTÖÐ
allt að 99% hreinsun
• Þægilegar í uppsetningu og lítið viðhald
• Fyrir sumarhús, heilsárshús, hótel o.fl.
• Engar siturlagnir – fyrirferðarlítil
• Mikið pláss fyrir seyru
• CE vottað
• Uppfylla kröfur til hreinsunar á viðkvæmum
svæðum t.d við Þingvallavatn
• Afhending á verkstað innan
100km frá Reykjavík
• Drengöng með gátlúgu sem tryggja að vökvi
komist óhindrað út í jarðveg
Hólmfríður María Ragnhildardóttir
hmr@mbl.is
Friðrik Rafnsson er nýkjörinn for-
maður stéttarfélags leiðsögu-
manna, Leiðsagnar. Hann kveðst
spenntur fyrir komandi tímum í
ferðaþjónustunni en nýja hlut-
verkið leggst vel í hann.
Friðrik segir að þótt pásan í
ferðaþjónustunni hafi ekki verið
kærkomin hafi hún nýst vel til að
sinna innra félagsstarfi, en það
hafi setið á hakanum frá því ferða-
mannasprengingin varð á Íslandi
árið 2010. Fólk hafi verið yfir sig
störfum hlaðið, allt þar til farald-
urinn skall á.
Fagmennska mikilvæg
Leiðsögn hefur nú staðið fyrir
fræðslufundum og verið að huga
að nýrri stefnumótun ásamt því að
skoða hvernig efla megi menntun
og endurmenntun leiðsögumanna í
framtíðinni. „Við höfum svona al-
mennt litið í eigin barm og skoðað
hvernig við getum styrkt okkur
sem starfsfólk,“ segir Friðrik í
samtali við Morgunblaðið.
Fagleg efling greinarinnar er
einn af þeim þáttum sem Friðrik
vill leggja aukna áherslu á en sam-
hliða því sem greinin óx upp úr
2010 telur Friðrik að óneitanlega
hafi dregið aðeins úr faglegum
metnaði. Telur hann mikilvægt að
við leggjumst í úrbætur í þessum
málum, sérstaklega í ljósi þess að
leiðsögumenn eru oft í forsvari
fyrir landið okkar þegar þeir taka
á móti gestum.
„Við lítum á okkur sem aðal-
gestgjafa erlendu gestanna okkar.
Leiðsögumaðurinn er sá sem fólk-
ið sér mest, hefur mestu kynnin af
og þar af leiðandi skipti máli að
við séum fagleg og traust,“ segir
Friðrik.
Spurður hvað það er sem ein-
kennir fagmennsku segir hann
marga þætti koma til greina og
nefnir hann meðal annars mennt-
un í greininni. Telur hann einnig
hæfileika í mannlegum sam-
skiptum algjört lykilatriði ásamt
góðri tungumálakunnáttu.
Samræmdir staðlar í skoðun
Að sögn Friðriks er nú verið
að skoða hvort hægt sé að sam-
ræma menntunina og kröfur til
leiðsögumanna á Íslandi í takt við
það sem viðgengst í Evrópu og
víðar. Hefur starfshópur á vegum
ferðamálaráðherra verið að líta til
þess að taka upp einhvers konar
gæðastaðal sem allir þeir sem
vinna sem leiðsögumenn þurfa að
uppfylla. Telur Friðrik mikilvægt
að fólk sem starfar í þessari at-
vinnugrein sé með ákveðna grund-
vallarþekkingu og -þjálfun, sér-
staklega þegar kemur að
öryggismálum.
Margþætt hlutverk og
ótrúlegar uppákomur
Friðrik segir leiðsögumenn
sinna margþættu hlutverki og
hafa ótrúlegustu uppákomur átt
sér stað. Að sögn Friðriks getur
það verið heljarinnar kúnst að
samþætta annars vegar það að
tryggja öryggi fólks og vernda
náttúru Íslands, og hins vegar að
sjá til þess að hópurinn skemmti
sér vel og njóti ferðarinnar. „Það
er þessi línudans að halda elsku-
lega um hópinn án þess að vera
alltaf að banna og hræða,“ segir
Friðrik.
Telur hann einnig mikilvægt
að leiðsögumenn sjái til þess að
væntingar ferðamanna gagnvart
ferðalaginu séu uppfylltar enda er
marga búið að dreyma í ár ef ekki
áratugi að ferðast til Íslands, á
jaðar veraldar. Er það sameig-
inlegt hagsmunamál allra í brans-
anum að því sé fylgt eftir.
Hann bætir þó við að það séu
forréttindi að fá að starfa við það
að ferðast um landið og kynna
náttúru Íslands þótt það sé ekki
alltaf dans á rósum.
Spurður hvort margir hefðu
sagt skilið við leiðsögumanna-
störfin í faraldrinum segist Frið-
rik ekki vera með töluna á hreinu.
Hann gerir þó ráð fyrir að eitt-
hvað hafi kvarnast úr hópnum og
fólk leitað sér annarra starfa líkt
og í öðrum greinum innan ferða-
mannageirans.
Friðrik Rafnsson er nýkjörinn formaður Leiðsagnar
Forysta Friðrik Rafnsson er nýkjörinn formaður Leiðsagnar.
Halda verður elskulega um hópinn
- Friðrik Rafnsson er bók-
menntafræðingur, þýðandi og
leiðsögumaður fæddur árið
1959. Hann stundaði nám í
Frakklandi frá 1981 til 1988 og
er menntaður í bókmennta-
fræðum frá EHESS í París.
Hann lauk einnig námi við Leið-
söguskóla Íslands árið 2018.
- Áður en hann tók við sem
formaður sinnti hann starfi rit-
ara hjá Leiðsögn. Hann hefur
starfað sem forseti Alliance
française á Íslandi og var með-
al annars sæmdur ridd-
arakrossi frönsku lista- og bók-
menntaorðunnar árið 2009.
Hver er hann?
Morgunblaðið/Björn Jóhann
Leiðsögn Friðrik segir mikilvægt að leiðsögumenn séu vel menntaðir
og hafi góða þjálfun, þá sérstaklega með tilliti til öryggismála.
Alþjóðlegi blóðgjafadagurinn er
haldinn hátíðlegur 14. júní ár hvert,
en dagurinn er haldinn til heiðurs
blóðgjöfum um heim allan sem gefa
af óeigingirni blóð og blóðhluta sem
síðan er gefið til sjúkra. Dagurinn
var valinn til heiðurs Karl Land-
steiner, sem fæddist á þessum degi,
en hann innleiddi ABO-blóð-
flokkakerfið árið 1900.
Í fréttatilkynningu frá Blóðgjafa-
félagi Íslands, sem send var af þessu
tilefni segir að mikil þörf sé á að
fjölga blóðgjöfum, og að því sé til-
valið að nýta þennan hátíðisdag til
að ganga í hóp „vaskrar sveitar blóð-
gjafa sem tryggja samfélaginu dýr-
mætt framboð af blóði og blóð-
hlutum. Án framlags okkar góðu
blóðgjafa yrði erfitt, jafnvel ómögu-
legt, að framkvæma skurðaðgerðir
og aðstoða einstaklinga í gegnum
erfið veikindi,“ segir í tilkynningu
félagsins.
Þar kemur einnig fram að sum-
artíminn reynist gjarnan erfiður fyr-
ir starfsemi Blóðbankans þar sem
ferðalög eru tíðari og blóðgjafar síð-
ur heima við en annars. Bankinn
þarf 70 blóðgjafir á dag allan ársins
hring til þess að anna eftirspurn, og
því sé dýrmætt þegar blóðgjafar
muni eftir að gefa blóð áður en þeir
halda í sumarfrí.
Í tilkynningunni segir að ekki
verði slegið upp garðveislu að
Snorrabraut 60 vegna kórónuveiru-
faraldursins, en blóðgjafar, og fólk
sem hefur áhuga á því að bætast í
hóp blóðgjafa, eru hins vegar hvattir
til þess að mæta í Blóðbankann að
Snorrabraut 60 eða á 2. hæðina að
Glerártorgi á Akureyri og láta gott
af sér leiða. sgs@mbl.is
Morgunblaðið/Hari
Blóðbankinn Alþjóðlegi blóðgjafadagurinn er í dag, en brýn þörf er á því
að fjölga blóðgjöfum á Íslandi að sögn Blóðgjafafélags Íslands.
Mikil þörf á að
fjölga blóðgjöfum