Morgunblaðið - 14.06.2021, Page 21

Morgunblaðið - 14.06.2021, Page 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JÚNÍ 2021 Elskuleg tengda- móðir okkar Þóra er farin frá okkur. Þóra kom inn í líf okkar tengda- barnanna á ólíkum tímum. Þó að hvert okkar hafi átt sitt samband við Þóru var upplifun okkar af henni samt að mörgu leyti svipuð. Það er vegna þess að fyrir okkur ut- anaðkomandi var Þóra mið- punktur fjölskyldunnar. Þóra skipulagði fleiri fjölskyldusam- verustundir en við áttum að venjast úr okkar fjölskyldum. Það var sama hvernig stóð á, í nánast hverri viku fengum við boð í vel útilátin matarboð eða stórskemmtileg spilakvöld. Það einkenndi Þóru líka að hún gerði aldrei neitt með hang- andi hendi. Þegar maður mætti í téð matarboð voru skólaverkefni á eldhúsborðinu því hún var að undirbúa kennslu. Svo var borð- að, spilað, hlegið og gengið frá. Þegar gestirnir voru að fara þá voru skólaverkefnin dregin fram aftur og unnið meira í þeim því Þóra gat ekki látið frá sér neitt verk nema að vera búin að leggja sig alla í það. Skipti þá litlu hvort um var að ræða vinnutengd málefni eða skipu- lagningu á leikjum fyrir fjöl- skylduna. Hjálpsemi og dugnaður henn- ar var ótrúlegur. Fyrir fjöl- skyldubrúðkaup síðasta sumar eyddi hún viku í undirbúningi og stjórnaði öllu eins og herfor- ingi. Þegar fór að líða á nóttina og gestir fóru að tínast heim sendi hún brúðhjónin heim því hún skyldi taka til. Morguninn eftir þegar fyrstu hetjurnar mættu til að taka til gengu þær í flasið á Þóru sem var langt kom- in með fráganginn. Síðust heim. Fyrst mætt daginn eftir. Einnig höfum við fundið hve mikið börn Þóru reiddu sig á hennar ráð og visku. Hvort sem verið var að taka ákvörðun um íbúðarkaup eða saltmagn í la- sagna var algengt að heyra: „Ég held ég hringi í mömmu.“ Og aldrei sáu þau eftir því. Þóra og Bjarni festu kaup á bústað fyrir þremur árum. Við teljum að kaupin á bústaðnum lýsi persónuleika Þóru að ein- hverju leyti. Bústaðurinn er mjög stór en það þarf að vinna mikið í honum. Þarna sést sú forgangsröðun að það skipti minna máli þó það þyrfti að vinna daga og nætur við að koma bústaðnum í lag ef hægt var að bjóða fleira fólki í bústað- inn. Óhugsandi var að kaupa til- búnari en minni bústað sem fjöl- skyldan kæmist ekki öll í. Að lokum viljum við minnast á það skopskyn sem hún nýtti óspart á tengdabörnin. Þegar tengdamóðir manns er dug- legasta og greiðviknasta mann- eskja sem maður þekkir vill maður alls ekki bregðast henni. Þá átti Þóra það til að biðja mann, svipbrigðalaust, um að gera eitthvað sem við nánari skoðun var fáránlegt. Þegar tengdabörnin höfðu svo hlaupið upp til handa og fóta til að hjálpa þá braust fram hinn ein- kennandi hlátur Þóru sem smit- aði svo út frá sér. Kærar þakkir fyrir samfylgd- ina, Þóra. Þín verður sárt sakn- að í fjölskyldunni. Nú mun taka við fjöldaátak að fylla í það risa- stóra skarð sem þú hefur skilið eftir í fjölskyldunni. Þín tengdabörn, Niels, Jóhannes og Særún. Jóhannes Ingi Torfason, Niels Lynggaard, Særún Anna Traustadóttir Þóra Víkingsdóttir ✝ Þóra Víkings- dóttir fæddist 29. apríl 1958. Hún lést 31. maí 2021. Útförin fór fram 12. júní 2021. Mánudaginn 31. maí hringdi Sessý vinkona í mig og færði mér þær hræðilegu fréttir að Þóra vinkona okkar væri látin. Hún hafði orðið bráð- kvödd um morgun- inn. Við svona frétt- ir bregður manni óskaplega og upplif- ir sterkt hversu stutt er á milli lífs og dauða. Þá erum við minnt á mikilvægi þess að lífið er núna. Það er óréttlátt að Þóra sé farin frá sinni fjöl- skyldu, manni, börnum og barnabörnum. Kennslunni í skólanum nýlokið og sumarið á næsta leiti. Ég kynntist Þóru í gegnum Sessý vinkonu okkar fyrir um 50 árum, þegar við vor- um 13 ára. Við vorum allar í Hvassaleitisskóla og bjuggum því í næsta nágrenni hver við aðra. Við þrjár eyddum mörgum skemmtilegum stundum saman og sérstaklega á menntaskóla- árunum. Sessý og Þóra voru í MS en ég var í MH, fórum við saman á skólaböll, vorum í saumaklúbb, fórum mikið í bíó eða eyddum tíma heima hvor hjá annarri, bæði að spila eða jafn- vel prjóna. En Þóra var mjög flink í höndunum. Útþráin var einnig mikil og fórum við á interrail 18 ára og heilluðumst þá af Kaupmannahöfn, Amster- dam og París. Sumarið eftir fór- um við síðan til Gotlands og unn- um þar allt sumarið. Þessi tvö sumur voru eftirminnileg og æv- intýraleg og rifjuðum við alltaf upp þegar við hittumst síðar minningar og eftirminnileg atvik frá þeim tíma. Við gátum hlegið mikið að uppátækjum okkar og skemmtilegum atvikum sem gerðust þá. Þó að leiðir okkar þriggja hafi ekki alltaf legið saman eftir menntaskóla þá hafa vináttuböndin aldrei rofnað. Þóra var alltaf góð vinkona, mjög traust og trygglynd. Mér fannst sextugsafmæli Þóru end- urspegla svo vel hennar líf, þar sem var hennar frábæra fjöl- skylda og margir vinir, þar ríkti gleði og mikil tónlist, frábær gestrisni og örlæti. Ég þakka fyrir að hafa átt Þóru að vin- konu. Ég votta Bjarna, börnum þeirra og barnabörnum og systkinum hennar mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Sigríður Einarsdóttir Laxness. Síminn hringir á hversdags- legum mánudegi og mér er sagt að Þóra vinkona mín hafi verið bráðkvödd þann morgun. Hug- urinn nemur þetta ekki í fyrstu, svo óraunveruleg er þessi frétt. Svo síast þetta smátt og smátt inn, sorgin hellist yfir og maður er illþyrmilega minntur á hverf- ulleika lífsins. Við Þóra kynntumst þegar við lentum í sama bekk á þriðja ári í Menntaskólanum við Sund og urðum við og besta vinkona hennar Sessý fljótlega miklar vinkonur. Ég laðaðist strax að Þóru, hún var skemmtileg, hæg- lát og klár með ríka réttlætis- kennd og stórt hjarta. Eftir menntaskólann fórum við svo saman að kenna í Grunnskóla Eskifjarðar og vorum þar eitt skólaár. Við vildum báðar standa okkur vel og snerist lífið meira og minna um það að undirbúa sig fyrir kennsluna og kenna. Þrátt fyrir mikla vinnu vorum við báðar mjög ánægðar með dvölina í þessu litla sjávarplássi, lífið var einfaldara og nutum við einfaldleikans. Í hádeginu keyptum við t.d. alltaf heilhveiti- brauð í kaupfélaginu og borð- uðum það með sardínum í tóm- atsósu, ekkert verið að flækja málið. Þóra sagði við mig nýlega að hún myndi svo sterkt eftir því hvað hún hefði fundið fyrir mik- illi ró og friði þegar við keyrðum inn til Eskifjarðar eftir að hafa farið í jólafrí til Reykjavíkur. Á Eskifirði tengdumst við sterkum vináttuböndum sem aldrei hefur borið skugga á. Þegar kennsl- unni lauk fórum við svo í þriggja mánaða bakpokaferðalag um Evrópu með Sessý. Við flugum til margra af stórborgum Evr- ópu en eftirminnilegastur er tíminn á grísku eyjunum. Þar nutum við sólarinnar, góðs mat- ar og víns, syntum í sjónum og það var mikið hlegið. Algjört frelsi. Það var gott að ferðast með Þóru, aldrei neitt vesen, alltaf úrræðagóð ef upp komu vandamál og alltaf til í að prófa eitthvað nýtt. Ég held að þessi ferð hafi verið sú skemmtileg- asta sem ég hef farið og er hún sveipuð ævintýraljóma. Eftir þetta ævintýrasumar lá leið okkar Þóru í líffræðina við HÍ. Ég er mjög heppin að hafa verið samferða henni í gegnum líffræðinámið. Við vorum hvor- ugar miklir stígvélalíffræðingar en höfðum meiri áhuga á frumu- líffræði og erfðafræði. Það var gott og skemmtilegt að læra með Þóru, hún var mjög góður námsmaður og gafst ekki upp fyrr en hún skildi hlutina. Á háskólaárunum fórum við að leigja saman með Sessý og Ingibjörgu. Þar var oft glatt á hjalla og ógleymanlegar eru ferðirnar á Borgina. Á þessum tíma kynntist Þóra Bjarna sín- um sem varð fljótt samleigjandi. Þau tvö voru eins og sköpuð fyr- ir hvort annað, bæði róleg og miklir pælarar og áttu eftir að ganga saman lífsins veg. Þóra og Bjarni eignuðust þrjú börn, Þóru Hrund, Völu og Kára sem öll bera merki góðs atlætis. Þóra sinnti sínum nánustu af mikilli alúð og var alltaf til staðar fyrir þau. Börnin og barnabörnin voru augasteinar hennar. Elsku stórfjölskylda, hugur minn er hjá ykkur á þessum erf- iðu tímum, missir ykkar er mik- ill. Það eru erfið skref að fylgja Þóru síðasta spölinn, við áttum svo margt eftir ógert, en minn- ingin um yndislega vinkonu mun lifa í huga mínum og hjarta. Unnur Þorsteinsdóttir. Djúp og varanleg vinátta er dýrmætari en veraldlegar viðurkenningar, og allt heimsins gull og silfur. (Sigurbjörn Þorkelsson) Þetta líf, þetta undarlega líf sem er aldrei fyrirséð og kemur með hæðum og lægðum, eins og nú þegar sorgin bankar upp á, án nokkurs fyrirvara. Sorgin er hluti af lífinu, sem fylgir því að hafa þótt vænt um og elskað. Henni fylgir söknuður og eftirsjá þess sem hefði getað orðið, harmur, sársauki og erf- iðar tilfinningar. Þóra vinkona mín hefur kvatt mjög skyndilega og óvænt. Það síðasta sem okkur fór á milli var er hún sagði „ég er að detta inn í sumarfrí og þá gerum við eitt- hvað skemmtilegt,“ og það var tilhlökkunarefni hjá mér. Ég kynntist Þóru þegar við vorum nemendur í HÍ, í líffræði, og úr varð vinskapur sem aldrei bar skugga á. Við leigðum sam- an nokkrir háskólanemar og Bjarni. Mikið var þetta yndisleg- ur tími og skemmtilegur. Þá kynntist ég mannkostum Þóru sem voru margir og góðir. Hún var vel gefin, yfirveguð, sam- viskusöm og skipulögð. Hún var skemmtileg, þrjósk, rökföst, dugnaðarforkur sem alltaf var með eitthvað á prjónunum. Snill- ingur í matargerð og vinur vina sinna. Hún kynntist Bjarna sínum á þessum tíma og úr varð eining sem aldrei slitnaði og stóð sterk og stolt alla tíð. Bjarni, þrjú mannvænleg börn, tengdabörn og barnabörn hafa í dag misst mikið. Þóra elskaði fólkið sitt, dekraði við það og uppskar í samræmi við það. Það verða aðrir sem gera ævi- ferlinum betri skil en mig lang- aði að leiðarlokum að þakka kærri vinkonu fyrir samfylgdina og það sem hún var mér og mín- um. Góðu minningarnar munu lifa. Elsku Bjarni, Þóra Hrund, Valgerður, Kári Kristinn og Sveinbjörg, og aðrir aðstand- endur. Við fjölskyldan sendum ykkur öllum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Ingibjörg, Jón Þrándur, Halldóra, Arnar og Haukur. Fyrir hönd kennara og ann- arra starfsmanna við Mennta- skólann við Sund rita ég með sorg í hjarta stutta kveðju um eftirminnilega samstarfskonu. Þóra Víkingsdóttir var mikil skólakona þrátt fyrir að hafa að- eins eytt hluta starfsferilsins sem kennari. Hún var í raun alla tíð „ungur“ kennari, ávallt upp- full af hugmyndum og lagði mik- ið upp úr því að þróa kennsluað- ferðir og verkefni nemenda. Hún hafði mikinn metnað fyrir námi nemenda sinna og var ann- áluð fyrir útsjónarsemi sína og stórhug þegar hún vildi kveikja áhuga nemenda sinna á mikil- vægum viðfangsefnum, eftir standa margar eftirminnilegar kennslustundir sem nemendur munu seint gleyma. Þóra sætti sig aldrei við neitt hálfkák í því sem hún tók sér fyrir hendur og var sinn eigin harðasti gagnrýn- andi þegar eitthvað fór ekki eins og til stóð, jafnan fór þó svo að hún komst á áfangastað og fann nýja leið til þess að kveikja neistann. Þóru verður sárt saknað í starfsmannahópnum, fyrir suma var hún sannkallaður mentor en fyrir okkur öll í MS var hún ein þeirra sem stráðu gleði og visku í okkar góða hópi. Þóra var allt- af tilbúin að gefa af sér og leggja mikið á sig til að skipuleggja leiki og uppákomur sem vöktu kátínu hjá samstarfsfólkinu, það verður ekki auðvelt að fylla í það skarð. Á stundum sem þessari erum við minnt á það með afgerandi hætti að lífið er það dýrmætasta sem við eigum og því er gott að lifa því lifandi og í þakklæti fyrir hvern dag. Kæri Bjarni, börn og barnabörn, hugur okkar er hjá ykkur og við sendum ykkur samúðarkveðjur og styrk í sorg- inni. Helga Sigríður Þórsdóttir, rektor Menntaskólans við Sund. Okkur líffræðikennara við MS langar til að segja nokkur orð í minningu elsku Þóru sem við misstum svo skyndilega. Þóra var fagstjóri líffræði- deildarinnar þegar við Guðbjörg komum til starfa og hafði hún ávallt brennandi áhuga á kennslufræðunum. Hún var stöðugt að þróa námið og alltaf óhrædd við að prófa eitthvað nýtt. Þar vorum við algerlega á sömu línu enda fóru umræður okkar um námið oft á flug og urðu gjarnan lengri en upphaf- lega stóð til. Því má með sanni segja að Þóra hafi verið á réttri hillu þegar hún kom sterk inn sem verkefnisstjóri starfenda- rannsókna í MS. Þar fengu þeir kennarar sem vildu tækifæri til að ræða eigin tilraunir, sigra og ósigra í faglegu, öruggu og hvetjandi umhverfi. Þá fengu allir faglega endurgjöf, hrós, klapp á bakið, kaffi og með því – döðluköku með heitri karamellu- sósu þegar Þóra var í stuði. Þóra var fagmaður fram í fingurgóma og hafði mikinn metnað fyrir hönd líffræðideildarinnar og skólans. Á sama tíma var hún mjög uppátækjasöm og setti nemendum fyrir ýmis skapandi og krefjandi verkefni eins og t.d. samningu leikþáttar eða rapp- lags um undraveröld frumunnar. Sköpunargleði Þóru blómstraði einnig í starfsmannafélaginu en þar skipulagði hún m.a. eftir- minnilegan ratleik sem olli al- mennum æsingi, töluverðum spenningi, kátínu og jafnvel hryllingi meðal ónefndra starfs- manna. Við erum miður okkar yfir þessum ótímabæra missi en er- um á sama tíma þakklátar fyrir að hafa fengið tækifæri til að vinna með Þóru, við tökum margt úr því samstarfi með okk- ur inn í framtíðina. Við sendum okkar innilegustu samúðarkveðjur til fjölskyldu Þóru. Fyrir hönd líffræðideildarinn- ar við Menntaskólann við Sund, Brynja Gunnlaugsdóttir og Guðbjörg Ásta Stefánsdóttir. Andlát Þóru vinkonu minnar kom eins og reiðarslag! Fráfall hennar er svo óendanlega sárt og ótímabært. Á svona stundum er ómögulegt að átta sig á til- gangi lífsins. Ég kynntist Þóru haustið 2010 en þá vorum við báðar nýir kennarar í Menntaskólanum við Sund. Við spjölluðum nokkrum sinnum saman í upphafi skóla- ársins og ég fann strax að þetta var kona sem mig langaði til að kynnast betur. Einn morguninn þegar ég stóð við upplýsingatöfl- una á kaffistofunni og var að lesa auglýsingu um væntanlega jólagleði starfsmannafélagsins kom Þóra til mín og spurði: „Hvað segirðu um að við verðum með atriði á jólagleðinni?“ Mér fannst þetta skemmtileg hug- mynd hjá þessari nýju sam- starfskonu minni og sagði auð- vitað já! Upp frá þessu urðum við góðar vinkonur. Mér finnst þetta atvik við upplýsingatöfluna lýsa Þóru vel. Hún var alltaf til í glens og grín og alls konar leikir og þrautir voru hennar ær og kýr. Enda varla haldin starfsmannagleði eða starfsmannaferð í MS án þess að Þóra stjórnaði einhverj- um leik til að hrista hópinn sam- an. Nokkru seinna bættist kær vinkona í okkar hóp, hún Jónína sem kenndi félagsfræði í MS. Hún lést langt fyrir aldur fram fyrir tveimur árum, við söknuð- um hennar mikið. Við Þóra áttum það sameig- inlegt að fara seint í kennslu- réttindanám og vorum því að stíga okkar fyrstu spor í kennsl- unni á miðjum aldri, með margra ára starfsreynslu á öðr- um vettvangi. Þrátt fyrir að kenna ólík fög, hún líffræði og ég hagfræði, náðum við einstak- lega vel saman. Við vorum dug- legar að prófa okkur áfram í kennsluaðferðum, bera saman bækur og skiptast á skoðunum og hugmyndum. Ég mun sakna þessara fróðlegu og skemmti- legu spjallstunda með Þóru. Þóra naut þess að kenna og var alltaf að þróa námsefni, kennsluaðferðir og námsmat til að ná sem best til nemenda sinna. Einn veturinn vorum við á námskeiði í samvinnunámi og vorum látin kynna verkefnin okkar með ýmsum hætti eins og að rappa, vera með leikþátt o.s.frv. Þóra fór þá að mæta með tösku í kennslustundir hjá sér fulla af alls konar búningum, leikmunum og hljóðfærum sem nemendur máttu nota til að lífga upp á kynningarnar sínar. Ég sé hana alveg fyrir mér hlæjandi með sínum skemmtilegu bakföll- um þegar hún lýsti viðbrögðum nemenda sinna við þessu uppá- tæki. Hún Þóra mín kunni sann- arlega að gefa lífinu lit! Skólaheimsóknirnar sem við fórum saman með MS til útlanda eru ógleymanlegar, þá deildum við Þóra gjarnan herbergi og það sem við gátum spjallað og hlegið. Margar dásamlegar minningar skjóta upp kollinum þegar ég hugsa til þessara ferða. Ferðin til Toronto í Kanada 2019 var öðruvísi en hinar að því leyti að mennirnir okkar komu með. Við Gummi áttum margar notalegar stundir með Þóru og Bjarna í þessari ferð sem dýr- mætt er að eiga í minningunni. Ég er þakklát fyrir árin með elsku Þóru minni í MS, mikið verður tómlegt að hefja nýtt skólaár í haust án hennar. Bless- uð sé minning yndislegrar vin- konu. Elsku Bjarni og fjölskylda, mínar innilegustu samúðar- kveðjur til ykkar allra. Dóra. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRÓLFUR PÉTURSSON, bóndi á Hjaltastöðum, lést á heimili sínu þriðjudaginn 8. júní. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Skagafjarðar. Anna Jóhannesdóttir Sigurður Þ. Þórólfsson Sigríður S. Þórólfsdóttir Ragnheiður Þórólfsdóttir Hafdís Huld Þórólfsdóttir Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir Helga Björg Þórólfsdóttir Pétur Óli Þórólfsson tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, REIMAR ALFREÐ ÞORLEIFSSON, Bjarkarbraut 25, Dalvík, lést miðvikudaginn 9. júní. Útförin fer fram frá Dalvíkurkirkju föstudaginn 18. júní kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarstofnanir. Guðlaug Antonsdóttir Dóróþea G. Reimarsdóttir Viðar Kristmundsson Anna Lilja Reimarsdóttir Kristinn Brynjólfsson Þorleifur Albert Reimarsson Gunnar Örn Reimarsson Bjarney Anna Sigfúsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.