Morgunblaðið - 14.06.2021, Qupperneq 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JÚNÍ 2021
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Það er sjálfsagt að velta fyrir sér
öllum möguleikum áður en þú ákveður
nokkuð um framhaldið. Morgundagurinn
verður mun betri.
20. apríl - 20. maí +
Naut Samræður munu snúast um allt
annað en hagnýta hluti í dag. Taktu af
dagskránni þá liði sem þér leiðast.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Þú þarft að hrista af þér slenið,
bretta upp ermarnar og taka þinn þátt í
því sem gera þarf. Settu markið hátt.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Einhver kemur þér skemmtilega á
óvart svo taktu þátt í gamninu. Líkur eru
á því að athyglin beinist að þér og því
gott að vera undir það búinn.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú ert að skilja uppeldiseðlið í þér
og byrjar að gefa fólki vinaleg ráð í stað
þess að ráðskast með það. Eitthvað ger-
ist sem breytir sýn þinni á veröldina.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Nú væri gott að koma skipulagi á
líf sitt. Leitaðu ráða hjá góðum vini og þá
mun allt liggja ljóst fyrir.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Ævintýrin bíða þín handan hornsins
og það er ekkert annað að gera en að
drífa sig og njóta þess að vera til.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Ekki reiðast fólki sem er
bara kunningjar þínir. Haltu ótrauður
áfram, þú finnur lykilinn að hamingjunni á
ólíklegustu stöðum.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Sú áætlun sem menn ætla
þér að fylgja er of áhættusöm fyrir þig.
Hnýttu lausa enda varðandi tryggingar,
erfðamál og sameiginlegar eignir.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Eitthvað það liggur í loftinu
sem gerir þig óöruggan. Haltu þínu striki
og þá mun allt fara vel.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Hugmyndirnar þyrlast í kring-
um þig og það er ósköp gaman. Fílaðu
það sem aðrir fíla ekki, hlýddu innsæinu
og taktu að þér málstaði sem enginn
kærir sig um.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Það getur hent sig illa ef þú reyn-
ir að leika einhvern einleik þegar sá ár-
angur sem við blasir er verk margra
manna. Taktu þér stund á hverjum degi
og gefðu ímyndunaraflinu lausan taum-
inn.
50 ÁRA Einar Bjarki
Guðmundsson fæddist í
Hafnarfirði 13. júní 1971.
Hann hóf skólagönguna í
gamla Kató, en var svo í
Öldutúnsskóla til út-
skriftar árið 1987. Hann
fór sem skiptinemi til
Bandaríkjanna árið
1988-89 og útskrifaðist
frá Hótel- og veitinga-
skólanum vorið 1994 og
lauk seinna MBA-námi
frá GLION í Swiss árið
2013. „Ég var svo hepp-
inn að komast undir leið-
sögn Gísla Thoroddsen
matreiðslumeistara og
strákanna í Óðinsvéum og síðan hef
ég ekki litið upp frá matargerðinni,
sem er krefjandi en einnig skapandi
vinna. Einar fluttist til Bandaríkj-
anna eftir sumar í Frakklandi, þar
sem hann vann á þriggja stjörnu
Michellin-veitingastað og hefur búið
þar síðan haustið 1994. „Ég kynntist
ungri stúlku þegar ég var skiptinemi
og það kom ekkert annað til greina
en að elta hana og hef síðan verið svo
heppinn að hafa verið kvæntur henni
í 28 ár.“
Einar starfaði sem kokkur, yf-
irkokkur og veitingastjóri á nokkr-
um veitingastöðum og lúxushótelum
í New York, South Carolina,
Georgia, Virginia og Alabama. Í dag
er hann prófessor við University of
North Alabama og kennir mat-
reiðslu og veitingarekstur. Hann
býr með eiginkonu og einum ketti í
Athens í Alabama, en börnin eru
flutt að heiman.
FJÖLSKYLDA
Einar Bjarki kvæntist Amöndu
Jean Guðmundsson árið 1993, en
hún kennir sögu í menntaskóla og er
fædd 31.7. 1972. Börn þeirra eru
Sigurður John Einarsson, f. 17.7.
1996, og Anja Björk Einarsdóttir, f.
30.11. 2000. Foreldrar Einars
Bjarka eru Guðmundur Lárusson
húsasmíðameistari, f. 14.4. 1931, og
Unnur Einarsdóttir hjúkrunarfræð-
ingur, f. 12.6. 1934. Þau búa í Hafn-
arfirði.
Einar Bjarki Guðmundsson
S
veinn Snorri Sighvatsson
fæddist 14. júní 1971 í
Reykjavík og þegar
hann var fimm ára gam-
all flutti fjölskyldan í
Garðabæinn þar sem hann ólst
upp. „Ég var í sveit hjá móð-
ursystur minni á Raufarhöfn og
þar náði ég í þessa náttúru sem ég
er svo hrifinn af. Ég elskaði að
vera í sveitinni, veiða minka og sil-
ung. Ég var þarna fleiri sumur og
þar hófst hrifning mín af landinu
okkar fagra.
Áföll leiddu til ákvörðunar
Sveinn gekk í Hofsstaðaskóla í
tvö ár og fór þaðan í Flataskóla og
síðan í unglingadeildina í Garða-
skóla. „Vinafólk foreldra minna bjó
í Aratúninu og foreldrar mínir
fluttu í sömu götu. Þar kynntist ég
æskuvini mínum, Ívari Helga Ósk-
arssyni, en við vorum miklir vinir í
gegnum æskuna, enda vorum við í
sama bekk í gegnum skólakerfið al-
veg upp í Fjölbrautaskólann í
Garðabæ. Sveinn átti þó eftir að
upplifa mikla sorg, en Ívar Helgi
lést árið 1991 og var það mikill
harmdauði. Fleiri vinir og kunn-
ingjar hans létust langt fyrir aldur
fram, og árið 2011 voru fimm úr
vinahópnum látnir. Það hafði djúp-
stæð áhrif á Svein. „Ég segi alltaf
að það hafi markað mig fyrir lífstíð
og gert það að verkum að ég sá að
ég yrði að ákveða hvernig ég ætl-
aði að lifa lífinu. Ég ákvað að njóta
augnabliksins bara hér og nú, því
eftir allan þennan missi, þá horfi
ég á lífið allt öðruvísi og vil njóta
hverrar mínútu sem ég hef. Þannig
lifi ég lífinu enn þann dag í dag og
ég geri ekkert sem er leiðinlegt
heldur einbeiti mér að því sem ég
hef gaman af.
Sveinn byrjaði í Fjölbrautaskól-
anum í Garðabæ en færði sig yfir í
Fjölbrautaskólann í Breiðholti og
lærði rafvirkjun með áherslu á
ensku. „Ég var svolítið að ströggla
í náminu á þessum tíma, og tók
mér pásu og lauk náminu seinna og
fór þá líka í eitt ár í ensku í Há-
skólann í Reykjavík. Í náminu var
ég að vinna hjá Samútgáfunni
Korpus sem gaf út tímarit og var
að taka ljósmyndir og fara í sendi-
ferðir og fleira. Ég fann að sá
hreyfanleiki og fjölmiðlunin átti vel
við mig, en ég get ekki hugsað mér
að sitja við skrifborð heilu og hálfu
dagana. Ég var síðan aðeins að
vinna við rafvirkjun, en fann mig
ekki þar. Fjöllin og ævintýra-
mennskan kölluðu alltaf í mig.“
Sveinn byrjaði að vinna í útvarpi
1988 og var lengst á Bylgjunni og
var með ýmsa þætti, t.d. Reykjavík
síðdegis með Þorgeiri Ástvalds og
Hvata (Sighvati Jónssyni). „Starfið
var fjölbreytt og fjölmiðlun átti vel
við mig að mörgu leyti, en það var
mikill hraði sem mér fannst gam-
an, en eftir á að hyggja var hrað-
inn kannski of mikill.“ Sveinn hélt
alltaf tengslum við íslenska náttúru
og var í Hjálparsveit skáta í
Garðabæ og Björgunarhundasveit
Íslands frá 1990 fram að 2007, auk
þess að vera í Oddfellow. „Ég
hætti í fjölmiðlun árið 2003 og fór
að vinna sem öryggisráðgjafi og
sölustjóri, en árið 2010, eftir krepp-
una miklu, tók ég snarpa beygju og
gerðist leiðsögumaður. Þar finn ég
mig og vissi að fara um Ísland með
fólki og vera úti í náttúrunni var
lífið sem ég vildi lifa.“
Núna þegar þjóðin og allur
heimurinn var í einangrun í heima-
húsum og margir orðnir ansi fram-
lágir sá Sveinn tækifærið í stöð-
unni, og smíðaði hlaðvarpsstúdíó.
„Já, ég og Linda Baldvins, sem er
pistlahöfundur á Morgunblaðinu
líka, erum með hlaðvarpið 180
gráður Lindu og Svenna og hægt
er að hlusta á það á hlaðvarpi
Morgunblaðsins og á Spotify.
Berrassaður í eldgosi
Sveinn komst í fréttir fyrr á
árinu þegar myndir af honum ber-
rössuðum við gosið í Geldingadal
fóru eins og eldur í sinu á Tik Tok
út um heiminn. „Við vorum á
þriðja degi uppi við gosstöðvar,
margir leiðsögumenn og allir at-
vinnulausir eftir Covid. Það voru
líklega 500 manns í fjallinu að
horfa á gosið. Ein góð vinkona mín
hnippir í mig og segir að það væri
nú flott að láta taka af sér myndir
nöktum með gosið í baksýn. Það
þurfti ekki að segja mér það aftur,
þvílík er hvatvísin, og ég hugsaði
hvað gæti verið meira "extreme" en
að vera nakinn með sólgleraugu að
pósa með eldglæringarnar í bak-
sýn. Svo ég reif mig úr fötunum,
henti sólgleraugunum á nefið og
stillti mér upp. Einhver tók þetta
upp á Tik Tok og það fór hringinn
um jörðina á innan við sekúndu.
Sveinn Snorri Sighvatsson leiðsögumaður og hlaðvarpsstjórnandi – 50 ára
180 gráður Lindu og Svenna Sveinn Snorri byggði hlaðvarpsstúdíó í kófinu.
Geri ekkert sem er leiðinlegt
Í heimspressunni Þetta er myndsem birtist m.a. á CNN og fleiri frétta-
miðlum þegar Sveinn Snorri kom fram nakinn í gosinu í Geldingadal.
Til hamingju með daginn
Þór
bærin
g
Alla v
irka d
aga fr
á 10-1
4