Morgunblaðið - 14.06.2021, Síða 27

Morgunblaðið - 14.06.2021, Síða 27
ar bandarísku Regan Smith, um 12 sekúndubrot. McKeown synti á 57,45 sekúndum. _ Serbinn Novak Djokovic vann Opna franska mótið í tennis eftir sigur í hörkuúrslitaeinvígi gegn Grikkjanum Stefanos Tsitsipas í gær. Djokovic vann leikinn 3:2 eftir að hafa tapað fyrstu tveimur settunum, 6:7 (6:8 eftir upphækkun) og 2:6. Því næst vann hann þrjú í röð, 6:3, 6:2 og 6:4, en ein- vígið tók alls rúmar fjórar klukku- stundir. _ Aron Pálmarsson varð Evr- ópumeistari í handbolta í þriðja sinn er Barcelona vann öruggan 36:23-sigur á Álaborg í úrslitaleik í Köln í gær. Aron skoraði ekki fyrir Barcelona. Arnór Atlason er aðstoð- arþjálfari Álaborg- ar. Er þetta í fyrsta skipti sem Aron vinnur Evróputit- ilinn með Barce- lona. _ Knatt- spyrnudeild Stjörnunnar hefur samið við danska miðjumanninn Casper Sloth og mun hann spila með liðinu síðari hluta tímabilsins. Sloth á níu A-landsleiki að baki fyrir Danmörku. Fótbolti.net greinir frá. Hann hefur á ferlinum spil- að á Bretlandseyjum, þar á meðal fyrir Leeds United. _ Körfuknattleiksmaðurinn Júlíus Orri Ágústsson heldur vestur um haf og spilar með liði í Bandaríkjunum á næstu leiktíð en hann er á leiðinni í há- skóla þar í landi. Það er Karfan.is sem greinir frá fréttunum og segir að Júlíus sé á leiðinni í Caldwell-háskólann í New Jersey. _ Körfuknattleikskonan Thelma Dís Ágústsdóttir er á leiðinni aftur til Bandaríkjanna en hún spilaði með Keflavík í undanúrslitunum á Íslands- mótinu í sumar. Thelma Dís var við nám í Ball State-háskólanum í Indiana en útskrifaðist á dögunum. Hún sneri svo heim til að leika með Keflavík í úr- slitakeppninni en er nú á leið aftur til sama skóla í meistaranám. _ Körfuknattleiksdeild Hauka hefur gengið frá ráðn- ingu á Máté Dalmay og tekur hann við karlaliði félagsins. Haukar féllu úr efstu deild í vetur. Máté kem- ur til Hauka frá Hamri þar sem hann hefur tvö síð- ustu ár verið nálægt því að koma liðinu upp í efstu deild. _ Knattspyrnuþjálfarinn Milos Miloj- evic hefur tekið við sænska úrvals- deildarfélaginu Hammarby. Milos hef- ur stýrt Breiðabliki og Víkingi úr Reykjavík hér á landi og m.a. verið að- stoðarþjálfari Rauðu stjörnunnar í Serbíu og aðalþjálfari Mjällby í Svíþjóð. ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. JÚNÍ 2021 KNATTSPYRNA Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin: Domusnova-völlur: Leiknir R. – KR .. 19.15 1. deild karla, Lengjudeildin: Hásteinsvöllur: ÍBV – Þór........................ 18 Í KVÖLD! Úrslitakeppni karla Undanúrslit, oddaleikur: Þór Þ. – Stjarnan.................................. 92:74 _ Þór Þ. sigraði 3:2 og leikur til úrslita við Keflavík um meistaratitilinn. Umspil kvenna Fimmti úrslitaleikur: Njarðvík – Grindavík ........................... 68:75 _ Grindavík sigraði 3:2 og leikur í úrvals- deildinni á næsta tímabili. Úrslitakeppni NBA Austurdeild, undanúrslit: Atlanta – Philadelphia ..................... 111:127 _ Staðan er 2:1 fyrir Philadelphia. Milwaukee – Brooklyn ....................... 107:96 _ Staðan er 2:2. Vesturdeild, undanúrslit: Denver – Phoenix ............................. 102:116 _ Staðan er 3:0 fyrir Phoenix. LA Clippers – Utah.......................... 132:106 _ Staðan er 2:1 fyrir Utah. >73G,&:=/D Meistaradeild karla Undanúrslit: Barcelona – Nantes ............................. 31:26 - Aron Pálmarsson var ekki í leikmanna- hópi Barcelona. París SG – Aalborg.............................. 33:35 - Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Aal- borg. Úrslitaleikur: Barcelona – Aalborg........................... 36:23 - Aron Pálmarsson skoraði ekki fyrir Barcelona. Leikur um bronsverðlaun: París SG – Nantes ................................ 31:28 Þýskaland RN Löwen – Melsungen...................... 31:22 - Ýmir Örn Gíslason skoraði 1 mark fyrir Löwen. - Arnar Freyr Arnarsson skoraði ekki fyr- ir Melsungen. Guðmundur Þ. Guðmunds- son er þjálfari liðsins. Göppingen – Magdeburg.................... 21:29 - Gunnar Steinn Jónsson skoraði ekki fyr- ir Göppingen. Janus Daði Smárason er frá vegna meiðsla. - Ómar Ingi Magnússon skoraði 4 mörk fyrir Magdeburg en Gísli Þorgeir Krist- jánsson er frá keppni. Coburg – Lemgo.................................. 23:27 - Bjarki Már Elísson skoraði 6 mörk fyrir Lemgo. B-deild: Aue – Gummersbach........................... 29:26 - Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 3 mörk fyrir Aue. Sveinbjörn Pétursson varði 14 skot í marki liðsins. Rúnar Sig- tryggsson þjálfar Aue. - Elliði Snær Viðarsson skoraði 2 mörk fyrir Gummersbach. Guðjón Valur Sigurðs- son þjálfar liðið. Bietigheim – Eisenach........................ 32:35 - Aron Rafn Eðvarðsson varði 5 skot í marki Bietigheim. E(;R&:=/D Noregur Bodö/Glimt – Mjöndalen ........................ 2:0 - Alfons Sampsted lék allan leikinn með Bodö/Glimt. Kristiansund – Odd ................................. 2:0 - Brynjólfur Willumsson kom inn á sem varamaður á 73. mínútu og lagði upp mark fyrir Kristiansund. Sandefjord – Molde ................................. 1:3 - Viðar Ari Jónsson lék fyrstu 73 mínút- urnar með Sandefjord. Sarpsborg – Brann .................................. 0:0 - Emil Pálsson lék allan leikinn með Sarpsborg. Strömsgodset – Rosenborg .................... 2:1 - Valdimar Þór Ingimundarson kom inn á sem varamaður á 90. mínútu hjá Ströms- godset en Ari Leifsson var allan tímann á bekknum. - Hólmar Örn Eyjólfsson var allan tímann á bekknum hjá Rosenborg. Viking – Vålerenga ................................. 4:1 - Samúel Kári Friðjónsson lék fyrstu 79 mínúturnar með Viking og skoraði. - Viðar Örn Kjartansson lék ekki með Vålerenga vegna meiðsla. B-deild: Aalesund – Fredrikstad.......................... 2:2 - Davíð Kristján Ólafsson lék allan leikinn með Aalesund og lagði upp mark. Ítalía C-deild Úrslit umspils, fyrri leikur Padova – Alessandria ............................. 0:0 - Emil Hallfreðsson lék fyrstu 84 mínút- urnar með Padova. KNATTSPYRNA MEISTARAMÓT ÍSLANDS Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Glódís Edda Þuríðardóttir úr KFA gerði afar góða hluti á 95. Meist- aramóti Íslands í frjálsíþróttum sem fram fór á Þórsvelli á Akureyri um helgina. Glódís keppti í fimm grein- um, vann í þremur þeirra, tók eitt brons og setti mótsmet í 100 metra grindahlaupi er hún hljóp á 13,43 sekúndum. Hún kom einnig fyrst í mark í 400 metra hlaupi og 400 metra grindahlaupi. Þá fékk hún brons í kúluvarpi. „Ég er mjög ánægð með hvernig þetta gekk, sérstaklega í 100 metra grindinni sem ég hef lagt mikla vinnu í. Ég er að keppa í sjöþraut og ég stefni á hana. Ég er fjöl- þrautakona og keppi því í mörgum greinum,“ sagði Glódís í samtali við Morgunblaðið. Glódís, sem er aðeins 18 ára, segir árangurinn ekki endilega koma sér á óvart. „Þetta kom mér ekki á óvart því ég vissi að ég ætti þetta inni. Ég get svo gert enn betur en ég var mjög glöð með að ná loksins svona góðu hlaupi í 100 metra grindinni. Ég var ekki búin að setja mér tíma- markmið, en ég ætlaði bara að hlaupa eins hratt og ég gat.“ Krefjandi en skemmtilegt Aðstæður voru erfiðar á Akureyri á seinni deginum í gær; blautt og kalt. Þrátt fyrir það hljóp Glódís 400 metra grindahlaup og kom fyrst í mark á 1:01,36 mínútu. „Það var krefjandi og ég er ekki með mikla reynslu. Það var samt sem áður skemmtilegt,“ sagði Glódís og við- urkennir að það hafi tekið á að keppa í fimm greinum á einni helgi. „Ég er þreytt núna og ég viðurkenni að ég var orðin vel þreytt í síðustu grein- inni sem var kúlan. Ég er komin heim að hvíla mig fyrir næsta mót.“ Það eru spennandi tímar fram undan hjá Glódísi og nóg að gera er- lendis. „Ég er að fara í landsliðsferð næstu helgi til Búlgaríu þar sem Evrópubikarkeppni landsliða fer fram. Ég er mjög spennt fyrir því og mun hvíla mig vel þar til að því kem- ur. Svo ætla ég mér að ná lágmörk- um fyrir EM U20 ára og U23 ára og svo HM U20 ára. Þau eru öll í sum- ar. Ég er búin að ná tímanum í 100 metra grindinni en meðvindurinn var aðeins of mikill,“ sagði hún. Glódís segir þjálfarann sinn eiga stóran þátt í velgengninni. „Þetta væri ekki hægt án þjálfara míns, Ís- aks Sigurðssonar. Hann er mjög mikill partur af þessu,“ sagði Glódís. Síðasta mót Vigdísar Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir keppti aðeins í 200 metra hlaupi og hljóp á 24,03 sekúndum og var hálfri sekúndu á undan Tiönu Ósk Whit- worth sem varð önnur. Keppnin var gríðarlega hörð í sleggjukasti kvenna þar sem Ís- landsmethafinn Elísabet Rut Rún- arsdóttir bar sigur úr býtum með 59,51 metra kasti. Vigdís Jónsdóttir varð önnur með 59,37 metra. Vigdís tilkynnti eftir mótið að hún væri hætt. Þá gerði Irma Gunnarsdóttir mótsmet í þrístökki en hún stökk lengst 12,89 metra. Guðni Valur Guðnason úr ÍR vann öruggan sigur í kringlukasti karla er hann kastaði 61,60 metra, sem er lengsta kast ársins. Íslandsmet hans er 69,35 metrar. Þá vann Hilmar Örn Jónsson úr FH afar sannfær- andi sigur í sleggjukasti. Hilmar kastaði lengst 70,57 metra. Arnar Pétursson úr Breiðabliki hljóp 5.000 metra hlaup og 3.000 metra hlaup og vann sannfærandi í báðum greinum. Fleiri úrslit mótsins má nálgast á mbl.is/sport/adrar/. Ætlaði bara að hlaupa eins hratt og ég gat - Glódís Edda náði glæsilegum árangri um helgina - Nóg að gera í sumar Ljósmynd/Þórir Tryggvason Öflugur Guðni Valur Guðnason vann öruggan sigur í kringlukasti á Meistaramótinu á Þórsvelli. Ljósmynd/Þórir Tryggvason Sigursæl Glódís Edda á fleygiferð á Þórsvelli um helgina. Hún vann þrjú gull á Meistaramótinu. skoraði með skalla skömmu síðar. Heimamenn náðu þó að krækja í sigur í fyrsta leik sínum á mótinu, Denzel Dumfries skoraði sig- urmark á 85. mínútu. Holland er því með þrjú stig á toppi C-riðilis, rétt eins og Aust- urríki sem vann 3:1-sigur á Norð- ur-Makedóníu er þjóðirnar mætt- ust í Svíþjóð. Stefan Lainer, Michael Gregoritsch og Marko Ar- nautovic skoruðu mörk Austurrík- ismanna en gamli markahrókurinn Goran Pandev jafnaði metin fyrir Norður-Makedóníu snemma leiks. Holland vann nauman 3:2-sigur á Úkraínu í bráðskemmtilegum leik á Evrópumóti karla í knattspyrnu á heimavelli sínum í Amsterdam frammi fyrir um 15 þúsund áhorf- endum í gærkvöldi. Hollenska liðið komst í tveggja marka forystu snemma leiks þökk sé mörkum Georginio Wijnaldum og Wout Weghorst og virtist eiga sigurinn vísan áður en Úkra- ínumenn jöfnuðu metin á ótrúleg- um fjögurra mínútna kafla, Andriy Yarmolenko minnkaði muninn á 75. mínútu áður en Roman Yaremchuk England vann loks fyrsta leik Það tók tíu tilraunir en Englend- ingum hefur loks tekist að vinna sinn fyrsta leik á EM eftir 1:0-sigur gegn Króatíu á Wembley. Raheem Sterl- ing skoraði sigurmarkið í síðari hálf- leik en Englendingar voru sterkari lengst af og verðskulduðu sigurinn. Enskir höfðu aldrei áður unnið fyrsta leik á EM, tapað fjórum og gert fimm jafntefli en England hefur sömuleiðis aldrei unnið mótið sjálft. Skotland mætir Tékklandi í kvöld í hinum leiknum í D-riðlinum. AFP Sigurmark Denzel Dumfries Sluppu með skrekkinn - Dramatískt sigurmark Hollendinga í Amsterdam

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.