Morgunblaðið - 30.06.2021, Side 1
M I Ð V I K U D A G U R 3 0. J Ú N Í 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 151. tölublað . 109. árgangur .
PERLUFLUGIÐ
HEFUR FARIÐ
VEL AF STAÐ
TÓNLEIKAGESTIR TAKA
ÞÁTT Í UPPTÖKUFERLI
DRAUMI LÍK-
AST AÐ VERA
Í ÞÓRSMÖRK
KVARTETT ÓSKARS 24 FERÐALÖG 16 SÍÐURVIÐSKIPTI 12 SÍÐUR
SKRÁNING
OPNAR Á
MORGUN!
ALLT Á
ULM.IS
Unglingaland
smót
Selfossi um vers
lunarmannahelg
ina
Mikil veðurblíða var á landinu og böðuðu borg-
arbúar sig í sólinni. Gott var til sjós og til-
tölulega mikið logn í Nauthólsvík og var því til-
valið að taka af skarið og fara í hressandi
kajaksiglingu í gær.
Besta veðrið var þó á Norður- og Austurlandi
þar sem hitastig var með hæsta móti og mældist
hitinn á Egilsstöðum í kringum 26 gráður. Marg-
ir verða eflaust sólbrenndir næstu daga.
Morgunblaðið/Unnur Karen
Sólarblíða og siglingaveður gott um allt land
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræð-
ingur Íslandsbanka, segir útlit fyrir
meiri hagvöxt í ár en Greining bank-
ans áætlaði í vor. Þá gerði hún ráð
fyrir 2,7% hagvexti og hóflegum
vexti í neyslu og fjárfestingu.
„Við gætum fengið rúmlega 3%
hagvöxt í ár. Það er fljótt að segja til
sín þegar einkaneyslan vex hraðar
en við áætluðum,“ segir Jón Bjarki
og vísar m.a. til þess að væntinga-
vísitala Gallup er í hæstu hæðum.
Spá allt að 3,7% hagvexti
Yngvi Harðarson, hagfræðingur
og framkvæmdastjóri Analytica,
segir nú útlit fyrir 3,5-3,7% hagvöxt í
ár. Til samanburðar hafi Analytica
spáð 2,5-3% hagvexti í vor. Líkt og
hjá Íslandsbanka er vísað til bata-
merkja í einkaneyslunni.
Ingólfur Bender, aðalhagfræðing-
ur Samtaka iðnaðarins, segir sam-
tökin ekki hafa gert hagspá. Hins
vegar séu kröftug merki um við-
snúning á breiðum grundvelli í hag-
kerfinu. Þar með talið í iðnaðinum.
„Ég myndi reikna með að síðari
hluti ársins verði mjög góður og að
við munum sjá mikinn vöxt frá árinu
2020. Samanburðurinn er hins vegar
við samdráttarár í fyrra og við eigum
nokkuð í land með að ná upp sömu
landsframleiðslu og við vorum með
fyrir niðursveifluna,“ segir Ingólfur.
Konráð S. Guðjónsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri og hagfræðingur
Viðskiptaráðs, segir útlit fyrir meiri
hagvöxt í ár en spáð var.
„Til dæmis var Hagstofan að
áætla að það væru 7.600 laus störf á
öðrum ársfjórðungi, sem er mikil
fjölgun,“ segir Konráð.
Spá nú meiri hagvexti í ár
- Sérfræðingar Íslandsbanka og Analytica endurmeta hagvaxtarspá fyrir þetta ár
- Vöxtur í einkaneyslu meðal skýringa - Fjöldi lausra starfa þykir líka batamerki
M »ViðskiptaMogginn
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Breytingar sem urðu nýlega á gos-
óróa í gígnum í Geldingadölum urðu
mögulega vegna hruns úr gígbarm-
inum, að mati Þorvaldar Þórðar-
sonar, prófessors í eldfjallafræði við
Háskóla Íslands.
„Við höfum séð svipað gerast áður
eftir að það hrundi niður í gíginn,“
sagði Þorvaldur. Hann sagði að það
hafi hugsanlega tafið eitthvað fyrir
hraunflæðinu og hægt á afgösun
sem hafi valdið minni gosóróa eins
og sást á jarðskjálftamælum. Lélegt
skyggni hefur verið á gosstöðvunum
undanfarið og lítið sést í vefmynda-
vélum nema þoka. Það hefur því
ekki verið hægt að fletta upp í
myndum þeirra til að sjá hvort það
hrundi úr gígbarminum.
„Gígurinn náði svo að hreinsa sig
og þá fylgdi smá sjónarspil eins og
venjulega,“ sagði Þorvaldur.
„Meginrásin, sem viðheldur
hraunflæðinu, er undir yfirborðinu
og við sjáum hana ekki. Hún hlýtur
að vera þarna því vöxturinn á hraun-
inu er svo stöðugur. Breytileiki sem
við sjáum í gígnum virðist ekki hafa
áhrif á hraunflæðið.“ »4
Mögulega varð hrun ofan í gíginn
- Breytinga varð vart á gosóróa í
Geldingadölum - Svipað sást áður
Morgunblaðið/Eggert
Nátthagi Þessi litli hraunhellir hafði myndast í jaðri nýja hraunsins. Mæl-
ingar benda til þess að um 13 rúmmetrar af hrauni renni á sekúndu hverri.
Fjárfestar hafa hafið sölu lóða undir
íbúðarhúsnæði í nýju hverfi í Vogum
en fullbyggt gæti það rúmað um tvö
þúsund íbúa. Með því myndi íbúa-
fjöldinn í Vogum ríflega tvöfaldast.
Sverrir Pálmason, lögmaður og
fasteignasali, er einn þeirra sem
standa að verkefninu.
Hann segir í ítarlegu viðtali við
ViðskiptaMoggann að þróunin á
höfuðborgarsvæðinu hafi skapað
tækifæri til uppbyggingar á svæð-
inu. Lóðarverð á hverja íbúð sé frá
þremur milljónum króna sem sé allt
að þrefalt lægra en á þéttingar-
reitum á höfuðborgarsvæðinu.
Fyrir vikið verði hægt að bjóða
hagkvæmt húsnæði sem henti meðal
annars fyrstu kaupendum og eldra
fólki sem er að minnka við sig.
Morgunblaðið/Eggert
Í Vogum Nýtt hverfi er að rísa.
Mun lægra
lóðaverð
- Byggt í Vogum
_ Rykkorn úr Sahara-eyðimörkinni
hafa oft borist hingað til Íslands
samkvæmt nýrri vísindagrein, sem
birtist í tímaritinu Nature Scientific
Reports á dögunum. Í greininni
kemur m.a. fram að ekki hafi að-
eins verið um fínkorna ryk að ræða,
heldur einnig stærri agnir, sem
voru allt að 0,1 mm í þvermál.
Pavla Dagsson-Waldhauserová,
einn af höfundum greinarinnar,
segir í samtali við Morgunblaðið að
leitað verði stuðnings við frekari
rannsóknir á þessu sviði. »12
Rykagnir frá Sahara
fjúka oft til Íslands