Morgunblaðið - 30.06.2021, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.06.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 2021 TILBOÐ TIL TENERIFE GF ISABEL 4* FANABE STRÖNDIN Á COSTA ADEJE SKEMMTILEGT OG FJÖLSKYLDUVÆNT ÍBÚÐAHÓTEL NÁLÆLGT STRÖNDINNI MEÐ SKEMMTIDAGSKRÁ FYRIR ALLA. 09. - 14. JÚLÍ FLUG OG GISTING WWW.UU.IS | 585 4000 | INFO@UU.IS FLUG OG GISTING VERÐ FRÁ: 75.500 KR. *Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 1 BARN INNIFALIÐ Í VERÐI, FLUG, GISTING, INNRITAÐUR FARANGUR BEINT FLUG FRAM OG TIL BAKA FLUG, SKATTUR OG HANDFARANGUR INNIFALINN FLUG EINGÖNGU VERÐ FRÁ: 39.900 KR.* Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Unnur Freyja Víðisdóttir unnurfreyja@mbl.is Blóðgjafafélag Íslands fagnar 40 ára starfsafmæli 16. júlí nk. Félagið var formlega stofnað af Ólafi Jenssyni, þáverandi yfirlækni Blóðbankans, í þeim tilgangi að efla tengsl íslenskra blóðgjafa og almennings við Blóð- bankann og um leið fræða almenn- ing og stjórnvöld um mikilvægi blóðs til lækninga. „Meginhlutverk félagsins er að hvetja fólk til blóðgjafar og veita viðurkenningar fyrir blóðgjafir,“ segir Sigríður Ósk Lárusdóttir, stjórnarmaður í félaginu, við blaðið. Fleiri geta nú gefið blóð Síðastliðin ár hafa miklar breyt- ingar orðið á því hverjir mega gefa blóð og hverjir ekki, að sögn Sigríð- ar. „Hér áður fyrr mátti fólk ekki gefa blóð ef það var á einhverjum ákveðnum lyfjum en eftir því sem vísindunum hefur fleygt fram hafa þær reglur breyst,“ segir hún. „Svo eru margar aðrar ástæður fyrir því að einstaklingar geta ekki gefið blóð. Oft er það þó bara tímabundið, eins og þegar fólk fær sér húðflúr. Þá þarf það að bíða í sex mánuði með að gefa blóð. Ef það ferðast til landa þar sem malaría er landlæg þarf fólk að sama skapi að bíða í heilt ár.“ Heimsfaraldur kórónuveiru hafði veruleg áhrif á blóðgjafir, að sögn Sigríðar. Minna hafi verið sóst eftir nýjum blóðgjöfum og komið var á nýju bókunarkerfi. „Fyrir Covid gat fólk bara gengið inn í Blóðbankann og gefið blóð en í Covid þurfti fólk að skrá sig fyrirfram í bókunarkerfinu. Þetta var gert svo við gætum virt samkomu- og fjarlægðartakmörkin sem voru í gildi á þeim tíma,“ segir hún. „Þetta er eitt af því jákvæða sem hefur komið út úr þessum far- aldri finnst okkur. Þetta auðveldar skipulag þegar kemur að mönnun starfsfólks í Blóðbankanum og stytt- ir bið blóðgjafanna. Ég hugsa að þetta kerfi sé komið til að vera.“ Blóðbankabíllinn var fyrst tekinn í notkun árið 2002 og hefur reynst vel fram til þessa. „Á honum höfum við farið í skólana og fyrirtæki þar sem við höfum náð mikið til nýrra blóð- gjafa. Í Covid þurftum við þó að leggja bílnum þar sem ekki var hægt að virða tveggja metra regluna í honum. Bíllinn er líka orðinn gam- all og þreyttur svo það er alveg kom- inn tími á að endurnýja hann.“ Einn hefur gefið 243 sinnum Blóðbankinn þarf um 2.000 nýja blóðgjafa á hverju ári til að ná að anna eftirspurn. Það náðist þó ekki í fyrra vegna heimsfaraldursins, að sögn Sigríðar. Þá komu reglulegir blóðgjafar sterkir inn og hafa sumir þeirra gefið blóð hundrað sinnum eða oftar. Í hverri gjöf eru teknir 450 ml. Þannig jafngilda hundrað blóðgjafir um 45 lítrum af blóði. Sá sem á metið heitir Gísli I. Þor- steinsson, 69 ára gamall fyrrverandi lögreglumaður. Hann hefur gefið blóð 243 sinnum og segir blóðgjafir verða að lífsstíl. „Þetta er bara mitt framlag til líknarmála á Íslandi og mér finnst að maður eigi að gera þetta á meðan maður er heil- brigður,“ segir Gísli. Morgunblaðið/Unnur Karen Gjöf Þegar ljósmyndari Morgunblaðsins leit inn var blóðgjöf í gangi en Íslendingar eru margir gjafmildir á blóð sitt. Þurfa 2.000 nýja blóðgjafa á ári - Blóðgjafafélag Íslands hefur hvatt landsmenn til blóðgjafar í 40 ár - Margt hefur breyst frá stofn- un félagsins í gegnum árin, segir stjórnarmaður - Heimsfaraldur hafði veruleg áhrif á starfsemina Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók um hádegisbilið í gær mann við Sæbraut, sem vopnaður var hlaðinni skammbyssu. Tilkynn- ing barst um átök milli tveggja manna við brautina, og virtist sjón- arvotti að atburðarásinni sem ann- ar þeirra væri með skammbyssu. Voru lögreglubílar notaðir til að stöðva umferð við brautina vegna áfloganna og skárust lögreglumenn svo í leikinn. Sérsveit Ríkislög- reglustjóra handtók svo vopnaða manninn á göngubraut við götuna skömmu síðar. Ekki var vitað í gær hvað mann- inum gekk til, en hann hafði fyrst komið við í kaffistofu Samhjálpar. Þráinn Bj. Farestveit, fram- kvæmdastjóri Verndar áfanga- heimilis fyrir fanga, sagði í samtali við mbl.is að honum hefði virst sem maðurinn hefði komið til Sam- hjálpar í ákveðnum erindagjörðum. Handtekinn með hlaðna skammbyssu Esther Hallsdóttir esther@mbl.is Þrjú ofanflóðamannvirki verða vígð á Eskifirði á föstudaginn. Um er að ræða varnir í þremur árfarvegum í bænum, í Hlíðarendaá, Bleiksá og Ljósá, þar sem hætta er á krapa- og aurflóðum. Stoðveggir voru reistir þar sem árnar liggja inn í bæinn, brýr endurnýjaðar og farvegir ánna dýpkaðir til að koma í veg fyrir flóð. Jón Björn Hákonarson, bæjar- stjóri Fjarðabyggðar, segir varnirn- ar afar mikilvægar samfélaginu fyrir austan. „Þetta er gríðarlega mikil- vægt fyrir líf og eigur fólks, fyrst og síðast auðvitað líf fólks. Við þekkjum það, hafandi gengið í gegnum það ár- ið 1974 þegar tólf manns týndu lífi í Neskaupstað í mannskæðum snjó- flóðum og svo fyrir vestan, bæði á Flateyri og Súðavík, hversu mikil- vægt þetta er,“ segir hann. Varða á langri vegferð Sveitarfélög fá framlög úr ofan- flóðasjóði til að fjármagna varnir. „Árið 1996 voru sett lög um ofan- flóðavarnir og þá var gert hættumat fyrir landið allt, meðal annars hér í forverum Fjarðabyggðar, í Norð- firði, á Eskifirði og Fáskrúðsfirði. Við erum búin að vera í þessu verkefni frá því um 2000 en þá hófst gerð fyrsta varnargarðsins á Norð- firði vegna snjóflóðahættu. Þar er nú þriðji varnargarðurinn í byggingu og fer langleiðina með að klárast í sum- ar, en tveimur er lokið. Sá fjórði er órisinn en það er verið að hanna hann og ekki vitað hvenær fram- kvæmdir hefjast,“ segir Jón. Einnig var hætta talin á krapa- flóðum í árfarvegi á Fáskrúðsfirði og var framkvæmdum lokið þar fyrir nokkrum árum. Til viðbótar við varnirnar þrjár sem verða vígðar á Eskifirði á föstudaginn er nú unnið að vörnum í Lambeyrará sem verða tilbúnar á næsta ári. Að því loknu verður aðeins ein óvarin á eftir á Eskifirði, en það er Grjótá. Unnið er að hönnun varna þar og Jón vonar að framkvæmdir hefjist á næstunni. „Þessu á náttúrlega öllu að ljúka fyrir árið 2030, þá á að vera búið að verja Ísland fyrir ofanflóðum. Það er búið að fresta endadagsetningunni nokkrum sinnum og við höfum gagn- rýnt það mjög. Það hefur gengið allt- of hægt að klára þessar varnir sem eru byggðunum okkar nauðsynleg- ar,“ segir hann. Reisa varnir í árfar- vegum á Eskifirði - Þrjú ofanflóðamannvirki vígð vegna krapa- og aurflóðahættu Ljósá Á föstudag verða varnir vígðar í árfarvegum Hlíðarendaár, Bleiksár og Ljósár á Eskifirði sem munu verja bæinn fyrir krapa- og aurflóðum. Hlíðarendaá Stórir stoðveggir voru reistir þar sem árnar liggja inn í bæ- inn, brýr voru endurnýjaðar og farvegir ánna dýpkaðir til að hindra flóð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.