Morgunblaðið - 30.06.2021, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 30.06.2021, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 2021 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Stækkun þjóðgarðsins gefur okkur möguleika á að útbúa áhugaverða útivistarstaði á stöðum, sem eru býsna afskekktir. Starfsemi þjóð- garðs er í eðli sínu lifandi og fjöl- breytt. Stækkun er hluti af slíku ferli,“ segir Jón Björnsson, þjóð- garðsvörður í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli, í samtali við Morgunblaðið. Fjöllin Búrfell og Skál auk Dýjadalsvatns í Hólsdal bætast við þjóðgarðinn, skv. reglugerð sem Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- ráðherra undirritaði sl. sunnudag á samkomu þar sem 20 ára afmæli þjóðgarðsins var haldið hátíðlegt. Stækkunin nær yfir svæði sem liggur norðan Snæfellsjökls niður í átt að byggðinni á Hellissandi og Rifi. Alls verður þjóðgarðurinn með viðbótinni 183 ferkílómetrar, frá strönd að fjallstoppi. Breytingar á friðlýsingu Nýmæli sem nú kemur til í starf- semi þjóðgarðsins er endurskoðaðir skilmálar friðlýsingar ákveðinna svæða. Hert verður á ákveðnum at- riðum friðlýsingar en önnur færð á lægri þrep. Nú verður til dæmis heimilt slá upp viðlegutjöldum til einnar nætur á völdum tjald- stæðum innan þjóðgarðsins. Einnig verður jeppa- og vélsleðamönnum heimilt að aka inn á jökulinn, án þess að sérstaka heimild þjóðgarð- svarðar þurfi til. Séu almennar um- gengnisreglur og ákvæði náttúru- verndarlaga virt verður leyfilegt að aka á hjarninu, þó göngufólk njóti forgangs á jöklinum sem er 10 fer- kílómetrar að flatarmáli og minnk- ar stöðugt. Einnig verður eftir föngum reynt að greiða leið hesta- manna sem um svæðið fara með reiðstígum. „Meginlínan með breyttum ákvæðum friðlýsingar er að draga úr boðum og bönnum en auka þess í stað fræðslu og leiðbeiningar til ferðafólks,“ segir þjóðgarðsvörð- urinn. Þjóðgarðsráðið virki þátttöku Annað nýmæli sem nú tekur gildi í starfseminni við Snæfellsjökul er stofnun þjóðgarðsráðs, hvar sitja munu fulltrúar Snæfellsbæjar, Um- hverfisstofnunar, Minjastofnunar, ferðaþjóna á Snæfellsnesi og um- hverfissamtaka. Ráðið verður Um- hverfisstofnun og þjóðgarðsverði til ráðgjafar um störf og áherslur í starfi þjóðgarðsins, rétt eins og svæðisráð innan Vatnajökuls- þjóðgarðs gerir einnig. „Umhverfis- og náttúruvernd hefur notið góðs liðsinnis fólks héð- an af Nesinu sem hefur verið óspart á að deila reynslu sinni með öðrum víða um land. Fyrir það er ég þakklátur,“ sagði Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- ráðherra í ávarpi sem hann flutti á hátíðinni á Snæfellsnesi um sl. helgi. „Þjóðgarðsráðið mun stuðla að meiri þátttöku hinna margvíslegu hagaðila í mótun þjóðgarðsins enda er það skoðun mín að heimamenn eigi að gegna lykilhlutverki í stefnumótun og stjórn friðlýstra svæða í sínum bakgarði,“ segir ráð- herrann. Vatn, dalur og tvö fjöll viðbót á verndarsvæði - Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull 20 ára - Fræðslustarfið kemur í stað boða og banna - Starfsemin er í stöðugri þróun Morgunblaðið/Alfons Finnsson Undirritun Guðmundur Ingi Guðbrandsson undirritar reglugerð um þjóð- garðinn. Með á myndinni er Sigríður Auður Arnardóttir ráðuneytisstjóri. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Landslag Ingjaldshólskirkja og tignarlegur Snæfellsjökull er í bakgrunni. Jón Björnsson Glöggir vegfarendur í Reykjavík hafa vafalítið undrað sig á nýju götuskilti sem stendur við gatnamót Fellsmúla og Grensásvegar, en í fyrstu mætti halda að búið væri að skipta um nafn á hinum rót- gróna Grensásvegi. Svo mun þó ekki vera. Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavík- urborg var verið að endurnýja umrætt götuskilti og slæddist þá auka „r“ með í götuheitið. Ekki stóð til að endurnefna götuna. Gunnar Hersveinn Sigursteinsson, verk- efnastjóri miðlunar hjá Reykjavíkurborg, segir borgina hafa fengið ábendingar um villuna og að starfsmenn hafi um leið áttað sig á henni, þó ekki fyrr en eftir að skiltið var komið upp. Nú sé unnið að því að útbúa nýtt og villulaust götuskilti sem sett verð- ur upp fljótlega. khj@mbl.is Óvelkomið „r“ rataði óvænt inn á Grensásveg Morgunblaðið/Eggert Logi Sigurðsson logis@mbl.is Aurskriða féll á tvö hús í Varmahlíð í Skagafirði á fjórða tímanum í gær. Stefán Vagn Stefánsson, yfirlög- regluþjónn á Norðurlandi vestra, sagði í samtali við mbl.is í gær að enginn hefði slasast við aurskrið- una, en að eitthvert eignatjón hefði orðið á húsunum. „Skriðan fer þarna á tvö hús, það er eitthvert tjón á þessum húsum, en við gerum okkur ekki grein fyrir því alveg hvað það er mikið, en það er verið að vinna að því á vettvangi að hreinsa frá og meta tjónið. Það slasaðist enginn,“ sagði Stefán Vagn og bætti við að lengi hafi ver- ið fylgst með sprungunni sem olli aurskriðunni. „Það er barð sem fer af stað, sem menn vissu að væri orðið laust. Það var kominn vinnuflokkur til þess að reyna að létta á því, en það fór áður en menn komust í það. Þetta var sprunga sem var að stækka og menn voru búnir að vera að skoða þetta, eftir því sem ég best veit. Það var búið að fylgjast með þessu í einhvern tíma,“ sagði Stefán Vagn. Frímann Viktor Sigurðsson, eig- andi annars hússins, sagði í samtali við mbl.is í gær að líklega hefði þetta ekki getað farið betur, í ljósi þess að ekki varð tjón á mönnum. Hann taldi ekki að mikið tjón hefði orðið á húsinu en ljóst var að fjölskylda hans myndi þurfa að gista annars staðar þá um nóttina. „Ég mundi skjóta á einhverja 100 þúsund kalla í viðgerðir, en það er ekkert sem kemur í staðinn fyrir mannslíf.“ Enginn slasað- ist í aurskriðu - Tvö hús urðu fyrir tjóni í Varmahlíð Ljósmynd/Erna Geirsdóttir Varmahlíð Enginn slasaðist en aur- skriðan lenti á tveimur húsum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.