Morgunblaðið - 30.06.2021, Side 10

Morgunblaðið - 30.06.2021, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 2021 Dagskrá 10:20 Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráð- herra opnar Oddabrú ásamt forstjóra Vegagerðarinnar og sveitar- stjóra Rangárþings ytra. Séra Elína Hrund Kristjánsdóttir vígir brúnna. 11:00 Helgistund í Oddakirkju. Sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir 11:45 Veitingar í veislutjaldi. Kvenfélag Oddakirkju. 12:15 Ágúst Sigurðsson, formaður Oddafélagsins, setur hátíðina. 12:30 Ávarp Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra. 13:00 Sinfóníuhljómsveit Suðurlands ásamt Eyjólfi Eyjólfssyni einsöngvara, Kvennakórnum Ljósbrá, Karlakór Rangæinga og félögum úr Kammerkór Rangæinga undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar. Í lok tónleikanna frumflytur hljómsveitin og kórarnir nýtt lag Gunnars Þórðarsonar við kvæði Matthíasar Jochumssonar: Á Gammabrekku. Oddahátíð lýkur um kl. 14. ODDAHÁTÍÐ 3. JÚLÍ Í tilefni af 30 ára afmæli Oddafélagsins á síðasta ári bjóðum við til mikillar tónlistarhátíðar í Odda á Rangárvöllum laugardaginn 3. júlí. Sinfóníuhljómsveit Suðurlands, undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar ásamt Kvennakórnum Ljósbrá, Karlakór Rangæinga, félögum úr Kammerkór Rangæinga og Eyjólfi Eyjólfssyni einsöngvara. Gestum stendur til boða að kaupa 30 ára afmælismerki félagsins til styrktar undirbúningi að uppbyggingu Sæmundarstofu, menningar- og fræðaseturs í Odda. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Starfsemi útibús Landsbankans á Ísafirði var nú um miðjan júní flutt í ný húsakynni þar í bæ. Er nú í Hafn- arstræti 19, eftir að hafa verið síð- astliðin 63 ár að Pólgötu 1. Hin svip- sterka bygging sem áður hýsti starfsemi bankans, tæplega 900 fer- metra hús sem reist var árið 1959, hefur nú verið selt. Ýmis þjónustufyrirtæki eru til húsa í Hafnarstræti 19 og útibú Landsbankans er í 300 fermetra rými þar sem starfsemi Sparisjóðs Vestfjarða var á sínum tíma. Í húsnæði sem hentar Starfsemi Landsbankans á Ísa- firði á sér langa sögu. Þar var opnað útibú frá bankanum árið 1904, sem hefur verið starfrækt allar götur síð- an. Ræturnar eru sterkar. „Gamla húsið, sem er fjórar hæð- ir, var orðið alltof stórt fyrir okkur og að sama skapi óhentugt. Nú erum við komin á jarðhæð á einum gólf- fleti. Þetta er húsnæði sem hentar afar vel í bankaþjónustu nútímans sem reyndar færist í sívaxandi mæli yfir á netið og í sjálfsafgreiðslu,“ segir Sævar Þór Ríkharðsson úti- bússtjóri í samtali við Morgunblaðið. „Þá erum við hér með eina hrað- bankann á Vestfjörðum þar sem hægt er að leggja inn peninga og einnig gjaldeyrishraðbanka þar sem hægt er að sinna gjaldeyris- viðskiptum. Eigi að síður þarf alltaf þjónustu og ráðgjöf í bönkum, en starfsemin og öll vinna hefur breyst mikið á undanförnum árum.“ Eggin eru í fleiri körfum Á Vestfjörðum hefur verið fólks- fækkun og samdráttur í atvinnulíf- inu um langt skeið. Nú telja menn hins vegar að jafnstöðu sé náð og tækifæri sé til viðspyrnu. Með meiri fjölbreytni í atvinnulífinu eru eggin nú í fleiri körfum en áður var. „Stað- an hefur breyst mikið. Í sjávarútvegi á Vestfjörðum hefur náðst jafnvægi. Þá er fiskeldið orðið stór og vaxandi atvinnugrein hér, sem skapar fjölda starfa og peninga hér á svæðinu. Slíkt er mjög mikilvægt. Þá er ferða- þjónusta hér alltaf að styrkjast sem kemur auðvitað fram í bókum bank- ans. Umfang viðskipta verður meira og tölur hærri,“ segir Sævar og heldur áfram: „Samgöngurnar verða svo sífellt betri. Dýrafjarðargöng voru tekin í notkun síðasta haust. Þá er nú verið byggja upp heilsársveg yfir Dynj- andisheiði. Slíkt skapar þá tengingu að í framtíðinni verða Vestfirðir eitt atvinnusvæði. Meginleiðin milli Ísa- fjarðar og höfuðborgarsvæðisins verður svo í framtíðinni væntanlega um sunnverða firðina. Væntingar Vestfirðinga gagnvart tækifærum næstu ára eru miklar.“ Í Landsbankanum í 33 ár En aftur að Landsbankanum þar sem Sævar hefur starfað nær óslitið í 33 ár. Kom 16 ára gamall til starfa í útibúinu í Mjódd í Breiðholti í Reykjavík og var settur í tékka- deildina. „Mér leiddist í unglinga- vinnunni og var svo heppinn að fá tækifæri í bankanum, þó ungur væri. Hef á löngum ferli verið í ýms- um hlutverkum; bæði í útibúunum fyrir sunnan og í fræðsludeild. Hef reynslu úr mörgum hlutverkum inn- an bankans,“ segir Sævar sem kom til starfa á Ísafirði í lok árs 2010. „Lára Fanney Jónsdóttir, konan mín, er úr Bolungarvík og stukkum við til, þegar tækifærið bauðst hér vestra. Hér líður okkur vel,“ segir Sævar. Störfin í Landsbanka- útibúinu á Ísafirði, hvar starfa átta manns, segir hann vera fjölbreytt og alls ekki bundin við þjónustu í sam- félaginu á Vestfjörðum. Öll viðskipti í dag séu stafræn og verkefni megi því leysa óháð því hvar starfsmenn séu staðsettir. Afgreiðsla íbúðalána á landsvísu sé nú orðin stór þáttur í starfsemi útibúsins á Ísafirði. Þá sé ýmsum öðrum afgreiðsluverkefnum sinnt með líku lagi í öðrum starfs- stöðvum bankans sem eru um landið allt. Landsbankinn á nýjum stað - Í hentugra hús á Ísafirði - Umfang viðskipta meira og tölurnar eru hærri Morgunblaðið/Sigurður Bogi Bankafólkið Hluti af starfsliði útibús Landsbankans á Ísafirði, sem nú hefur verið flutt á nýjan stað. Frá vinstri talið eru: Birna Helgadóttir, Hrafnhildur Sörensen, Sævar Þór Ríkharðsson útibússtjóri og Hulda Pálmadóttir. Bolungarvík Sjávarútvegur er undirstaða í atvinnulífi á Vestfjörðum, enda þótt margir nýir sprotar dafni þar nú. Húsakynni Útibú Landsbankans er í þessu húsi við Hafnarstræti, á jarðhæð og í endanum sem er nær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.