Morgunblaðið - 30.06.2021, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 2021
Sýkingar af völdum kórónuveir-
unnar eru aftur á uppleið í Evrópu.
Er það skrifað á svonefnt Delta-
afbrigði sem er í örri fjölgun í Bret-
landi og Rússlandi.
Sýkingum hafði fækkað jafnt og
þétt í hálfan þriðja mánuð en nú er
sú þróun að snúast við. Síðustu sjö
dagana hafa Rússar greint 20.400
smit á dag sem er 25% aukning á
viku. Í Bretlandi eru smitin um
16.400 á dag sem er 70% aukning. Í
nær öllum tilvikum skella embætt-
ismenn í þessum tveimur löndum
skuldinni á Delta-afbrigðið sem
fyrst var greint á Indlandi.
Vegna þróunarinnar í Bretlandi
og Rússlandi eru sýkingar í Evrópu
allri á uppleið, eða um 56.800 ný-
smit á dag sem er 21% hærra en
fyrir viku. Dagana 12. til 18. júní
voru smitin 46.000 á dag, sem var
minna en nokkru sinni frá í sept-
ember sl. agas@mbl.is
EVRÓPA
Delta-afbrigðið á
uppleið í Evrópu
Jacob Zuma,
fyrrverandi Suð-
ur-Afríkuforseti,
var í gær dæmd-
ur í hæstarétti
landsins til 15
mánaða fangels-
isvistar vegna
spillingar. Hann
fékk fimm daga
frest til að gefa
sig fram við lög-
reglu ella verður hann leitaður
uppi og tekinn fastur.
Zuma var dæmdur sekur um
óhlýðni við réttarkerfið með því
að virða að vettugi fyrirkall
hæstaréttar um að hann mætti hjá
nefnd sem rannsakaði spillingu í
forsetatíð hans, sem lauk 2018.
Rak þá hvert málið annað þar sem
bisnessmenn voru sakaðir um að
hafa borið fé á stjórnmálamenn til
að hafa áhrif á ákvarðanir yfir-
valda.
Zuma mætti ekki fyrir réttinn í
gær en hann hefur haldið því fram
að stofnað hafi verið til pólitísks
samsæris gegn honum. Ákærur á
hendur honum snúast um milljarða
dollara mútugreiðslur. agas@mbl.is
SUÐUR-AFRÍKA
Zuma í steininn
Jacob Zuma
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Uppreisnarmenn náðu héraðinu
Tigray í norðurhluta Eþíópíu á sitt
vald í gær. Mikil fagnaðarlæti brutust
út og embættis- og yfirmenn stukku á
flótta. Lýstu íbúar fagnaðarlátunum
sem hátíð væri gengin í garð, flugeld-
um var skotið á loft við undirspil og
þúsundir veifuðu fána.
Stjórnarherinn náði höfuðstaðnum
Mekele á sitt vald í nóvember sl. eftir
að uppreisnarmenn höfnuðu pólitísk-
um umbótum og lögðu undir sig her-
stöðvar. Lýsti ríkisstjórnin í gær yfir
„vopnahléi í þágu mannúðar“ í Tigray.
Bardagar stjórnarhersins og sveita
uppreisnarmanna hafa kostað þúsund-
ir mannslífa, um 350.000 manns búa
við hungursneyð og rúmlega tvær
milljónir manna hafa hrakist á ver-
gang.
Fregnir að undanförnu hafa skýrt
frá bardögum milli Frelsisfylkingar
Tigray (TPLF) og stjórnarhersins
utan við Mekele. Leiftursókn inn til
borgarinnar leiddi óvænt til töku henn-
ar. Sérfræðingar telja að það geti átt
eftir að verða vendipunktur í hinni hat-
römmu deilu.
Í yfirlýsingu sem send var út í gær í
nafni ríkisstjórnar Tigray-ríkis var
hrósað sigri og Mekele öll var sögð
undir traustum yfirráðum varnar-
sveita Tigray. Almenningur og sveitir
uppreisnarmanna voru hvött til að
vera á stífu varðbergi uns Tigray væri
að fullu hreinsuð af öllum innrásar-
sveitum.
Talsmaður uppreisnarmanna, Ge-
tachew Reda, gaf til kynna að þeir
hefðu litla lyst á vopnahléi. „Takmark
okkar er að draga vígtennurnar úr
óvinaherjunum. Við munum ekki linna
látum fyrr en Tigray hefur verið
hreinsað af óvinasveitum, sama hversu
langan tíma það tekur.“
Háttsettur embættismaður staðfesti
töku Mekele. Sagði hann AFP-frétta-
stöðinni að bráðabirgðastjórn sem tók
við völdum í borginni í nóvember sl.
hefði flúið þegar uppreisnarsveitir
sóttu að „úr öllum áttum“ inn til henn-
ar. „Allir eru á brott, þeir síðustu fóru
síðdegis, það er engin stjórn í Tigray
núna,“ sagði embættismaðurinn.
Íbúar tjáðu BBC-stöðinni að þeir
héldu nú upp á brottför stjórnarhers-
ins. AFP-stöðin hafði eftir einum
þeirra: „Allir eru farnir úr húsi að
fagna. Allir eru spenntir og tónlist
glymur á götunum. Fólkið veifar fán-
um og spilar músík.“
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna
(Unicef) sagði að eþíópskir stjórnar-
hermenn hefðu farið inn í stöðvar
stofnunarinnar í fyrradag og eyðilagt
fjarskiptabúnað fyrir samskipti um
gervihnetti. Sagði hann að barnahjálp-
in væri aldrei og ætti aldrei að vera
skotmark í stríðsátökum.
Ríkisstjórn Eþíópíu hefur ekkert
tjáð sig um heimkvaðningu hersveita.
Sagði stjórnin einungis að herinn
hvetti til vopnahlés af mannúðarástæð-
um því nauðsynlegt væri að starfs-
menn hjálparsamtaka gætu sinnt
störfum sínum og bændur gróðursetn-
ingu. Þá þyrfti að hjálpa fólki af ver-
gangi svo það kæmist aftur til heim-
kynna sinna.
Fagna töku Mekele á götum úti
- Uppreisnarmenn í Tigray í Eþíópíu náðu aftur höfuðstaðnum Mekele á sitt vald
AFP
Tigray Lífið gekk sinn vanagang á
þessum markaði í Mekele í gær.
Málverk sem Pablo Picasso ánafnaði
grísku þjóðinni fyrir 49 árum fyrir and-
spyrnu hennar gegn nasistum 1941-45
og stolið var 2012 í innbroti í rík-
islistasafnið í Aþenu kom í leitirnar í
fyrradag.
Málverkið, „Höfuð konu“, var eitt
þriggja verka sem stolið var í innbrotinu
bíræfna. Það fannst í gljúfri á afskekktu
og fáförnu svæði, Keretea, um 45 km
suðaustur af Aþenu. Byggingarverka-
maður á miðjum aldri hefur gengist við
stuldinum. Situr hann í varðhaldi. Hann
faldi verkin fyrst um sinn á heimili sínu
en færði þau nýverið í gjána.
Annað verk úr ráninu fannst í gljúfr-
inu, af vindmyllunni í Stammer í Hol-
landi eftir Piet Mondrian. Þriðja myndin
sem stolið var, skissa frá 16. öld eftir
Guglielmo Cacci, mun hafa skemmst í
ránsferðinni og verið fargað.
agas@mbl.is
Picasso
fannst í
gljúfri
AFP
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Útsalan
er hafin
Verið velkomin
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. kl. 8-17, fös. kl. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratug
a
reynsl
a
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VEISTU
UM GÓÐAN
RAFVIRKJA?