Morgunblaðið - 30.06.2021, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 2021
Raðauglýsingar
Tilkynningar
Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi eystra
Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru auglýstar eftirfarandi tillögur að deiliskipulagi
í Rangárþingi eystra.
Lambafell – Deiliskipulagstillaga
Um er að ræða nýtt deiliskipulag, um 6,0 ha að stærð, fyrir hluta jarðarinnar Lambafell L163699 og Lambafell
lóð 8 L200484. Skilgreind verður ein ný lóð, Lambafell 2 þar sem áformað er að reisa hótel með allt að 60
herbergjum fyrir allt að 130 gesti ásamt gestamóttöku, veitingasölu, aðstöðu fyrir starfsmenn auk heilsulindar.
Lambafell lóð 8 verður stækkuð og útbúnir tveir byggingarreitir. Á byggingarreit B-01 er gert ráð fyrir 25 smá-
hýsum til útleigu með heildarbyggingarmagni allt að 350 m2. Á byggingarreit B-02 stendur gamla bæjarhúsið
sem verður nýtt sem þjónustumiðstöð. Einnig verður heimild fyrir stækkun gamla íbúðarhússins um allt að
50 m2. Að auki er gert ráð fyrir allt að 50 m2 aðstöðuhúsi og baðaðstöðu.
Völlur 1 – Deiliskipulagstillaga
Um er að ræða nýtt deiliskipulag á ca 22 ha svæði jarðarinnar Völlur 1. Gert er ráð fyrir alls 21 lóð undir
frístundahús.
Steinaborg og Fagurholt – Deiliskipulagstillaga
Um er að ræða nýtt deiliskipulag fyrir tvær frístundahúsalóðir. Annars vegar Steinborg sem er 3,7 ha og hins
vegar Fagurholt sem er 2,1 ha. Innan lóðar Steinborgar er heildarbyggingarmagn allt að 740 m2 og að hámarki 5
hús. Innan lóðar Fagurholts er heildarbyggingarmagn allt að 420 m2 og að hámarki 3 hús.
Ofangreindar deiliskipulagstillögur er hægt að skoða á heimasíðu Rangárþings eystra, www.hvolsvollur.is og á
skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa frá 30. júní nk. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er
gefinn kostur á að gera athugasemd við tillögurnar, og er frestur til að skila inn athugasemdum til 11. ágúst nk.
Athugasemdum skal skila skriflega á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eystra,
Austurvegi 4, 860 Hvolsvelli.
F.h. Rangárþings eystra
Guðmundur Úlfar Gíslason
Skipulags- og byggingarfulltrúi
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Strætóferð í Hallagarðinn kl. 10.30 ætlum að taka þar
göngutúr. Klukkan 13 er skák og eru allir velkomnir jafnt ungir sem
aldnir og klukkan 13.30 er hjá okkur ættfræðigrúsk, ókeypis námskeið,
fyrra skiptið af tveimur. Kaffið á sínum stað kl. 14.30.
Aflagrandi 40 Bíó í dag, KATLA.
Árskógar Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-14. Opin vinnustofa kl.
9-12. Bónusbíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.55. Dansleikfimi kl.
13.30. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.30-15.30. Heitt á
könnunni, allir velkomnir. Sími 411-2600.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.10-11.
Opin Listasmiðja kl. 9-12. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Opin Lista-
smiðja kl. 13-15.30. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30.
Garðabær Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara. Með-
læti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 13.45 -15.15. Pool-hópur í Jóns-
húsi kl. 9. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Gönguhópur fer frá
Smiðju kl. 13. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11. Brids í Jónshúsi kl. 13.
Hreyfihópur í garði Ísafoldar, farið frá Jónshúsi kl. 13.30. Smiðjan
Kirkjuhvoli opin kl. 13–16.
Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8.30, heitt á könn-
unni. Döff, félag herynarlausra frá kl. 13. Félagsvist frá kl. 13. Útifjör,
ganga, teygjur og fleira með Höllu Karenu og Bertu, frá kl. 13. (Sól-
stofa, fer eftir veðri hvort farið er út).
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Einstakl-
ingskennsla á snjallsíma og spjaldtölvur kl. 9-12. Dans- og stólaleik-
fimi með Auði Hörpu kl. 10. Boðið uppá sýndarflug yfir gosstöðvarnar
frá 13-16. Allir velkomnir.
Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag byrjum við daginn á postulíns-
málun klukkan 9 og pílu klukkan 10.30. Eftir hádegi er svo nóg um að
vera. Klukkan 13 verður spilað frisbígolf á Klambratúni með hreyfi-
teyminu okkar, mikið fjör og veitingar í boði. Einnig verður núvitund
hjá okkur klukkan 13.30 og dansleikur klukkan 14, en Vitatorgsbandið
mætir í hús í seinasta skiptið í sumar. Verið öll velkomin til okkar á
Vitatorg!
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum frá kl. 9. Botsía í salnum Skóla-
braut kl. 10. handavinna og samvera kl. 13. Hlökkum til að hitta sem
flesta á morgun í Sumargleðinni. Grill og söngur. Byrjum kl. 15.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Bílar
Nýr Hyundai Tucson Plugin Hy-
brid Premium væntanlegir.
Verða til afhendingar í byrjun
Júlí. Nokkrir litir í boði á afar
hagstæðu verði.
Kr. 6.490.000,-
www.sparibill.is
Hátúni 6 A – sími 577 3344.
Opið kl. 12–18 virka daga.
200 mílur
✝
Nichólína Rósa
Magnúsdóttir
(Nanna Rósa) fædd-
ist á Ísafirði 7. apríl
1932. Hún lést á
Hraunbúðum í
Vestmannaeyjum
22. júní 2021.
Foreldrar henn-
ar voru Magnús Ei-
ríksson, vélstjóri og
sjómaður á Ísafirði,
f. 24.6. 1899, d. 3.2.
1985, og Jóna Kristín Guðjóns-
dóttir húsmóðir, f. 6.3. 1907, d.
9.6. 1980.
Systur Nönnu Rósu voru
Helga Ruth, f. 3.4. 1928, d. 8.2.
2005, Ásdís Sólveig, f. 3.4. 1928,
d. 12.2. 1997.
Nanna Rósa giftist 13.4. 1963
Tryggva Jónssyni, vélvirkja og
verkstjóra, f. 11.3. 1925, d. 28.7.
2014, í Vestmannaeyjum. Þau
bjuggu allan sinn búskap að
Brekkugötu 9 í Vestmannaeyjum.
Börn Nönnu og Tryggva eru
Magnús, íþróttafræðingur, sund-
þjálfari og stálsmiður, f. 18.12.
1964, kvæntur Ragnhildi Eiríks-
dóttur, sonur þeirra er Tryggvi
Freyr, f. 2004, og dætur Ragn-
hildar eru Gunndís Eva, f. 1991,
gift Tómasi Guðmundssyni, börn
þeirra eru Guðmundur Tryggvi,
f. 2013, Ragnildur María, f. 2015,
Elísabet Rún, f. 2016, Einar
Gauti, f. 2019, og Helga Rún, f.
1996, í sambúð með Arnari Helga
Magnússyni og sonur þeirra
óskírður, f. 2021.
Helga, náms- og starfs-
ráðgjafi, f. 22.2. 1966. Börn henn-
ar eru Rósa Sólveig Sigurðar-
dóttir, f. 22.5. 1993, í sambúð með
Sigurði Ómarssyni,
og Karen Rut Gísla-
dóttir, f. 22.8. 1995,
í sambandi með
Bjartmari Örnu-
syni.
Nanna Rósa ólst
upp í Grímshúsinu
við Túngötu á Ísa-
firði. Starfaði m.a. á
Ljósmyndastofu
Simsons á Ísafirði
og á Sjúkrahúsinu á
Patreksfirði áður en hún hóf
nám við Hjúkrunarskóla Íslands
þaðan sem hún útskrifaðist árið
1955. Starfaði hún sem hjúkr-
unarfræðingur alla tíð síðan við
Sjúkrahús Ísafjarðar, Baldwin
Community Hospital í Baldwin í
Wisconsin í Bandaríkjunum, við
Sjúkrahús Keflavíkur, Barna-
spítala Hringsins og Kleppsspít-
alann, en lengst af við Sjúkrahús
Vestmannaeyja og á Hraun-
búðum, dvalarheimili aldraðra í
Vestmannaeyjum, þar til hún lét
af störfum 2001.
Nanna Rósa var félagi í Slysa-
varnadeildinni Eykyndli í Vest-
mannaeyjum í áraraðir, sat í
stjórn hennar og var formaður í
fimm ár. Hún var virkur félagi í
Vestmannaeyjadeild Félags ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga, Ís-
firðingafélaginu, Norræna félag-
inu og starfaði í sundráði ÍBV.
Útförin fer fram frá Landa-
kirkju í dag, 30. júní 2021, klukk-
an 14.
Streymt verður frá útför:
https://www.landakirkja.is/
Virkan hlekk á streymi má
finna á:
https://www.mbl.is/andlat/
Það er erfitt að kveðja elsku
mömmu. Hún var minn helsti
bandamaður og samherji í
gegnum lífið. Það var alveg
sama hvað mér datt í hug, alltaf
studdi hún mig og hvatti áfram.
Hún fór sjálf sínar eigin leiðir í
lífinu og fannst sjálfsagt að ég
gerði það líka. Hún gaf mér
vængi en hjá henni var alltaf
öruggur lendingarstaður.
Það var aldrei vesen í kring-
um mömmu. Hún var hrein og
bein, regla var á hlutunum en
samt voru einhver veginn ekki
stífar reglur. Hún var nýtin og
hafði ekki áhyggjur af hvað
öðrum fannst, sem dæmi má
nefna að þegar þau pabbi giftu
sig klæddist hún sínum fínasta
kjól, þó svo hann væri svartur.
Hún var fróðleiksfús, ferðaðist
og las mikið. Hún lærði bók-
band sér til ánægju og fór á
ættfræðinámskeið og síðustu
árin má segja að Íslendingabók
hafi verið uppáhaldsvefsíðan
hennar en þar þvældumst við
um og hún sagði mér sögur for-
feðra og ættingja okkar.
Mamma var mikill húmoristi,
svolítill prakkari og tók lífinu
yfirleitt létt.
Ég hugsa til mömmu með
þakklæti og hlýju og sé hana
fyrir mér sitjandi við eldhús-
borðið á Brekkugötunni að
leggja kapal með litlu spilunum
sínum og Rás 1 ómar í bak-
grunni. Í þessum aðstæðum
voru málin oft leyst og ákvarð-
anir teknar. Stelpurnar mínar
áttu líka hjá henni skjól og var
þeirra annað heimili á Brekku-
götunni, enda sagði hún alltaf
að ég hefði eignast þær fyrir
hana.
Það var oft fjölmennt á
Brekkugötunni þegar vinir okk-
ar systkinana mættu og við lék-
um okkur um allt hús. Það hélt
svo áfram næstu kynslóð þegar
dætur mínar mættu með sína
vini, þá var mamma hætt að
vinna og hafði góðan tíma,
skellti í pönnukökur og sagði
sögur. Margar vinkonur Rósu
og Karenar kalla hana ömmu
pönnuköku, viðurnefni sem hún
hafði ákaflega gaman af.
Við stóðum saman. Svona
næstum því alltaf, og alltaf þeg-
ar það skipti máli. Hún studdi
mig með stelpurnar mínar og
ég studdi hana þegar heilsu
bæði hennar og pabba hrakaði.
Ég held að við höfum verið
ágætisteymi. Við áttum líka
ýmislegt sameiginlegt, t.d. að
kunna að meta bókmenntir,
prjóna og að geta alls ekki
sungið. En það dýrmætasta
sem ég held að hún hafi kennt
mér var umburðarlyndi, að
mæta fólki þar sem það er statt
og að allir eiga sinn tilverurétt.
Þetta sýndi hún í verki.
Við töluðum saman. Oft tím-
unum saman. Stundum um
veðrið, en ef það var eitthvað
sem hún treysti ekki þá voru
það veðurspár. Við töluðum um
allt milli himins og jarðar og
síðustu misserin talaði hún
mikið um æskuna á Ísafirði, en
við vorum sammála um að þó
svo heilsan leyfði ekki ferðalög
væri vel hægt að ferðast í hug-
anum, bæði í tíma og rúmi.
Mamma var sem sagt mikill
spjallari, en hún var líka góður
hlustandi og ótalmargir leituðu
til hennar í gegnum tíðina.
Mamma bjó á Hraunbúðum
síðustu árin umvafin umhyggju
og elsku, sem var gagnkvæm,
og fær starfsfólkið hjartans
þakkir.
Mikið á ég eftir að sakna þín
elsku mamma, en ég finn fyrir
knúsinu þínu og klappi á kinn.
Ég kveð þig að sinni elsku
mamma, við sjáumst síðar.
Helga Tryggvadóttir.
Móðir mín, amma Nikkó eins
og börnin mín kölluðu hana,
hjúkkan, sagnaþulurinn og sál-
fræðingurinn, þessi fasti sem
ávallt hefur verið til staðar í lífi
mínu, hefur lokið sinni síðustu
vakt. Mamma var alin upp á
Ísafirði. Ótal sögur sagði hún af
uppátækjum sínum og vina
sinna. Mamma var ævintýra-
manneskja og töffari. Reri á
grænlenskum kajak um Pat-
reksfjörð, ók Barðaströnd og
Suðurfirðina á Willys-jeppa.
Átti rússneska Póbeda-bifreið
með pabba sínum. Síðar ók hún
um Reykjavík á 250 kúbika
Husquarna-vespu.
Innan við tvítugt hóf hún
störf á Sjúkrahúsinu á Patró.
Þar fann hún svo sannarlega
fjölina sína og starfaði við
hjúkrun upp frá því, kláraði
Hjúkrunarskólann 1955.
Mamma var Hjúkka með stóru
Hái, væntumþykja, glaðlyndi og
næmni fyrir mannlegu eðli
hjálpaði henni við að ná til bæði
sjúklinga og aðstandenda. Árin
1959-1960 bjó mamma hjá
Helgu systur sinni í Wisconsin í
Bandaríkjunum og starfaði á
spítalanum þar. Mamma var
mikið náttúrubarn, áhugamann-
eskja um jarðfræði, eldgos,
hafði unun af því að ferðast inn-
anlands og utan, fór margar
ferðir um hálendið en það var
einmitt þar sem þau pabbi
kynntust. Hún var mikil áhuga-
manneskja um skáldskap, ljóða-
og kvæðamanneskja. Mamma
var tungumálamanneskja, tal-
aði ensku og skandinavísku og
kynntist alls konar fólki á
ferðalögum sínum.
Mamma var stoltur Íslend-
ingur og Ísfirðingur. Hún sagð-
ist vera ísfirskur eðalkrati,
mætti á Sólarkaffi Ísfirðinga-
félagsins ef hún átti þess kost
og var endalaus uppspretta
sagna og fróðleiks um Ísafjörð
og Vestfirði.
Vinum mínum þótti gott að
koma á Brekkugötuna, því
fylgdi alltaf spjall við mömmu
og eitthvert grín, glens og sög-
ur.
Helga systir átti örugga höfn
á Brekkugötunni og dætur
hennar Rósa Sólveig og Karen
Rut áttu þar sitt annað heimili
og vöfðu að sjálfsögðu afa og
ömmu um fingur sér og veittu
þeim ómælda ánægju og gleði.
Þegar ég kynntist Ragnhildi
konu minni urðu þær strax
miklar vinkonur, dætrum
Ragnhildar, Gunndísi Evu og
Helgu Rún, tók hún fagnandi.
Hún var ákaflega stolt af syni
okkar Tryggva Frey og milli
þeirra mynduðust sterk tengsl
og ekki minnkaði ánægjan þeg-
ar langömmubörnunum fór að
fjölga. Með tengdamóður
minni, Helgu í Vaðnesi, og
mömmu myndaðist líka mikil
og góð vinátta. Þær stöllur hafa
mælt sér mót á Heimakletti
þegar sá tími mun koma. Oft
dvöldu mamma og pabbi hjá
okkur töluverðan tíma og auð-
vitað urðu vinir okkar vinir
hennar líka.
Samband okkar var alltaf
gott og töluðum við saman á
hverjum degi og stundum oft á
dag, tókum stöðuna á fjölskyld-
unni, landsmálunum, heimsmál-
unum og veðrinu. Síðan fylgdu
oft með hugleiðingar um æsk-
una á Ísafirði og á Ströndunum.
Mamma var mikil kvenrétt-
indakona, einstaklega fordóma-
laus manneskja og ræddi af
virðingu og á jafnréttisgrund-
velli við alla, allir voru jafnir í
hennar huga. Helsta veganesti
hennar til mín tel ég að sé
manngæskan, væntumþykjan,
fordómaleysi að ógleymdri
ferðagleði og Ísafjarðarhjart-
anu.
Hvíl í friði, elsku mamma, þú
verður ávallt í hjarta mínu.
Magnús Tryggvason.
Nichólína Rósa
Magnúsdóttir