Morgunblaðið - 30.06.2021, Page 28

Morgunblaðið - 30.06.2021, Page 28
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Hvað sem kórónuveirufaraldri líður þarf fólk að næra sig, hressa og kæta og hjá mörgum er enginn dagur án kaffisopa. Þuríður Sverr- isdóttir, Torfi Þór Torfason og Íris Neri Gylfadóttir, eigendur og starf- andi hluthafar kaffihúsakeðjunnar Reykjavík Roasters, þekkja það vel og opnuðu nýjan kaffistað í Gerðar- safni í Kópavogi 20. maí. „Okkur hefur verið tekið mjög vel enda hlaupum við hratt, leggjum mikið upp úr góðu kaffi og meðlæti allan daginn, traustum morgunverði og salati og súpu í hádeginu auk brauðmetis,“ segir Íris Neri, sem hefur staðið vaktina frá byrjun. „Við sjáum fram á bjartari tíma og opnuðum ekki í Gerðarsafni fyrr en aðstæður leyfðu, en höfum hald- ið hinum kaffihúsunum opnum all- an tímann,“ segir Þuríður, en samningur um leigu á rýminu var undirritaður í lok nóvember á liðnu ári. Þar var áður kaffihús og að sögn Þuríðar þurfti því ekki miklu að breyta vegna opnunar nýja stað- arins. Virka daga er opið frá kl. 8.30 til 18, 9 til 18 á laugardögum og 10 til 18 á sunnudögum. Söfnin kallast á Reykjavík Roasters er byggt á grunni Kaffismiðju Íslands, sem var opnuð við Kárastíg í Reykjavík 2008. Þuríður Sverrisdóttir og Torfi Þór Torfason gerðust meðeigendur í fyrirtækinu 2013, rekstrinum var breytt og nafnið varð Reykjavík Roasters. Annað kaffihús var opnað í Brautarholti 2 2015 og það þriðja í Ásmundarsal við Freyjugötu haust- ið 2018, en það ár kom Íris Neri inn sem hluthafi. Þá voru kaffi- brennslan, pökkunin og heildsalan flutt frá Kárastíg í húsnæði Svans- prents í Auðbrekku í Kópavogi. Kaffihúsið í Gerðarsafni kallast á við kaffistaðinn í Ásmundarsal. Þuríður, sem vann á kaffihúsum með skóla frá 2005 og er listfræð- ingur frá Háskóla Íslands, bendir á að bæði kaffihúsin séu í söfnum, innan um verk karlkyns mynd- höggvara í Reykjavík og kvenkyns myndhöggvara í Kópavogi. „Við höfum verið með listsýningar á stöðunum okkar og viljum halda áfram á sömu braut,“ segir hún og vísar meðal annars í sýningaröðina „Í kring“ þar sem sami listamaður sýndi verk á öllum stöðunum og fólk fór á milli. „Útfærslan á kaffi- húsinu í Gerðarsafni er háð sam- þykki fagráðs safnsins, en hug- myndin er að opna næstu sýningu á öllum stöðunum á Menningarnótt.“ Kaffibaunirnar eru einkum flutt- ar inn frá Suður- og Mið-Ameríku auk Afríku og er markmiðið að vera alltaf með bestu mögulegu baunirnar, að sögn Þuríðar. Heims- faraldurinn hefur riðlað starfsem- inni en aðgerðir stjórnvalda hafa gert eigendum mögulegt að halda starfseminni áfram gangandi. „Vegna samkomutakmarkana og tveggja metra reglunnar komust ekki allir að sem vildu og því þurfti fólk stundum frá að hverfa, ekki síst á morgnana, en það tók þá bara kaffið með sér út,“ segir Þuríður. Hún bætir við að það sé ekkert nýtt, sumir hafi alltaf tekið kaffi með sér á hlaupum og í faraldr- inum hafi aðrir bæst í þann hóp. „Mesta höggið var auðvitað að missa ferðamennina en við vonum að nú séu bjartari tímar fram und- an.“ Listalíf með kaffinu - Reykjavík Roasters með kaffihús í Gerðarsafni í Kópavogi Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Eigendur Íris Neri Gylfadóttir, Þuríður Sverrisdóttir og Torfi Þór Torfason. Reykjavík Roasters Vítt er til veggja og hátt til lofts í Gerðarsafni. Þurrk- grindur Laugavegi 29 | sími 552 4320 verslun@brynja.is | brynja.is 3 stærðir Vefverslun brynja.is Innan- og utandyra 60 cm x 4,9 lm, ber 20 kg Verð kr. 10.330 Útdraganleg 5x4,2 lm Verð kr. 8.410 80 cm x 6,7 lm, ber 20 kg Verð kr. 11.450 100 cm x 8,5 lm, ber 20 kg Verð kr. 12.395 Opi ð v irka dag a fr á 9- 18 lau frá 10- 16Nýtt sýningarrými, Gallerí undirgöng, verður opnað viðHverfisgötu 76 í Reykjavík í dag. Rýmið er í rúmgóðum upplýstum undirgöngum sem liggja í gegnum húsið og verða þau vettvangur fyrir tímabundin útilistaverk og áskorun fyrir listamenn þar sem sýningarrýmið er held- ur óhefðbundið. Sýnd verða verk eftir tvo listamenn á ári til að byrja með og er Anna Hallin þeirra fyrst og nefnist verk hennar Loftmynd. Er það unnið beint á veggi rýmisins og byggt á blekteikningum Önnu sem sækja innblástur í loftmyndir af mannvirkjum, eins og segir í tilkynningu. Gallerí undirgöng er styrkt af Reykjavíkurborg. Nýtt sýningarrými í undirgöngum MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 181. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. „Ég mun nálgast þetta af æðruleysi og taka þetta á gleðinni. Ég held að það sé skynsamlegast fyrir mig núna. Ég æfi þokkalega mikið en gæti þess að fara ekki of geyst í það. Þar sem ég hef ekkert verið að keppa þá er erfitt að vera með miklar væntingar. Ég mun reyna að njóta þess að fá að gera það sem mér finnst gaman að gera, með þeim bestu í heiminum. Það eru ekki allir sem fá slíkt tækifæri,“ segir Ásgeir Sigurgeirsson með- al annars í blaðinu í dag, en hann mun í næsta mánuði keppa í skotfimi á Ólympíuleikum í annað sinn. »23 Ásgeir Sigurgeirs fer til Japan með gleði og æðruleysi í farteskinu ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.