Morgunblaðið - 04.06.2021, Blaðsíða 6
V
iðarvörn er meðal annars notuð til að
ná fram lit, gljáa og útliti sem óskað
er eftir. Hægt er að setja á viðaryf-
irborð glær hálfþekjandi og þekjandi efni.
Viðarvörn verndar yfirborðið gegn óhrein-
indum, gráma, fúa, vatni og veðrun. Lyk-
ilatriði í vörn viðarvarnar er tvíþætt; að hindra
að sólarljós komist að viðaryfirborðinu og
halda rakastigi viðarins lágu.
Góð undirvinna er jafnan forsenda góðs
árangurs. Gott er að ná viðarkvoðu úr kvistum
með því að skrapa hana í burtu og þrífa með ter-
pentínu. Þá er gott að bera Viðar-grámahreinsi
á viðinn og nota skrúbb til að fjarlægja
sveppavöxt, myglu og fleira.
Viðar-pallaolía er ætluð til notkunar á
við utanhúss og hentar sérstaklega vel á
sólpalla og viðarhúsgögn. Olían inniheldur
efni til varnar sveppa- og gróðurmyndun.
Olían frískar útlit viðarins og kemur í veg
fyrir ofþornun og spurngumyndun.
Það ættu allir að finna leiðir til að gera
pallinn fallegan í sumar og það vinsælasta í
dag er klassískir jarðlitir í möttum ljósum
tónum. Liti á borð við ljósbrúnan og
koksgráan ættu allir að skoða. Ljósmynd/Colourbox
Góður pallur er fjár-
festingarinnar virði
Mattur koksgrár
litur er vinsæll í
sumar á pallinn.
Viðar-pallaolía frískar
útlit viðarins og kemur
í veg fyrir ofþornun og
sprungumyndun.
Ljósmynd/Slippfélagið
Þeir sem vilja búa til draumapallinn í sumar geta nú valið sér viðarvörn í hvaða lit sem
er frá Viðar-vörulínu Slippfélagsins. Viðar-pallaolían frískar upp á útlit viðarins og ef
marka má nýjustu tísku verður ekki síðra að vera úti á palli í sumar en inni í húsi.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2021
G
rasflöturinn framan við húsið á Tjarn-
argötunni er lítill og beðin alltaf vel
snyrt. Lilja vallarins vekur athygli við
göngustíginn inn í húsið og húsgögnin í
garðinum eru einföld og látlaus.
Einn af eigendum hússins sér um framgarðinn og
vildi ekki koma fram undir nafni en segir garð-
umhirðu eitt besta ráð til að ástunda núvitund í lífinu.
Til að hafa grasið þétt og fallegt er mælt með að
slá það á sex daga fresti. Eins er gott að taka upp
mosa og hreinsa illgresi reglulega úr grasinu. Þá er
gott að strá grasfræjum á þá staði þar sem grasið
hefur verið hreinsað.
Lykillinn að baki fallegum garði er að vilja vera í
garðinum að dytta að honum reglulega. Margir fara
í jóga og hugleiða inni á heilsustöðvum en þeir sem
kunna lagið á núvitund upp á gamla mátann fara út í
garð og hugleiða þar í léttri vinnu. Garðurinn launar
svo eigendum sínum margfalt þá vinnu sem hefur
verið lögð í hann.
Eitt af því sem vekur athygli við húsið er að þótt
allir sem búa í því fái að njóta garðsins getur verið
sniðugt að skipta ábyrgðinni á milli eigenda hússins.
Nú er verið að endurgera bakgarðinn þar sem íbú-
arnir geta bráðlega notið sólarinnar fyrri hluta
dags.
Við Tjarnargötuna í miðborg Reykjavíkur er fallegur lítill framgarður sem lætur lítið
yfir sér en vekur athygli þeirra sem ganga fram hjá húsinu. Grasið í garðinum er
alltaf fallega slegið og liljur vallarins látnar móta hluta af stígnum upp að húsinu.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vandlega klipptur gróður
er víða um garðinn.
Garðurinn er fallega
snyrtur og gerir ásýnd
hússins enn þá fegurri.
Bleika hjólið
í garðinum
vekur athygli