Morgunblaðið - 04.06.2021, Blaðsíða 10
H
jónin Guðmundur Vernharðsson
og Sigríður Helga Sigurð-
ardóttir eiga og reka Gróðr-
arstöðina Mörk saman.
Sumarblómin eiga hug þeirra
allan og luma þau á allskonar góðum ráðum
sem hægt er að nýta sér á þessum árstíma
þegar kemur að garðinum.
„Þegar það er ennþá hætta á næturfrosti
þarf að hlúa vel að sumarblómunum og gæta
þess að þeim verði ekki of kalt. Ég mæli með
að breiða akrýldúk yfir nóttina á þau
blóm sem nú þegar eru komin út í
garð.
Gæta þarf að hafa nægan hita á
þeim sem eru ennþá inni. Að loka öll-
um hurðum og gluggum,“ segir Guð-
mundur.
Garðurinn hans er eins og listaverk
Leggur þú mikla rækt við garðinn
þinn?
„Já það geri ég. Hann er eins og
listaverk lita og árstíða sem ég sé út
um gluggana á húsinu mínu. Í raun er garð-
urinn minn séður út um gluggana stækkun á
húsinu ásamt pallinum og glerskálanum.“
Hvað er skemmtilegast að gera í garðinum
og hvaða ráð áttu fyrir þá sem eru ekki með
græna fingur? „Skemmtilegast er að planta
einhverju nýju hvort sem það er runni, sum-
arblóm eða fjölær planta og fylgjast með
hvernig nýbúinn dafnar. Svo er mikilvægt að
njóta fegurðarinnar í garðinum.
Besta ráðið fyrir þá sem telja sig ekki vera
með græna fingur er að prófa að nota garð-
inn sem slökunarstað. Að gefa sér tíma í
garðinum og að prófa að dunda sér í garð-
inum í rólegheitunum. Ég mæli með að fólk
forðist að vinna í stressi í garðinum sínum.
Annars er það mjög algeng fullyrðing hjá
viðskiptavinum okkar að þeir hafi ekkert vit
á garðyrkju. En síðan kemur í ljós þegar
samtalið við þá byrjar að þeir hafa bæði vit,
smekk og skoðanir á því sem tengist garð-
inum og garðrækt almennt.“
Nú virðist vinsælt að gera svalirnar fal-
legar. Hverju mælir þú með tengt því?
„Ég mæli með sumarblómum á svalirnar
þar sem þau færa góðan ilm og yndi á þá
staði þar sem svalirnar eru mest notaðar.
Ég mæli með því að fólk noti heldur stærri
potta en minni þannig að þeir rúmi nægilegt
vatn fyrir plönturnar í sól og hita. Einnig
getur verið gott að vera með stóra potta þeg-
ar eigendur þurfa að bregða sér frá.
Það er líka tilvalið að vera með lágvaxna
runna, sígræna eða lauffellandi sem eru til
yndisauka allt árið.
Síðan eru yfirbyggðar svalir alltaf að verða
Garðrækt er
eins og hvert
annað listform
Guðmundur Vernharðsson garðyrkjufræðingur er á
því að flestir hafi eitthvert vit á garðrækt. Að æfingin
skapi meistarann og það sé nauðsynlegt að verja tíma í
garðinum til að slaka á til að efla sig í garðyrkju.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Sigríður Helga og Guðmundur búa að Stjörnugróf 18 þar sem þau reka Gróðrastöðina Mörk.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Égmæli með
því að fólk noti
heldur stærri
potta en minni
þannig að þeir
rúmi nægilegt
vatn fyrir
plönturnar í
sól og hita.
5 SJÁ SÍÐU 12
Það er mikið um gróður og tré í sælureitnum
þar sem Gróðrastöðin Mörk er staðsett.
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2021