Morgunblaðið - 04.06.2021, Blaðsíða 14
Á
ður en hún settist á skólabekk
hafði Svanfríður hannað nokkra
garða og tók þá fullan þátt í að
smíða þá og græja enda skorti
hana á þeim tíma þekkinguna til
að koma hugmyndum sínum á blað þótt
ástríðan væri alveg fyrir hendi.
„Að byggja garða frá grunni var bæði
skemmtileg og lærdómsrík reynsla sem
nýttist mér virkilega vel í náminu síðar,“
segir Svanfríður hress í bragði en spurð að
því hvað hafi heillað hana mest við námið
segir hún það vera hversu yfirgripsmikið og
vítt fagsviðið landslagsarkitektúr sé í raun.
„Það er ekki nóg að vera með góða hug-
mynd að hönnun og skipulagi. Landslags-
arkitektúr er þverfaglegt svið sem tengir
saman arkitektúr og listir, fagurfræði,
grasafræði, umhverfissálfræði, lýðheilsu,
félagsfræði, jarðfræði, vistfræði og veður-
fræði og allt þetta þarf að hafa með inni í
myndinni þegar til stendur að skipuleggja
garða og útisvæði,“ útskýrir hún en fyrir
henni felst helsta áskorunin í starfinu í því
að auka lífsgæði fólks, vellíðan og slökun.
„Sumarið á Íslandi er svo stutt en ef
maður er með fallegan garð og/eða útisvæði
til að njóta lengir það sumarið. Mér finnst
gott að hugsa til þess að fólk upplifi slökun
Helsta áskorunin
er að auka lífsgæði
og vellíðan
Svanfríður Hallgrímsdóttir, fyrrverandi flugfreyja, hafði látið
sig dreyma um að verða landslagsarkitekt í tuttugu ár þegar
hún tók loks af skarið og skráði sig í Landbúnaðarháskóla
Íslands árið 2017, þá 45 ára. Nú hefur hún ákveðið að helga
sig alfarið því starfi og varla vanþörf á því eftirspurnin eftir
kunnáttu landslagsarkitekta hefur stóraukist á síðustu árum.
Margrét Hugrún | margret.hugrun@gmail.com
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2021
Það er fallegt að láta smíða blómaker í mismunandi hæðum og búa þannig til meiri dýpt í garðinn.
5 SJÁ SÍÐU 16
Hér má sjá teikningu af palli.