Morgunblaðið - 04.06.2021, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 04.06.2021, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2021 Hýsi-Verkheimar ehf. | Smiðjuvegi 44-46, Kópavogi | Sími 497 2700 | hysi@hysi.is | www.hysi.is Gróðurhús 5x9 Metrar5x6 Metrar Erum að taka niður pantanir í gróðurhús frá Rundbuehaller. Húsin eru þrautreynd á Íslenskum markaði og hafa reynst afar vel. Endingagóð, einföld uppsetning og mikil gæði í PVC plötum. Hægt að fá burðarvirki galvanizerað eða grunnað eftir þörfum. B jörn Jóhannsson hefur aðstoðað Íslend- inga við að hanna garða sína í fjölda ára. Urban Beat býður upp á heildræna þjón- ustu í garðhönnun, allt frá einfaldri ráð- gjöf sem unnin er með fyrirtækjum á borð við BM Vallá og Byko upp í heildarhönnun garða þar sem garðurinn er skoðaður í sýndarveruleika. Öll verkefnin eru útfærð í þrívíðum teikningum og er notast við sýndarveruleika með sömu tækni og notuð er við gerð tölvuleikja. „Á þessum árstíma er allur kraft- ur settur í að vinna verkefnin sem hlaðast inn á biðlistana. Ég hef að- eins verið að fjölga fólkinu í kring- um mig en grafíski hönnuðurinn minn hún Guðbjörg Björnsdóttir hefur verið hægri höndin mín í að gera verkefnin falleg og spennandi í mörg ár. Ég held að við höfum unnið fyrst saman í kringum árið 1997. Nýjasti með- limurinn í teyminu er hann Albert Guðmundsson, en hann er tækniteiknari með gríðarlega reynslu sem garðverktaki. Hann var um árabil aðalteiknarinn hjá Steypustöðinni og tók þátt í þróun á vörulínunni þeirra. Svo hafa synir okkar Alberts, þeir Arnór og Gunnar Már, komið sterkir inn sem þrívíddarteikn- arar. Það eru því allar árar fyrir borð og róið á fullu.“ Það hefur aldrei verið jafnmikið að gera og núna hjá Birni og eru biðlistar frá tveimur upp í sex mán- uði. Það fer eftir umfangi verkefnanna. „Vonandi verður það til þess að fólk sjái tækifæri til þess að nýta veturinn í hönnunarvinnu og í að semja við verktaka. Þannig má jafnvel koma fram- kvæmd af stað í byrjun árs og sitja úti í nýjum fal- legum garði þegar fyrstu sólargeislar vorsins gægjast inn í hann.“ Útieldhús vinsæl Hvað er vinsælt núna að gera þegar kemur að garðinum? „Skemmtilegasta nýjungin okkar er kampavíns- veggurinn. Sú hugmynd kom upp þegar ég var að vinna í hönnun þakgarðs í Stokkhólmi og við vorum að finna leiðir til að brjóta upp svæðið með veggjum. Þá fór umræðan í hvernig ætti að stilla af hæð og breidd þessara veggja. Nið- urstaðan var sú að hæðin sé stillt af þannig að það sé gott að leggja frá sér kampavínsglas og breiddin þannig að platti með snittum komist vel fyrir. Svo höfum við verið að þróa smáhýsi fyrir garðinn en nú er leyfileg stærð þeirra orðin 15 fermetrar. Þau eru ýmist nýtt sem laufskálar, geymslur, gufuböð eða sturtuklefar. Það er líka algengara að byggja þök yfir bæði úti- eldhús og verandir. Útispa með heitum potti, köldum potti, sturtu og gufubaði er líka draumur margra. Það sem okkur finnst þó mest spennandi fyrir næstu misseri er kryddjurtabarinn.“ Ertu sjálfur hrifinn af hráu útliti? „Það hefur alltaf verið stefna hjá mér að vinna með fyrirliggjandi arkitektúr og umhverfi á sem skemmti- legastan hátt. Hrátt útlit passar vel við fúnkisstefnu síðustu tveggja áratuga en ef við erum að vinna með Kampavínsveggurinn hentar einstaklega vel fyrir heimilisfólk sem velur að borða úti í garði á sumrin. Það ættu allir að vera með kampa- vínsvegg í garðinum að mati Björns Jóhannssonar, landslagsarkitekts og garðahönnuðar hjá Urban Beat. Hann mælir einnig með gufubaði, sturtuklefa, geymslu og laufskála í garðinn. Kaldir og heitir pottar eru einnig vinsælir sem og útispa. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is „Skemmtilegasta nýjungin okkar er kampavínsveggurinn“ Björn Jóhannsson Huggulegur heitur pottur í hráu fallegu umhverfi. „Minn eigin garður er íslenska hálendið. Þar eyði ég, fótgang- andi eða á reiðhjóli, eins miklum tíma og ég mögulega get. Þar er viðhald sem ég þarf að sinna í al- gjöru lágmarki. 5 SJÁ SÍÐU 22

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.