Morgunblaðið - 04.06.2021, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2021
Sími 557 8866 | www.kjotsmidjan.is | Fossháls 27, 110 Reykjavík Opnunartími
8:00-16:30
Úrvals hamborgarar og grillkjöt
Krydd, sósur og ýmsar grillvörur
F
yrir þá sem
vilja vinna
með íslenska
veðrinu og
gera eigin út-
lönd í garðinn gæti gler-
hús verið góður kostur.
Fjölskyldan í Kópa-
vogi hafði lengi dreymt
um að eignast gróður-
hús og fann það sem
leitað var að hjá BK
hönnun.
Þau keyptu húsið um
áramótin og settu það
upp um páskana.
Hugmyndin að baki
húsinu er að geta setið
úti og notið þess að vera
úti í náttúrunni en þó í
skjóli.
Þau settu glerhúsið
upp sjálf, grófu upp
jarðveginn og steyptu
undir húsið. Hellulögnin
gekk vel fyrir sig og
uppsetning hússins var
einföld að þeirra sögn.
Inni í húsinu eru fal-
legt borð og stólar frá
IKEA. Hurðin er rennihurð og húsið er með þakgluggum sem opnast sjálfkrafa við ákveð-
ið hitastig í húsinu.
Fjölskyldan er ennþá að prófa sig áfram með gróður í glerhúsinu en er nú með alls kon-
ar plöntur, jarðarber og kryddjurtir, ólífutré og eucalyptus, sem gefur góðan ilm. Þar má
einnig finna bláberjarunna og klifurplöntu.
Það verður sérstaklega huggulegt inni í húsinu þegar veðrabreytingar eiga sér stað og
íslenska rigningin verður sérstaklega sjarmerandi þegar inn í glerhúsið er komið.
Kostnaðurinn við þetta hús er vel fjárfestingarinnar virði og getur verið leið til að sitja
úti lengur en hægt er á hefðbundnum palli.
Hafði lengi
dreymt um
notalegt glerhús
Inni í húsinu má finna
fallegar begoniur.
Svört blóm með svörtu gler-
húsi er einstaklega falleg sjón.
Fjölskylduna hafði lengi
dreymt um glerhús til að
hafa í garðinum.
Kvöldsólin slær á
glerhúsið róman-
tískum ljóma.
Glerhúsið er fallegt í
morgunsólinni og setur
svip sinn á allt umhverfið.
Morgunte og girnilegt brauð fær á sig öðruvísi bragð þegar
gróðurinn fær að hafa áhrif á skynvitin líka.
Fjölskylda í Kópavogi gerði fallega viðbót við garðinn nýverið þegar
hún setti upp huggulegt glerhús fyrir plöntur og borðstofu úti í garði.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is