Morgunblaðið - 04.06.2021, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 04.06.2021, Qupperneq 16
Á vefnum landslag.is, sem Björn Jóhannsson lands- lagsarkitekt stýrir, er að finna nokkuð góðar leiðbein- ingar um hvernig bera á sig að fái maður áhuga á að laða til sín álfa. Textahöfundur virðist hafa leitað ráða hjá sérfróðum og komist að því að álfar séu mikl- ar náttúruverur sem þurfi ákveðnar gerðir bústaða svo þeir megi blómstra. „Til þess að útbúa garð þannig að hann laði til sína álfa þarf að bera virðingu fyrir náttúru og umhverfi. Álfar eru náttúruverur í miklum tengslum við gróður og móð- ur jörð. Uppbygging bústaða þeirra þarf því að miða að því að góð jarðtenging fáist, sérstaklega þegar verið er að koma fyrir klettum, dröngum eða stórum steinum. Því stærra hlutfall steinsins sem er neðanjarðar því betri verður tengingin við jörðina. Til að tryggja þetta má miða við að tveir þriðju hluta hans séu neðan- jarðar. Ef um er að ræða fleiri en einn stein þurfa þeir að falla þétt saman og helst þannig að ekki sjá- ist í gegnum bilið á milli þeirra. Áður en slíkum steinum er komið fyrir þarf að skoða lögun þeirra vel. Álfabústaðir þurfa dyr, en þær eru ofanjarðar og myndast á flötum hluta steinsins. Því er sléttur flötur látinn standa upp úr jörðinni til að mynda dyrnar, halla eilítið mót himni en snúa þannig að þær nái annaðhvort sólar- geislum morguns eða kvölds. Til þess þurfa dyrnar að snúa móti austri eða vestri. Álfar búa einnig í grashólum og ef hóll er mótaður fyrir álfa skal hann vera fallegur í laginu og lagaður með ást og umhyggju.“ Þá er bara að drífa þetta í gang og vona það besta. Svona lokkar þú alvöru álfa í garðinn þinn Flest elskum við að horfa á falleg blóm og annan gróður í görðum okkar en hvað ef það væri hægt að bæta við eins og nokkrum lifandi álfum? Margrét Hugrúnmargret.hugrun@gmail.com Þessi teikning birtist á vefnum landslag.is. 16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2021 og vellíðan í sínum draumagarði, og geti notið skjóls og mismunandi lita og áferða gróðursins eftir árstíðum,“ segir Svanfríður og bætir við að sú vitundarvakning sem nú er í gangi hvað varðar umhverfismál, sjálf- bærni og endurnýtingu hafi orðið til þess að fólk leitar í auknum mæli til landslags- arkitekta. „Fólk er til dæmis í vaxandi mæli tilbúið að prófa sig áfram í smá heimaræktun eins og á kryddjurtum, salati og berjarunnum og margir stunda lágmarksheimilisjarðgerð eða moltugerð. Heimilisræktun er skemmtilegt dæmi um sjálfbærni og um leið er hún auðveld leið fyrir hvert okkar til að taka þátt í að fækka kolefnisspor- unum.“ Sækir sér innblástur um allan heim Áður en Svanfríður settist á skólabekk hafði hún starfað sem flugfreyja í fimmtán ár. Flakk um heiminn fylgir flugfreyju- starfinu og það að hafa ferðast mjög víða hefur reynst Svanfríði afar vel þegar kem- ur að því að sækja sér innblástur og setja saman ólík áhrif sem hún hefur fundið um víðan völl, í Asíu, Ameríku og víðar. Hún segir íslenska landslagsarkitekta einkum horfa til norrænu landanna í sinni hönnun og bætir við að þau lönd séu þó töluvert lengra komin á sviði landslagsarkitektúrs en við hér á Íslandi. „Hér er einnig meiri áskorun í hönnun vegna legu landsins á hnettinum og veð- urfarsins og það er mjög mikilvægt að taka þessa þætti inn við hönnun og skipulag á umhverfinu úti,“ segir hún. Fallegur garður hefur góð áhrif á heilsuna Svanfríður heillast meira af því að hanna garða fyrir einstaklinga fremur en stofnanir og ástæða þess er meira af andlega tog- anum en hinum veraldlega en eins og allir garðunnendur vita felast mikil lífsgæði í því að rækta garðinn sinn. „Ég tel að vel hannaður einkagarður eftir óskum eiganda, í bland við hugmyndir hönnuðar, sé stórt skref í að kalla fram vel- líðan, minnka streitu og hjálpa okkur að dvelja í núvitund og njóta líðandi stundar. Að hafa fallegt og vel skipulagt flæði um garðinn, fjölbreytta liti og vellyktandi plöntur er talið bæta heilsu og líðan þeirra sem finna sig í slíku umhverfi og þessu hef ég reynslu af.“ Spurð hvaða mistök fólk eigi helst til að Hér má sjá teikningu af palli með heitum potti og útisófa og stólum. Það færist í vöxt að fólk vilji leggja meira í garðinn. Hér er búið að teikna upp skjól með þaki þar sem fólk getur haft það notalegt í sófa. Fólk er til dæmis í vaxandi mæli tilbúið að prófa sig áfram í smá heimaræktun eins og á krydd- jurtum, salati og berjarunnum og margir stunda lágmarks heimilisjarðgerð eða moltugerð. 5 SJÁ SÍÐU 18 Vönduð glugga- og hurðanet Sniðin eftir þínum óskum. Þú setur saman eða við gerum það fyrir þig. Lúsmýnet, skordýranet, gæludýranet, frjókornanet, stálnet (músanet) Láttu EKKI lúsmýið trufla þig, það er til lausn! Glugganet.is Hlíðarsmári 8 (bakhlið)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.