Morgunblaðið - 04.06.2021, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 04.06.2021, Qupperneq 28
góðir vinir og sammála með flest þó svo að við tökumst auðvitað á eins og eðlilegt er í hjóna- bandi.“ Sigurjón er sonur Báru Sigurjónsdóttur sem margir muna eftir sem Báru bleiku. Sigurjón Einarsson togaraskiptstjóri faðir Báru og Rannveig Vigfúsdóttir eiginkona hans létu byggja húsið fyrir sig í upphafi fjórða áratugar síðustu aldar. Tveimur árum eftir að þau Sigurjón og Þóra Hrönn eign- uðust það fóru þau í að gera upp garðinn. „Ég var þá ófrísk að Báru dóttur okkur og settum við heitan pott í garðinn og fengum falleg grenitré frá Þingvöllum.“ Gerðu garðinn fyrst upp árið 1986 Þó að Sigurjón hafi ekki alist upp í húsinu þá á hann margar góðar minningar þaðan. Þau hjónin vildu því leggja vel í að gera um- hverfið fallegt fyrir fjölskylduna, ekki síst ut- andyra. „Við byrjuðum á að taka húsið í gegn að innan og fengum svo samhliða því Ragnhildi Skarphéðinsdóttur landslagshönnuð til að teikna upp garðinn fyrir okkur. Árið 1986 lét- um við framkvæma teikningarnar. Þá var öllu úr garðinum mokað út og niður á klöppina sem húsið stendur á. Við settum síðan nýjan jarðveg, settum jarðvegsdúk yfir beðin og hraungrús þar ofan á. Við vildum vera með tilvísun í hraunið þar sem húsið stendur í Hafnarfirði sem stundum er kallaður „Bærinn í hrauninu“. Við keyptum steinhellurnar í garðinn á Litla-Hrauni og granítböndin sérpöntuðum við frá Portúgal. Einu trén sem voru frá fyrri tíð voru silf- urreynirinn fyrir framan húsið. Þeim var plantað þar árið 1931 þegar húsið var nýtt. Hliðin fyrir framan húsið voru sérpöntuð frá Hollandi. Grenitré sem voru lengi í hægra horninu í bakgarðinum komu úr sumarbústaðarreit austan úr Þingvallasveit. Annað í garðinum keyptum við á gróðrarstöðvum víðs vegar um landið.“ Árið eftir að þau tóku garðinn í gegn fengu hjónin verðlaun fyrir húsið og garðinn. Verð- launin voru veitt fyrir glæsilegan garð og endurreisn á húsi. Það var svo árið 2008 sem húsið var valið sjöunda fallegasta húsið á Stór-Reykjavík- ursvæðinu. „Við fengum svo aftur verðlaun árið 2020 en þá höfðum við farið í endurbætur og múr- viðgerðir á húsinu. Þá tókum við öll beðin upp, settum ný tré og plöntur í garðinn, mál- uðum húsið og fleira.“ Leggur mikinn metnað í grasflötina Er mikil vinna að halda svona garði við? „Við reyndum að gera garðinn eins sjálf- bæran og hægt var. Þess vegna settum við jarðvegsdúk yfir öll beð og hraunsalla þar of- an á sem dæmi svo ekki þyrfti að reyta arfa og annað íllgresi. Við höfum alltaf plantað blómum í brúnu blómsturspottana á vorin og tekið þau niður á haustin. Svo hef ég haft það að reglu að slá grasið í kringum húsið tvisvar til þrisvar í viku á vorin og sumrin svo grasið sé eins fallegt og hægt er. Það hef ég gert með handsláttuvél svo grasflötin sé eins og á bestu golfvöllunum. Það setur mikinn glæsileika á svæðið að hafa grasflötinn fínan. Það hefur aldrei verið yfirþyrmandi eða of mikil vinna að sjá um garðinn. Við höfum svo látið mála húsið á sex til sjö ára fresti. Maður þarf að vera vakandi í viðhaldinu ef vel á að vera.“ Í garðinum er lítill kofi sem ekki fer mikið fyrir. Í honum eru öll garðáhöldin geymd. Eigið þið eftir að sakna hússins? „Við erum bæði með tárin í augunum en það eru þakklætistár en ekki saknaðartár. Svo vitum við að það er gott fólk að koma í húsið sem skiptir okkur öllu máli,“ segir Þóra Hrönn. „Auðvitað er erfitt að kveðja heimilið sitt til 37 ára þar sem maður hefur skapað margar og góðar minningar en ég trúi því að skyn- samlegt sé að stíga inn í nýjan kafla í lífinu fyrr en seinna. Það er alltaf andlegt álag að flytja og að grisja úr dótinu sem safnast hefur með árunum en við höfum fundið öllum þeim Húsið var byggt í upphafi fjórða ára- tugar síðustu aldar. Garðurinn í kvöldljóma eftir síðustu endurbætur sem voru gerðar árið 2018 til ársins 2019. Þóra Hrönn og Sigurjón eru mikið í garðinum. Bæði að njóta og hafa það gott en einnig að vinna að umbótum, slá grasið og dytta að blómum og fleira. 28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2021

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.