Morgunblaðið - 04.06.2021, Side 37
FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2021 MORGUNBLAÐIÐ 37
577-1515 •
gaman af ferðalögum og höfum við reynt að
finna tíma í það minnsta einu sinni á ári til
að ferðast og sumarfríin okkar tökum við
gjarnan að hausti eða jafnvel í byrjun vetrar
en það fer allt eftir því hversu mikið er að
gera í ferðaþjónustunni.“
Hverju mælir þú með fyrir Íslendinga að
gera í sumar?
„Ég mæli svo sannarlega með að Íslend-
ingar leggi landi undir fót og ferðist innan-
lands í sumar líkt og síðasta sumar sem
þrátt fyrir allt var nú bara nokkuð gott.
Landið okkar er svo fallegt og hefur upp á
svo óendanlega margt að bjóða. Ef fólk er að
keyra hringinn mæli ég með að þræða alla
litlu staðina, litlu bæjarfélögin og sjá hvað
þau hafa upp á að bjóða.
Fólk úti um allt er að gera svo frábæra
hluti og það eru algjörir fjársjóðir sem leyn-
ast víða s.s. eins og fallegt handverk, rækt-
un, litlir markaðir sem og nytjamarkaðir,
alls kyns framleiðsla, saumastofur, skemmti-
leg kaffihús, menningarviðburðir, skíða- og
hjólaferðir, göngu- og útivistarferðir, hvala-
skoðun, rafting, hestaferðir og margt margt
fleira.“
Á sumrin e
r Gamli bæ
rinn skrey
ttur
með falleg
um blómu
m.
Gamli bærinn
stendur á lóð sem
er í mikilli rækt.