Morgunblaðið - 04.06.2021, Page 38

Morgunblaðið - 04.06.2021, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2021 Við leigjum út krókgáma FRAMKVÆMDIR? til lengri eða skemmri tíma HAFÐU SAMBAND: sími: 577 5757 www.gamafelagid.is Hugsum áður en við hendum! V ið tókum við góðu búi þar sem fyrri eigendur höfðu lagt sig fram við að móta garðinn. Við höfum síðan gert heilmiklar breytingar á garðinum en þær hafa einkum falið það í sér að við höfum skerpt á skipulagi hans og stíl. Lóðin er um 1.300 m² og kallar því á töluverða umhirðu til þess að allt sé eins og við viljum hafa það. Við byrjum á því að undirbúa sumarið með því að klippa og hreinsa garðinn í apríl á hverju ári. Garðabær hefur lagt sig fram við það að vera í hópi snyrtilegustu bæjarfélaga á landinu og hefur meðal annars af þeim sökum boðið upp á að hreinsa það sem til fellur af garðúrgangi frá húsum í sérstöku umhverfisátaki sem á sér stað í byrjun í maí ár hvert. Það er því mikilvægt að vera búin með vorverkin fyrir þann tíma.“ Samtaka í lífi og starfi Að því loknu þarf að huga að því að viðhalda og endurnýja plöntur og runna þannig að allt sé klárt fyrir sumarið. „Við erum afar samtaka í öllum verkum er varða garðinn. Það er ljóst að í þetta fer mikill tími hjá okkur báðum en þeim tíma er vel varið því þannig gefst tækifæri til þess að styrkja nú- vitundina og auka vellíðan og beina athygli að líð- andi stund og finna betur fyrir sjálfum sér. Það auðveldar því hugleiðslu og leitina að innri friði.“ Hvernig lýsið þið garðinum ykkar? „Garðurinn er tvískiptur. Fremri garðurinn hefur yfir sér japanskan blæ þar sem áhersla er á hreinleika og einfaldleika með stígum og stórum mosavöxnum steinum ásamt lágvöxn- um sígrænum gróðri.“ Með epla- og kirsuberjatré í garðinum Áhersla er á mismunandi form þar sem krónan á stóru reynitré er klippt snöggt þann- ig að hún breiðir úr sér. „Birkitrén eru einnig formuð og eru eins og spaðar í laginu og aldrei meira en 30 til 50 cm á breidd til þess að þau þrýsti ekki um of á hekk- ið sem umlykur lóðina. Garðurinn fyrir aftan húsið hefur hefð- bundnara form þar sem finna má eplatré og kirsuberjatré og hafa eplatrén borið ríkulegan ávöxt á undanförnum árum. Þar er einnig að finna lítið sumarhús sem barnabörnin hafa leikið sér í en er nú notað sem áhaldahús. Að baki húsinu eru moltukassar þar sem við vin- um efni sem fellur til úr garðinum yfir sum- artímann. Jafnframt erum við með lítinn reit fyrir grænmeti og jarðarber.“ Pallurinn við húsið er þannig gerður að hann veitir mikið skjól á góðviðrisdögum og nota hjónin pottinn mörgum sinnum í viku árið um kring, sama hvernig veður og vindar blása. Litla húsið í garðinum var áður notað fyrir leik en er nú áhaldahús hjónanna. „Fremri garður- inn hefur yfir sér japanskan blæ“ Magnúsína G. Valdimarsdóttir og Þór G. Þórarinsson hafa búið í Þrasta- nesi í næstum sautján ár. Þau leggja mikið upp úr því að vera með fallegan garð enda verja þau miklum tíma bæði í að njóta og vinna í garðinum. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Hjónin nota pottinn nokkrum sinnum í viku allan ársins hring. Magnúsína G. Valdi- marsdóttir og Þór G. Þórarinsson hafa búið í Þrastanesi í 17 ár.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.