Morgunblaðið - 04.06.2021, Qupperneq 40
Á lóðinni er mikið af táknrænum hlutum.
Villt náttúran vex í sátt við blóm sem
reglulega eru sett niður.
Draumahúsið stendur
í miðri náttúruparadís
40 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2021
R
ayan Patrekur og Fríða Rakel búa
í fallegu heilsárshúsi í Grímsnes-
inu. Áður en kórónuveiran skall á
voru þau bæði að vinna í stórborg-
inni. Saman eiga þau Hydra Flot
Spa á Hlemmi sem er eins konar vellíð-
unarstaður fyrir borgarbúa sem hafa ekki tíma
til að fara út í náttúruna.
„Böðin eru með 500 kg af epsom-salti sem
gefur afslöppun og dregur úr streitu. Það get-
ur reynt á að vera allan daginn í vinnu og hafa
ekki afdrep til að núllstilla sig enda tíminn eitt-
hvað sem við borgarbúar þurfum að keppast
við stöðugt. Það var síðan í apríl á síðasta ári í
miðri kórónuveiru sem við byrjuðum að leita
að húsnæði til að kaupa utan borgarinnar.“
Fríða Rakel veit fátt betra en að vera úti í
náttúrunni og þótt Ryan Patrekur hafi verið
orðinn þreyttur á borginni þá hefur aðlögun að
lífi úti í sveit tekið hann aðeins lengri tíma.
Stórbrotin náttúra einungis
klukkustund frá borginni
Á landinu sem fylgir húsinu í Grímsnesi er
einstök náttúra. Fríða Rakel er völva eða eins
konar seiðkona. Það lærði hún í shamanísku
jógakennaranámi í Perú árið 2019.
Seiðkona er sú sem gengur í báðum heimum
og hefur trú á að allt hafi anda. Bæði fólk, dýr,
plöntur, steinar, fjöll, ár, tungl og stjörnurnar.
Það er því ekki að undra að hún uni sér vel í
nýja húsinu þeirra.
„Heimilið okkar úti í náttúrunni styður fal-
lega við lífsstíl okkar beggja þar sem mikið er
af plöntum og auðvelt að tengjast náttúrunni.
Ég verð samt að viðurkenna að það hefur tekið
mig tíma að venjast náttúrunni og að búa hér.
Orkan er svo allt önnur og ég er með þannig
huga að það er erfitt að slökkva á honum. Skil-
in á milli vinnu og leiks eru svo óskýr þegar
maður býr í borginni. Ég veit að ég er ekki sá
eini sem finnst erfitt að vera með fókusinn al-
veg við heimilið sér í lagi þegar maður á og
rekur fyrirtæki sjálfur. Ég hef hins vegar lært
að slaka á í þá klukkustund sem ég keyri á leið
til vinnu og aftur heim. Þannig hef ég náð að
aftengja mig alveg og vera heima með hugann
þegar ég er kominn heim í sveitina.
Það er einnig notalegt að hlusta á hljóð-
bækur í bílnum og að spjalla við vini og ætt-
ingja í gegnum bluetooth í bílnum.
Það er ekki hægt að bera þetta saman. Að
geta spilað tónlist hátt en þó ekki þannig að
hún ónáði nágrannanna er lúxus. Að hlusta á
kyrrðina og fallegu náttúruhljóðin sem róa
hugann og færa okkur vellíðan svo ekki sé tal-
að um að fara í heita pottinn án sundfata. Allir
þessir litlu hlutir hafa skapað ótrúleg verð-
mæti við að búa hér.“
Þau vildu eiga landið sem þau búa á og
fannst það gefa þeim meiri tengingu við stað-
inn.
„Við vildum vera með fallegt útsýni en þó
með þannig náttúru að hún héldi fallega utan
um okkur. Við fundum það á þessum stað.“
Hvernig hefur viðhald garðsins gengið?
„Við höfum upplifað mikla ánægju af því
að viðhalda gróðrinum á landinu. Trén sem
voru hér fyrir hafa vaxið talsvert og svo höf-
um við plantað nokkrum til viðbótar. Við
ræktum grænmeti, blóm og ávexti. Við erum
einnig með hugmyndir um að setja upp gróð-
urhús og meiri grænmetisræktun í náinni
framtíð.“
Ryan Patrekur Kevinsson og
Fríða Rakel Kaaber segja fátt
jafnast á við það að vinna í
garðinum. Þau vona að fleiri
Íslendingar geti fest kaup á
heilsárshúsi á landsbyggðinni
enda fátt eins gott fyrir heils-
una og að vera úti í náttúrunni.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Fríða og Ryan mæla með
því að vera úti að vinna í
garðinum á daginn.
Fríða og Ryan
hafa komið sér
fallega fyrir á
Bjarkarbrautinni.
Fríða og Ryan vita fátt skemmtilegra en
að búa í sveitinni þar sem þau rækta
garðinn og sambandið hvort við annað.
Húsinu fylgir stór garð-
ur sem er táknrænn og
skemmtilegur.