Skólablaðið

Årgang

Skólablaðið - 01.04.1979, Side 20

Skólablaðið - 01.04.1979, Side 20
KOMUR 5ÉU Allt frá því að konur fóru að vakna til vitundar uir. kúgun sína og hófu baráttu gegn henni hefur femínisrainn greinst í marga skoðanahópa neð ólíkar stefnur (orðið femínismi, enska: feminism, þýðir kvennabarátta). Greinir femínista aðallega um baráttuaðferðir en einnig um það hverjar séu orsakir kvennakúgunar. Stærstu skoðanahóp- amir og um leið þá sem greinir nest á eru annars vegar borgaralegir femínistar og hinsvegar byltingarsinnaðar femínistar. I þessari grein er ætlunin að rekja ólík sjón- armið og stefnur þessara tveggja hópa. hfegineinkenni borgaralegs femínisma er að hann lítur á kvennabaráttuna sem baráttu fyrir lagalegum réttindum og ýmsu öðru innan ramna borgaralegs þjóðfélags sem stuðli að „jafnri stöðu" kvenna og karla. Borgaralegir feministar miða að því að öðlast sömu réttindi og eiginmaður, faðir og bróðir og telja því að berjast verði gegn karlmanninum, þ.e. að karlmaðurinn sé höfuðóvinur konunnar. Að þeirra mati liggja orsakir kvennákúgunnar ekki í samfélagsgprðinni og þess vegna telja þeir enga þörf á breytingu á henni. Þeir hafna afnámi einkaeignarrlttarins og rlttnæti stéttabará*t- unnar. Að frairansögðu ætti að vera ljóst að barátta borg- aralegra femínista er eiginhagsmunabarátta í sjálfu slr því að þeir taka afstöðu með borgarastéttinni gegn hagsmunuir, verkakvenna og verkamanna. Allir feministar berjast gegn karlveldiseiginleikum sam- fllagsins, karlrembu (male chauvinism) og gegn hefðburidnum hugnyndum um stöðu kvenna og hlutnerk þeirra. Allar konur eru kúgaðar sem kyn, en kúgunin er þó misnunandi eftir því hvaða stltt og þjóðfélagshópi þær tilheyra. Yfirstéttarkorá finnur kvennakúgunina brenna á sér en hún á meiri möguleika til að losa sig undan henni en verkakona. Efnahagsleg staða hennar gerir henni kleift að komast hjá höfuðvandaaáli verka - konu þ.e. töföldu vinnuálagi, skorti á barnagæslu, slæmri vinnuaðstöðu, menntunarskorti, fjárhagsáhyggjum o.s.frv. Byltingarsinnaðir feiránistar hafna því að orsakir kvenna- kúgunar sé að kenna „vonsku" eða „eigingimi" karlmanna. Þeir telja að orsakir kvennákúgunnar sl að finna í samfélags- gerðinni. Að þeirra mati er það fáránlegt að kenna karlmönn- um um kvennakúgunina, þiú að afstaða þeirra, eins og afstaða kvenna, mótast af þeirri innrætingu er viðgengst í samfélag- Borgaralegt þjóðfélag byggir á alls konar kúgun og mis- rétti. Þess vegna telja byltingarsinnaðir femínistar að kúgun kvenna verði ekki afnumin nema því eingöngu að ráðist sé gegn rótum hennar - þjóðfélaginu. Kvennabaráttan sé því óaðskiljanleg baráttu verkalýðsins fyrir sköpun nýrra þjóð- félagshátta. Það getur ekki verið markmið verkakonunnar að öðlast sömu réttindi og arðrændur eigiranaður hennar, aðir og bróðir. ást er. 'f" í® \ ... aö pakka niður fyrir hann. TM R*o U.S. P*l Ofl,—al rtflhu raMrvsd • 1978 Los Angslss TlmM Syndlcsl* En hvað meina byltingarsinnaðir femínistar með því að samfélagsgerðin sé orsök kvennákúgunnar? Hvers vegna vilja Þeir bylta þessu borgaralega þjóðskipulagi sem við lifum í? Jú, svarið felst í gróðasjónarmiði kapítalisnans. Höfuð- einkenni kapítalismans er sóknin í hámarksgróða. Arðrán kapítalistanna á verkafólki byggist á að hirða gildisaukann af launum verkafólks. Þess vegna reynir borgarastlttin að koma í veg fyrir allar ráðstafanir er geta skert gróða hennar. Og gagnráðstafanir hennar eru því þær, að herða tök sín á valdatækjum þjóðfélagsins, stofnunum þess og hug- myndafræði. Af þessum sökum leggur borgarastéttin mikla áherslu á öfluga innrætingu til þess að viðhalda hugnynda- fræði sinni - kapítalismanum. Borgarastéttinni er mikilvægt að halda í fjölskylduna, eins og hún er núna. Fjölskyldan sem stofnun í kapítal- ísku þjóðfélagi er nauðsynlegur liður í kúgunarapparati auðvaldsins. Auðvaldsþjóðfélagið þarf,eins og öll önnur þjóðfélög, fyrst og fremst að viðhalda framleiðslutækjunum, vinnuaflinu og framleiðsluafstæðunum (þ.e. hver vinnur við hvað). Þessi tvö síðasttöldu verkefni kona að nestu leyti í hlut fjölskyldunnar í auðvaldsþjóðfélagi. Konan heldur sínu þjónustuhlutverki í fjölskyldunni, viðheldur bæði vinnuaflinu og endurframleiðir vinnuafl með bamseignum. Hvað viðvíkur viðhaldi á framleiðsluafstæðum þá er fjölskyldulífið gegnumsýrt af mismunandi hlutverkum kynjanna. Strákum er innrætt að hlutverk þeirra í framtíð- inni sé fyrst og fremst það að vera „fyrirvinnur" og allt uppeldi þeirra miðast við þetta. Þeir eiga að vera sterkir bæði andlega og líkamlega og láta engan bilbug á sér finna. Uppeldi stúlkna miðast hins vegar við það að þær eigi að láta í ljósi tilfinningar og undirgefni, vera líkamlega og andlega veikbyggðari en karlnenn. Þeirra hlutverk í framtíðinni sé að gegna þjónustuhlutverkinu á heimilinu og viðhalda og endurviðhalda vinnuaflinu. Hlutverk fjölskyldunnar er einnig að miðla stéttaskipt- ingunni áfram. Það er augljóst mál að kapítalistinn vill halda auði sínum innan sinnar fjölskyldu. Það er einnig staðreynd að böm úr efri stéttum fá neiri hvatningu frá foreldrum sínum til samfélagslegra afreka en böm úr verka- lýðsstétt. Borgarastéttinni tekst vel til með fjölskylduna. Það er og brýnt hagsmunamál hennar að viðhalda stöðu konunnar á heimilunum og halda henni þar. ínu.

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.