Morgunblaðið - 10.07.2021, Síða 25
UMRÆÐAN 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 2021
Bjarmaland 13, 245 Sandgerði
Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is
5 herbergja einbýli á einni hæð
með sólpalli og geymsluskúr á lóð.
Jóhannes Ellertsson
Löggiltur fasteignasali – s. 864 9677
Júlíus M Steinþórsson
Löggiltur fasteignasali – s. 899 0555
Verð 38.500.000 Birt stærð eignar er 120,4 m2
S
ænski stórmeistarinn Ulf
Andersson sem varð sjö-
tugur 27. júní sl. tefldi í
fyrsta sinn á Íslandi á 5.
Reykjavíkurskákmótinu veturinn
1972. Hann vann nokkur athygl-
isverð endatöfl í því móti en fræg-
asta skák hans þar var þó gegn
Úkraínumanninum Leonid Stein.
Stein var þá nýbúinn að vinna Alje-
kín-mótið í Moskvu ásamt Anatolí
Karpov. Kynslóð Andersons sem oft
er kennd við ártalið 1951 tók yfir
sviðið á sinn hátt eftir að Bobby
Fischer hvarf af sjónarsviðinu. Af
þessum einstaklingum stóð Karpov
fremstur en auk hans og Svíans má
nefna Jan Timman, Ungverjana
Ribli og Sax og Filippseyinginn
Torre.
Eftir Ólympíumótið í Siegen í V-
Þýskalandi árið 1970 fékk sænska
dagblaðið Expressen Andersson og
Bobby Fischer til að tefla eina skák
en hver leikur viðureignarinnar birt-
ist svo á síðum blaðsins á hverjum
degi þá um haustið. Fischer vann
glæsilega og leitt hefur verið að því
líkum að taflmennska hans hafi haft
svo mikil áhrif á Ulf að skákstíll
hans hafi síðar tekið stakkaskiptum.
Það skipti ekki öllu máli hvort hann
hafði hvítt eða svart; oft stillti hann
peðum sínum þannig að þau þokuð-
ust varla fram yfir sjöttu eða þriðju
reitaröðina. Þannig þæfðist hann
skák eftir skák, mót eftir mót, ár eft-
ir ár. Tapaði sjaldan en vann alltaf
nokkrar skákir „… því að jafnteflin
eru góð meðal vinninganna,“ sagði
hann gjarnan. Hann leitaði snemma
eftir drottingauppskiptum og mönn-
um lærðist fljótt að eilítið betra
endatafl var ógnvænlegt vopn í
höndum Svíans. Í byrjun níunda
áratugarins komst hann í fjórða sæti
heimslistans og tefldi á 1. borði gegn
Karpov í keppni Heimsliðsins við
Sovétríkin í London vorið 1984.
En stíll Andersson hafði sínar tak-
markanir og það var honum ljóst.
Alltof oft voru sömu stöðurnar að
koma upp og jafnteflunum rigndi
niður. Við upphaf alþjóðlegs skák-
móts í Svíþjóð árið 1995 tefldi Ulf
frábæra skák við einn öflugasta
stórmeistara heims, sem fékk mig til
að sjá hann í nýju ljósi:
Österskärs 1995:
Boris Gelfand – Ulf Andersson
Nimzo-indversk vörn
1. d4 e6 2. c4 Bb4+ 3. Rc3 Re7
Óvenjulegur leikur og afar sjald-
séður.
4. Dc2 O-O 5. e3 c5 6. Bd3 h6 7. a3
Bxc3 8. Dxc3 cxd4 9. exd4 d5 10. c5
b6 11. Rf3 bxc512. dxc5 f6 13. b4 e5
14. Bc2 Bf5 15. Bb3 Kh8 16. O-O d4
17. Db2 Rbc6 18. b5 e4!
- Sjá stöðumynd 1 -
Bregst hart við. Hann gat einnig
leikið 18. … Ra5.
19. Rh4 Re5 20. Rxf5 Rxf5 21.
De2 d3 22. Dxe4 Rd4 23. Bd1 He8
Hér og í næsta leik sniðgekk Ulf
einföldustu leiðina sem var að hirða
b5-peðið.
24. Kh1 f5 25. De3 Dh4 26. Df4
Dxf4 27. Bxf4 Rxb5 28. Bh5 g6 29.
Hae1
29. … gxh5 30. Hxe5 Hxe5 31.
Bxe5+ Kg8 32. Hd1 He8 33. f4 Rxa3
34. Hxd3 Rc4 35. Bd4 Hd8
„Hógvær“ leikur og kannski sá
besti. Annar möguleiki var 38. …
He1+ 39. Bg1 Hc1.
36. c6 Kf7 37. c7 Hc8 38. Hg3
Vitanlega gat hvítur náð jafntefli
með 38. Bxa7 Hxc7 en Gelfand var
að tefla til sigurs.
38. … Ke6 39. Hg7?
Teygir sig of langt. Hann gat enn
hirt a7-peðið með jafnteflislegri
stöðu.
39. … a5!
Grípur tækifærið.
40. Hh7 Kd5 41. Bc3 a4 42. Kg1
a3 43. Kf2 a2 44. Ke2 Rd6! 45. Kd3
Rb5!
Tveir snjallir riddaraleikir og
svarta staðan er unnin.
46. Bb2 Hxc7 47. Hxh6 Ha7 48.
Hxh5
48. … Ha3+! 49. Kd2 Ke4 50. g4
Hf3 51. gxf5 Hf2+ 52. Kc1 Rd4
- og Gelfand gafst upp.
Einn af ’51-
kynslóðinni
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Ljósmynd/Grand Chess Tour
Fyrsti leikurinn Kasparov lék fyrsta leikinn fyrir Vachier-Lagrave á
skákmótinu í Zagreb sem hófst á miðvikudaginn. Hann mun tefla í
hraðskákhluta mótsins sem hefst kl. 13 í dag.
Í sköpunarsögu
Biblíunnar er þess get-
ið að Skaparinn hafi
skapað allt samkvæmt
sinni tegund (fyrsta
Mósebók 1:11-31). Ein
er tegund hveitifræs-
ins, önnur tegundin
fénaðurinn og mað-
urinn af tegundinni
maður.
Hverjum tilheyrði
maðurinn áður en hann
fæddist? Hann bjó í húsi föður síns
og móður. Var fræ þeirra og til-
heyrði foreldrum sínum áður en
honum var plantað í lífsandans mold
við aðstæður ástarinnar, sem leiddi
af sér getnaðinn.
Fræið spírar ekki
eða vex fyrr en við rétt-
ar aðstæður. Það þarf
næringu og vökvun og
umhyggju móðurmold-
arinnar sem gefur því
ríkulega lífsandann úr
súrefnismettuðu blóði
móðurinnar. Þar fær
það einnig ást og ljós í
djúpi jarðar.
Fræ geta ósáð
geymst í langan tíma,
án þess að verða að
jurtum og blómum,
sem síðan verða ný fræ
og þannig koll af kolli. Það er eins
með manninn. Fræ mannanna
geymast uns réttar aðstæður
kveikja nýtt líf og vitundin vaknar af
svefni. Við mennirnir erum sama
tegund, samfélag tegundarinnar
maður. Sama vitundin bærist með
okkur, hjörtun hin sömu, gleðin,
sorgin, draumar, sársaukinn og un-
aðurinn. Sálin er sæðið sem þarf að
lifa sem maður til að verða gró sem
nýir menn munu vaxa af. Við erum
dropar af sama vatni, sandkorn af
sama bergi, hold af sama holdi, logar
af sama eldi, ljós af ljósi, menn af
mönnum – af Guði.
Eftir Einar Ingva
Magnússon » Við mennirnir
erum sama
tegund, samfélag
tegundarinnar maður.
Einar Ingvi
Magnússon
Höfundur er áhugamaður
um mannlífið.
einar_ingvi@hotmail.com
Menn af mönnum
Valdimar Ásmundsson fæddist 10. júlí
1852 á Hvarfi í Bárðardal, sonur hjónanna
Ásmundar Sæmundssonar og Bóthildar
Björnsdóttur, og ólst upp í Reykjadal og
síðar Þistilfirði. Hann varð bókhneigður
og naut um tíma leiðsagnar séra Gunnars
Gunnarssonar á Svalbarði. Hann var
sjálfmenntaður og þótti einkar ritfær
snemma. Innan við tvítugt fór hann að
heiman og næstu tíu árin vann hann við
ritstörf og kennslu á Akureyri og víðar.
Þar samdi hann réttritunarbókina Rit-
reglur, árið 1878, sem fékk mikla út-
breiðslu og var notuð til kennslu bæði í
skólum og heima. Árið 1881 fór hann suð-
ur og kenndi fyrst í Flensborgarskóla en
stofnaði síðan blaðið Fjallkonuna 1884.
Valdimar hvatti alþýðu manna til lestrar
og sagði dagblöð besta skólann. Í Fjall-
konunni voru viðraðar margar nýjar og
stundum umdeildar hugmyndir. Árið
1884 birtist grein þar sem mælt var með
aðskilnaði ríkis og kirkju og ári seinna
birti Valdimar grein um kvenfrelsi. Árið
1888 kvæntist hann Bríeti Bjarn-
héðinsdóttur, kvenréttindafrömuði, og
saman áttu þau börnin Héðin og Lauf-
eyju. Valdimar lést langt fyrir aldur fram
17. apríl 1902.
Merkir Íslendingar
Valdimar
Ásmundsson