Morgunblaðið - 10.07.2021, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 10.07.2021, Qupperneq 39
DÆGRADVÖL 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 2021 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is • Mjög auðvelt og fljótlegt í notkun • Tilbúið til matreiðslu á 3-5 mínútum • Afkastamikið og öflugt • Mjög góð hitastýring á kolum • Ytra byrði hitnar ekki • Færanlegt á meðan það er í notkun • Innra byrði má fara í uppþvottavél • Taska fylgir • Mikið úrval aukahluta STÓRSNIÐUGT GRILL Í GARÐINN, Á PALLINN EÐA Í FERÐALAGIÐ SKOÐAÐU ÚRVALIÐ Á FASTUS.IS/LOTUSGRILL Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „HONUM LÍKAR VEL VIÐ ÞIG!“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... hreiðurgerð. JÓLA- SMÁKÖKUR … ÞAÐ ÞARF AÐ KLÁRA ÞÆR TÍMANLEGA! PABBI, LÚTUR ÞÉNAR PENINGA FYRIR TÓNLISTAR- FLUTNINGINN! FRÁBÆRT! ERTU AÐ FJÁRFESTA? JÁ, HERRA MINN! „ÉG FJÁRFESTI Í STÆRRI TINBOLLA!“ „ALVEG LAUKRÉTT. HVORUGUR ER MEÐ GRÍMU OG ÞEIR VIRÐA EKKI TVEGGJA METRA REGLUNA.“ hljóðritaði Þorvarður Goði Valdi- marsson flutning sönghópsins Lux aeterna á öllum erindunum úr Pass- íusálmum Hallgríms Péturssonar. Hægt er að hlusta á þessar upptökur auk viðtals um Passíusálmana á net- inu undir nafni Smára. Núna er hann að vinna frumrann- sókn á Oddi Oddssyni presti á Reynivöllum 1565-1649 og 93 sálm- um byggðum á Davíðssálmunum. Talsvert hefur verið skrifað um störf Smára bæði hérlendis sem og er- lendis og víst er að margur þjóðar- arfurinn myndi týnast ef ekki væri fyrir fræðimenn eins og Smára, sem standa vaktina. Fjölskylda Eiginkona Smára er Ingibjörg Styrgerður Haraldsdóttir myndlist- armaður, f. 1.11. 1948. Foreldrar hennar eru hjónin Haraldur Gísla- son kaupmaður, f. 9.7. 1915, d. 17.9. 1970 og Sigríður Vava Björnsdóttir, húsfreyja, f. 23.5. 1921, d. 20.3. 2003, búsett í Reykjavík. Börn Ingibjarg- ar og Smára eru: 1) Stefán Steinar, vélvirki í Hafnarfirði, f. 13.7. 1967, í sambúð með Kristínu Hermanns- dóttur, f. 19.11. 1974. Börn þeirra eru Smári Steinar, f. 6.1. 1999, Nat- an Steinar, f. 4.12. 2000 og Styrmir Steinar, f. 6.9. 2004. Þau skildu. Seinni kona Stefáns er Kristjana Guðný Helgadóttir bókari, f. 3.12. 1971. Barn þeirra er d) Númi Stein- ar, 7.6. 2013. 2) Bárður, rafvirki í Hafnarfirði, f. 7.4. 1975. Kona hans er Halla Eyberg Þorgeirsdóttir tón- listarkennari, f. 28.3. 1978. Börn hennar eru: 1) Ciara Margrét Ey- berg nemi, f. 17.8. 2000. 2) Áróra Ey- berg nemi, f. 16.5. 2006. c) Jökull Ey- berg nemi f. 14.12. 2008. 3. Anna Aðalheiður, grafískur hönnuður hjá Ableton í Berlín, f. 10.12. 1980. Bræður Smára eru 1) Tómas Grétar verktaki, f. 11.2. 1935, d. 4.10. 2015, eiginkona Guðlaug Gísladóttir, f. 22.11. 1935, d. 23.9. 2008. Fjöldi af- komenda er 23. 2) Pálmar arkitekt, f. 5.10. 1938, kvæntur Sigurveigu Sveinsdóttur, f. 13.10. 1940. Fjöldi afkomenda 8. Foreldrar Smára eru hjónin Bárð- ur Óli Pálsson forstjóri, f. 27.8. 1910, d. 26.4. 1986 og Anna Á. Tómasdóttir húsfreyja, f. 9.3. 1905, d. 13.2. 1974. Smári Ólason Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja á Reynifelli í Rangárvallasýslu Árni Guðmundsson hreppstjóri á Reynifelli í Rangárvallas. Margrét Árnadóttir húsfreyja Barkarstöðum Fljótshlíð Rangárvallasýslu Tómas Sigurðsson bóndi á Barkarstöðum í Fljótshlíð í Rangárvallasýslu Anna Á. Tómasdóttir húsfreyja í Reykjavík Guðríður Þóra Árnadóttir húsfreyja á Barkarstöðum í Rangárvallas. Sigurður Ísleifsson bóndi á Barkarstöðum í Rangárvallasýslu Gyðríður Guðmundsdóttir húsfreyja í Ytri-Skógum í Rangárvallasýslu Oddur Sveinsson bóndi í Ytri-Skógum í Rangárvallasýslu Margrét Oddsdóttir húsfreyja á Ytri-Skógum í A-Eyjafjallahr. Rangárvallas. Páll Bárðarson bóndi á Ytri-Skógum í Austur-Eyjafjallahreppi í Rangárvallas. Sigríður Helgadóttir húsfreyja á Raufarfelli í Rangárvallasýslu Bárður Pálsson bóndi á Raufarfelli í Rangárvallasýslu Úr frændgarði Smára Ólasonar Bárður Óli Pálsson forstjóri Reykjavík Gátan er sem endranær eftir Guðmund Arnfinnsson: Á nóttinni er þarfaþing, Þroskamerki á strákaling. Er þar margt af ýmsu skráð. Efla hag í lengd og bráð. Hér er svar frá afdönkuðum kennara sem alltaf byrjar daginn með því að lesa Vísnahornið: Í næturgagn hann gerði í þögn. Gagn hann veitti konum. Í kistlinum liggja gulnuð gögn. Gögn nýtast landsins sonum. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una svona: Næturgagnið gagnast mér. Í gagnið Svenni kominn er. Margt er skráð í gagnagrunn. Gögn sem hlunnindi vel kunn. Þá er limra: „Það sem verður að vera viljugugur skal hver bera“ og „Gái hver að sjálfum sér.“ Þau sannindi gagn oss gera. Síðan er ný gáta eftir Guðmund: Gátur í sífellu sem ég, sjálfan mig varla þá hem ég, með látum þær saman lem ég og loks hér með eina kem ég: Á höfði mér fljótt mátti finna. Flatkaka hálf eða minna. Flakkar hann fölur og bleikur. Flinkur á hljóðfæri leikur. Hjálmar Freysteinsson kallar þessa limru „Þjóðlega vankanta“: Þjóðinni þarf ei að hrósa þótt ég geri mér ljósa vankanta þá er virðast hér á. Hún ætti ALDREI að kjósa. „Hár kostnaður við prófkjör“ kallar Hjálmar þessa limru: Í prófkjörspústrum og þrætum án peninga verið ei gætum. Um það ríkir sátt en þetta er fullhátt verðlag á vonlausum sætum. Grímur Sigurðsson á Jökulsá orti: Vertu ekki að grufla gátur. Graut þinn éttu og slátur. – Leiðin liggur um höf, lendingin heitir gröf. Indriði Þorkelsson Ytrafjalli orti: Sé til lengdar barnlaus bær, breyskjast hjartarætur. Þungt, ef vantar þann sem hlær, þyngra hinn er grætur. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Gagn og gaman

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.