Morgunblaðið - 10.07.2021, Qupperneq 43
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Kaktus tekur æði djörf skref á
þessari plötu finnst mér og
er greinilega umhugað um að
feta ekki þá stigu sem sveit hans Fuf-
anu þræðir. Þegar maður hugsar um
það, þessi plata er líkast til búin að
gerjast í honum í meira en áratug,
áratugi jafnvel, en Kaktus sást fyrst á
sviði liðlega tíu ára með Ghostigital.
Kick the Ladder vann Kaktus
með svissneska raftónlistarmann-
inum Kurt Uenala (Null & Void).
Platan var samin á Íslandi og þróuð
frekar í Kaupmannahöfn í samvinnu
við franska píanistann Thibault
Gomez. Þeir félagar unnu m.a. að því
að koma óhefðbundinni píanótækni
og annarri tilraunamennsku í popp-
lagabúning og ber platan þessari
vinnu fagurt vitni.
Mýkt er orðið sem er mér efst í
huga eftir að hafa rennt plötunni
nokkrum sinnum. Og eitthvað sem
væri hægt að kalla reisn
jafnvel. Platan fer aldrei
út í neinn æsing heldur
rúllar hvert og eitt lag
áfram í höfugum gír.
Flæðið er jafnt og
öruggt og það er nánast
eins og verkið sé viljandi
til baka, Kaktus haldi
upp að sér spilunum og
hleypi okkur ekki of ná-
lægt. Hér er reisuleg ró og stilla yfir.
Platan er seintekin, seytlar inn í þig
hægt og rólega. Gefðu henni tíma,
kæri hlustandi.
Tónlistin er einslags rafskotið
popp, lögin eru popplög en maður
finnur fyrir þessum pælingum sem ég
Aldrei einn á ferð
lýsi fyrr án þess að þær skyggi
nokkru sinni á lagið sem slíkt. Tökum
dæmi. „One of those“ er t.d. ein af
þessum stílíseruðu rafballöðum Kakt-
usar, melódísk og værðarleg en í eins-
lags goth-skotnum gáfu-
mannagír. Það er líka
eitthvað „evrópskt“ við
það hvernig Kaktus
nálgast þetta, lagið „My
driver“ gæti t.d. hafa
skotið upp kolli í löngu
gleymdri franskri kvik-
mynd frá 1987. Meira að
segja í hressari lögunum
(„Story of Charms“ t.d.)
finnur maður fyrir þessari afskiptu
nálgun ef við getum lýst þessu sem
svo, nokkurs konar svöl fjarlægð við
efnið sem virkar vel, gefur plötunni
dulúð. Og sjá t.d. „45 rpm“ sem kom
út á smáskífu. Dreymið og dulrænt,
fallegt og hugleiðandi en þrætt með
þessari samtíma-klassísku nálgun
sem Kaktus og Gomez kokkuðu upp í
Köben. Maður hugsar um þessa
framsæknu poppara eins og David
Sylvian hvar ræturnar voru í vin-
sældapoppi en úrvinnslan bæði til-
raunakennd og framsýn.
Merkilegur frumburður um
margt. Mér finnst eins og Kaktus sé
gömul sál og verkið er óvenju þrosk-
að fyrir mann sem hefur ekki enn náð
þrítugu. Yfir því er þroski og rósemd,
æðibunugangur æskunnar víðs fjarri.
Ég er giska spenntur að heyra hvert
hann fer með þetta í framhaldinu.
Eins og svo margir þarf hann að bíða
af sér eitt stykki heimsfaraldur upp á
að tilkeyra efni á tónleikum en hann
og John Grant áttu að fara í túr sam-
an sem hefur nú verið frestað fram á
árið 2022.
Í viðtali við V13 fyrir stuttu lýsti
Kaktus því að sólóefnið gæfi honum
kost á því að láta stjórnsemispúkann í
sér hlaupa um frjálsum og villtum.
Samt, orðið púki eða „freak“ nær ein-
hvern veginn að kjarna þennan hæg-
láta en mjög svo skýra hæfileika-
mann. Úr drungalegu rafgotapoppi í
undurfagurt, klassískt skotið Evr-
ópupopp. Ég skal segja ykkur það!
»
Mér finnst eins og
Kaktus sé gömul sál
og verkið er óvenju
þroskað fyrir mann sem
hefur ekki enn náð þrí-
tugu. Yfir því er þroski
og rósemd, æðibunu-
gangur æskunnar víðs
fjarri.
Kaktus Einarsson er
hvað þekktastur fyrir
að vera forsprakki
Fufanu en nú hefur
hann gefið út sína
fyrstu sólóplötu, Kick
the Ladder.
Einn Kaktus
Einarsson spinn-
ur fallegan þráð
á nýrri plötu.
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 2021
Fjórðu tónleikar sumarjazztón-
leikaraðar Jómfrúarinnar við
Lækjargötu verða haldnir á
Jómfrúartorti í dag kl. 15. Kontra-
bassaleikarinn Tómas R. Einarsson
kemur þá fram með latínsveit sinni
en hana skipa trompetleikarinn
Snorri Sigurðarson, Samúel Jón
Samúelsson sem spilar á básúnu og
guiro, Sigtryggur Baldursson
kóngatrommuleikari og Daníel
Helgason sem leikur á kúbanska
tresgítarinn. Á efnisskrá verða ým-
is lög Tómasar frá síðustu tveimur
áratugum sem hann hljóðritaði með
íslenskum og kúbönskum tónlistar-
mönnum.
Latínsveit Tómasar
R. á Jómfrúnni
Á bassanum Tómas R. Einarsson.
Listaparið Pat
Lemos og Lukas
Lemann opna í
dag, laugardag,
kl. 17 sýninguna
How a place
comes to be, eða
Hvernig staður
verður til, í gall-
eríinu Ram-
skram, Njálsgötu
49. Pat Lemos er frá Spáni og
Lukas Lehmann frá Þýskalandi og
eru bæði myndlistarmenn og sýna
sem dúóið Lemos + Lehmann. Þau
búa ýmist á Spáni eða Írlandi og er
ljósmyndin þeirra miðill til tján-
ingar. Lemos og Lehmann kanna í
list sinni líkamann, umhverfið og
tímann og hina ýmsu staði sem þau
ferðast til. Eru verk þeirra allt frá
því að vera algjörlega fígúratíf yfir
í að vera abstrakt og náttúruleg
yfir í að vera dulræn og yfirnátt-
úruleg.
Lemos + Lehmann
sýna í Ramskram
Verk eftir tvíeykið