Morgunblaðið - 10.07.2021, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 10.07.2021, Qupperneq 48
Fyrir líkama og sál L augarnar í Reykjaví k w w w sýnumhvert öðru tillitssemi Litháíski leikstjórinn Uršule Bartosevièiûtë mun leikstýra einu frægasta leikverki leik- bókmenntanna, Mac- beth, í Borgarleikhús- inu á næsta leikári. Bartosevièiûtë lærði undir handleiðslu Yönu Ross sem bæði hefur leikstýrt Mávinum og Sölku Völku í Borgar- leikhúsinu. Bartose- vièiûtë hefur vakið at- hygli fyrir leikstjórn sína í heimalandinu Litháen. Halldóra Geirharðsdóttir og Hjörtur Jóhann Jónsson munu fara með hlutverk Macbeth-hjónanna og Sólveig Arnarsdóttir með hlutverk nornadrottning- arinnar Hekötu. Litháískur leikstjóri leikstýrir Macbeth í Borgarleikhúsinu LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 191. DAGUR ÁRSINS 2021 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.268 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is England og Ítalía mætast í úrslitaleik Evrópumóts karla í fótbolta á Wembley-leikvanginum í London annað kvöld. Philipp Lahm, fyrirliði heimsmeistaraliðs Þýska- lands árið 2014, skrifar pistil fyrir Morgunblaðið í dag þar sem hann segir bæði liðin bera skýr einkenni sinna þjóða og hrósar þjálfurunum Gareth Southgate og Ro- berto Mancini fyrir þeirra vinnu. Southgate láti ensku stjörnurnar taka ábyrgð fyrir hönd þjóðarinnar og Mancini hafi skapað liðsheild eins og hjá félagsliði. »41 Úrslitaleikur Englands og Ítalíu ÍÞRÓTTIR MENNING Ari Páll Karlsson ari@mbl.is Sl. miðvikudag byrjaði fyrsta stóra skátamótið á Úlfljótsvatni og stend- ur út helgina. Má því segja að skáta- sumarið sé hafið af fullum krafti. Um 200 skátar og 40 foringjar eru nú á mótinu en í stað eins stórs landsmóts var ákveðið að halda þrjú mót í staðinn. „Það er núna fyrsta vikan og svo byrjar þetta aftur á miðvikudaginn,“ segir Rafnar Frið- riksson, mótsstjóri fyrsta mótsins, en önnur skátafélög og önnur móts- stjórn er á hinum tveimur skátamót- unum. Sjálfur er Rafnar í skátafélaginu Skjöldungum í Reykjavík, en auk þeirra voru þangað mætt félögin Landnemar, Klakkur, Faxi, Mos- verjar, Heiðabúar og Vífill. Þegar blaðamaður mætti á Úlfljótsvatn var búið að setja upp hoppukastala, setja upp klifurturninn og reisa stærðarinnar tjaldbúðir. „Bara geggjuð stemning. Þarna eru félögin að gista og eru líka með matarað- stöðu,“ segir hann um búðirnar en þaðan ná félögin í mat til móts- stjórnarinnar og elda hann svo sjálf í tjaldbúðunum sínum. „Þau koma til okkar á morgnana og sækja matarbirgðir fyrir daginn og morgunmat næsta dags. Svo sjá þau um sig sjálf hérna í matartjöld- unum og elda.“ Og skátarnir snúast svolítið um það að standa á eigin fót- um, ekki satt? Jú, jú, algjörlega. Maður þarf svolítið að geta bjargað sér bara.“ Einnig er útieldunarstöð í Ólafsbúð. „Þar er hægt að læra hvað hægt er að gera ótrúlegustu hluti með smá eldi og einhverjum potti,“ segir Rafnar. „Svo var fiskur veidd- ur í vatninu í gærkvöldi, sem þau voru að grilla þarna líka.“ Moltugerð og heimsmarkmið Neðan við klifurturninn var mikið um að vera en þar voru krakkar að tjalda og í leikjum, auk starfsstöðva á borð við moltugerð og vinnubúðir í tengslum við heimsmarkmið Sam- einuðu þjóðanna. „Það eru margir póstar í gangi hérna og krakkarnir fá að flæða svolítið á milli og læra um mismunandi heimsmarkmið í gegnum skemmtilega leiki,“ segir hann, til að mynda flokkunarboð- hlaup þar sem krakkarnir keppast við að flokka rusl sem hraðast. Þeg- ar þau eru búin með verkefnin þá setjast þau niður í tjaldinu og ígrunda það sem þau lærðu. „Flugan er alltaf jafn skemmtileg hérna á Úlfljótsvatni,“ segir Rafnar og hlær eftir að blaðamaður gleypti næstum flugu. Úlfljótsvatn er jú vatn sem flugan sækir í. Þó er ekki mikið af lúsmýi. „Þetta er aðallega bara venjulegt mý sem er að narta í okkur.“ Um helgina verður mikið um að vera. „Bogfimin verður hérna inni í strýtunni á eftir í opinni dagskrá,“ segir Rafnar, en auk þess er útield- un í áðurnefndri útieldunarstöð. „Svo á að vera einhver svaka veisla á eftir fyrir Dróttskáta og eldri. Það eru allir svo glaðir að geta komið saman og loksins haft gaman á skátamóti,“ segir Rafnar glaður í bragði, enda allt að fara af stað á ný eftir afléttingar. Mikið fjör á Úlfljóts- vatni næstu þrjár vikur - Þrjú landsmót í stað eins - Skátarnir gleðjast nú saman Morgunblaðið/Eggert Foringi Rafnar Friðriksson er einn þriggja mótsstjóra og stýrir mótinu um helgina. Hann segir skátana glaða að geta nú komið saman eftir afléttingar. Tjaldað Ögmundur Ingi Ögmundsson og Theodór Svarfdal Sveinbjörnsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.