Morgunblaðið - 20.07.2021, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 20.07.2021, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 0. J Ú L Í 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 168. tölublað . 109. árgangur . JEPPI JIMS RATCLIFFES VEKUR ATHYGLI TITANE HLAUT GULL- PÁLMANN STÍGUR FYRSTUR Á SVIÐ Í TÓKÝÓ CANNES 29 ÍÞRÓTTIR 27BÍLAR 8 SÍÐUR _ Skortur er á bílum hjá bílaleigum landsins. Tafir hafa orðið á afhend- ingu nýrra bíla vegna kórónuveiru- faraldursins. Þessar tafir hafa kom- ið sérstaklega illa við bílaleigur landsins. „Það er hörgull á nýjum bílum. Afgreiðslufrestur á þeim hefur lengst og umboðin fá ekki allar þær pantanir sem þau vilja,“ sagði Jó- hannes Jóhannesson, staðgengill framkvæmdastjóra Bílgreina- sambandsins. „Sumir fengu bíla í síðustu viku en ég held að umboðin séu almennt að fá færri bíla en þau gætu selt og afhent á þessum tíma ársins.“ »6 Bílaleigur finna fyrir skorti á bílum Morgunblaðið/Árni Sæberg Bílar Afhending bíla hefur tafist fram úr hófi. Tafirnar valda vandræðum. _ 827 einstaklingar leituðu til Bjark- arhlíðar, miðstöðvar fyrir þolendur ofbeldis, í fyrsta viðtal á árinu 2020. Hefur heimsóknum fjölgað um tæp- lega helming frá árinu 2019. Ragna Björg Guðbrandsdóttir, teymisstjóri Bjarkarhlíðar, segist ekki geta stað- fest að hægt sé að rekja þessa miklu aukningu til fleiri ofbeldistilvika en hún vekur þó athygli á að aðstæð- urnar í heimsfaraldrinum séu til þess fallnar að ýta undir ofbeldi. Rúmlega 60% heimsókna til Bjark- arhlíðar árið 2020 má rekja til heim- ilisofbeldis og var mikill meirihluti þjónustuþega konur, eða 83%. »14 Sífellt fleiri leita til Bjarkarhlíðar Andrés Magnússon Steinar Ingi Kolbeins Ragnhildur Þrastardóttir Ágreiningur var við ríkisstjórnarborðið um eðli og umfang sóttvarnaaðgerðanna sem þar voru til um- fjöllunar í gær. Sjálfstæðismenn töldu tillögur heil- brigðisráðherra ganga of langt en sögðu að mót- bárur þeirra hefðu þó haft þær afleiðingar að til mildari aðgerða hefði verið gripið en lagt var upp með. Meðal þingmanna flokksins gætir þó efa- semda um þær, þá helst að sýnt sé að þær ráðstaf- anir sem nú er verið að grípa til hafi þau sértæku áhrif sem ætlunin er. Ekki síst voru það þó orð Svandísar Svavars- dóttur heilbrigðisráðherra í viðtali við Ríkis- útvarpið sem fóru fyrir brjóstið á sjálfstæðismönn- um. „Sjálfstæðismenn hafa auðvitað komið fram með efasemdir um ýmsar sóttvarnaráðstafanir, í laug ekki hægt að koma í veg fyrir það að veiran berist hingað til lands og að líklegt megi teljast að hún sé komin til að vera í einhverri mynd. Aðgerðirnar vonbrigði Áslaug bendir á að hættan á að alvarleg fjölda- veikindi verði heilbrigðiskerfinu ofviða sé ekki lengur fyrir hendi miðað við fyrirliggjandi upplýs- ingar. Er það vegna útbreiddrar bólusetningar gegn Covid-19. Í samtölum ráðherra við blaðamenn eftir ríkis- stjórnarfundinn í gær mátti greina minni einingu um sóttvarnaaðgerðir en áður. Bjarnheiður Hall- dórsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, sagði það vonbrigði að grípa þyrfti til aðgerða og að ákveðins ósamræmis gætti í aðgerðum og yfir- lýsingum stjórnvalda. raun frá upphafi faraldursins,“ sagði heilbrigðis- ráðherra og bætti við að eftirtektarverður árangur í baráttu við kórónuveiruna hefði náðst í andstöðu þeirra. „Kosningabaráttan er greinilega hafin,“ sagði einn þingmaður flokksins í samtali við Morgun- blaðið og taldi ummælin ekki til þess fallin að auka samheldni innan ríkisstjórnarinnar eða einingu um sóttvarnaaðgerðir. „Markmiðið með þessum orð- um hennar er öllum ljóst,“ sagði annar þingmaður og sagði viðbrögðin innan þingflokksins misjöfn. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráð- herra telur ekki þörf á íþyngjandi aðgerðum vegna kórónuveirufaraldursins hér á landi. Heilbrigðis- ráðherra og forsætisráðherra telja að þær aðgerð- ir sem tilkynntar voru í gær séu mildar. Áslaug segir um að ræða þyngri kröfur en í öðrum Evr- ópulöndum. Í pistli sínum í Morgunblaðinu í dag segir Ás- Óeining um aðgerðir Morgunblaðið/Árni Sæberg Ferðamenn Með aðgerðunum, sem taka gildi 26. júlí nk., verður erfiðara fyrir þá sem eru bólusettir gegn Covid-19 að komast til landsins en áður. - Efasemda um hertar aðgerðir á landamærum gætir hjá þingmönnum Sjálf- stæðisflokksins - Orð heilbrigðisráðherra sýni að kosningabaráttan sé hafin MSkoða framkvæmdina daglega »2 & 14 Andrés Magnússon andres@mbl.is Verulegur munur er á fylgi sumra stjórnmálaflokka eftir kynferði kjós- enda. Hann er langmestur þegar lit- ið er til stuðningsfólks Vinstrihreyf- ingarinnar – græns framboðs. 18,7% kvenna styðja flokkinn, en aðeins 5,1% karla. Það þýðir að af hverjum fimm stuðningsmönnum flokksins lætur nærri að fjórir séu konur, en aðeins einn karl. Meðal stuðningsfólks Samfylking- arinnar eru einnig mun fleiri konur en karlar, þótt munurinn sé ekki jafnmikill og hjá Vinstri-grænum. Á hinn bóginn er hlutfallinu þver- öfugt farið meðal stuðningsmanna Viðreisnar, þar eru karlar mun fleiri en konurnar. Svipaða sögu er að segja af Sjálf- stæðisflokknum, þótt þar skeiki ekki jafnmiklu og hjá Viðreisn. Þar eru samt þrír karlar á hverjar tvær kon- ur sem segjast myndu kjósa flokkinn ef gengið yrði til kosninga nú. Minni munur er í stuðnings- mannaliði annarra flokka og hann er nánast enginn hjá Pírötum og Mið- flokki og óverulegur í stuðnings- mannaliði Sósíalista, þótt þar hafi karlar vinninginn. »10 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Vinstri-græn Konur eru þar margar bæði meðal forystu- og fylgismanna. Mismikið fylgi eftir kynjum - Konur nær 80% þeirra sem styðja VG _ „Ef við gerum það ekki núna verðum við að spyrja okkur hvenær munum við þá gera það?“ sagði Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, þegar öllum takmörk- unum vegna kórónuveirufaraldurs- ins var aflétt innanlands á Englandi í gær. Nú eru ýmsir viðburðir leyfð- ir á nýjan leik og er starfsemi skemmtistaða heimil. Þá verður hömlum á veitingastöðum og ölhús- um aflétt. Fjarlægðartakmörk hafa einnig verið afnumin. Frá 16. ágúst munu þeir sem eiga í samskiptum við smitaða mann- eskju ekki lengur þurfa að fara í sóttkví. Einangrun smitaðra verður þó enn skylda eftir þann tíma. Johnson er nú í sóttkví eftir að hafa átt í sam- skiptum við heil- brigðisráðherra landsins sem greindist um helgina með veir- una, en smitum hefur fjölgað í Bretlandi síðustu vikur. Vísinda- menn hafa varað við því að síðar í sumar gætu allt að 200 þúsund ný smit greinst daglega. Nú greinast um 50 þúsund smit daglega. »13 Aflétta aðgerðum þrátt fyrir smitfjöldann Boris Johnson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.