Morgunblaðið - 20.07.2021, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 20.07.2021, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 2021 ✝ Sigurborg Bragadóttir fæddist á Úlfars- felli í Mosfellsveit 22. mars 1934. Hún lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut 9. júlí 2021. Foreldrar Sigurborgar voru Sólveig Árdís Bjarnadóttir hús- móðir, f. 1908, d. 1989, og Bragi Kristjánsson, bóndi og vörubílstjóri, f. 1907, d. 1967. Systkini Sigurborgar: Krist- ján Einar, sjómaður og vörubíl- stjóri, f. 1932, d. 1986, Sigurður Breiðfjörð leigubílstjóri, f. 1936, d. 1988, Árdís Erla, f. 1941. Sig- urborg giftist Sigurþóri Ellerts- 3) Ellert Bragi, f. 1971, maki Eva Arna Ragnarsdóttir, f. 1971, börn: Friðlín Björt, f. 1996, Elín Bjarney, f. 1997, og Jökull Þór, f. 2003. Sigurborg bjó í Reykjavík mestanpart ævi sinnar, þar af yfir 50 ár inni við Elliðaárnar þar sem faðir hennar var með búskap. Fljótlega eftir skóla- göngu byrjaði hún að vinna, fyrst hjá Sambandinu og síðar hjá Eggert Kristjánssyni. Hún helgaði sig svo húsmóður- störfum en fór aftur út á vinnu- markaðinn seinna á lífsleiðinni, og vann hjá Póstinum og síðar hjá Símanum þar til hún fór á eftirlaun 70 ára. Sigurborg tók mikinn þátt í starfi Kvenfélags Fríkirkunnar í Reykjavík og var í stjórn þess og formaður til margra ára. Samhliða störfum sínum með kvenfélaginu starf- aði hún einnig í Bandalagi kvenna í Reykjavík. Útför Sigurborgar fer fram í Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, 20. júlí 2021, klukkan 15. syni, 1. desember 1962. Sigurþór er fæddur 7.6. 1938, foreldrar hans voru Sigþrúður Sig- urbjarnardóttir húsmóðir, f. 1893, d. 1938, og Ellert Árnason vélstjóri, f. 1896, d. 1981, upp- eldismóðir Sig- urþórs var Ragna Halldórsdóttir, f. 1906, d. 1976. Börn þeirra eru: 1) Sólveig Ragna, f. 1960, maki Fulvio Bosio, f. 1958, d. 2021, þeirra synir eru Kristian Þór og Piero Sigurður, f. 1990, dóttir Piero er Giselle Björg, f. 2020. 2) Sigþrúður, f. 1961, maki Páll Þórir Ólafsson, f. 1965, sonur þeirra er Heimir, f. 1993. Elskuleg tengdamóðir mín, hún Sigurborg, hefur kvatt þessa jarð- vist, fram streyma fallegar minn- ingar og þakklæti fyrir góða konu sem var mikil fjölskyldukona og sú besta amma sem börnin mín gátu fengið. Hún var alltaf boðin og búin og þolinmóð, hvort sem það var í góðu spjalli eða segja þeim sögur og ófáar voru spila- stundirnar þar sem þeim voru kennd hin og þessi spil, þetta voru gæðastundir þar sem þau fengu athygli hennar óskipta. Sigurborg var ljúf en ákveðin og fylgin sér og föst fyrir ef því var að skipta og hafði falleg lífsgildi þar sem hún kom hreint fram og var áreiðanleg og hjálpsöm. Ég dáðist alltaf að því hvað hún hugs- aði vel um útlit sitt, hún var pjatt- rófa á jákvæðan hátt, en hárið á henni var alltaf óaðfinnanlegt, neglurnar vel snyrtar og hún hugsaði vel um húðina. Við áttum mjög auðvelt með að gleyma okk- ur í spjalli um allt sem tengdist snyrtingu og því hvaða krem væri best að nota og hún fylgdist vel með nýjungum og var dugleg að spyrja hvað myndi nú henta henn- ar húðgerð best, og var alltaf tilbúin að prófa eitthvað nýtt. Hún var dugleg að halda mat- arboð og bjóða okkur og þegar hún bauð okkur í lasanja var talið niður í matarboðið, því hún gerði það besta lasanja sem ég hef smakkað, af mikilli ástúð tók elda- mennskan nánast allan daginn hjá henni og svo fengum við yfirleitt að fara með afganginn heim ef ein- hver var. Mér er minnisstætt fyrir þremur árum þegar hún bauð okkur Friðlínu systur að koma því hún ætlaði að kenna okkur að gera þennan fræga fjölskyldurétt sem hún og gerði og þetta var svo skemmtileg stund sem við áttum saman og fyrir þessar stundir er ég þakklát. Það eru nákvæmlega svona minningar og stundir sem eru mikilvægastar í lífinu og ylja manni á kveðjustundum eins og núna. Ég hef oft gert þennan góða rétt, en fengið að heyra frá börn- unum mínum að ömmu lasanja sé betra en mitt og grjónagrauturinn hennar líka betri en minn og ég er sammála. En ég mun halda áfram ótrauð að elda „lasanja a la Sig- urborg“ og heiðra minningu henn- ar. Ég má svo til með að minnast á hundinn okkar hann Mario en þegar við bjuggum á Spáni kom Sigurborg í heimsókn til okkar og við vorum nýbúin að fá okkur hund. Hún var alls ekki hrifin af þessu litla, loðna dýri sem var allt- af að klessa sér upp við hana og hún sussaði honum burt á kurt- eislegan hátt og fannst ekkert sniðugt hvað hann fór mikið úr hárum. Það leið þó ekki á löngu þangað til Mario var búinn að bræða hjarta hennar og tengda- föður míns og þegar komið var í heimsókn til þeirra var tekið á móti honum eins og einu af barna- börnunum þar sem hann var dekr- aður á allan hátt. Sigurborg náði þeim áfanga síðasta sumar að verða langamma þegar falleg langömmustelpa fæddist á Ítalíu, það var gaman að fylgjast með hversu glöð hún varð þegar þær fréttir bárust og mig grunar að hún hafi beðið spennt eftir að fá þann titil í langan tíma. Hafðu þökk fyrir allt, ég mun alltaf minnast þín með þakklæti, hlýju og virðingu. Eva Arna Ragnarsdóttir. Það er kannski klisja að segja að okkar amma hafi verið besta amma í heimi en satt er það þó. Það fannst langar leiðir hvað hún dýrkaði okkur og dáði en henni fannst fátt skemmtilegra en að fá okkur til sín og mikið var alltaf gott að koma til hennar. Hún hafði endalausa þolinmæði fyrir öllu brasi í okkur þegar við vorum börn sem er smá fyndið eftir á, þar sem að hún var mjög pottþétt og allt tipptopp hjá henni en þrátt fyrir það mátti endalaust skoða og brasa hjá henni og í dótinu henn- ar. Með ömmu var einhvern veg- inn allt skemmtilegt, sama hve einfalt það var, hún elskaði að skottast með okkur hvort sem það var bara í bíltúr, í bakarí, á róló eða annað. Amma var líka heims- ins best í að finna upp afþreyingu fyrir okkur sem þurfti stundum örlítið að hafa fyrir eins og leikinn „fela fingurbjörg“ en hann var ekki flóknari en það að hún faldi fingurbjörg og við leituðum, samt sem áður var þetta hin mesta skemmtun. Eftir því sem við elt- umst þurfti hún minna að hafa fyrir okkur en sama hvað við urð- um gömul þá vorum við aldrei of gömul fyrir ömmupönnukökur og spil. Amma kenndi okkur öll heimsins spil og vorum við farin að spila alls kyns flókin spil mjög ung. Það hefur svo eflaust hentað henni vel að eiga barnabörn sem finnst gaman að borða þar sem að hún elskaði að gefa okkur að borða og hreinlega tók ekki í mál að bjóða okkur ekki upp á eitt- hvað þegar við komum, jafnvel þótt við værum ekki svöng, en yf- irleitt var nú alltaf pláss fyrir smá grjónagraut, lasanja eða gulrótar- köku. Amma gerði ýmislegt í gegnum tíðina og gerði það allt vel, en að mínu mati var þó það besta sem hún gerði að vera amma okkar. Þín Friðlín, Elín og Jökull. Sigurborg Bragadóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, bróðir, afi og langafi, ÓSKAR JÓN KONRÁÐSSON, Viðjugerði 2, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans föstudaginn 9. júlí. Hann verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 22. júlí klukkan 13. Stefanía Eyjólfsdóttir Sonja Guðrún Óskarsdóttir Páll Ólafsson Erla Konný Óskarsdóttir Óskar Páll Óskarsson Kristinn Konráðsson Kristín Þorgeirsdóttir Sigurður Konráðsson Dagbjört Jónsdóttir barnabörn og langafabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, ÓLAFÍA ÞORSTEINSDÓTTIR frá Ölviskrossi, síðar á Setbergi og í Borgarnesi, lést á Dvalarheimilinu Silfurtúni í Búðardal þriðjudaginn 13. júlí. Útför hennar fer fram frá Borgarneskirkju laugardaginn 24. júlí klukkan 14. Kristvin Ómar Jónsson Eygló Sigurðardóttir Jón Bergmann Jónsson Bryndís Ólafsdóttir Þorsteinn Jónsson Sigurður Þór Jónsson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, SVERRIR HAUKUR HALLDÓRSSON rafeindavirkjameistari lést í Reykjavík laugardaginn 17. júlí. Útför hans fer fram frá Neskirkju föstudaginn 23. júlí klukkan 13. Anna Rut Sverrisdóttir Birgir Þórarinsson Eydís Dóra Sverrisdóttir og barnabörn Systir okkar, GUÐRÚN STEINÞÓRSDÓTTIR frá Brekku í Dýrafirði, lést á Tjörn, dvalarheimili aldraðra á Þingeyri, miðvikudaginn 14. júlí. Útförin fer fram frá Þingeyrarkirkju laugardaginn 24. júlí klukkan 14. Gunnar Steinþórsson Kristín Lýðsdóttir Elsku eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, tengdasonur og bróðir, JÓHANN ÓSKAR JÓHANNESSON, vélvirkjameistari og smiður, Þórunnarstræti 119, Akureyri, lést í faðmi fjölskyldunnar 14. júlí. Hann verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 23. júlí klukkan 13. Lilja Guðmundsdóttir Eggert Snær Jóhannsson Sigurrós Birta Jóhannsdóttir Hilmar Logi Jóhannsson Eggert Jóhannsson Systkini Jóhanns og fjölskyldur Sigurrós Pétursdóttir Guðmundur Sigurpálsson Elsku hjartans maðurinn minn, pabbi okkar, tengdapabbi og afi, GUÐJÓN HEIÐAR GUNNBJÖRNSSON húsasmíðameistari, Hólahjalla 2, Kópavogi, lést á heimili sínu þriðjudaginn 13. júlí. Útförin fer fram frá Digraneskirkju þriðjudaginn 27. júlí klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Heru líknarheimaþjónustu og Krabbameinsfélagið. Elínborg Sigvaldadóttir Guðrún María Guðjónsdóttir Elías Mikael Vagn Siggeirsson Hafsteinn Örn Guðjónsson Ragnheiður E. Guðjónsdóttir Þórey Elísabet Elíasdóttir Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR INDRIÐASON, fyrrverandi forstöðumaður Bifreiðaeftirlits ríkisins á Akureyri, lést á dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri föstudaginn 16. júlí. Útförin verður auglýst síðar. Steinunn Sigurðardóttir Árni Bjarnason Jón Gunnar Sigurðsson Sigrún Sigurgeirsdóttir Sigurður U. Sigurðsson Þórdís Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær bróðir okkar, ÞRÖSTUR GUÐBJARTSSON, leikari og leikstjóri, Hverfisgötu 7, Hafnarfirði, lést laugardaginn 17. júlí á Líknardeild Landspítalans, Kópavogi. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 26. júlí klukkan 13. Örn Guðjónsson Sigurósk Garðarsdóttir Vilhelm V. Guðbjartsson Guðrún Ragnarsdóttir Ólöf María Guðbjartsdóttir Jónas Pétur Sigurðsson Svanur Guðbjartsson Ólöf Magnúsdóttir Guðrún Guðbjartsdóttir Bjarni Albertsson Unnur Guðbjartsdóttir Garðar Benediktsson Kristín Þóra Guðbjartsdóttir Sigurður Stefán Jónsson Birna Guðbjartsdóttir Sölvi Rúnar Sólbergsson Bára Guðbjartsdóttir Jón Haukdal Kristjánsson Sif Guðbjartsdóttir Róbert Edward Róbertsson Íslenskt þjóð- félag hefur breyst hratt á fáum árum. Fáir kannast lengur við að fara á vertíð, borða þver- skorna ýsu eða bera harm sinn í hljóði. Nú er keppst við að finna sig, borða sushi og tjá tilfinningar sínar á samfélagsmiðlum. Lífs- viðhorf Elísabetar mótuðust m.a. af þessum samfélagslegu vaxtar- kippum. Það örlaði samt ekki á togstreitu milli þess gamla og nýja. Hún vissi hvað skipti máli. Hverju bæri að halda og hafna. Hún var íhaldssöm en um leið framsýn og umburðarlynd, að- haldssöm en örlát, bjartsýn þrátt fyrir áföll og mótlæti, en raunsæ. Alltaf hrein og bein. Ég verð ævinlega þakklát fyrir Elísabet Guðmundsdóttir ✝ Elísabet Guð- mundsdóttir fæddist 5. nóv- ember árið 1967. Hún lést 10. júlí 2021. Hún var jarð- sungin 19. júlí 2021. margar en samt allt of fáar samveru- stundir þar sem við fjargviðruðumst yf- ir kósí kynslóðinni um leið og við sötr- uðum kaffi eða hvít- vín og jöpluðum á sjávarfangi, ostum, ólífum og nýbökuðu súrdeigsbrauði. Stundum vorum við bara tvær en oft þrjár eða í góðra vina hópi. Um- ræðurnar snerust líka um stjórn- mál, Jane Austen, fræðslumál, ferðalög, kóngafjölskyldur, antík, bókhald, heilsuna, gleði og sorg. Hún kenndi mér að sorgin getur verið falleg, en til að svo megi verða þurfa allir að vanda sig, líka sá sem kveður. Og þar stóð Elísabet sína plikt eins og við annað í lífinu. Elsku Emil, Fanný, Guð- munda, Svavar, Elísabet og Katrín. Megi Guð geyma ykkur og hugga. Berglind Einarsdóttir og fjölskyldan á Hlauphólum. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.