Morgunblaðið - 20.07.2021, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 20.07.2021, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 2021 Hundur Þessi fallegi hundur kippti sér ekki upp við það þegar ljósmyndari Morgunblaðsins tók upp myndavélina og smellti af í gær. Hundurinn leit yfirvegaður í linsuna, eins og reynd fyrirsæta. Unnur Karen Að undanförnu hefur komið upp umræða um breytingarreglu stjórn- arskrárinnar, annars vegar út frá sjónar- miðum um mikilvægi hennar í stjórnskipun landsins og hins vegar í tengslum við hug- myndir, sem fram hafa komið um hugsanlegar breytingar á núgild- andi fyrirkomulagi. 1. mgr. 79. gr. stjórnarskrárinnar Rétt er að rifja upp að samkvæmt núgildandi breytingarreglu, sem er að finna í 1. mgr. 79. gr. stjórnar- skrárinnar, verður stjórnarskránni ekki breytt nema með eftirfarandi hætti: Þegar stjórnarskrárbreyting hefur verið samþykkt á Alþingi á þegar í stað að rjúfa þing og boða til þingkosninga. Sé breytingin sam- þykkt óbreytt á nýju þingi öðlast hún gildi. Þannig hefur stjórnarskránni verið breytt átta sinnum frá stofnun lýðveldis, og raunar nokkrum sinn- um fyrir þann tíma. Þetta er mik- ilvægt að hafa í huga vegna þess að oft heyrast þær raddir að núgildandi regla geri stjórnarskrárbreytingar óheyrilega erfiðar eða nánast ógerlegar. Grein Kristrúnar Heimisdóttur Mikilvægasta fram- lagið til umræðunnar um breytingarregluna á síðustu vikum hefur komið frá Kristrúnu Heimisdóttur, sem rit- aði vandaða grein um þetta efni í Tímarit lög- fræðinga. Þar gerir hún meðal annars grein fyr- ir bakgrunni og tilgangi hinnar sér- stöku breytingarreglu stjórnar- skrárinnar og setur hana í bæði sögulegt og alþjóðlegt samhengi. Þá fer hún líka yfir tilraunir til stjórn- arskrárbreytinga á árunum 2009 til 2013, sem enduðu sem kunnugt er í fullkomnum ógöngum. Megin- niðurstaða Kristrúnar er að breyt- ingarákvæðið feli í sér sterkan hvata til að vanda til verka, forðast hvatvís- legar breytingar og leita víðtækrar samstöðu. Samanburður við nágrannalöndin Kristrún vekur athygli á því að ís- lenska breytingarákvæðið sver sig mjög í ætt við sambærileg ákvæði í evrópskum stjórnarskrám. Þau eru vissulega mismunandi, en innihalda öll einhver eftirgreindra skilyrða; 1) aukinn meirihluta á þingi, 2) umþótt- unartíma, 3) samþykki tveggja þinga með þingkosningum á milli, 4) þjóð- aratkvæðagreiðslu með eða án lág- marksskilyrða um þátttöku og/eða fjölda greiddra já-atkvæða. Kristrún fer ekki út í nákvæman samanburð á íslenska ákvæðinu og ákvæðum í einstökum löndum, en mér finnst ástæða til að nefna, að annars staðar á Norðurlöndum gilda reglur, sem annaðhvort gera jafn miklar eða jafnvel strangari kröfur. Með nokkurri einföldun má setja þessar reglur fram með þeim hætti, að í Danmörku þarf að fara sömu leið og á Íslandi með samþykki tveggja þinga með kosningum á milli, en að loknu síðara samþykki þings er efnt til þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem gerð er krafa um að breytingin hljóti meirihluta greiddra atkvæða og stuðning að minnsta kosti 40% þeirra sem eru á kjörskrá til að öðlast gildi. Í Noregi er gerð krafa um að stjórn- arskrárfrumvarp fái umfjöllun á tveimur kjörtímabilum með kosn- ingum á milli og að við endanlega af- greiðslu þurfi 2⁄3 þings til að staðfesta breytingarnar. Svipuð leið er farin í Finnlandi, þ.e. aðkomu þings er kraf- ist á tveimur kjörtímabilum og stuðning 2⁄3 í lokin. Meginreglan í Sví- þjóð er líka fólgin í samþykki tveggja þinga með kosningum á milli en sam- kvæmt sérstökum reglum er líka unnt að kalla fram þjóðaratkvæða- greiðslu eftir fyrra samþykkið, en niðurstaða hennar er þó ekki endan- leg eða bindandi nema meirihluti leggist gegn breytingunni. Ef niður- staðan er hins vegar jákvæð kemur málið aftur til kasta þingsins. Reglurnar í þessum löndum, sem búa við líka laga- og stjórnskipunar- hefð og við Íslendingar, eru að sönnu flóknari en hér hefur verið lýst, en þrátt fyrir það held ég að öllum megi ljóst vera að íslenska reglan sker sig ekkert sérstaklega úr og er fráleitt erfiðari í framkvæmd. Breytingartillaga hluta stjórnarandstöðunnar Auk greinar Kristrúnar Heimis- dóttur hefur breytingarreglan verið í umræðunni vegna málflutnings hluta stjórnarandstöðunnar á Alþingi. Við þinglok rifjuðu fulltrúar Samfylk- ingar, Pírata og Flokks fólksins upp breytingartillögu, sem lögð var fram við stjórnarskrárfrumvarp Katrínar Jakobsdóttur í vetur. Hún felur í sér að til að breyta stjórnarskrá nægi að einfaldur meirihluti þings veiti sam- þykki sitt og í kjölfarið fari fram þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem hvorki verði gerð krafa um lág- marksþátttöku né lágmarksstuðning við breytinguna. Ekki þarf að efast um að með þessu yrðu stjórnarskrárbreytingar auðveldari en nú er, en um leið yrði kippt burt ýmsum varnöglum, sem slegnir hafa verið til að stuðla að vandaðri málsmeðferð og sem víð- tækastri samstöðu um stjórnar- skrárbreytingar. Þegar af þeim ástæðum er tillaga stjórnarandstöð- unnar auðvitað ótæk. Þess má svo líka geta til fróðleiks, að tillagan er ekki fyllilega samhljóða tillögu stjórnlagaráðs frá 2011 og gengur mun lengra en þær tillögur, sem meirihluti stjórnskipunar- og eft- irlitsnefndar lagði fram veturinn 2012 til 2013 og fulltrúar þessara sömu flokka tala oft um sem út- gangspunkt varðandi framhald stjórnarskrárvinnunnar og kalla jafnvel nýju stjórnarskrána. Um það efni mun ég fjalla nánar á næstunni. Eftir Birgi Ármannsson » Tillaga stjórnarand- stöðunnar felur í sér að kippt er burt varnöglum, sem eiga að stuðla að vandaðri málsmeðferð og víðtækri samstöðu. Birgir Ármannsson Höfundur er formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Mikilvægi breytingarreglu stjórnarskrárinnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.