Morgunblaðið - 20.07.2021, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 2021
hafðu það notalegt
vottun reynsla
ára
ábyrgð
gæði
miðstöðvarofnar
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - sími 577 5177 - ofnasmidja.is
Eigum úrval af
miðstöðvar- og handklæðaofnum
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Danska upplýsingastofnunin Data-
tilsynet, sem er sambærileg við Per-
sónuvernd hér á landi, hefur látið í
ljós harða gagnrýni á ríkislögreglu
Danmerkur fyrir að hafa aflað og
notað fjarskiptaupplýsingar með
röngum og óréttmætum hætti. Þetta
kom fram í úrskurði sem gefinn var
út í gær.
Málið varðar upplýsingakerfi sem
notar upplýsingar úr farsímakerfum
til þess að staðsetja farsíma, en slík
gögn geta komið að miklu gagni við
rannsókn sakamála; sýnt hvar fólk
hefur verið eða ekki verið á til-
teknum tímum. Vandinn er sá að
þessi gögn hafa ekki alltaf verið ná-
kvæm og lögreglunni hefur verið
kunnugt um þær villur um nokkurt
skeið. Samkvæmt lögreglu-
yfirvöldum áttu þær að vera upp-
rættar árið 2019.
Til þess að gera illt verra hefur
lögreglan ekki alltaf farið með gögn-
in í samræmi við lögreglulög þar í
landi. „Niðurstaða Upplýsingastofn-
unar er að Ríkislögreglan hafi beitt
ófullnægjandi verkferlum og aðferð-
um í meðferð fjarskiptaupplýsinga,“
segir í úrskurðinum. Stofnunin telur
enn fremur að ríkislögregan hafi
hvorki gengið úr skugga um gæði og
nákvæmni gagnanna né eytt að
rannsókn lokinni. Vafi leiki því á um
sönnunarfærslu í fjölda mála.
Ríkislögreglan fellst á að vinnu-
lagið hafi ekki verið í lagi, en full-
yrðir að því hafi verið kippt í liðinn
fyrir tveimur árum.
Danskir stjórnmálamenn eru ekki
allir jafn sannfærðir og stjórnar-
andstaðan krefur dómsmálaráð-
herra frekari svara.
Persónuvernd
átelur lögregluna
Persónuvernd Datatilsynet er per-
sónuverndarstofnun Danmerkur.
- Danska lög-
reglan sögð hafa
misfarið með gögn
Öllum takmörkunum vegna kórónu-
veirunnar var aflétt í gær á Englandi.
Viðburðir eru nú leyfðir, skemmti-
staðir opnaðir og hömlum á starfi
veitingastaða og ölhúsa hefur verið
aflétt. Notkun andlitsgrímna verður
enn ráðlögð við ákveðnar aðstæður en
ekki skylda.
Boris Johnson forsætisráðherra er
nú í sóttkví eftir að hafa átt í sam-
skiptum við heilbrigðisráðherra
landsins sem greindist um helgina
með veiruna, en smitum hefur farið
fjölgandi síðustu vikur. Vísindamenn
hafa varað við því að síðar í sumar
gætu allt að 200 þúsund ný smit
greinst daglega. Nú greinast um 50
þúsund smit daglega.
Rúmlega 68% fullorðinna Breta
eru nú fullbólusett og spálíkön benda
til þess að innlagnir á sjúkrahús,
dauðsföll og alvarleg veikindi vegna
Covid-19 verði í mun minna mæli en í
fyrri bylgjum.
„Ef við gerum það ekki núna verð-
um við að spyrja okkur, hvenær mun-
um við þá gera það?“ sagði Johnson í
tilefni afléttinganna.
Smitrakning verður áfram notuð af
fullum krafti og þeir sem smitast
munu þurfa að fara í einangrun þrátt
fyrir afléttingar. Aftur á móti verða
ráðleggingar gegn ferðalögum til
gulra landa afnumdar. Fullbólusettir
Bretar munu því ekki þurfa að fara í
sóttkví við heimkomuna frá „gulum“
og „appelsínugulum“ löndum utan
Frakklands, Skotlands og Wales
vegna útbreiðslu Beta-afbrigðisins.
Frá 16. ágúst munu þeir sem eiga í
samskiptum við smitaða manneskju
ekki lengur þurfa að fara í sóttkví.
Einangrun smitaðra verður þó enn
skylda eftir það tímamark.Fjarlægð-
artakmörk hafa einnig verið afnumin.
Viðburðahaldarar og eigendur
skemmtistaða eru hvattir til að biðja
viðskiptavini og gesti um bólusetning-
arvottorð, en slíkt er þó ekki skylda.
Englendingar vítt og breitt gerðu
sér margir hverjir glaðan dag í gær
og ýmist kíktu á bari, skemmtistaði
og í verslanir til þess að fagna aflétt-
ingunum, en innisvæði kráa og
skemmtistaða voru síðast opin í mars
árið 2020.
- Öllum takmörkunum aflétt á Englandi í gær - Boris Johnson forsætisráðherra
í sóttkví - Rúmlega 68% fullorðinna Breta fullbólusett - Grímuskylda aflögð
AFP
Fögnuður Englendingar fóru margir hverjir á barinn þegar stjórnvöld afléttu takmörkunum í gær. Innisvæði á slíkum stöðum hafa verið lokuð.
Öllum takmörkunum aflétt
Johnson Forsætisráðherra er í sóttkví vegna smits heilbrigðisráðherra.
Emmanuel Mac-
ron Frakklands-
forseti veitti
fyrrverandi
bandarískum
borgaralegum
réttindabaráttu-
manni, Jesse
Jackson, ein
æðstu heið-
ursverðlaun
Frakklands.
Macron sagði að Jackson hefði
varið lífi sínu í að berjast fyrir
sömu gildum og franska lýðveldið
og kallaði hann „góðan vin“ lands-
ins og benti á hlutverk hans í að
hjálpa frönskum gíslum í fyrsta
Persaflóastríðinu. Jackson, sem er
79 ára að aldri, sagðist vera djúpt
snortinn af verðlaununum og bætti
við að hann hefði hlotið nokkur
heiðursmerki hvaðanæva úr heim-
inum á ævi sinni en þessi væru með-
al þeirra sérstökustu sem hann
hefði hlotið. Jackson var félagi
Martins Luthers Kings á sjöunda
áratugnum.
FRAKKLAND
Macron veitti
heiðursverðlaun
Heiðraður Jack-
son var snortinn.
Um þriðjungur
Víetnama þarf að
halda sig heima
við eftir að út-
göngubann tók
gildi í gær vegna
Covid-19 í mörg-
um héruðum í
suðurhluta
landsins. Um 100
milljónir manna
búa í Víetnam.
Þessar hertu takmarkanir voru
settar degi eftir að greint var frá
næstum sex þúsund nýjum tilfellum
kórónuveirunnar síðasta sólar-
hringinn, sem er met í landinu. Íbú-
ar í höfuðborginni Hanoi voru einn-
ig beðnir um, en ekki skyldaðir til,
að halda sig heima við, auk þess
sem flestum verslunum hefur verið
lokað. Ekki mega fleiri en fimm
manns koma saman í opinberu
rými. Flest smit hafa greinst í Ho
Chi Minh-borg.
VÍETNAM
Íbúar Hanoi beðnir
um að vera heima
Smit Útgöngu-
bann í gildi.