Morgunblaðið - 20.07.2021, Qupperneq 15
15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 2021
Hundur Þessi fallegi hundur kippti sér ekki upp við það þegar ljósmyndari Morgunblaðsins tók upp myndavélina og smellti af í gær. Hundurinn leit yfirvegaður í linsuna, eins og reynd fyrirsæta.
Unnur Karen
Að undanförnu hefur
komið upp umræða um
breytingarreglu stjórn-
arskrárinnar, annars
vegar út frá sjónar-
miðum um mikilvægi
hennar í stjórnskipun
landsins og hins vegar í
tengslum við hug-
myndir, sem fram hafa
komið um hugsanlegar
breytingar á núgild-
andi fyrirkomulagi.
1. mgr. 79. gr.
stjórnarskrárinnar
Rétt er að rifja upp að samkvæmt
núgildandi breytingarreglu, sem er
að finna í 1. mgr. 79. gr. stjórnar-
skrárinnar, verður stjórnarskránni
ekki breytt nema með eftirfarandi
hætti: Þegar stjórnarskrárbreyting
hefur verið samþykkt á Alþingi á
þegar í stað að rjúfa þing og boða til
þingkosninga. Sé breytingin sam-
þykkt óbreytt á nýju þingi öðlast hún
gildi. Þannig hefur stjórnarskránni
verið breytt átta sinnum frá stofnun
lýðveldis, og raunar nokkrum sinn-
um fyrir þann tíma. Þetta er mik-
ilvægt að hafa í huga vegna þess að
oft heyrast þær raddir að núgildandi
regla geri stjórnarskrárbreytingar
óheyrilega erfiðar eða
nánast ógerlegar.
Grein Kristrúnar
Heimisdóttur
Mikilvægasta fram-
lagið til umræðunnar
um breytingarregluna
á síðustu vikum hefur
komið frá Kristrúnu
Heimisdóttur, sem rit-
aði vandaða grein um
þetta efni í Tímarit lög-
fræðinga. Þar gerir hún
meðal annars grein fyr-
ir bakgrunni og tilgangi hinnar sér-
stöku breytingarreglu stjórnar-
skrárinnar og setur hana í bæði
sögulegt og alþjóðlegt samhengi. Þá
fer hún líka yfir tilraunir til stjórn-
arskrárbreytinga á árunum 2009 til
2013, sem enduðu sem kunnugt er í
fullkomnum ógöngum. Megin-
niðurstaða Kristrúnar er að breyt-
ingarákvæðið feli í sér sterkan hvata
til að vanda til verka, forðast hvatvís-
legar breytingar og leita víðtækrar
samstöðu.
Samanburður við
nágrannalöndin
Kristrún vekur athygli á því að ís-
lenska breytingarákvæðið sver sig
mjög í ætt við sambærileg ákvæði í
evrópskum stjórnarskrám. Þau eru
vissulega mismunandi, en innihalda
öll einhver eftirgreindra skilyrða; 1)
aukinn meirihluta á þingi, 2) umþótt-
unartíma, 3) samþykki tveggja þinga
með þingkosningum á milli, 4) þjóð-
aratkvæðagreiðslu með eða án lág-
marksskilyrða um þátttöku og/eða
fjölda greiddra já-atkvæða.
Kristrún fer ekki út í nákvæman
samanburð á íslenska ákvæðinu og
ákvæðum í einstökum löndum, en
mér finnst ástæða til að nefna, að
annars staðar á Norðurlöndum gilda
reglur, sem annaðhvort gera jafn
miklar eða jafnvel strangari kröfur.
Með nokkurri einföldun má setja
þessar reglur fram með þeim hætti,
að í Danmörku þarf að fara sömu leið
og á Íslandi með samþykki tveggja
þinga með kosningum á milli, en að
loknu síðara samþykki þings er efnt
til þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem
gerð er krafa um að breytingin hljóti
meirihluta greiddra atkvæða og
stuðning að minnsta kosti 40% þeirra
sem eru á kjörskrá til að öðlast gildi.
Í Noregi er gerð krafa um að stjórn-
arskrárfrumvarp fái umfjöllun á
tveimur kjörtímabilum með kosn-
ingum á milli og að við endanlega af-
greiðslu þurfi 2⁄3 þings til að staðfesta
breytingarnar. Svipuð leið er farin í
Finnlandi, þ.e. aðkomu þings er kraf-
ist á tveimur kjörtímabilum og
stuðning 2⁄3 í lokin. Meginreglan í Sví-
þjóð er líka fólgin í samþykki tveggja
þinga með kosningum á milli en sam-
kvæmt sérstökum reglum er líka
unnt að kalla fram þjóðaratkvæða-
greiðslu eftir fyrra samþykkið, en
niðurstaða hennar er þó ekki endan-
leg eða bindandi nema meirihluti
leggist gegn breytingunni. Ef niður-
staðan er hins vegar jákvæð kemur
málið aftur til kasta þingsins.
Reglurnar í þessum löndum, sem
búa við líka laga- og stjórnskipunar-
hefð og við Íslendingar, eru að sönnu
flóknari en hér hefur verið lýst, en
þrátt fyrir það held ég að öllum megi
ljóst vera að íslenska reglan sker sig
ekkert sérstaklega úr og er fráleitt
erfiðari í framkvæmd.
Breytingartillaga hluta
stjórnarandstöðunnar
Auk greinar Kristrúnar Heimis-
dóttur hefur breytingarreglan verið í
umræðunni vegna málflutnings hluta
stjórnarandstöðunnar á Alþingi. Við
þinglok rifjuðu fulltrúar Samfylk-
ingar, Pírata og Flokks fólksins upp
breytingartillögu, sem lögð var fram
við stjórnarskrárfrumvarp Katrínar
Jakobsdóttur í vetur. Hún felur í sér
að til að breyta stjórnarskrá nægi að
einfaldur meirihluti þings veiti sam-
þykki sitt og í kjölfarið fari fram
þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem
hvorki verði gerð krafa um lág-
marksþátttöku né lágmarksstuðning
við breytinguna.
Ekki þarf að efast um að með
þessu yrðu stjórnarskrárbreytingar
auðveldari en nú er, en um leið yrði
kippt burt ýmsum varnöglum, sem
slegnir hafa verið til að stuðla að
vandaðri málsmeðferð og sem víð-
tækastri samstöðu um stjórnar-
skrárbreytingar. Þegar af þeim
ástæðum er tillaga stjórnarandstöð-
unnar auðvitað ótæk. Þess má svo
líka geta til fróðleiks, að tillagan er
ekki fyllilega samhljóða tillögu
stjórnlagaráðs frá 2011 og gengur
mun lengra en þær tillögur, sem
meirihluti stjórnskipunar- og eft-
irlitsnefndar lagði fram veturinn
2012 til 2013 og fulltrúar þessara
sömu flokka tala oft um sem út-
gangspunkt varðandi framhald
stjórnarskrárvinnunnar og kalla
jafnvel nýju stjórnarskrána. Um það
efni mun ég fjalla nánar á næstunni.
Eftir Birgi
Ármannsson » Tillaga stjórnarand-
stöðunnar felur í
sér að kippt er burt
varnöglum, sem eiga
að stuðla að vandaðri
málsmeðferð og
víðtækri samstöðu.
Birgir Ármannsson
Höfundur er formaður þingflokks
Sjálfstæðisflokksins.
Mikilvægi breytingarreglu stjórnarskrárinnar