Morgunblaðið - 20.07.2021, Side 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 2021
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi Samfélagshús Opin vinnustofa frá kl. 9-12, Boccia kl.
10-11, Félagsvist kl. 13-15.45,Tálgað í tré kl. 13-15.45. Heilsueflandi
hádegi- Öndunarnámskeið, skráning í síma 411-2701, Kaffi kl. 14.30-
15.20. Nánari upplýsingar á skrifstofu eða í síma 411 2701 & 411 2702.
Árskógar 4 Opin vinnustofa kl. 9-12. Handavinna kl. 12-16. Hádegis-
matur kl. 11.40-12.50. Leirnámskeið í núvitund kl. 12.45-14.45. Kaffi-
sala kl. 14.30-15.30. Heitt á könnunni, allir velkomnir. Sími: 411 2600.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi, spjall og blöðin kl.
8.10-11. Prjónað til góðs kl. 8.30-12.Tæknilæsi námskeið Apple kl. 9-
12. Hádegismatur kl. 11.30-12.30.Tæknilæsi námskeið Android kl. 13-
16. Opin Listasmiðja kl. 13-16. Bónusrútan kl. 13.10. Síðdegiskaffi kl.
14.30-15.30.
Garðabæ Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara. Meðlæti
með síðdegiskaffinu er selt frá 13.45-15.15. Poolhópur í Jónshúsi kl. 9.
Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Stólajóga kl. 11 í Jónshúsi.
Smiðjan Kirkjuhvoli opin kl. 13-16.
Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8.30, heitt á
könnunni. Gönguhópur (leikfimi og ganga) frá kl. 10. Núvitund með
Álfhildi frá 11-11.30. Myndlist/listaspírur frá kl. 13.
Gjábakki Opin vinnustofa í allt sumar í Gjábakka á þriðjudögum og
fimmtudögum milli kl.13 og 15. Á staðnum verður boðið upp á
málningu, pensla og blöð. Kennt verður á spjaldtölvu alla þriðjudaga
milli kl 13. og 15 í sumar.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30.Tækni-
aðstoð á snjallsíma og spjaldtövur kl. 10.30-11.30. Gönguferð kl. 13.30.
Korpúlfar Boccia kl. 10 í Borgum. Helgistund í Borgum kl. 10.30.
Spjallhópur kl. 13 í listasmiðju.
Samfélagshúsið Vitatorgi Á dagskrá í dag er Hópþjálfun í setu-
stofu 2. hæð kl. 10.30-11.Tríó Velferðarsviðs kemur að spila í matsal
kl.13. Göngferð í verslun kl.15-15.45. Verið öll hjartanlega velkomin.
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í Sundlaug Seltjarnarness kl. 7.15 og
18.30, Kaffispjall í króknum frá kl. 9, pútt á flötinni, Skólabraut kl.
10.30, spjaldtölvunámskeið kl. 13.30.
Smáauglýsingar
Atvinnuhúsnæði
Húsnæði undir fótaðgerða-
stofu til leigu
staðsett í Samfélagshúsinu
Bólstaðarhlíð 43.
Allar nánari upplýsingar veitir
Ragga í síma 535-2760 eða á
netfangið ragnhildur.thor-
steinsdottir@reykjavik.is
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur.
Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
✝
Gunnar
Einarsson
fæddist á Akranesi
10. nóvember
1951. Hann lést á
Landspítalunum í
Reykjavík 5. júlí
2021.
Gunnar var son-
ur Einars Árna-
sonar í Sól-
eyjartungu, f.
19.10. 1921, d. 5.6.
2004, og Halldóru Gunn-
arsdóttur frá Steinsstöðum, f.
13.7. 1923, d. 1.9. 2009. Gunn-
ar var annar í röð fimm
bræðra. Þeir voru: 1. Árni Sig-
urðs Einarsson, f. 23.9. 1945,
2. Marteinn Grétar Einarsson,
eru: a) Ragnheiður Ólöf, f.
15.11. 2003 b) Einar Oddur, f.
25.3. 2007 2). Pétur Emil, f.
22.11. 1973, unnusta hans er
Ramóna f. 10.8. 1975. Barn
hans er: Amelía Rún, f. 25. 10.
1999 . 3) Einar Örn, f. 17. 2.
1977, unnusta hans er Stine, f.
1.11. 1980. Synir þeirra eru: a)
Gunnar, f. 6.5. 2007, b) Alex-
ander, f. 8.11. 2010.
Gunnar ólst upp á Akranesi
og gekk þar í barnaskóla.
Hann fór í Skipstjóra- og stýri-
mannaskólann í Reykjavík árið
1970 og útskrifaðist þaðan árið
1972. Gunnar var frá unga
aldri á fiskiskipum og hvala-
skoðunarskipum síðustu árin.
Spannar skipstjórnarferillinn
hans um 52 ár.
Útför hans verður frá
Akraneskirkju í dag, 20. júlí
2021, klukkan 13.
f. 3.8. 1953, 3.
Einar Halldór
Einarsson, f. 14.9.
1961, 4. Guð-
mundur Einarsson,
f. 19.7. 1963.
Gunnar kvænt-
ist Ragnheiði Jó-
hönnu Péturs-
dóttur, f. 26.8.
1952, þann 11.9.
1971. Foreldrar
hennar voru Pétur
Ásbjörns Georgsson, f. 5.6.
1931, d. 24.7. 1987, og Emilía
Jónsdóttir, f. 3.2. 1934, d. 3.8.
2017. Börn Gunnars og Ragn-
heiðar eru þrjú: 1) Halldóra, f.
3.12. 1972, gift Hafþóri Ólafs-
syni, f. 11.7. 1970. Börn þeirra
Elsku pabbi.
Þú varst alltaf sá aðili sem
stóðst með mér í öllu sem ég tók
mér fyrir hendur og kletturinn
okkar allra. Hvort sem um var
að ræða flutning í fyrsta hús-
næðið, málningarvinnu, pössun
barnabarnanna, alltaf til taks í
spjall í símann eða skutlast hing-
að og þangað ef eitthvað var. Þú
ert farinn svo skyndilega og ég
veit ekki hvernig ég fer að því að
kveðja þig.
Sjórinn var stór partur af þínu
lífi og varstu í 52 ár til sjós. Á
fiskiskipum framan af en síðustu
ár á hvalaskoðunarskipi. Þú
hafðir sérstaklega gaman af því,
enda áttirðu gott með að um-
gangast fólk og varst léttur í
lund. Þú hafðir sérstaka ánægju
af að deila sögum af sjónum og
samferðamönnum í gegnum lífið.
Þar varstu líka í essinu þínu og
hafðir mikla frásagnargáfu, með
mikinn húmor, þó væri nokkur
svartur á köflum.
Eins og hjá mörgum sjó-
mannsbörnum voru helgarnar
ekki endilega laugardagur og
sunnudagur, heldur sá tími sem
þú varst í landi. Var hann nýttur
til hins ýtrasta. Þá fylgdum við
þér út um allt í heimsóknir eða
niður á bryggju að athuga með
skipið.
Ýmis samtölin sem þú hefur
þurft að eiga við mig í gegnum
árin. Það var unglingsstelpan að
gráta yfir vandamálum lífsins,
stórum og smáum. Hárblásarinn
settur í gang fyrir allar aldir og
vakti allt heimilið. Sami ungling-
ur og fullyrti að Duran Duran
væri miklu betri hljómsveit en
Bítlarnir. … og viðurkenndi síð-
ar að Bítlarnir væru auðvitað
bestir.
Tónlistarlegt uppeldi var mjög
gott á Reynigrundinni og voru
ófáir tónleikarnir sem við sáum
saman. Jethro Tull í Laugardals-
höll og Hallgrímskirkju, Simply
Red, hinir ýmsu jólatónleikar og
streymi undanfarið í Covid.
Simply Red-tónleikarnir voru
einir bestu tónleikar sem við höf-
um farið á, Jethro Tull í Hall-
grímskirkju standa einnig upp
úr og voru tónleikar sem við rifj-
uðum oft upp og er ég þakklát
fyrir þær minningar með þér.
Við fórum einnig í mörg ferða-
lög saman, fjölskyldan mín og
þið mamma. Tenerife og ferðir
um landið. Þú skildir ekkert í
sólbekkjaglöðu dóttur þinni við
sundlaugarbakkann en þú vildir
vera á ferðinni um eyjuna og
skoða þig um. Ferðir um Norð-
urland verða einnig í minnum
hafðar en þá keyrðum við um
svæðið og skoðuðum okkur um
og matarveislur eða út að borða
að kveldi. Að ógleymdum öllum
matarveislunum heima eða í bú-
staðnum í Borgarfirði. Þar voruð
þið mamma í sérflokki í hvers
kyns matargerð. Lambalæri a la
pabbi og með því, verður alltaf í
uppáhaldi.
Fótbolti var þér einnig hug-
leikinn og voru auðvitað ÍA og
Liverpool í sérstöku uppáhaldi.
Margar stundirnar og helgarnar
hafðirðu gaman af að horfa á fót-
bolta með þessum liðum og öðr-
um.
Á næstunni hefðuð þið
mamma átt 50 ára brúðkaups-
afmæli og 70 ára afmælið þitt í
nóvember. Þið voruð ekkert fyrir
stórar veislur en örugglega hefð-
um við hist í góðan mat og hver
veit hvort Anfield hefði loksins
fengið heimsókn í vetur.
Elsku pabbi minn, þakka þér
fyrir allt sem þú hefur gert fyrir
mig og staðið við bakið á mér.
Ég elska þig og var stolt af að
vera dóttir þín.
Halldóra.
Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsins
blóm
er verður að hlíta þeim lögum.
Að beygja sig undir þann allsherj-
ardóm
sem ævina telur í dögum.
Við áttum hér saman svo indæla
stund
sem aldrei mér hverfur úr minni.
Og nú ertu genginn á guðanna fund
það geislar af minningu þinni.
(Friðrik Steingrímsson)
Með sorg í hjarta viljum við
minnast kærs vinar okkar sem
féll skyndilega frá hinn 5. júlí sl.
Þessi samleið hefur varað í tæp
50 ár í gegnum saumaklúbbinn
Feilsporið. Við minnumst
margra samverustunda og mikið
var alltaf gaman. Það var ekki
síst Gunna að þakka, alltaf með
gamanyrði á vörum, húmorinn
óborganlegur og mikið var nú
hlegið.
Nú við leiðarlok er hugur okk-
ar hjá vinkonu okkar, Röddu
Hönnu, og fjölskyldunni allri.
Minning um góðan dreng lifir.
Dóra, Óli Grétar, Helga
Jóna, Þráinn, Rún Elfa, Jón,
Guðbjörg, Ásgeir, Pálína,
Jón og Kristrún.
Gunnar Einarsson
✝
Elín Sigríður
Axelsdóttir
fæddist í Hvammi
þann 28. sept-
ember 1921. Hún
lést á dvalarheim-
ilinu Grund við
Hringbraut í
Reykjavík 4. júlí
2021.
Faðir hennar
var Axel Björns-
son og móðir Mar-
grét Vigfúsdóttir. Hún var
einkabarn foreldra sinna en
síðar tóku þau að sér ungan
pilt, Þórð Arnaldsson, sem
fórst í flugslysi í Héðinsfirði
árið 1947. Einnig var í fósti
hjá fjölskyldunni Ingimar
Brynjólfsson frá Steinsstöðum
í Öxnadal en hann kom þang-
að er hann var á fermingar-
aldri. Ingimar og Sigríður
felldu síðar hugi saman og ár-
ið 1947 gengu þau í hjóna-
band. Þau eign-
uðust þrjá syni.
Elstur er Þórður,
fæddur 3. mars
1949. Sonur hans
er Eyþór, kona
hans er Valentina
Vrinceanu frá
Rúmeníu. Börn
þeirra eru: Hildur
Ana, Elisabet
Maria og Alex-
andra Vali. Annar
er Björn, fæddur 19. apríl
1957. Kona hans er Elín
Björnsdóttir. Sonur þeirra er
Axel Dagur. Kona hans er
Naila Zahin Ana frá Bangla-
dess. Þriðji er Sveinn, fæddur
21. janúar 1962. Kona hans er
Oddný Jónsdóttir. Synir þeirra
eru Ingimar og Hjörleifur.
Útför Elínar fer fram frá
Möðruvallaklausturskirkju í
Hörgárdal í dag, 20. júlí 2021,
klukkan 11.
Ég var ekki mánaðar gamall
þegar ég kom í fyrsta skipti til
ömmu Siggu á Ásláksstöðum.
Foreldrum mínum hafði hug-
kvæmst að gefa mér nafn. Hald-
ið var norður í land með mig í
burðarrúmi. Langamma mín var
á lífi. Hún átti að fá að vera við-
stödd. Ég var nefndur Eyþór í
höfuð móðurafa míns.
Þetta var fyrsta ferðin af
mörgum. Þær skiptu tugum.
Heimili Ingimars og Siggu á Ás-
láksstöðum varð hluti af tilveru
minni um langa tíð. Ferðir á öll-
um árstímum. Um vetur þegar
snjórinn var um allt. Á vorin
þegar ærnar voru að bera. Þá
kynntist ég litlum lömbum. Svo
kom sumarið með heyskap.
Haustið með réttum. Og vet-
urinn með jólum.
Öllum þessum árstíðum
kynntist ég vel í sveitinni hjá afa
og ömmu. Ég dvaldi þar í hátt á
annan tug sumra. Mörg þeirra
með Magnúsi Rósmari frænda
mínum úr Akraselinu í Reykja-
vík sem átti sín tíu sumur á Ás-
láksstöðum. Þótt tæpur áratug-
ur skildi okkur að styrktist
frændskapurinn á túninu og við
matarborðið hjá Siggu.
Ég var níu ára haustið þegar
afi og amma seldu kúabúið.
Dapurlegt föstudagskvöld settist
drengurinn við matarborðið. Á
eftir hringdi hann í hina ömmu
sína á Reynimelnum í Reykja-
vík. Hún spurði hvað hann
segði. Allt leiðinlegt. Kýrnar
farnar og Svenni frændi líka.
Ferðum í Ásláksstaði fækkaði
ekki þótt kýrnar færu á aðra
bæi. Nokkur sumur til viðbótar
tóku við og heimsóknir á hinum
ýmsu tímum. Síðustu áramótin
sem ég var hjá þeim spurði
amma Sigga hvað ég vildi fá að
borða. Má ég fá KEA-kjötbollur
og kartöfmumús? Að sjálfssögðu
var orðið við því.
Ég var skiptinemi í Kosta
Ríka þegar Ingimar afi kvaddi
lífið. Þá flutti amma Sigga af
Ásláksstöðum til Akureyrar.
Settist þar að. Hlutirnir breytt-
ust en héldu samt áfram. Ég
dvaldist í gömlu sveitinni fyrir
nokkrum vikum. Engar kýr eða
heyskapur en heitur pottur
kominn í staðinn. Dætur mínar
nutu þess að busla þar. Svona
breytist tíminn en sumt verður
áfram kyrrt. Nú er amma Sigga
farin. Ég er staddur í Rúmeníu
með fjölskylduna og get ekki
fylgt henni síðasta spölinn. En
hún verður á sínum stað í hug-
anum.
Eyþór Þórðarson.
Sigríður, tengdamamma mín,
var tæplega aldargömul þegar
hún kvaddi þennan heim. Ég
kynntist henni fyrst þegar ég
kom inn í fjölskylduna fyrir
rúmum aldarfjórðungi. Við
fyrstu kynni var hér á ferð ákaf-
lega hlédræg kona en síðan
komst ég að því hve minnug og
fróð hún var. Hún var einka-
barn, sem var óalgengt á þess-
um tíma, og ólst upp í gamla
sveitasamfélaginu þar sem
mannmargt var á hverju heimili
og samgangur mikill á milli
bæja. Aldrei kom ég að tómum
kofunum hjá henni, sérstaklega
ef sögurnar tengdust Eyjafirði
eða ættum hennar langt aftur í
aldir og hafði hún gaman af að
segjast vera komin bæði af Tík-
ar-Manga og Vellygna Bjarna ef
henni fannst fólk taka sig of há-
tíðlega. Skemmtilegast var að
hlusta á hana og föður minn
rifja upp sögur af skáldum,
skólameisturum og öðrum litrík-
um persónum á Akureyri og ná-
grenni á miðri síðustu öld og þá
var oft gaman að vera fluga á
vegg. Sigríður gaf mér innsýn í
ótal margt frá fyrri tímum,
hvort sem það voru álfa- eða
ástarsögur, gömul vinnubrögð í
sveitinni eða annað sem varpaði
ljósi á fortíðina. Árið 1999 missti
hún eiginmann sinn og flutti úr
sveitinni inn til Akureyrar.
Þessum breytingum öllum tók
hún af þeirri yfirvegun sem ein-
kenndi hana ætíð. Hún fékk sér
farsíma, lærði á strætó og gat
bjargað sér í mörg ár, líka eftir
að hún flutti á dvalarheimilið
Hlíð á Akureyri. Fram á síðustu
stundu gat hún lesið sér til
ánægju og voru það aðallega
ævisögur og bækur með þjóð-
legum fróðleik sem hún hafði
gaman af og styttu henni stund-
ir, því að horfa á sjónvarp höfð-
aði aldrei til hennar.
Tengdamamma mín var líka
„amma Sigga“, hlý og góð amma
sem þótti afar vænt um son-
arsynina og sjá þeir nú á bak
ömmu sinni sem hefur verið
fastur hluti af tilveru þeirra frá
upphafi.
Það er merkileg tilviljun að
kveðja Sigríði 20. júlí en það er
einmitt brúðkaupsdagur þeirra
Ingimars. Þennan dag árið 1947
gengu þau í hjónaband í kirkj-
unni á Möðruvöllum í Hörgár-
dal, sama stað og við kveðjum
hana í dag.
Oddný Sigurrós Jónsdóttir.
Elín Sigríður
Axelsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Þín gullnu spor
yfir ævina alla
hafa markað
langa leið
Skilið eftir
ótal brosin,
bjartar minningar
sem lýsa munu
um ókomna tíð.
(Hulda Ólafsdóttir)
Haðu þökk fyrir allt og
allt.
Þín tengdadóttir,
Elín.