Morgunblaðið - 20.07.2021, Síða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 2021
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is
samlegt ka
nýmalað,
engin h lki.
á
y
–
„RÓLEGUR MAÐUR – ÞETTA ER BARA
DÓT. ÞAÐ ER EKKI EINS OG AÐ ÞÚ SÉRT
AÐ AFHENDA BÓLUEFNI.“
„RAGNAR MINN, ÉG TALAÐI VIÐ LÆKNINN.
HANN SEGIR AÐ ÞÚ SÉRT AÐ TAKA ALLT
OF MIKIÐ JÁRN.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að telja kossana hans.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
Í DAG ER AÐFANGA-
AÐFANGADAGUR…
DAGURINN FYRIR
AÐFANGADAG
ÖÐRU NAFNI „FLÝTTU
ÞÉR AÐ RENNA UPP
DAGUR“
HÉR GETUR AÐ LÍTA LÖGBERG
MÁLAFLUTNINGSMANN Í ÖLLU SÍNU
VELDI!
SJÁLFUR ER ÉG MEIRA FYRIR AÐ
VERA Í SERK!
tökum fjármálafyrirtækja, þar sem
hún sá m.a. um að koma á laggirnar
námi og vottunarferli í tengslum við
vottun fjármálaráðgjafa. „Það má
segja að ég hafi ákveðið að vinda
mínu kvæði í kross þegar ég hóf að
vinna með manninum mínum eftir að
hafa veikst, en ég greindist með MS-
sjúkdóminn skömmu eftir fertugt. Í
lok síðasta árs gaf ég út ljóðabókina
Ljóðin hans pabba sem geymir ljóð
og vísur eftir föður minn, Edda
Sturlu, en þar má finna dýrmætan
fjársjóð og minningar um fjörðinn
okkar og fólkið og hið dagleg líf sem
og persónuleg viðfangsefni pabba.“
Fjölskylda
Eiginmaður Sigrúnar Eddu er Ey-
þór Páll Hauksson, prentari frá Ísa-
firði, f. 5.10. 1966, framkvæmdastjóri
Prentmiðlunar. Foreldrar Eyþórs
eru hjónin Valgerður Jakobsdóttir, f.
27.6. 1936, frá Reykjarfirði í Grunna-
víkurhreppi og Haukur Sigurður
Daníelsson, vélstjóri frá Ísafirði, f.
30.6. 1932, d. 28.5. 2000. Börn Sigrún-
ar Eddu og Eyþórs Páls eru 1) Eð-
varð Þór, f. 6.6. 1995, húsasmíða-
meistari og byggingatæknifræðing-
ur. Unnusta hans er Aníta Hlín
Guðnadóttir, f. 14.5. 1996, nemi í
orkuverkfræði en þau stunda bæði
verkfræðinám í Gautaborg í Svíþjóð.
2) Bjarni Geir, f. 2.8. 1999, nýútskrif-
aður viðskiptafræðingur frá Háskól-
anum í Reykjavík og 3) Valgerður
Eyja, f. 24.1. 2004, nemi í Verslunar-
skóla Íslands. Systkini Sigrúnar
Eddu eru Karl Einarsson, f. 21.2.
1963; Erla Eðvarðsdóttir, f. 15.4.
1963; Sturla Gunnar Eðvarðsson, f.
16.10. 1964; Eyþór Eðvarðsson, f.
11.9. 1967, og Elsa Eðvarðsdóttir, f.
5.7. 1978.
Foreldrar Sigrúnar Eddu eru
hjónin Eðvarð Sturluson, f. 23.3.
1937, og Arnbjörg Jóna Bjarnadóttir,
f. 4.10. 1943. Þau bjuggu lengst af á
Suðureyri en búa núna í Hafnarfirði.
Sigrún Edda
Eðvarðsdóttir
Arnfríður Guðmundsdóttir
húsfreyja á Suðureyri
Jón Hálfdán Guðmundsson
bóndi og sjómaður á Suðureyri
Sigurborg Sumarlína Jónsdóttir
húsfreyja á Suðureyri
Bjarni G. Friðriksson
vitavörður á Galtarvita og sjómaður á Suðureyri
Arnbjörg Jóna
Bjarnadóttir
húsfreyja á Suðureyri og
síðar í Hafnarfirði
Elísabet María Andrésdóttir
húsfreyja á Flateyri
Friðrik Bjarnason
sjómaður á Flateyri
Sigrún Sigurðardóttir
húsfreyja á Suðureyri og síðar á Akranesi
Hallbjörn Eðvarð Oddsson
bóndi og kennari á Suðureyri
og Akranesi
Kristey Hallbjörnsdóttir
húsfreyja á Suðureyri við Súgandafjörð
Sturla Jónsson
oddviti, hreppstjóri og útgerðarmaður á
Suðureyri við Súgandafjörð
Kristín Kristjánsdóttir
húsfreyja á Suðureyri
Jón Einarsson
íshússtjóri og skipstjóri á Suðureyri
Úr frændgarði Sigrúnar Eddu Eðvarðsdóttur
Eðvarð Sturluson
bifreiðastjóri og oddviti
á Suðureyri, síðar
búsettur í Hafnarfirði
Á Boðnarmiði hefur Guðmundur
Arnfinnsson uppi „Sjálfs-
gagnrýni“:
Ort hef ég í erg og gríð,
óðsnillingur talinn mesti,
en frá þeirri orrahríð
aldrei reið þó feitum hesti.
Kristján Björn Snorrason svarar:
Þú hefur sýnt á þinni tíð
þrótt og næma kæti.
En núna hefur þú nokkra hríð,
nærst á lítillæti!
Friðrik Steingrímsson yrkir af
því tilefni að Hafnarfjarðarbær
hyggst gefa nýbökuðum foreldrum
veglega gjafakörfu:
Svo að birtist bumbulingar
sem bleyjur fá og snuð og spil,
verða hýrir Hafnfirðingar
hugsanlega að breyta til.
Davíð Hjálmar Haraldsson yrkir:
„Þegar veðrið er ljúft förum við
þeir eldri út að ganga, – og mér
datt auðvitað ekki lýsing á sjálfum
mér í hug þegar ég las vísuna“:
Syngur fugl um sumarást,
sóley prýðir dældir.
Gamlingjar á göngu sjást,
geiflaðir og skældir.
Ármann Þorgrímsson yrkir „Úr
pólitíkinni“:
Vinstri grænir virðast ekki vera hrifnir
Þeir að öxlum eru drifnir
eigin blóði – sjaldan þrifnir.
Ég hef í höndum kver um Káin og
kveðskap hans sem Magnús Gísla-
son gaf út 1937. Þar segir: „Eftir að
„Kveðlingar“ K.N. voru komnir út
kvartaði hann oft yfir lítilli sölu á
þeim, og kallaði útgáfuna „Óhapp“:
Þegar ég fór að fast við ljóð
fór nú ver en skyldi:
Bláfátækri bauð ég þjóð
bók, sem enginn vildi.
Enn segir: „Það eru smáu atvikin
í daglega lífinu, sem verða K.N. oft-
ast að yrkisefni. Eitt sinn er hann
hafði lesið í blöðunum deilur um
trúmál, þjóðrækni o.fl. varð honum
að orði“:
Það er engin þjóðrækni
þaðan af síður guðrækni
heldur íslensk heiftrækni
og helvítis bölvuð langrækni.
Káinn kvað við bindindiskonu, er
vildi tala um fyrir honum:
Gamli Bakkus gaf mér smakka
gæðin bestu, öl og vín,
honum á ég það að þakka
að þú ert ekki konan mín.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Sjálfsgagnrýni og
vísur eftir Káin