Morgunblaðið - 20.07.2021, Side 27

Morgunblaðið - 20.07.2021, Side 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 2021 Það hefur verið merkilegt að fylgjast með þeim fjölda karl- kyns knattspyrnumanna sem hafa lagt land undir fót og gengið til liðs við ítölsk félög. Á síðustu vikum hefur tals- vert bæst í hópinn þar sem Hjörtur Hermannsson samdi við Pisa og Brynjar Ingi Bjarnason og Þórir Jóhann Helgason gengu til liðs við Lecce. Enn bætist svo í unglingalið- in á Ítalíu því Jakob Franz Páls- son fór nýverið frá Þór á Ak- ureyri til Venezia og Birkir Jakob Jónsson gekk til liðs við Atalanta frá Breiðabliki. Mér telst til að alls séu nú 15 íslenskir karlar að spila á Ítalíu, þar af níu með meist- araflokki, þó Mikael Egill Ellerts- son hjá SPAL sé farinn að banka allhressilega á dyrnar hjá að- alliðinu. Einhverjir þessara 15 leikmanna eru væntanlega á förum frá félögum sínum í sum- ar. Alls eru níu leikmannanna á mála hjá A-deildarliðum, fimm hjá B-deildarliðum og einn, sem á raunar flesta leiki allra Íslend- inga í A-deildinni, að spila í C- deildinni, Emil Hallfreðsson. Hefur það þótt eðlileg þró- un hæfileikaríkra ungra leik- manna hér á landi að halda í at- vinnumennsku til Norðurlandanna, Englands eða Hollands en talsvert minna hef- ur verið um að þeir fari til Ítalíu. Undanfarin ár hefur það þó gerbreyst og verður forvitnilegt að sjá hvernig þessum mikla fjölda leikmanna reiðir af á næstu árum. Flestir þeirra eru ungir að árum og fá vonandi tækifæri til þess að spila og bæta sig, þeim sjálfum og ís- lenskri knattspyrnu til mikilla hagsbóta. BAKVÖRÐUR Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Pepsi Max-deild karla Leiknir R. – Stjarnan............................... 2:0 Keflavík – Víkingur R .............................. 1:2 Staðan: Valur 13 8 3 2 22:13 27 Víkingur R. 13 7 5 1 19:10 26 Breiðablik 12 7 2 3 29:16 23 KR 13 6 4 3 20:14 22 KA 12 6 2 4 18:9 20 Leiknir R. 13 5 2 6 15:18 17 FH 12 4 3 5 15:17 15 Fylkir 13 3 5 5 17:21 14 Keflavík 12 4 1 7 15:22 13 Stjarnan 13 3 4 6 12:20 13 HK 13 2 4 7 14:23 10 ÍA 13 2 3 8 13:26 9 Bandaríkin Portland Thorns – Orlando Pride......... 2:1 - Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék allan leikinn með Orlando Pride. Staðan: Portland Thorns 19, Chicago Red Stars 17, Houston Dash 16, Gotham 16, Orlando Pride 16, North Carolina Courage 16, Washington Spirit 15, Racing Louisville 11, OL Reign 10, Kansas City 3. Svíþjóð Djurgården – Sirius ................................ 5:1 - Aron Bjarnason lék ekki með Sirius vegna meiðsla. Staða efstu liða: Malmö 12 8 2 2 29:16 26 Djurgården 11 7 3 1 21:7 24 Elfsborg 12 7 1 4 18:12 22 AIK 11 6 2 3 15:11 20 Hammarby 11 5 3 3 22:15 18 Norrköping 11 5 2 4 14:10 17 Gautaborg 11 3 6 2 14:12 15 Häcken 11 4 3 4 16:15 15 Kalmar 11 3 5 3 11:13 14 Degerfors 11 4 2 5 13:18 14 Danmörk Silkeborg – SönderjyskE........................ 0:0 - Stefán Teitur Þórðarson lék ekki með Silkeborg vegna meiðsla. 4.$--3795.$ Hinn 16 ára gamli knattspyrnumað- ur Birkir Jakob Jónsson er orðinn leikmaður Atalanta á Ítalíu. Birkir kemur til Atalanta frá Breiðabliki. Birkir fór á reynslu til Atalanta fyrr í sumar og hafa viðræður á milli Atalanta og Breiðabliks staðið yfir. Leikmaðurinn efnilegi lék einn leik í Lengjubikarnum í vetur. Hann er uppalinn hjá Fram en fór þaðan til Fylkis árið 2019 áður en hann fór í Breiðablik. Birkir verður ekki eini Íslendingurinn hjá Atal- anta því Óliver Steinar Guðmunds- son fór til sama félags frá Haukum. Birkir Jakob til Atalanta Ljósmynd/Molde Ítalía Birkir Jakob Jónsson er kominn til Atalanta á Ítalíu. Knattspyrnumaðurinn Aron Bjarnason verður frá keppni í 2-3 mánuði til viðbótar vegna meiðsla sem hafa verið að hrjá hann síðustu vikur og mánuði. Aron fer í aðgerð í ágústbyrjun til að fá bót meina sinna, en hann staðfesti tíðindin í samtali við Morgunblaðið. Hann hefur ekkert getað leikið með sænska úrvalsdeildarliðinu Sirius á þessari leiktíð vegna meiðslanna. Aron kom til félagsins fyrir þetta tímabil frá Újpest í Ungverjalandi, en hann spilaði með Val á láns- samningi síðasta sumar. Aron frá keppni í 2-3 mánuði Morgunblaðið/Eggert Meiddur Aron Bjarnason er að glíma við erfið meiðsli. ÓLYMPÍULEIKAR Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Ásgeir Sigurgeirsson tekur þátt í sín- um öðrum Ólympíuleikum á ferlinum þegar hann keppir í skotfimi með loft- skammbyssu í Tókýó í Japan. Áður hafði hann tekið þátt á leikunum í Lundúnum árið 2012 þegar hann keppti í skotfimi með loftskamm- byssu, þar sem hann lenti í 14. sæti forkeppninnar, og frjálsri skamm- byssu, þar sem hann lenti í 32. sæti forkeppninnar. Í viðtali við Morgunblaðið undir lok síðasta mánaðar greindi Ásgeir frá því að þjálfari hans hefði sagt honum að búið væri að úthluta öllum kvótasæt- um og hann því ekki á leiðinni á leik- ana í ár. Þegar ein þjóðin skilaði inn einu sæti fyrir keppanda fékk Ásgeir hins vegar keppnisrétt þar sem hann átti besta skorið í skotfimi hjá þeim þjóðum sem ekki höfðu fengið keppn- isrétt í skotfimi með loftskammbyssu á leikunum. Einstakt tækifæri „Þetta er bara spennandi og ég hlakka til. Þetta er alveg einstakt tækifæri. Ég flaug út snemma á laug- ardaginn,“ sagði Ásgeir í samtali við Morgunblaðið. Þar sem hann var ekki búinn að keppa neitt í rúmt ár og búið að tjá honum að búið væri að fylla í kvótasætin fyrir leikana var Ásgeir lít- ið að æfa þegar hann komst skyndi- lega á leikana. „Eftir að ég komst að því að ég væri kominn inn á leikana fór ég að æfa talsvert meira en ég var að gera. En ég passaði mig á að fara ekki of skarpt af stað. Það er bara búinn að vera góð- ur stígandi í þessu hjá mér,“ sagði hann um hvernig undirbúningnum hefði verið háttað fyrir leikana. Spurður um möguleika sína á leik- unum í þetta skiptið, sagði hann: „Það er bara mjög erfitt að segja til um það, því það hafa nánast ekki verið haldin nein mót síðan í mars í fyrra og ég er ekki búinn að keppa neitt síðan þá. Þannig að það er erfitt að vita hvar ég stend, það er erfitt að vita hvar allir aðrir standa. Því fer maður inn í þetta mót í mikilli óvissu.“ Ásgeir ætlar ekkert að stressa sig á hlutunum og mun nálgast mótið af æðruleysi. Því fer hann ekki á leikana með einhver ákveðin markmið, nema þá að njóta upplifunarinnar. „Nei, í rauninni er ég ekki með nein mark- mið. Ég ætla bara að hafa gaman og gera mitt besta,“ sagði hann. Vill vera viðstaddur fæðinguna Þegar Ásgeir er ekki að æfa eða keppa er hann í fullu starfi og með litla fjölskyldu, sem mun þó stækka á næstunni. „Ég vinn hjá Nova, er í 100 prósent starfi þar. Svo er ég með fjöl- skyldu, með rúmlega tveggja ára strák heima og annan á leiðinni, sem gerir það pínu stressandi að vera að fara út,“ sagði hann. „Hann á að koma 7. ágúst þannig að það er alveg möguleiki að hann komi í heiminn á meðan ég er úti, en vonandi ekki,“ bætti hann við. Keppni í skotfimi karla með loftskammbyssu fer fram snemma á leikunum, laug- ardaginn 24. júlí, bæði forkeppni og úrslit og því aðeins um einn keppn- isdag í greininni að ræða. Ásgeir verður því vonandi kominn heim til Íslands áður en sonur númer tvö mætir í heiminn. Spurður um hvað hann fáist við hjá fjarskiptafyr- irtækinu Nova, sagðist Ásgeir vera að vinna við nokkuð sem honum þyki afar spennandi og skemmtilegt. „Ég hjálpa til við uppbyggingu og viðhald á dreifikerfinu. Það er mjög áhugavert. Þetta er nokkurn veginn draumastaðan mín hjá Nova og ég er mjög ánægður þarna. Það er margt spennandi í gangi, 5G og ýmislegt annað. Það er mikil uppbygging í öll- um kerfum,“ sagði Ásgeir að lokum í samtali við Morgunblaðið. Erfitt að vita hvar ég og allir aðrir standa - Ásgeir fer á sína aðra Ólympíuleika - Gæti misst af fæðingu annars sonarins Morgunblaðið/Eggert Loftskammbyssa Ásgeir Sigurgeirsson er klár í slaginn fyrir sína aðra Ólympíuleika en hann keppir fyrstur Íslendinganna á laugardaginn. Ásgeir Sigurgeirsson er 35 ára gamall rafeindavirki, uppalinn í Kópavogi og býr í Breiðholti, og keppir í annað skipti á Ólympíuleikum. Hann var á meðal þátttakenda á ÓL í London árið 2012 og hafnaði þar í 14. sæti í undankeppninni í 10 metra loftskammbyssu þar sem hann missti naumlega af sæti í átta manna úrslitakeppninni. Hann keppti einnig í 50 metra frjálsri skammbyssu og hafnaði í 32. sæti. Ásgeir hefur hreppt gullverðlaun í 10 m loftskammbyssu á fimm Smá- þjóðaleikjum í röð, síðast á síðustu leikum í Svartfjallalandi árið 2019. Hann varð áttundi í greininni á Evrópumeistaramótinu árið 2013 og sjö- undi árið 2017 og hefur unnið fjögur alþjóðleg mót í greininni. Á heimsmeistaramóti hefur Ásgeir best náð 25. sæti árið 2018 og hann varð fimmti á heimsbikarmóti í 50 m skammbyssu í Suður-Kóreu árið 2015. Þá varð hann fimmti á Evrópuleikunum í Bakú árið 2015. Ásgeir keppti í efstu deild í Þýskalandi um nokkurra ára skeið og varð þar þýskur meistari með liði Ludwigsburg árið 2019 og í þriðja sæti 2018, en hann hefur einnig keppt með liðum Ötlingen og Hannover. Ásgeir Sigurgeirsson Leikmaður í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta var handtekinn á föstudag grunaður um kynferðisbrot gegn börnum. Hann er nú laus gegn tryggingu. Daily Mail greindi fyrst frá. Félag leikmannsins staðfesti við miðilinn að leikmanninum yrði vikið frá störfum meðan á rannsókn lögreglu stæði. Leikmaðurinn er 31 árs, giftur og fastamaður í landsliði þjóðar sinnar samkvæmt frétt Daily Mail. The Mirror greinir frá því að lögreglan í Manchester líti málið alvarlegum augum og hafi gert húsleit heima hjá leikmanninum fyrr í mánuðinum. Þar hafi verið lagt hald á marga hluti auk þess sem leikmaðurinn hafi verið yfirheyrður og sakaður um alvarleg brot. Þá heldur The Mirror því fram að leikmaðurinn hafi þénað mikið á sínum ferli og verið keyptur fyrir háar fjárhæðir á ferl- inum. „Félagið aðstoðar við rannsókn málsins en mun ekki tjá sig frek- ar um það á þessari stundu,“ sagði talsmaður félagsins við Mirror. Grunaður um kynferðisbrot Viðræður forsvarsmanna enska knattspyrnufélagsins Liverpool og fyrirliðans Jordans Hendersons um nýjan samning hafa farið illa af stað, en hann á tvö ár eftir af núverandi samningi. Bandarískir eigendur Liv- erpool hafa haft það fyrir reglu að bjóða ekki eldri leikmönnum sínum samninga á háum launum. Sam- kvæmt frétt The Athletic leist fyr- irliðanum illa á fyrsta boð Liverpool og viðræðurnar sagðar flóknar og á viðkvæmu stigi. Viðræður ganga illa AFP Fyrirliði Viðræðurnar á milli Hend- ersons og Liverpool fara illa af stað.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.