Morgunblaðið - 20.07.2021, Qupperneq 32
Gítarleikarinn Jón
Hilmar heldur sína
fyrstu sólótónleika á
þremur stöðum á
Austurlandi í vikunni.
Hann hefur í gegnum
árin spilað sem gít-
arleikari með mörgum
af bestu tónlistar-
mönnum þjóðarinnar
en er nú að feta inn á
nýjar brautir og prófa
að gera hlutina hins-
egin, eins og stendur í
tilkynningu. Á tónleik-
unum mun Jón Hilmar
tvinna saman tónlist og sögur af sjálfum sér og öðrum.
Hann mun einnig frumflytja nokkur splunkuný lög, en
gítarhetjustælarnir verða þó ekki langt undan. Tónleik-
arnir verða á Stríðsárasafninu á Reyðarfirði á miðviku-
dag, í Beituskúrnum í Neskaupstað á fimmtudag og á
Vöffluhúsinu á Vopnafirði á föstudag, kl. 21 öll kvöldin.
Jón Hilmar hinsegin á Austurlandi
Víkingur úr Reykjavík er aðeins einu stigi frá toppliði
Vals í Pepsi Max-deild karla í fótbolta eftir sterkan 2:1-
sigur á móti Keflavík á útivelli í gærkvöldi. Keflavík var
með 1:0-forystu eftir fyrri hálfleikinn en Víkingar voru
miklu sterkari í seinni hálfleik og unnu verðskuldað.
Nikolaj Hansen og varamaðurinn Helgi Guðjónsson
skoruðu mörk Víkings en Sindri Þór Guðmundsson
gerði mark Keflavíkur. Þá vann Leiknir Reykjavík góðan
2:1-heimasigur á Stjörnunni og fjarlægðist fallsætin í
leiðinni. »26
Víkingur einu stigi frá toppsætinu
eftir sterkan sigur í Keflavík
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Fjölmenni var við guðsþjónustu í
kirkjunni á Klyppstað í Loðmundar-
firði sl. sunnudag, en löng hefð er
fyrir því að messað sé í eyðibyggð-
inni einu sinni á sumri. „Þetta var
skemmtileg stund og fólk kom víða
að til þess að vera við þessa stund,“
segir sr. Þorgeir Arason, sóknar-
prestur á Egilsstöðum. Athöfnina
önnuðust þau sr. Þorgeir og sr. Jó-
hanna Sigmarsdóttir, sem fyrir 15
árum átti upptökin að árlegri sum-
armessu í hinni afskekktu eyði-
byggð.
Haldið í tengslin
Loðmundarfjörður er austur á
landi, milli Seyðisfjarðar og Borg-
arfjarðar eystri. Tæplega hálf öld er
síðan föst búseta lagðist af á þessu
svæði, sem er fjölsótt á sumrin.
Gönguhópar fara mikið þarna um og
fólk sem hefur tengsl og rætur á
svæðinu kemur þangað mikið. Kirkj-
an á Klyppstað var reist árið 1895,
og eru viðir hennar að talsverðum
hluta úr því guðshúsi sem áður stóð
á sama stað. Ástand kirkjunnar er
gott enda hefur henni verið vel við-
haldið.
„Með helgihaldi á þessum fallega
stað sem Loðmundarfjörður er höld-
um við í tengslin við forfeður okkar,
söguna og náttúruna,“ segir Þorgeir.
„Útimessur hafa víða verið haldnar
hér á Austurlandi, eins og raunar
víða annars staðar um landið, og
hafa mælst vel fyrir. Þarna, og
sennilega hvergi betur, getur fólk
skynjað hve sterkt trúarlegt inntak
sköpunarverkið hefur. Messur í Sel-
skógi hér við Egilsstaði, við tilgátu-
torfhúsið Geirsstaðakirkju í Hróars-
tungu, inn til dala og upp til fjalla,
heyri ég og finn að lifa í vitund
þeirra sem mæta.“
Í guðsþjónustunni sl. sunnudag
var lagt út frá guðspjalli dagsins,
sem fengið var úr 16. kafla Matteus-
ar. Boðskapur þess er að fólk skuli
varast súrdeig faríseanna, með öðr-
um orðum falsboð, og enginn skuli
gera mannamun. „Þetta talar skýrt
inn í aðstæður dagsins. Margt í nú-
tímanum er ekki hvað sýnist. Slíkt
er hið varasama súrdeig, svo notað
sé tungutak Biblíunnar. Guðs ríki er
hins vegar eins og súrdeigið sem
konan fól í mjölinu í dæmisögu Jesú;
hin góðu áhrif sem breiða út frá sér
og mæta okkur í daglegri tilveru
venjulegs fólks, þegar við erum opin
fyrir nærveru Krists,“ segir Þorgeir.
Heimabakað í messukaffi
Og talandi um brauð; eftir athöfn-
ina var messugestum boðið í messu-
kaffi í skála Ferðafélags Fljótsdals-
héraðs í Loðmundarfirði. Þar voru
veitingarnar ekki af verri endanum;
heimabakað í ýmsum útgáfum, svo
sem kleinur og skúffukaka.
Sr. Þorgeir kom aftur til starfa
sem Egilsstaðaprestur í síðustu
viku, eftir að hafa búið með fjöl-
skyldu sinni í Bandaríkjunum síð-
asta árið. „Síðasta messan mín í
fyrra, áður en við fórum utan, var á
Klyppstað og nú tók ég upp þráðinn
þar sem frá var horfið á þeim stað,“
segir Þorgeir. Vestra stundaði hann
nám við lúterska prestaskólann í
Chicago og nam þar hagnýta guð-
fræði með áherslu á helgisiði.
Messað í eyðibyggð
- Kristnihald á Klyppstað í Loðmundarfirði - Sköpunar-
verk og trú - Sagt frá súrdeigi - Sr. Þorgeir er mættur
Ljósmyndir/Stefán Bogi Sveinsson
Helgihald Sköpunarverkið hefur trúarlegt inntak, segir sr. Þorgeir Arason.
Kirkjugestir Nærri 100 manns sóttu messuna, á veðursælum degi eystra.
ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 201. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
ÍÞRÓTTIR MENNING