Morgunblaðið - 28.07.2021, Qupperneq 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. JÚLÍ 2021
HRINGFERÐ UM SIKILEY
05. - 15. OKTÓBER
FARARSTJÓRI
MARGRÉT LAXDAL
Einstök 11 daga sérferð um ítölsku eyjuna Sikiley.
Þar munum við kynnast einstakri menningu Sikileyjar
ásamt matar- og vínmenningu, minjum og náttúru.
Innifalið í þessari ferð er flug, gisting, með morgunverði
íslensk fararstjórn með Margréti Laxdal, vínsmakkanir,
hressar gönguferðir og bátsferðir svo eitthvað sé nefnt.
299.900 KR.VERÐ FRÁ
WWW.UU.IS | HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓP. | 585 40000 | INFO@UU.IS
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Á föstudaginn var þegar allir biðu
eftir ákvörðun ríkisstjórnarinnar um
ráðstafanir vegna faraldursins sáum
við helmings
hrun í bókunum á
tjaldstæðum þá
helgina,“ sagði
Ívar Freyr
Sturluson, mark-
aðs- og sölustjóri
Computer Vision
ehf. Fyrirtækið á
m.a. vefinn
tjalda.is og einnig
appið PARKA.
Þar er hægt að
bóka tjaldstæði á meira en 30 tjald-
svæðum víða um landið í gegnum
appið. Einnig er hægt að greiða fyrir
bílastæði Reykjavíkurborgar og
einnig í Höfðatorgi og Hafnartorgi
svo dæmi séu nefnd. Þá er hægt að
borga fyrir bílastæði við vinsæla
ferðamannastaði eins og gosið í
Geldingadölum, Reykjanesvita og
víðar.
Á vefnum tjalda.is eru upplýs-
ingar um 140 tjaldsvæði og er þeim
alltaf að fjölga, að sögn Ívars. Hann
sagði að bókanir á tjaldstæðum hafi
nú aftur tekið við sér.
Suðurlandið vinsælast nú
„Nú er Suðurlandið langheitast
bæði í leit að tjaldsvæðum á tjalda.is
og eins að bókunum tjaldstæða á
PARKA. Það er búið að blása af
stórar útihátíðir og svo virðist sem
margir ætli í útilegu á tjaldsvæði um
verslunarmannahelgina. Það er mik-
ilvægt að vera búinn að bóka tjald-
stæði fyrir fram og tryggja sér
pláss,“ sagði Ívar.
Þau tjaldsvæði sem nota bók-
unarvél PARKA þurfa að hólfa
svæðin niður og merkja hvern reit
og hvar er aðgangur að rafmagni.
Viðskiptavinurinn bókar og greiðir
og þá er hann búinn að tryggja sér
plássið. Þegar öll svæðin eru upp-
seld lokast fyrir bókanir á því svæði.
Ívar sagði að þetta auðveldi alla
skipulagningu og tryggi að ekki séu
fleiri í hverju sóttvarnahólfi en regl-
ur leyfa.
Nú er gerð krafa um að gestir séu
skráðir með nafni og kennitölu. Þær
upplýsingar þarf að geyma í tvær
vikur, komi mögulega upp smit.
Hægt er að skrá allar þessar upplýs-
ingar í PARKA.
„Við hvetjum tjaldsvæði sem eru í
samvinnu við okkur til að upplýsa
gesti sína um reglur Mannvirkja-
stofnunar um brunavarnir á tjald-
svæðum,“ sagði Ívar. Þar er m.a.
kveðið á um að fjórir metrar skuli
vera á milli húsvagna og almennt
þrír metrar á milli tjalda.
Margir ætla í útilegu um helgina
- Tjaldsvæði á Suðurlandi mikið skoðuð á tjalda.is - Hægt er að tryggja sér tjaldstæði með appinu
PARKA - Hrun varð í bókunum á föstudag þegar þjóðin beið eftir ráðstöfunum ríkisstjórnarinnar
Morgunblaðið/Björn Jóhann
Sauðárkrókur Þar var þéttskipað á tjaldsvæðinu í sumar þegar Steinull-
armótið fór fram. Örtröð hefur verið á tjaldsvæðum þar sem veðrið er gott.
Ívar Freyr
Sturluson
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Hiti gæti orðið um 20°C síðdegis í dag í Reykjavík og
eins á morgun, samkvæmt veðurspá Einars Sveinbjörns-
sonar veðurfræðings á vefnum Blika.is. Hann gerir ráð
fyrir norðaustanátt „af hlýrri gerðinni“ og sólríku
veðri. Það eina sem gæti sett strik í reikninginn, að
minnsta kosti sums staðar á svæðinu, er ef það kemur
hafgola.
„Við getum átt von á hálfgerðum hnjúkaþey í Reykja-
vík,“ sagði Einar. „Norðaustanáttin er venjulega hag-
stæð hvað varðar vindstyrk og sólfar í Reykjavík. Að
auki verður hún af hlýrri gerðinni. Það er hlýr loftmassi
norðan við landið. Svo rignir líka frá þessu um norð-
austanvert landið og þá losnar úr læðingi auka varmi.
Við hægan vind og verði bjart með köflum ætti hitinn að
komast í tuttugu stig eins og hann gerir stundum um
þetta leyti um hásumar við bestu aðstæður.“
Esjan myndar skjól fyrir norðaustanáttinni á mestöllu
höfuðborgarsvæðinu. Spurningin er hvort henni tekst
að halda aftur af hafgolunni sem er stóri óvissuþátt-
urinn á dögum eins og þessum, að sögn Einars. Nái haf-
golan sér á strik verður hitinn líklega ekki meiri en 15-
16°C sem er þó meira en fólk hefur átt að venjast.
Myndarlegur gosmökkur steig upp frá eldfjallinu í
Geldingadölum í gærmorgun. Einar sagði að undan-
farnar vikur hefðu verið ráðandi suðlægar vindáttir og
raki af hafi. Þess vegna var lélegt skyggni yfir Fagra-
dalsfjalli. Þegar snerist til norðanáttar í fyrrinótt birti
strax til og loftið þornaði. Rakinn í gosmekkinum varð
því meira áberandi fyrir vikið. Ekki er talið að eldgosið
hafi veðurfarsleg áhrif.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Austurvöllur Búast má við að margir vilji njóta góða veðursins þegar loksins birtir til og hlýnar í höfuðborginni eft-
ir langvarandi dumbung og vætu. Þessar konur létu fara vel um sig í blíðunni á Austurvelli.
Hlýindum spáð í höfuð-
borginni í dag og á morgun
- Spáð er norðaustanátt „af hlýrri gerðinni“ og sólríku
veðri - Hafátt gæti mögulega sett strik í reikninginn
Morgunblaðið/Unnur Karen
Nauthólsvík Börnin læra margt skemmtilegt um báta
og siglingar á siglinganámskeiði á vegum Sigluness.
Á félagsfundi Pí-
rata, sem fór
fram í gærkvöldi,
lögðu oddvitar
framboðslista Pí-
rata fyrir næstu
alþingiskosning-
ar fram erindis-
bréf sem veitir
Halldóru Mogen-
sen, þingkonu Pí-
rata, umboð til að
leiða stjórnarmyndunarviðræður að
loknum kosningum til Alþingis, í
samræmi við tíunda kafla laga Pírata
um umboðsmenn. „Það var enginn
mótfallinn því, þetta sigldi því bara í
gegn og fer í kosningakerfið hjá
grasrótinni,“ segir Halldóra Mogen-
sen, þingflokksformaður Pírata, um
félagsfund flokksins sem haldinn var
fyrr í gærkvöld. „Ef grasrótin sam-
þykkir þá verður þetta borið undir
þingflokkinn og framkvæmdastjórn
og ef þetta er samþykkt þar þá er ég
komin með umboð.“
Halldóra segir að ekki hafi verið
rætt mikið annað á fundinum, nema
lítillega um þau áhrif sem faraldur-
inn hefur á kosningabaráttu Pírata.
Halldóru verði falið
að leiða viðræður
- Píratar samþykkja erindisbréf
Halldóra
Mogensen