Morgunblaðið - 28.07.2021, Blaðsíða 9
Fjölskylda Johns Snorra Sigur-
jónssonar, sem lést á tindinum K2
í Pakistan í febrúar síðastliðnum,
þakkar fyrir „þann hlýhug, stuðn-
ing og umhyggju sem okkur hef-
ur verið sýnd undanfarna mán-
uði“.
Greint var frá því á mánudag
að þrjú lík hefðu fundist ofan við
fjórðu búðir K2, en Ali Sadpara
og Juan Pablo Mohr voru með
John Snorra í för þegar hann
týndist á tindinum 5. febrúar.
Í yfirlýsingu frá fjölskyldu
Johns Snorra kemur fram að nú
hafi ákveðinni óvissu um afdrif
Johns Snorra, Alis Sadpara og
Juans Pablos Mohr verið eytt.
Aðstæður mjög erfiðar
„Það er alfarið á hendi pakist-
anskra yfirvalda að ákveða hvort
reynt verður að ná líkömum
þeirra niður af fjallinu, en að-
stæður á K2 eru mjög erfiðar.
Það er mikilvægt að öryggi
þeirra aðila sem tækju þátt í slík-
um aðgerðum verði tryggt ef tek-
in verður ákvörðun um að flytja
þá niður í grunnbúðir,“ segir í
yfirlýsingunni.
Þar segir einnig að samkvæmt
upplýsingum frá Elia Saikaly, sem
er nú á K2, séu lík Johns og Alis
fyrir ofan hinn svokallaða flösku-
háls á K2 á meðan staðsetning Ju-
ans sé nærri fjórðu búðum. Miðað
við aðstæður eru vísbendingar um
að þeir hafi verið á leið niður af
toppi fjallsins þegar þeir létust.
„Persónulegir munir, mynda-
vélar og annar tækjabúnaður sem
þeir höfðu meðferðis mun líklega
varpa betra ljósi á það sem gerð-
ist þennan afdrifaríka dag og m.a.
svara þeirri spurningu hvort þeir
hafi náð toppnum á K2. Stjórn
þeirrar rannsóknar verður einnig
á hendi pakistanskra yfirvalda og
munu allar upplýsingar um niður-
stöður koma frá þeim,“ segir í
yfirlýsingunni.
Voru líklega á leið niður af toppi K2
- Fjölskylda Johns Snorra þakkar fyrir hlýhug, stuðning og umhyggju
K2 John Snorri Sigurjónsson klífur
hér upp fjallið K2 árið 2017.
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. JÚLÍ 2021
GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA
Eru sparifötin
hrein?
Trésmíðavélar frá
Fartools
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
rum með þúsundir vörunúmera
inn á vefverslun okkar brynja.is
E
Opið virka
daga frá 9-18
lau frá 10-16
Borðsög
TS188C
Verð 69.670
Rennibekkur TFB1000
Verð 198.000
Rennibekkur TBS400
Verð 77.570
Borabrýni
Verð 13.610
Slípiband CP150
Verð 39.980
Sonja Sif Þórólfsdóttir
sonja@mbl.is
Fimmtándu crossfitheimsleikarnir
fara fram í Madison í Bandaríkj-
unum í vikunni. Leikarnir hefjast í
dag og standa fram á sunnnudag.
Fjórir íslenskir keppendur eru
skráðir til leiks í einstaklingskeppni.
Björgvin Karl Guðmundsson er eini
íslenski karlinn en þær Annie Mist
Þórisdóttir, Katrín Tanja Davíðs-
dóttir og Þuríður Erla Helgadóttir
eru skráðar til leiks í kvennaflokki.
Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir
er ekki með á leikunum í ár vegna
meiðsla en hún sleit krossband í
mars.
Fjórir keppnisdagar eru undir á
þessum fimm dögum, en á morgun
er hvíldardagur. 40 karlar og 40
konur hefja leik í dag og keppa líka
á föstudag. Eftir keppni á föstudag
detta 10 keppendur úr hvorum
flokki og einnig á laugardag. Því
munu aðeins 20 karlar og 20 konur
keppa á úrslitadeginum.
Alls eru 15 viðburðir þessa fjóra
keppnisdaga. Ekki hafa allar þraut-
irnar verið afhjúpaðar en í fyrstu
þrautinni sem fer fram í dag þurfa
keppendur að synda eina mílu með
froskalöppum og róa þrjár mílur á
kajak.
Björgvin Karl
sigurstranglegur
Björgvin Karl þykir vera einn af
þeim keppendum sem geta hreppt
1. sætið í keppninni í ár en sigurveg-
ari síðustu fimm ára, Mat Fraser,
lagði skóna á hilluna í lok síðasta
tímabils. Því er ljóst að nýr sig-
urvegari verður krýndur í karla-
flokki á sunnudag.
Spekingar spá einnig þeim Noah
Olsen, Patrick Vellner, Brent Fik-
owski, Justin Medeiros og Scott
Panchik góðu gengi á leikunum í ár.
Í kvennaflokki er það Tia-Clair
Toomey sem þykir sigurstrangleg-
ust en hún hefur unnið leikana síð-
astliðin fjögur ár. Íslensku keppend-
urnir munu þó
eflaust veita
henni góða sam-
keppni ásamt
þeim Haley
Adams, Brooke
Wells og Kari
Pearce.
Katrín á palli?
Katrín Tanja
keppir nú á sín-
um níundu leikum síðan árið 2012.
Hún komst ekki inn á leikana 2014
en kom til baka árið 2015 og tók
gullverðlaunin heim. Hún sigraði
einnig árið 2016. Á síðasta ári var
hún eini Íslendingurinn sem komst í
lokaúrslit heimsleikanna sem voru
með breyttu sniði vegna heimsfar-
aldursins. Þar lenti hún í öðru sæti á
eftir Toomey.
Fyrstu leikarnir
eftir barnsburð
Leikarnir eru þeir elleftu sem
Annie Mist keppir á síðan 2009.
Hún sigraði árið 2011 og 2012. Hún
keppti ekki árið 2013 og á síðasta ári
var hún ekki með vegna þess að þá
gekk hún með sitt fyrsta barn. Leik-
arnir eru því þeir fyrstu sem hún
keppir á síðan hún varð móðir.
Annie er ekki eina konan sem er
móðir í keppninni en 12,5% kepp-
enda í kvennaflokki eru mæður.
Síðustu 12 mánuðir hafa reynt
mikið á Annie, sem hefur á sam-
félagsmiðlum sagst ætla að gera
þetta fyrir dóttur sína Freyju Misti
og sjálfa sig.
Ljósmynd/Ingi Torfi
Heimsleikar Björgvin Karl Guðmundsson, fremstur í hringjunum, hefur
keppni á heimsleikunum í crossfit í Madison í Bandaríkjunum í dag.
Heimsleikar í cross-
fit hefjast í dag
Þuríður Erla
Helgadóttir
Katrín Tanja
Davíðsdóttir
Annie Mist
Þórisdóttir
- Fjórir íslenskir keppendur