Morgunblaðið - 28.07.2021, Side 10

Morgunblaðið - 28.07.2021, Side 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. JÚLÍ 2021 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur hefur tekið jákvætt í óskir um breytta uppbyggingu á Kirkjusandi, þar sem höfuðstöðvar Strætó voru um árabil. Hætt verður við byggingu atvinnu- húss og íbúðum fjölgað í staðinn. ASK-arkitektar, fyrir hönd Mið- borgar 105, þróunaraðila reita B, C, D og F á Kirkjusandi, rituðu skipu- lagsfulltrúa bréf í maí sl. og óskuðu eftir breytingu á landnotkun hluta deiliskipulags á reitnum. Nægt framboð í borginni „Það er kunnara en frá þurfi að segja, að uppbygging atvinnu- húsnæðis er erfiðleikum bundin þessi misseri. Nægt framboð er nú þegar af atvinnuhúsnæði og verið að byggja nýtt í miðbæ Reykjavíkur. Reynsla Miðborgar 105 af uppbygg- ingu atvinnuhúsnæðis á reit B sýnir enn fremur að eftirspurn eftir slíku húsnæði er ekki fyrir hendi. Það er því mat þróunaraðila að ekki sé raunhæft að reisa skrifstofuhúsnæði á Kirkjusandi í þeim mæli sem gert er ráð fyrir í gildandi deiliskipulagi,“ segir í bréfinu, sem Páll Gunnlaugs- son artkitekt ritar undir. Af þessum ástæðum er lagt til að landnotkun reits F verði breytt að hluta í íbúðarhúsnæði. Í gildandi deiliskipulagi er reit F þrískipt, F1- F3, en reiturinn stendur á horni Borgartúns, Kringlumýrarbrautar og Sæbrautar. Byggingamagn á reitnum er 19.450 fermetrar. Á reit F3 verða byggðar íbúðir, alls 3.000 m². Á reit F2 er gert ráð fyrir 7.500 m² atvinnuhúsnæði en Miðborg 105 vill breyta því í íbúðir. Sé reiknað með 90 fermetra íbúðum að meðal- tali gæti húsið rúmað 83 íbúðir. „Þá er eftir reitur F1, um 8.950 m², sem áfram yrði ætlaður starf- semi, m.a. fyrir hótel og skrifstofur, allt eftir því hvaða markaðir taka við sér,“ segir í bréfinu. Heildarbyggingamagn á svæðinu er áætlað 79.000 fermetrar, þar af atvinnuhúsnæði 48.200 m² og íbúðar- húsnæði 30.800 m². Með breyttri landnotkun breytast hlutföllin í 40.700 m² og 38.300 m². „Það er von okkar að hægt sé að verða við þessari ósk, þar sem hún er nánast forsenda þess að haldið verði rakleitt áfram með byggingu bílageymslu undir reit F,“ segir í bréfi ASK-arkitekta. Verkefnastjóri skipulagsfulltrúa gerir ekki athugasemd við að um- sækjandi láti vinna tillögu að breyt- ingu á deiliskipulagi, enda sé tekið tillit til margvíslegra atriða sem hann tiltekur og sýnt sé fram á að hægt verði að leysa þau með við- unandi móti. Hann bendir á að bygg- ingarreitur F2 sé ekki mótaður með það í huga að þar verði íbúðir og skoða þurfi hvort nauðsynlegt sé að breyta lögun hans til að tryggja góð skilyrði fyrir íbúðarhúsnæði. M.a. þurfi að gæta vel að birtuskilyrðum í íbúðum og á lóð. Þá er vakin athygli á að reitur F2 sé í mikilli nálægð við stórar umferðargötur og þurfi að huga vel að hljóðvist við hönnun. Uppfylla þurfi hljóðvistarkröfur í öllum íbúðum og vinna nýtt umferð- armat/samgöngumat fyrir svæðið. 105 Miðborg slhf. er sérhæfður sjóður í rekstri og stýringu Íslands- sjóða, að því er fram kemur á heima- síðu sjóðanna. Sjóðurinn heldur utan um byggingu fasteigna á Kirkju- sandi, stórum þéttingarreit í Reykjavík. Félagið var stofnað í byrjun árs 2018 og eru hluthafar þess 10 íslenskir lífeyrissjóðir, fimm vátryggingafélög og 11 fagfjár- festar. Markaður fyrir atvinnuhús í frosti - Hætt við byggingu atvinnuhúsnæðis á Kirkjusandi og íbúð- ir byggðar í staðinn Morgunblaðið/Baldur Kirkjusandur Byggingar sem Miðborg 105 hefur reist. Í Stuðlaborg (gul) eru 77 íbúðir og í Sólborg (brún) 52 íbúðir. Milli þeirra má sjá í skrifstofubygg- inguna Sjávarborg, sem nú er í byggingu. Forsvarsmenn Miðborgar 105 telja að spurn eftir atvinnuhúsnæði sé ekki fyrir hendi um þessar mundir. Ari Páll Karlsson ari@mbl.is Íbúum Folda- og Húsahverfis í Graf- arvogi brá vægast sagt í brún fyrr í sumar þegar ráðist var til atlögu við garðslátt útisvæðisins sem liggur meðfram hverfunum. Þá hafði svæðið verið slegið vel og vandlega að einu svæði undanskildu en það er púttvöllurinn. Þar var gras sem enn náði upp að hnjám á meðan skíðabrekkan fyrir ofan var slegin og til fyrirmyndar. Ástæðan er einföld að mati Reykjavíkurborgar að því er fram kemur í svari til Morgunblaðsins. Það er ekki enn búið að klára völl- inn. Vísað er í framkvæmdasjá borg- arinnar þar sem segir: „Vinna þarf grasflötina meira áður en hægt er að opna hana fyrir notkun, t.d. þarf að huga vel að flötinni, sanda hana og bera áburð á hana.“ Fram- kvæmdir hófust síðsumars í fyrra. „Aðilar sem sérhæfa sig í rekstri pútt-flata munu sjá til þess að flötin verði ræktuð upp með viðundandi hætti. Notkun grasflatarinnar er því óæskileg í sumar, en hún ætti að verða tilbúin í byrjun næsta sum- ars,“ segir þar enn fremur. Íbúar bíða enn Trausti Harðarson, íbúi í Grafar- vogi, segir hugmyndina hafa verið að byggja fallegan mini-golfvöll uppi í Spöng með gervigrasi, rétt hjá félagsaðstöðu eldri borgara, en hugmyndin kom inn í íbúakosningu í fyrrasumar. „Reykjavíkurborg smellti þessari undarlegu útfærslu á stað sem er langt frá því að vera í al- mennu göngufæri og völlurinn er ekki enn klár,“ segir Trausti. Morgunblaðið/Árni Sæberg Sláttur Hér má sjá hinn óslegna púttvöll en fyrir aftan sést glitta í skíðabrekkuna. Völlurinn verður klár næsta sumar. Skíðabrekkan slegin en pútt- völlurinn bíður til næsta árs - Vellir sem þessi ekki á hverju strái - Fögur er þó hlíðin Samkomulag er í höfn milli Íslands og Bretlands sem gerir ungu fólki frá Íslandi, á aldrinum 18 til 30 ára, mögulegt að búa og starfa í Bret- landi í allt að tvö ár. Frá þessu er greint í frétt á vefsíðu utanríkisráðu- neytisins. Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráð- herra, og Michael Nevin, sendiherra Bretlands á Íslandi, undirrituðu samkomulagið í gær en það gerir ungum Bretum að sama skapi mögu- legt að búa og starfa á Íslandi. Í byrjun júlí undirritaði ráðherra nýjan fríverslunarsamning við Bret- land og gert hefur verið samkomulag um samstarf á sviði menntunar, rannsókna og nýsköpunar og geim- vísinda. „Við höfum frá upphafi lagt áherslu á að tryggja tækifæri ungs fólks til þess að búa, starfa og mennta sig í Bretlandi, sem sést meðal annars í þeirri staðreynd að Ísland er fyrsta ríkið á öllu Evrópska efnahagssvæðinu til að gera samn- ing við Bretland um vinnudvöl ungs fólks frá því landið gekk úr Evrópu- sambandinu. Ég er sannfærður um að sterk tengsl ríkjanna muni styrkj- ast enn frekar með þessum samn- ingi,“ er haft eftir Guðlaugi Þór. Geti búið, numið og starfað í Bretlandi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.