Morgunblaðið - 28.07.2021, Side 17

Morgunblaðið - 28.07.2021, Side 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. JÚLÍ 2021 ✝ Hlöðver smári Haraldsson fæddist í Reykjavík 7. október 1950. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Margretecentret í Maribo 2. júlí 2021 Foreldrar hans voru hjónin Har- aldur Guðmunds- son, prentari og tónlistarmaður, og Lilja Gréta Þórarinsdóttir hús- móðir. Systkini Hlöðvers Smára eru Guðmundur, f. 1941, d. 2017, Þuríður Margrét, f. 1943, og Matthildur Rós, f. 1954. Fyrri kona Hlöðvers Smára var Unnur Karlsdóttir, f. 15.9. 1953, þau skildu. Hann kvæntist 1.7. 1990 eftirlifandi konu sinni, Ólöfu Björgu Guðmundsdóttur tónlistarkennara, f. 8.3. 1956. Foreldrar hennar eru Guð- mundur Stefán Hafliðason, f. Finnur Óliver, f. 13.2. 2020. Hlöðver Smári ólst upp í Reykjavík til 5 ára aldurs. Þegar hann var 5 ára gamall flutti fjöl- skyldan til Neskaupstaðar þar sem hann eyddi sínum bernsku- árum. Hlöðver Smári lærði prentiðn í prentsmiðjunni Ísafold í Reykjavík. Hann vann í Ísafoldarprentsmiðjunni, prent- smiðjunni Nesprenti hjá Guð- mundi bróður sínum og prent- smiðjunni Odda. Einnig lærði hann við Tónlistarskólann í Reykjavík og vann sem tónlist- armaður og kennari, þar á meðal í Tónskóla Neskaupstaðar og Lækjarskóla, þar til hann veikt- ist 2016. Smári kom víða við í tónlist- inni og spilaði með okkar helsta og besta tónlistarfólki í gegnum ævina. Var hann aðeins 7 ára gamall þegar fyrsta hljómsveitin var sett á laggirnar og hét sú Kátir piltar og komu þeir félagar allir frá Norðfirði. Þar á eftir urðu þær nokkrar, þ.á m. hljóm- sveitin Galdrakarlar, Pelican, Amon Ra & Bumburnar og fleiri. Hlöðver Smári var jarðsung- inn frá Dómkirkjunni í Maribo 10. júlí 2021. 24.8. 1933, d. 18.8. 2008, og Erla Bára Andrésdóttir, f. 21.6. 1940. Hlöðver Smári og Ólöf bjuggu síðast í Maribo í Danmörku. Barn Hlöðvers Smára af fyrra hjónabandi er; 1) Hrafnkell Freyr f. 31.8. 1975, maki Malene Lund f. 31.1. 1982. Barn þeirra Óskar Steinarr f. 19.6. 2019. Börn Smára og Ólafar; 2) Hafliði Marteinn, f. 16.6. 1991. 3) Hjalti Dagur, f. 3.12. 1993. Börn Ólafar af fyrra hjónabandi; 1) Lóa Dís Finns- dóttir, f. 11.12. 1973, maki Torfi Agnarsson, f. 14.10. 1968. Saman eiga þau börnin; Gunnar Pál, f. 2.1. 1988. Axel Örn, f. 25.5. 1994, Önnu Cöru, f. 18.4. 2002, Isabellu Nótt, f. 10.3. 2006. 2) Hinrik Elv- ar, f. 31.1. 1976, maki Bernadette Corpin, f. 3.2. 1977, barn þeirra Elsku Smári, tengdasonur og vinur. Mig langar að skrifa nokkur minningarorð um elsku Smára sem kvaddi okkur óskiljanlega fljótt. Hann kom inn í líf mitt sem tengdasonur. Við áttum okkar einkasamtal sem við höfðum mjög gaman af. Við töluðum um himingeiminn, sólina og tunglið. Hann var svo fróður um þessa hluti og virkilega skemmtilegt samtal sem við áttum saman. Ég sakna þess að geta ekki rætt þetta oftar. Oft þegar ég kom í heimsókn spilaði hann á píanóið fyrir mig og ég söng undir. Uppáhaldslag- ið er „Yoúll never know“ með Engelbert Humperdinck, en sama hvaða lag ég nefndi þá spil- aði hann það fyrir mig. Hann var sannkallaður lista- maður, snillingur mikill og sann- gjarn. Hugsanir manns ekki mennirnir sjá. Og margt býr í hjarta sem skín ekki á brá. Þó hrynji um varirnar hljómandi hlátur Í hjartanu leynist samt saknaðargrátur. (Aráb) Með þessum örfáu minningar- orðum fel ég þér Guði í faðm og mynd þína mun ég geyma í hjarta mér. Vil ég nú þakka þér fyrir allt og allt, elsku Smári minn. Hvíldu í friði. Erla Bára (Tengdó). Hlöðver Smári Haraldsson, Smári frændi, lést 2. júlí 2021 á hjúkrunarheimili í Maribo í Dan- mörku. Á kveðjustund langar mig til að minnast hans með nokkrum orðum og rifja upp minningar frá liðnum áratugum. Við Smári vorum bræðrasynir frá Vilborgarstöðum í Vestmannaeyjum. Hann var tveimur árum yngri, grannur, dökkhærður og suðrænn í útliti, ljúfmenni og ávarpsgóður. Tón- listin er ættarfylgja hjá mörgum í ættinni og Smári hafði fengið ómældan skammt í vöggugjöf. Foreldrar Smára bjuggu fáein ár um 1950 í Vestmannaeyjum, svo í Reykjavík, en frá 1955 og til æviloka í Neskaupstað. Með vissu man ég eftir því, þegar ég fór með foreldrum mínum að heimsækja hann inn í Karfavog sumarið 1954. Og Smári var þá þegar búinn að læra að blása í trompet föður síns og reyndi að kenna mér án árangurs! Góð kynni tókust svo með okk- ur Smára vorið og sumarið 1959, fyrst í Reykjavík og svo austur á Norðfirði. Það var grunnurinn að ævilöngum vinskap okkar. Full- orðnir vorum við með líka rödd og ekki allra að greina í sundur í síma. Smári var landsfrægur tónlist- armaður. Til dæmis hafði hann fullkomið tóneyra og gat spilað á öll hljóðfæri. Líklega spilaði hann mest á hljómborð og gerði það þegar hann var í danshljóm- sveitinni Galdrakörlum. Einu sinni hitti ég samnem- anda Smára, þegar hann var við nám í Tónlistarskólanum í Reykjavík, og sá sagði mér að Smári þyrfti ekki nema einu sinni að hlusta á lag til þess að geta skrifað niður útsetningu þess. Venjulega er þetta hæfileiki sem tónlistarmenn ná tökum á eftir margra ára þjálfun – sem Smári gerði ungur að árum. Smári lærði til prentara eins og Haraldur faðir hans. Þeir voru báðir þekktir sem handfljótir og öruggir setjarar í blýi, á meðan sú tækni var notuð. En þegar umbrotsforritin komu með tölv- unum var Smári fljótur að verða mjög góður umbrotsmaður. Hann var jafnvígur á forritin Quark og InDesign. Og Prent- tæknistofnun fékk hann til þess að leiðbeina lengra komnum á námskeiði um InDesign. Einnig kom Smári við sögu þegar skrif- að var orðskiptiforrit fyrir ís- lensku til þess að nota með InDe- sign. Forrit til þess að prenta nótur voru sjaldgæf. Smári aðstoðaði þýskt fyrirtæki við að betrum- bæta forritið þeirra og fékk við- urkenningu fyrir. Smári vann í nokkur ár í Prentsmiðjunni Gutenberg í Reykjavík. Það vissu allir vinnu- félagar hans að Smári kunni á allar vélar í húsinu og skipti þá ekki máli hvort þær voru nýjar eða 100 ára gamlar! Ég þurfti nokkrum sinnum að leita til Smára þegar hann var að vinna í umbrotsdeildinni í Odda og ég í Byggðasögu Skagafjarð- ar. Hann var ekki í neinum vand- ræðum með að leiðbeina mér um bestu lausnina í word eða pdf. Við Smári komum saman að einu verkefni. Jarðhitabókin (2005) eftir Guðmund Pálmason jarðeðlisfræðing var brotin um í Odda. Og ég hafði lagt Guðmundi lið. Við hjónin sendum samúðar- kveðjur til Ólafar og Hrafnkels Freys, Hafliða Marteins og Hjalta Dags og annarra ástvina. Guð blessi minningu Smára frænda. Þorgils Jónasson. Hlöðver Smári Haraldsson, sem var bróðir Dedda tengda- pabba, er látinn langt um aldur fram. Smári var mjög snjall tónlist- armaður og átti ekki langt að sækja það en Haraldur faðir hans hafði líka ríka tónlistargáfu. Þegar ég var krakki og hljóm- sveitir léku í sjónvarpssal var Smári oft í þeim. Í æskunni eystra var ekki algengt að maður sæi norðfirsk andlit í sjónvarpinu og fannst manni mikið til koma að ungur maður frá firðinum okkar fagra væri í sjónvarpinu. Fyrir nokkrum árum hélt Norðfirðingafélagið Menningar- kvöld til heiðurs Haraldi, en þar léku bæði, Deddi, Hlöðver Smári, ásamt Guðmundi Haraldssyni, sonarsyni Dedda, og Önnu Lilju sem er bróðurdóttir þeirra bræðra, dóttir Matthildar Rósar. Að auki lék Sigurður Þorbergs- son, norðfirskur básúnuleikari Sinfóníuhljómsveitarinnar, en gítarleikari var Bjarni Freyr Ágústsson. Menningarkvöldið var vel sótt og var Fella- og Hólakirkja nánast full. Þetta sýnir hve víða fjölskyldan hefur tengst og lagt gott til. Ég hygg að þetta kvöld hafi verið það síð- asta sem þeir bræður, Deddi og Smári, léku tónlist saman. Hlöðver Smári annaðist einnig uppsetningu á dagatölum Norð- firðingafélagins og fórst það vel úr hendi. Á einu Sólarkaffi fé- lagsins var ákveðið að heiðra Svavar Lárusson sem trúlega var fyrsti norðfirski dægurlaga- söngvarinn. Birgir D. Sveinsson var hér í forystu en Smári var fenginn til að nótnasetja nokkur laga Svavars. Hljómsveit, þar sem voru Smári og Bjarni Ágústsson, ásamt skyldmennum Svavars, flutti svo lögin á Sólar- kaffinu við mikla hrifningu gesta. Þegar við Bergrós Guðmunds- dóttir konan mín ákváðum að festa okkar ráð þann 25. ágúst 2007, hafði ég samið lítinn texta „Til brúðarinnar“ við norska lag- ið „Har en Drøm“ eftir Tryggve Hoff, sem var þekkt lag þar í landi þegar ég var þar við nám á níunda áratugnum. Lagið var flutt af Jørn Hoel en hann er þekktur söngvari í Noregi og er frá Tromsø sem var minn há- skólabær. Til að gera langa sögu stutta þá hringi ég í Hlöðver Smára og spyr hvort hann geti ekki leikið undir við þetta lag. Hann tekur því vel og glaðlega og segir mér bara að senda sér á rafrænan hátt lagið, sem ég geri. Í minningunni hringir hann til baka 1-2 klukkustundum seinna og segir „Ég er búinn að skrifa lagið,“ og ég spyr hvað það þýði. Hann svarar að það þýði að hann sé búinn að nótnasetja lagið. Hann lék svo undir í brúðkaup- inu, bæði í kirkjunni og í veisl- unni, og Guðmundur bróðir söng. Þetta eru augljóslega dýrmæt augnablik í lífi okkar Bergrósar. Í samtölum við Smára duldist ekki að þar fór mikill húmoristi, sem var ákaflega stoltur af sínum börnum, þeim Hjalta Degi og Hafliða Marteini, og einnig af Kela sem hann átti áður. Bæði stjúpbörnin, Lóa Dís og Hinrik Elvar, áttu einnig ríkan stað í hans hjarta. Enda fór það ekkert á milli mála að Smára fannst gæfa sín í stóru og smáu í tilver- unni vera að hafa kynnst Ólöfu konunni sinni. Ég votta fjölskyldunni og öll- um skyldmennum innilega sam- úð. Guð blessi minningu Hlöð- vers Smára Haraldssonar. Gísli Gíslason. Smára kynntist ég í Neskaup- stað 1988 þegar Ólöf systir og hann fóru að rugla saman reyt- um. Hár og dökkur, eflaust af frönskum ættum, afskaplega ró- legur í fasi og mikill hugsuður. Ég man að hann átti hillumetra af Britannica sem er alfræðisafn. „Ef þú lest lest þetta“, sagði hann, „þá færðu svar við öllum þínum spurningum“. Á þessum tíma voru heimilistölvur og int- ernetið nýnæmi en Smári átti At- ari-tölvu sem hann notaði við tónlistina sína. Þarna datt ég heldur betur í lukkupottinn og fékk að sitja tímunum saman við tölvuna en ég átti bara lítið tæki (sequencer) og það tók óratíma að skapa eitthvað. Ekki leið á löngu þar til ég keypti nákvæm- lega eins tölvu. Smári var tryggur vinur og hafði óútskýrðan, einstakan hæfileika til að geta með nær- veru sinni einni umvafið mann visku, hlýju og gleði. Hann hafði mjög sérstakan og djúpan húm- or. Tók mig stundum dágóða stund að fatta hvort eitthvað var brandari eða staðreynd. En hvort sem var þá var hann alltaf með svarið, boðinn og búinn, enda búinn að lesa Britannica ef- laust tvisvar! Ég fékk þann heiður að spila með honum í Ættarbandinu svo- kallaða, sem bróðir minn Andrés setti saman. Þetta band skaut svo upp kollinum þegar þess þurfti með, eins og á litlum útihá- tíðum, á ættarmótum og í afmæl- um. Æfingin á undan var oftast bara ein og eftir að hann var bú- inn að handskrifa inn alla hljóma og sóló sagði hann: „Svo æfir þú þetta heima og teljum svo í á sviðinu“. Nú kveð ég elsku vin minn og hugur minn er allur hjá Ólöfu systur sem býr svo allt of langt frá mér. Ég varðveiti mínar minningar sem ég átti með Smára og kveð með þessum lín- um: Í huga mínum oft þú ert, hjarta mitt oft kvelst af þrá. En hugsun um þú hjá mér sért, vinnur þessi sigur á. Lífsins gangur skrítinn er, lítið vinnst að fást um það. Það lifna og deyja blóm í senn, önnur urfa að komast að. (GiRaBoy) Gísli Þór Ragnarsson. Kær vinur minn og kollegi, Hlöðver Smári, er látinn í Dan- mörku. Ég kynntist Hlöðveri Smára fyrst þegar hann lék í Galdra- körlum og hafði handleggsbrotn- að í einhverju óhappi. Ég var fenginn til að leysa hann af á nokkrum tónleikum og böllum og ég lék þar á hans hljóðfæri. Aldr- ei bar skugga á okkar góðu vin- áttu upp frá því. Hlöðver Smári var varfærinn og næmur tónlistarmaður sem aldrei tranaði sér fram né barst hann mikið á. Hann var flinkur músikant og vandaður og þau fjölmörgu börn í Lækjarskóla, sem nutu handleiðslu hans og hans góðu konu Ólafar Bjargar, munu búa að því alla ævi. Ég vil votta Ólöfu Björgu og aðstandendum og vinum Hlöð- vers Smára mína innilegustu samúð. Minningin um ljúfan og góðan dreng mun lifa. Hjörtur Howser. Hlöðver Smári Haraldsson ✝ Edda Ásta Sig- urðardóttir húsmóðir fæddist á Akureyri 9. febrúar 1932. Hún andaðist á Landspítalanum í Reykjavík 16. júlí 2021. Foreldrar henn- ar voru þau Guð- mundur Marinó Ólafsson landpóstur frá Akureyri, f. 15.7. 1878, d. 11.4. 1964, og Ásta Jónína Daníelsdóttir húsfreyja frá Ólafsfirði, f. 14.5. 1900, d. 25.4. 1934. Edda var yngst í röð fjögurra alsystkina, en þau voru: Gunnlaugur, Guðrún og Sig- urður. Hún átti sex hálfsystkini (samfeðra), þau Sigurð, Svan- laug, Svanlaugu, Skarphéðin, Líneyju og Steingrím. Edda var gefin þegar hún var sex ára til Sigurðar Gíslasonar skipstjóra frá Króki í Grafningi, f. 14.5. 1890, d. 10.7. 1978. Edda giftist hinn 16.5. 1953 Grétari L. Strange, f. 23.8. 1931 á Seltjarnarnesi, d. 10.1. 2018. Þau hjónin eignuðust fjögur börn. Þau eru: 1) Sigurður rafmagns- tæknifræðingur, f. 17.4. 1955, kvæntur Hörpu Kristjánsdóttur, fyrri eiginkona Sigurðar var Sig- rún Garðarsdóttir. 2) Guðrún verslunarmaður, f. 24.1. 1958, eiginmaður hennar er Hilmar Snorrason. Börn þeirra eru Edda Margrét, gift Árna Örvari Daníelssyni, og Haukur. 3) Hannes sölustjóri, f. 20.12. 1964, kvænt- ur Bryndísi Björns- dóttur. Börn þeirra eru Birgir Örn, kvæntur Arndísi Maríu Einarsdóttur, Sandra Björg, í sambúð með Arnari Þorra Sig- þórssyni, og Andri Már, kærasta hans er Ísold Eygló Snæbjörns- dóttir. 4) Grétar flugmaður, f. 13.8. 1971, kvæntur Guðbjörgu Fanndal Torfadóttur. Börn þeirra eru Viktor Torfi og Rakel Ásta. Grétar á einnig dótturina Anítu Ýri sem er í sambúð með Sölva Mar Valdimarssyni. Edda átti sex barnabarnabörn. Eftir hefðbundna skólagöngu fór Edda í Verslunarskólann og Húsmæðraskólann. Hún vann al- menn verslunarstörf hjá ýmsum aðilum og starfaði einnig í nokk- ur ár fyrir Rauða krossinn. Edda var mikil hannyrðakona og var dugleg að afla sér þekkingar á því sviði. Hún tók þátt i skáta- hreyfingunni í tengslum við Grétar eiginmann sinn. Útförin fer fram frá Selja- kirkju í dag, 28. júlí 2021, klukk- an 13. Þá hefur mamma kvatt þessa jarðvist eftir nokkurra vikna sjúkrahúsvist. Heilsu mömmu hrakaði töluvert síðastliðið ár og allar þessar ráðstafanir varðandi Covid voru ekki að gera henni lífið auðveldara. Mamma var áttatíu og níu ára gömul þegar hún lést og hafði verið heilsuhraust allt sitt líf og átt gott líf. Eftir að pabbi lést fyrir þremur árum breyttist líf mömmu töluvert, pabbi hafði fengið MND-sjúkdóminn og síð- asta ár pabba var mamma upp- tekin við að sinna honum og stóð sig frábærlega vel í því. En þegar pabbi lést þá missti mamma sinn lífsförunaut til margra ára og við það breytast hlutir. Mamma var afskaplega þolin- móð kona, staðföst, ljúf og þraut- seig, hún var ekki mikið fyrir að gefast upp. Mér er það minnis- stætt þegar ég var lítill snáði að koma heim allur blautur vegna þess að ég hafði verið að vaða í fjörunni heima eða úti á fleka (sem ég mátti ekki) að hún tók alltaf vel á móti mér og kom mér í þurr föt, án þess að skamma mig mjög mik- ið. Þetta gat gerst nokkrum sinn- um í viku, ég fékk bara þurr föt og aftur niður í fjöru. Pabbi og mamma voru ólík þegar kom að þolinmæði, pabbi var ekki þol- inmóðasti maður í heimi enda gerðum við systkinin og mamma oft grín að því, honum fannst óþol- andi að bíða, hvort sem um var ræða að bíða í röð í verslun eða eitthvað annað, en mamma aftur á móti hafði þolinmæðina. Mamma var alveg ótrúlega handlagin kona, hún prjónaði mikið, saumaði út, saumaði föt, vann glerlist, ker- amik og fleira. Það leituðu margir ráða hjá henni varðandi útfærslu á hinu og þessu handverkinu og allt lék í höndunum á mömmu. Á sínum yngri árum voru pabbi og mamma töluvert á gönguskíð- um og í tengslum við skíðaskála sem pabbi og vinir hans höfðu byggt á Hellisheiði. En eftir að við börnin komum til sögunnar breyttist áherslan hjá mömmu, það voru ófáar ferðirnar sem voru farnar í Jósepsdal, Hveradali, Hamragil eða Skálafell og mamma kom alltaf með en var uppteknari við að sinna okkur systkinunum og síðar barna- börnum en að fara á skíði. Við fjöl- skyldan fórum líka í margar úti- legur og nestisferðir með mömmu og pabba þar sem mamma var alltaf með sína umhyggju og hlýju og góða nesti. Ferðir á Þingvöll á sunnudögum með teppi og nesti eru góðar endurminningar. Á yngri árum mömmu lærði hún að synda og var mjög dugleg í sundi, en afi Sigurður var sjómað- ur, skipstjóri hjá Eimskip og lagði mikla áherslu á að allir lærðu að synda. Mamma ferðaðist líka mik- ið með afa, hún fór með honum til margra landa sem unglingur og ung kona. Mamma æfði dans á unglings- árunum en seinna dönsuðu pabbi og mamma mikið saman og höfðu gaman af. Mamma og pabbi fylgd- ust vel með okkur systkinum og öðrum afkomendum sínum og þau sinntu okkur öllum mjög vel. Þessar minningar um samveru- stundir með mömmu eru bæði ánægjulegar og notalegar núna. Að lokum elsku mamma, takk fyrir allt, bæði allt sem þú gerðir fyrir mig og okkur og allar góðar minningar sem ég geymi og ég vona að þú verðir áfram með okk- ur einhvers staðar. Sigurður Strange. Þá er komið að leiðarlokum hjá okkur, mamma. 89 ár er bara nokkuð góður tími og að hafa ver- ið heilsuhraust og hress nánast allan tímann. Myndi nú segja að þetta Covid-tímabil sem var og er að hrekkja okkur hafi ekki verið þér gott. Miklar hömlur sem urðu til þess að við gátum m.a. lítið farið á veitinga- og kaffihús sem þér þótti svo gaman. Þú varst einstak- lega þolinmóð og í tengslum við það verð ég að minnast á það þeg- ar pabba var skipt út og þú komst í staðinn í vakningarteymið. Alveg með ólíkindum hversu oft þú nenntir að koma og ýta við manni til að vakna. Margir hefðu nú bara verið búnir að draga mann út. Þú fórst frekar seint út að vinna á mælikvarða nútímans en það verður að segjast eins og er að þegar við vorum að alast upp þá kom maður alltaf heim eftir skóla eða íþróttir og þú heima til að taka á móti manni og auðvitað alltaf eitthvað til fyrir mann að borða - alltaf einhver heima - alveg ein- stakt. Þegar kom að matseld fékkst þú 12 af 10 mögulegum í einkunn og þá verð ég að minnast á hina frægu súkkulaðiköku sem oft var til og var algjör snilld með kaldri mjólk. Þegar við fórum að tínast Edda Ásta Sigurðar- dóttir Strange SJÁ SÍÐU 18

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.