Morgunblaðið - 28.07.2021, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 28.07.2021, Qupperneq 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. JÚLÍ 2021 að heiman reyndum við öll að baka þessa köku og auðvitað var ekkert mál að fá uppskriftina hjá þér. Hmm … smávegis hveiti, svolítið af sykri, dálítið kakó o.s.frv., eng- ar mælingar – jú jú, við höfum öll bakað hana en nei hún varð og verður aldrei eins og hjá þér. Þó að við séum ekki beint af skutlkynslóðinni þá var nú samt alltaf verið að skutla manni eitt- hvað – í veg fyrir skíðarútuna var nokkuð algengt og eitt skipti var verið að fara niður á BSÍ og við vorum þá á skærgrænum VW Passat sem pabbi hafði keypt en hann var svona ameríkutýpa og eingöngu með mílumæli og ég minnist þess mamma að ég sagði við þig hvort þú værir ekki að fara svolítið hratt – nei nei, sagðir þú, við erum rétt komin í 60 … Já ein- mitt 60 mílur. Þolinmæði þín kom líka sterkt í ljós þegar barnabörnin fóru að koma og ég tala nú ekki um þegar þú hættir að vinna, þá komstu endalaust að hjálpa þegar voru veikindi hjá þeim svo við gætum mætt í vinnu og slíkt. Nú ferðu að hitta pabba og ég veit að það verður gaman. Takk fyrir allt mamma. Þinn sonur, Hannes. Þá hefur hún mamma verið kölluð í önnur verkefni. Hún var 89 ára þegar hún kvaddi og af þeim árum var ég svo heppinn að hafa hana í mínu lífi í nær 50 ár. Þegar ég hugsa um hana mömmu þá er margt sem kemur upp í hug- ann, margt sem ég hafði ekki leitt hugann að fyrr en nú. Eins og ég talaði um í minningargrein um hann pabba, þá var alltaf best að leita til hennar þegar maður þurfti að setja hugmyndir mínar, daprar einkunnir og annað sem mér fannst stórsniðugt í grenndar- kynningu hjá henni og hún hafði einstakt lag á að fá hann pabba á sitt band og þar með á mitt band. Það má segja að hún hafi auðveld- að manni lífið. Það var þó eitt sem erfitt var að ræða við hana. Það var mótorhjólaáhugi minn sem var henni ekki að skapi. Nú, þá fór ég til pabba og hann græjaði mömmu í mitt lið og ég keypti mótorhjól. Held samt að hún hafi aldrei verið glöð með þetta, en lifði með þessu fyrir mig. Það segir meira en mörg orð um hana mömmu. Það sem stendur einna helst upp úr þessum tæpu 50 ár- um er þakklæti fyrir að hafa átt þig sem mömmu, alltaf hægt að tala við þig, alltaf til staðar, þol- inmóð og hjartahlý. Mamma og pabbi voru smíðuð hvort fyrir annað. Þau voru eins og gott landslið. Það hafa því verið forréttindi að hafa þau sem þjálf- ara. Takk elsku mamma fyrir allt. Ég vona að þú hittir hann pabba, því þið voruð æði. Kveðja, Grétar. Elsku tengdamamma, þá er komið að kveðjustund hjá okkur. Við höfum verið tengdar fjölskylduböndum síðan 1985. Margt er búið að gerast skemmti- legt á þessum tíma. Ég fann það mjög fljótt að þú varst hjartahlý og ótrúlega þolinmóð. Ég minnist þess þegar Birgir Örn var lítill þá sótti hann í það að koma í Hörgslundinn og oftar en ekki varstu úti í garði þegar við komum, að halda honum við enda mikið verk að halda svona stórum og fallegum garði við, en alltaf gafstu þér tíma fyrir hann og gast setið í tröppunum úti í bílskúr og leyft honum að dunda sér í dótinu þar tímunum saman. Oft þegar við vorum að fara á skíði með Söndru Björg litla þá komstu með og passaðir hana í fjallinu. Páska- messan var líka oft tekin í fjallinu með séra Pálma Matt. Það má heldur ekki gleyma því þegar Andri Már var lítill þá átti hann það til að rjúka upp í hita og þá varstu alltaf boðin og búin að stökkva til og vera hjá honum til að bjarga málunum – alveg ómet- anlegt. Endalaus þolinmæði og hjartahlýja. Ekki má gleyma hversu fær þú varst í höndunum þegar kom að prjónaskap. Heilu dressin litu dagsins ljós fyrir barnabörnin. Ég man þegar við fórum saman í frábæra norður- ferð árið 2016 þar sem þér leið vel á þínum æskuslóðum. Akureyri tók vel á móti þér með sól og blíðu allan tímann. Takk fyrir allt, elsku tengda- mamma. Nú hefur sú ósk þín ræst að hitta Grétar þinn aftur. Hvíl friði. Þín Bryndís. Edda Ásta Sigurðardóttir Strange Tilkynningar Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt lýsing að breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016/2028 Svæði úr landi Grafar - Varmadals. Breyting á landnotkun í aðalskipulagi Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 22.7.2021 að gerðar verði breytingar á landnotkun og heimiluð efnistaka í gryfjum við Hróarslæk. Reiknað er með að efnistaka verði allt að 50.000 m³ af sandi. Núverandi landnotkun er landbúnaðarsvæði en verður breytt í efnistökusvæði E123 í greinargerð aðalskipulagsins. Lýsingin liggur frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 1-3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við lýsingu og er frestur til að skila inn athugasemdum til og með 1. september nk. Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum Fosshólar 3 og 4, Rangárþingi ytra, deiliskipulag Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 22.7.2021 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir tvær lóðir úr landi Fosshóla. Deiliskipulagið gerir ráð fyrir að á hvorum stað megi byggja íbúðarhús, gestahús og reiðhöll / skemmu. Aðkoma að svæðinu er frá Landvegi (26) um Sumarliðabæjarveg (281). Eirð við Gíslholtsvatn, Rangárþingi ytra, deiliskipulag Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 22.7.2021 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Eirð úr landi Haga við Gíslholtsvatn. Deiliskipulagið gerir ráð fyrir starfsemi leiðtoga- og kyrrðarseturs. Áform eru uppi um byggingar á gistiskálum og kennslustofum. Aðkoma að svæðinu er frá Hagavegi (286). Tillögurnar liggja frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is Frestur til að skila inn athugasemdum er til 8. september 2021 Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is Haraldur Birgir Haraldsson Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra RANGÁRÞING YTRA Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-14. Opin vinnustofa kl. 9-12. Bónusbíllinn fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.55. Dansleikfimi kl. 13.30. Pútt með púttklúbbnum kl. 14. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.30-15.30. Heitt á könnunni, allir velkomnir. S. 411 2600. Boðaþing Bíósýning fimmtudaginn 5. ágúst kl. 13.15, sýndur verður þáttur úr Stiklum Ómars Ragnarssonar. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.10-11. Opin Listasmiðja kl. 9-12. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Opin Lista- smiðja kl. 13-15.30. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Gerðuberg Opin handavinnustofa. Vegna aðstæðna í samfélaginu fellur félagsvistin niður í dag, sem og næstu tvo miðvikudaga. Gjábakki Botsía verður alla miðvikudaga í sumar í Gjábakka kl. 10. Bíósýning miðvikudaginn 4. ágúst kl. 13.15, sýndur verður þáttur úr Stiklum Ómars Ragnarssonar. Gullsmári Bíósýning þriðjudaginn 3. ágúst kl. 13.15, sýndur verður þáttur úr Stiklum Ómars Ragnarssonar. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Dans- og stólaleikfimi með Auði Hörpu kl. 10. Framhaldssaga kl. 10.30. Opin vinnustofa kl. 13-16. Korpúlfar Gönguhópur kl. 10, gengið frá Borgum. Félagsvist kl. 13 í Borgum. Skákhópur Korpúlfa verður í Borgum frá kl. 12-16. Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag byrjum við daginn á tæknilæsi kl. 8 sem stendur yfir til kl. 16. Kl. 9 er svo postulínsmálun í handverks- stofunni okkar. Við ætlum svo að spila pílu kl. 10.30 og kl. 13 verður spennandi sýndarveruleikaflug yfir eldstöðvarnar í Geldingadal. Hlökkum til að sjá ykkur á Vitatorgi! Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum frá kl. 9, handavinna og samvera í salnum, Skólabraut kl. 13. Minnum á persónubundnar sóttvarnir, spritt er við alla innganga og á víð og dreif um Skólabraut. Við hvetj- um fólk til að nýta sér það, þvo sér um hendur reglulega með sápu og virða 1m regluna. Rað- og smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bílar Nú þegar engir sendibílar eru fáanlegir í heiminum eigum við þennan til á lager ! Ford Transit Custom Trail L2H1 Með hliðarhurðum báðu megin. LED ljós. Álfelgur. Leðursæti. Stigbretti. o.fl., o.fl. Verð 5.250.000 án vsk. www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 12–18 virka daga. Nú "&&$# þú það sem þú !ei%a# að ' FINNA.is Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, RAGNHEIÐAR ZÓPHÓNÍASDÓTTUR, Austurvegi 39, Selfossi. Ingibjörg Stefánsdóttir Guðjón Haukur Stefánsson Margrét Stefánsdóttir Gylfi Guðmundsson Jóhann Ingvi Stefánsson Elín Kristbjörg Guðbrandsd. Soffía Stefánsdóttir Reynir Guðjónsson barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GUÐBRANDS KRISTMUNDSSONAR, fyrrverandi bónda á Bjargi í Hrunamannahreppi, Austurvegi 41b, Selfossi. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum fyrir einstaka alúð og umhyggju. Sigrún Guðmundsdóttir Kristmundur Guðbrandsson Guðmundur Guðbrandsson Helga Björk Birgisdóttir Elín Kristbjörg Guðbrandsd. Jóhann Ingvi Stefánsson barnabörn og langafabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.