Morgunblaðið - 28.07.2021, Side 22
22 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. JÚLÍ 2021
FÓTBOLTINN
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Þróttur úr Reykjavík átti ekki í nein-
um vandræðum með Keflavík þegar
liðin mættust í úrvalsdeild kvenna í
knattspyrnu, Pepsi Max-deildinni, í
Laugardalnum í gærkvöldi.
Þróttur hafði að lokum 3:0 sigur
þar sem góð byrjun heimakvenna í
báðum hálfleikjum lagði grunninn, en
fyrsta markið kom eftir rúma mínútu
í fyrri hálfleik og annað markið eftir
tæpar tvær mínútur í síðari hálfleik.
Eftir að hafa mátt þola vont 1:6 tap
gegn toppliði Vals í síðustu umferð
deildarinnar spiluðu Þróttarar af-
skaplega agaðan leik í gærkvöldi.
Gilti þá einu hvar fæti var drepið nið-
ur, því varnarleikurinn var til mikillar
fyrirmyndar og sóknarleikurinn afar
vel útfærður. Það eina sem mætti
setja út á varðandi sóknarleikinn er
að Þróttur hafi ekki nýtt sér fjölda
álitlegra staða betur, þótt erfiðlega sé
hægt að kvarta yfir því að uppskeran
hafi verið þrjú góð mörk.
Keflvíkingar virtust á hinn bóginn
ráðþrota í flestum sínum aðgerðum,
þá sérstaklega hvað sóknarleikinn
varðar, því gestunum tókst lítið sem
ekkert að skapa sér í leiknum. Ein-
beitingarleysi í byrjun beggja hálf-
leikja reyndist liðinu svo dýrkeypt og
má lið sem er í harðri botnbaráttu svo
sannarlega ekki við því.
Skammt stórra högga á milli
Þróttur fór með sigrinum upp í
þriðja sæti deildarinnar, þar sem liðið
er með jafnmörg stig og Selfoss, 18,
en betri markatölu þegar bæði lið
hafa spilað 12 leiki. Þar sem skammt
er stórra högga á milli í miðjupakka
deildarinnar var sigurinn ekki síður
mikilvægur fyrir Þrótt upp á að sog-
ast ekki óvænt niður í botnbaráttu
hennar.
Með sigri í leik gærkvöldsins hefði
Keflavík nefnilega komist þremur
stigum á eftir Þrótti. Það var þó ekki í
kortunum í leiknum og Keflavík er
áfram í níunda og næstneðsta sæti
deildarinnar með 9 stig eftir 12 leiki,
níu stigum á eftir Þrótti og tveimur
stigum frá öruggu sæti.
Auðvelt hjá Þrótti
gegn Keflavík
- Þróttur upp í þriðja sætið í deildinni
- Keflavík situr sem fastast í fallsæti
Morgunblaðið/Unnur Karen
Leikin Katherine Cousins með boltann í leiknum í gærkvöldi. Marín Rún
Guðmundsdóttir og Álfhildur Rósa Kjartansdóttir fylgjast með.
Pepsi Max-deild kvenna
Þróttur R. – Keflavík ............................... 3:0
Staðan:
Valur 12 9 2 1 33:14 29
Breiðablik 12 9 0 3 44:18 27
Þróttur R. 12 5 3 4 26:23 18
Selfoss 12 5 3 4 17:15 18
Stjarnan 11 5 1 5 13:16 16
ÍBV 12 5 1 6 20:27 16
Þór/KA 12 3 4 5 12:18 13
Tindastóll 12 3 2 7 9:18 11
Keflavík 12 2 3 7 10:21 9
Fylkir 11 2 3 6 10:24 9
Lengjudeild kvenna
ÍA – KR ..................................................... 1:1
Staða efstu liða:
KR 12 9 2 1 33:15 29
FH 12 8 2 2 32:11 26
Afturelding 12 7 4 1 29:11 25
Víkingur R. 12 4 4 4 20:22 16
Haukar 12 4 3 5 17:19 15
Grótta 12 4 1 7 17:26 13
Lengjudeild karla
Þór – Fram................................................ 0:2
Staða efstu liða:
Fram 13 11 2 0 36:10 35
ÍBV 13 8 2 3 25:13 26
Kórdrengir 12 6 4 2 19:14 22
Fjölnir 13 6 2 5 17:15 20
Grindavík 13 5 5 3 25:26 20
Þór 14 5 4 5 29:24 19
Danmörk
B-deild:
Esbjerg – Vendsyssel .............................. 1:1
- Ísak Óli Ólafsson lék allan leikinn með
Esbjerg en Andri Rúnar Bjarnason var
ekki í leikmannahópnum.
Svíþjóð
B-deild:
Helsingborg – Falkenburg..................... 4:0
- Böðvar Böðvarsson lék allan leikinn með
Helsingborg.
Öster – Jönköping ................................... 1:0
- Alex Þór Hauksson lék allan leikinn með
Öster.
Meistaradeild karla
2. umferð, seinni leikir:
Flora Tallinn – Legia Varsjá................... 0:1
_ Legia Varsjá áfram, 3:1 samanlagt.
HJK Helsinki – Malmö ........................... 2:2
_ Malmö áfram, 4:3 samanlagt.
Omonia Nicosia – Dinamo Zagreb.......... 0:1
_ Dinamo Zagreb áfram, 3:0 samanlagt.
Zalgiris – Ferencvaros............................. 1:3
_ Ferencvaros áfram, 5:1 samanlagt.
Sambandsdeild karla
2. umferð, seinni leikir:
Inter d’Escaldes – Teuta Durres............ 0:3
_ Teuta Durres áfram, 3:2 samanlagt.
Buducnost Podgorica – HB Þórshöfn .... 0:2
_ HB áfram, 6:0 samanlagt.
Hibernians Paola – Folgore .....................4:2
_ Hibernians áfram, 7:3 samanlagt.
Ólympíuleikarnir
Riðlakeppni kvenna:
Kanada – Bretland ................................... 1:1
Síle – Japan............................................... 0:1
Brasilía – Zambía ..................................... 1:0
Holland – Kína.......................................... 8:2
Nýja Sjáland – Svíþjóð ............................ 0:2
Bandaríkin – Ástralía............................... 0:0
>;(//24)3;(
Ólympíuleikarnir
Riðlakeppni kvenna:
Angóla – Noregur................................. 21:30
- Þórir Hergeirsson þjálfar Noreg.
Japan – Svartfjallaland........................ 29:26
S-Kórea – Holland................................ 36:43
Brasilía – Ungverjaland....................... 33:27
Svíþjóð – Rússland .............................. 36:24
Frakkland – Spánn............................... 25:28
E(;R&:=/D
Ólympíuleikarnir
Riðlakeppni kvenna:
Japan – Frakkland ............................... 74:70
Nígería – Bandaríkin ........................... 72:81
Ástralía – Belgía ................................... 70:85
Púertó Ríkó – Kína............................... 55:97
>73G,&:=/D
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin:
SaltPay-völlur: Þór/KA – Breiðablik ..18:30
Samsung-völlur: Stjarnan – Selfoss ....19:15
1. deild karla, Lengjudeildin:
Jáverkvöllur: Selfoss – Þróttur R. ......19:15
Extra-völlur: Fjölnir – Grindavík........19:15
Olísvöllur: Vestri – Grótta .........................20
2. deild karla:
Fjarðabyggðarhöll: Leiknir F. – KF........18
Húsavík: Völsungur – Haukar ..................18
Akraneshöll: Kári – Reynir S...............19:15
KR-völlur: KV – Njarðvík ....................19:15
Grenivík: Magni – Fjarðabyggð ..........19:15
Vogaídýfuvöllur: Þróttur V. – ÍR.........19:15
Í KVÖLD!
ÞRÓTTUR R. – KEFLAVÍK 3:0
1:0 Ólöf Sigríður Kristinsdóttir 2.
2:0 Shea Moyer 47.
3:0 Guðrún Gyða Haralz 89.
MM
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir (Þrótti)
M
Álfhildur Rósa Kjartansdóttir (Þrótti)
Dani Rhodes (Þrótti)
Elísabet Freyja Þorvaldsd. (Þrótti)
Jelena Tinna Kujundzic (Þrótti)
Shea Moyer (Þrótti)
Cassie Rohan (Keflavík)
Tiffany Sornpao (Keflavík)
Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson – 9.
Áhorfendur: Um 100.
_ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl
og grein um leikinn – sjá mbl.is/sport/
fotbolti.
Stöllur Þóris Hergeirssonar þjálf-
ara í norska kvennalandsliðinu í
handknattleik hafa farið vel af stað
á Ólympíuleikunum í Tókýó en þær
unnu í gær sannfærandi 30:21-sigur
á Angóla í annarri umferð A-riðils.
Þær norsku unnu einnig stórt í
fyrstu umferðinni, 39:27 gegn Suð-
ur-Kóreu, og eru því með fullt hús
stiga.
Angóla hefur oft mætt með
sterkt lið til leiks á stórmót og var
leikurinn í gær nokkuð jafn á upp-
hafsmínútunum. Norska liðið náði
hins vegar að byggja upp ágæta
forystu fyrir hlé, var 15:10 yfir í
hálfleik, og eftir það með leikinn í
hendi sér. Sanna Solberg var
markahæst með sjö mörk en Veron-
ica Kristiansen var næst með sex.
Noregur mætir næst Svartfjalla-
landi á morgun en á einnig eftir að
keppa við Holland og gestgjafa Jap-
ans. Fjögur efstu liðin fara svo
áfram í fjórðungsúrslit en Noregur,
undir stjórn Þóris, vann brons-
verðlaun á leikunum í Ríó árið 2016
og gull í London 2012.
Noregur byrjar á stórsigrum
á Ólympíuleikunum í Tókýó
AFP
Tókýó Þórir Hergeirsson, þjálfari Noregs, á hliðarlínunni í leiknum í gær.
ÓL Í TÓKÝÓ
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Anton Sveinn McKee varð fyrir
miklum vonbrigðum þegar hann
hafnaði í 24. sæti í 200 metra bringu-
sundi á Ólympíuleikunum í Tókýó í
gærmorgun. Anton varð annar í sín-
um riðli í undanrásunum en mun
betri tímar náðust í nokkrum öðrum
riðlum. Sextán komust áfram í und-
anúrslitin eins og jafnan.
Anton hefur þá lokið keppni á
leikunum. Hann var einnig með
keppnisrétt í 100 metra bringusundi
en ákvað að leggja alla áherslu á 200
metra sundið. Anton synti á 2:11,64
mínútum en hafði gælt við þann
möguleika að synda á 2:08 eða jafn-
vel 2:07 ef allt gengi upp. „Það er
ömurlegt að æfa endalaust í gegnum
Covid og koma hingað og standa sig
ekki. En maður verður bara að bíta í
það súra,“ sagði Anton meðal annars
í samtali við RÚV í gær.
Vonbrigði Antons eru skiljanleg.
Hann synti á 2:11,39 mínútum á leik-
unum í Ríó fyrir fimm árum eða ör-
lítið betri tíma. Í millitíðinni hefur
hann öðlast frekari reynslu á stór-
mótum en einnig í fyrstu atvinnu-
mannadeildinni í sundi. Þegar Anton
náði örugglega lágmarki fyrir leik-
ana í Tókýó árið 2019, og fylgdi því
eftir með metaregni í atvinnu-
mannadeildinni í Ungverjalandi í
fyrra, virtist hann jafnvel líklegur til
að komast í úrslit í Tókýó. Sam-
keppnin er hins vegar hörð í íþrótt
sem stunduð er úti um allan heim.
Anton hefði til að mynda þurft að
bæta eigið Íslandsmet til að komast í
undanúrslit í gær.
_ Ekki tókst að ná tali af Antoni í
gær til að fá viðbrögð hans við sund-
inu en að keppni lokinni var komið
fram á kvöld að staðartíma. Vonir
standa til þess að hægt verði að birta
viðtal við hann í blaðinu á morgun
og/eða á mbl.is í dag.
Anton Sveinn í 24. sæti
- Lakari tími en í Ríó - Hefði þurft að bæta Íslandsmetið til að komast áfram
Ljósmynd/Simone Castrovillari
Alvarlegur Anton Sveinn í ólympíulauginni í Tókýó í gær þegar tíminn í 200 metra bringusundinu lá fyrir.