Morgunblaðið - 28.07.2021, Síða 23

Morgunblaðið - 28.07.2021, Síða 23
ÍÞRÓTTIR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. JÚLÍ 2021 FRJÁLSAR Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Frjálsíþróttamaðurinn Guðni Valur Guðnason mun taka þátt á Ólympíu- leikum í annað sinn á ferli sínum þeg- ar hann keppir í kringlukasti á leik- unum í Tókýó í Japan aðfaranótt föstudags. Hann kveðst spenntur fyrir að keppa á stærsta sviðinu. „Mér líst mjög vel á þetta. Ég held að þetta verði bara hörkuskemmti- legt,“ sagði Guðni Valur við Morg- unblaðið. „Tímabilið er búið að vera mjög gott og var á góðri leið. Ég var allur að losna upp og kasta langt, þar til ég kom aftur til Íslands!“ sagði hann og hló við. „Þá var svo kalt að ég stífnaði allur upp og það ruglaði svolítið í tækninni. Ég er ennþá svolítið að jafna mig á því. Ég er að komast á gott ról núna, þetta er held ég allt á réttri leið,“ bætti Guðni Valur við. Hann náði ekki ólympíulágmarki á þessu ári en stóð best að vígi meðal íslenskra frjálsíþróttamanna þegar kom að kvótasæti fyrir leikana og komst þar með inn. Guðni hafði hins vegar kastað langt yfir lágmarkinu síðasta haust en þá var tímabilið til að ná lágmörkum ekki í gangi. Spurður hvernig undirbúningi hans hafi verið háttað frá því að það varð ljóst að hann færi á Ólympíuleikana sagði Guðni Valur: „Við fórum að lyfta aftur þungt til þess að setja smá spennu á líkamann og erum að vinna aðeins upp úr því. Ég kláraði síðustu þungu lyftinga- æfinguna þriðjudaginn 13. júlí og hef núna undanfarið verið að lyfta léttar svo það losni aðeins um mann og maður geti farið að negla almenni- legar vegalengdir.“ Hefði verið skemmtilegt Beðinn að meta möguleika sína á leikunum sagði hann: „Ef þetta er góður dagur þá held ég að ég fari alltaf í úrslit og síðan skulum við bara sjá hvað gerist ef dagurinn er ennþá betri. Ég á heima í úrslit- unum og það er klárlega markmiðið að komast þangað og reyna eins mikið og maður getur að stríða gaurunum í efstu sætunum og reyna að koma sjálfum sér í þau.“ Guðna Val þætti því ekki leiðin- legt ef hann kæmist nálægt sínu besta kasti, Íslandsmeti upp á 69,35 metra, á leikunum. „Ég myndi nú ekkert hata það!“ sagði hann og hló. „Það væri hrikalega gott og myndi skila mér í mjög gott sæti.“ Kærasta Guðna Vals, Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir spretthlaupari, freistaði þess einnig að komast á leikana í ár en auðnaðist það ekki. Svo vill til að hún var næsti kepp- andi inn á leikana í kvótasæti. Hefði Guðni Valur náð lágmarki hefði sætið því farið til Guðbjargar Jónu. Hann sagði hana þó ekkert hafa skammað sig fyrir að hafa ekki náð lágmarki í sinni grein. „Neinei, þótt það væri nú mun skemmtilegra ef við hefðum bæði getað farið. Hún var næst inn og er bara búin að vera óheppin með meiðsli og annað slíkt.“ Vann í skítakulda Þegar hinn 26 ára gamli Guðni Valur er ekki að æfa og keppa stundar hann nám við Háskólann í Reykjavík. Áður hafði hann hins vegar lokið öðru námi. „Ég er rafvirki, kláraði það nám 2017 en síðan fór það bara voðalega illa með líkamann. Að vera úti allan daginn í einhverjum skítakulda og ógeði og fara svo og ætla að kasta og einbeita sér eitthvað. Maður var bara lamaður og dasaður eftir að hafa verið úti. Ég er í íþróttafræði í HR núna og er að fara að byrja mitt þriðja ár í haust, lokaárið fyrir BS- gráðu,“ sagði Guðni Valur. Spurður hvort hann sæi fram á að fara í frekara nám að fenginni BS- gráðu sagði hann að lokum: „Manni finnst nú líklegt að maður klári meistaragráðu í íþróttafræði eða einhverju öðru, það kemur bara í ljós hvað maður gerir. Maður er alltaf að breyta um skoðun á öllu.“ Ég á heima í úrslitunum - Guðni Valur tekur þátt á Ólympíuleikum í annað sinn - Keppir í kringlukasti aðfaranótt föstudags - Bakslag vegna kuldans - Vill stríða þeim bestu Ljósmynd/Þórir Tryggvason Tókýó Guðni Valur Guðnason keppir á leikunum aðfaranótt föstudags. Bermúda varð í gær fámennasta þjóð sögunnar til þess að vinna gull- verðlaun á Ólympíuleikum þegar Flora Duffy reyndist hlutskörpust í þríþraut á leikunum í Tókýó. Ey- ríkið Bermúda telur aðeins 63.000 íbúa og Duffy, sem kom í mark á tímanum 1:56:36 kvaðst ákaflega stolt yfir afreki sínu. „Ég held að allir í Bermúda séu að fara yfir um. Það er það sem gerir þetta svo sér- stakt fyrir mig.“ Einu verðlaun Bermúda fram að þessu höfðu komið í hnefaleikum í Montréal árið 1976. Fámenn þjóð státar af gulli AFP Þjóðhetja Flora Duffy með gull- verðlaunin um hálsinn í gær. Tvíburarnir Alexander Már og Indriði Áki Þorlákssynir skoruðu mörk Fram þegar liðið vann Þór 2:0 á Akureyri í gær. Mörkin skor- uðu þeir á 45. og 89. mínútu. Staða Fram er afar góð eins og áður enda hefur liðið ekki tapað leik í Lengjudeildinni, þeirri næst- efstu, í fyrstu þrettán leikjunum. Fram er með 35 stig og hefur níu stiga forskot á ÍBV sem er í öðru sæti. Þór er með 19 stig eftir fjórtán leiki og siglir hinn umtalaða lygna sjó í deildinni. kris@mbl.is Tvíburar skoruðu mörkin fyrir Fram Ljósmynd/Þórir Tryggvason Akureyri Alexander Már fagnar marki sínu fyrir Fram í gær. _ Knattspyrnumaðurinn Elías Már Ómarsson gekk í gær til liðs við franska B-deildarfélagið Nimes sem kaupir hann af Excelsior í Hollandi. Samningur hans við félagið er til þriggja ára og með möguleika á fram- lengingu til eins árs til viðbótar. Kaup- verðið er á bilinu 70-80 milljónir ís- lenskra króna en hann átti eitt ár eftir af samningi sínum við Excelsior. Nimes féll úr frönsku 1. deildinni í vor, en stefnir beint aftur upp í efstu deild á ný, enda gamalgróið og stórt félag með mikla hefð á bak við sig. Keppni í frönsku B-deildinni hófst um síðustu helgi og Nimes gerði þá jafntefli, 1:1, við Bastia á útivelli á eyjunni Korsíku. _ Naomi Osaka, ein skærasta íþrótta- stjarna Japana sem er í öðru sæti heimslistans í tennis, var óvænt slegin út í einliðaleik á Ólympíuleikunum í Tókýó og komst þar með ekki í átta manna úrslitin. Marketa Vondrousova frá Tékklandi gerði sér lítið fyrir og sigraði 6:1 og 6:4. Osaka var í lykilhlut- verki í setningarathöfn leikanna síð- asta föstudag þegar hún tendraði ól- ympíueldinn. Vondrousova er 22 ára gömul og situr í 42. sæti heimslistans. _ ÍA og KR gerðu 1:1 jafntefli í Lengju- deild kvenna í knattspyrnu, þeirri næstefstu, á Akranesi í gær. Mac- kenna Davidsson skoraði fyrir ÍA en Kristín Sverrisdóttir jafnaði fyrir KR sem er í efsta sæti deildarinnar. ÍA er í 10. sæti og náði í dýrmætt stig. _ Lið ólympíunefndar Rússlands hreppti gullið í liðakeppni kvenna í fimleikum á Ólympíuleikunum í Tókýó í gær. Rússar fengu 169,528 stig en lið Bandaríkjanna fékk 166,096 stig og hafnaði í öðru sæti. Bretar fengu bronsverðlaun með 164,096 stigum.Er þetta fyrsti sigur Rússa í liðakeppni síðan í Barcelona árið 1992 en Banda- ríkin unnu á síðustu tvennum Ólymp- íuleikum, í Ríó 2016 og London 2012. _ Bandaríska liðið varð fyrir þvílíku áfalli í liðakeppninni þegar Simone Bi- les, einn fremsti íþróttamaður heims, dró sig í hlé eftir keppni á einu áhaldi. Hún virðist glíma við meiðsli og var tæp vegna ökklameiðsla í aðdraganda Ólympíuleikanna. Biles keppti í stökki í gærmorgun í liðakeppninni en fór að svo búnu til búningsherbergja ásamt læknateymi bandaríska liðsins. Í fram- haldinu var ákveðið að hún yrði ekki meira með í liðakeppninni. Þegar Biles ræddi við Eurosport að keppninni lok- inni sagðist hún þurfa að huga að and- legri heilsu. „Þetta er svo stórt, þetta eru Ólympíu- leikarnir. Þegar allt kemur til alls vilj- um við ganga heil af gólfinu, en ekki vera borin burt á börum. Ég treysti sjálfri mér ekki jafn vel og ég gerði og ég veit ekki hvort það tengist aldr- inum. Ég er aðeins stressaðri núna þegar ég keppi í fimleikum. Mér líður líka eins og ég skemmti mér ekki jafn vel og átta mig á því. Ég verð að hugsa um geðheilsuna. Við verðum að hugsa um huga okkar og líkama og fara ekki bara að keppa vegna þess að heim- urinn vill það,“ sagði Biles. Úrslit í ein- staklingskeppni í fjölþraut og á ein- stökum áhöldum fimleikakeppn- innar á Ólympíu- leikunum fara fram síðar í vikunni og því algerlega óljóst hvort Biles verði með. Eitt ogannað Sindri Kristinn Ólafsson mark- vörður Keflvíkinga var besti leik- maðurinn í 14. umferð úrvals- deildar karla í fótbolta að mati Morgunblaðsins. Sindri lék mjög vel í marki Keflvíkinga þegar þeir unnu óvæntan sigur á Breiðabliki, 2:0, síðasta sunnu- dagskvöld. Hann varði hvað eftir annað mjög vel og fékk tvö M fyrir frammistöðu sína. Fimm leikmenn til viðbótar fengu tvö M í umferðinni og eru allir í úrvalsliðinu sem sjá má hér fyrir ofan. Einn þeirra, Frans Elvarsson úr Keflavík, er í liðinu í þriðja sinn en annars eru sex nýliðar í liðinu að þessu sinni. 14. umferð í Pepsi Max-deild karla 2021 Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 23-4-3 Sindri Kristinn Ólafsson Keflavík Kristall Máni Ingason Víkingur R. Atli Sigurjónsson KR Eggert Gunnþór Jónsson FH Birkir Heimisson Valur Frans Elvarsson Keflavík Ásgeir Sigurgeirsson KA Birkir Már Sævarsson Valur Atli Barkarson Víkingur R. Steven Lennon FH Kristinn Jónsson KR 2 2 2 2 3 Sindri bestur í 14. umferðinni Guðni Valur Guðnason er 25 ára gamall frjálsíþróttamaður, alinn upp í Mosfellsbænum. Á yngri ár- um æfði hann golf, körfubolta og ýmsar frjálsíþróttagreinar en hóf árið 2014 að æfa kringlukast af fullum krafti. Hefur það verið sérgrein hans allar götur síðan, en hann keppir stundum í kúlu- varpi líka. Hann keppir í kringlukasti á Ólympíuleikunum í Tókýó og gerði það einnig á leikunum í Ríó de Janeiro í Brasilíu árið 2016, þegar hann hafnaði í 21. sæti. Guðni Valur á Íslandsmetið í kringlukasti, en það setti hann í fyrra þegar hann kastaði kringl- unni 69,35 metra, og hefur tvisv- ar verið valinn frjálsíþróttamað- ur ársins, árin 2016 og 2018. Hann hefur tekið þátt í fjórum Evrópumeistaramótum, þar af einu skipuðu þátttakendum 23 ára og yngri, og einu heims- meistaramóti. Þá hefur hann keppt á þrennum Smáþjóðaleik- um, þar sem hann hefur unnið kringlukastskeppnina í tvígang og einu sinni lent í öðru sæti. Guðni Valur Guðnason

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.