Morgunblaðið - 31.07.2021, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 31.07.2021, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 3 1. J Ú L Í 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 178. tölublað . 109. árgangur . VAR & HVENÆR SEM ER ýningarsalurinn okkar er alltaf opinn! www.hekla.is s H Vef HEKLA · Laugavegur 170 · Sími 590 5000 · www.hekla.is Í sumar er opið alla virka daga hjá HEKLU á Laugavegi og Kletthálsi en lokað er á laugardögum. Volkswagen ID.4 GTX Verð frá 7.150.000 kr. KEPPENDUR ÍSLANDS ERU ÚR LEIK Í TÓKÝÓ DRAUMUR LISTA- MANNSINS SILUNGUR Í YFIRSTÆRÐ 14ÓLYMPÍULEIKAR 12 OG 33 Þóra Birna Ingvarsdóttir thorab@mbl.is Staðgengill sóttvarnalæknis telur enn of marga greinast með kórónu- veirusmit utan sóttkvíar. 80 smit greindust utan sóttkvíar á fimmtu- dag en í heild greindust að minnsta kosti 112 smit innanlands á fimmtu- dag. Þeim gæti fjölgað þar sem sýni sem berast sýkla- og veirufræði- deild Landspítala seint á kvöldin eru ekki greind fyrr en að morgni næsta dags. Hafi fleiri smit greinst koma þau fram í uppfærðum tölum á covid.is í dag. „Það sem [smittöl- urnar] sýna er þó að við erum með miklu fleiri smit en nokkru sinni fyrr, dag eftir dag,“ segir Kamilla S. Jósefsdóttir, staðgengill sótt- varnalæknis. Enn er langstærstur hluti hinna smituðu einungis með væg einkenni Covid-19 en nokkrir hafa veikst al- varlega undanfarið. Of margir greinast enn utan sóttkvíar - 80 smit utan sóttkvíar - „Fleiri smit en nokkru sinni fyrr“ MLangflestir flokkaðir grænir »4 Ljósmyndari Morgunblaðsins flaug ásamt erlendum ferða- mönnum yfir eldgosið í Geldingadölum í gær og myndaði her- legheitin. Ferðamennirnir hrifust mjög af því sem fyrir augu bar og voru bókstaflega í skýjunum. Þær mynduðu gosið í bak og fyrir og ætluðu sér þannig að taka minningar með sér heim. Þær höfðu gert fleiri en eina tilraun til að komast í flug en það virðist þó ekki hafa sakað þar sem flugið sem þær, og ljósmyndari Morgunblaðsins, fóru í með Norðurflugi í gær stóðst allar væntingar og meira en það. »6, 16 Morgunblaðið/Árni Sæberg Mynduðu náttúruundrið í bak og fyrir „Ég er búinn að stefna lengi, leynt og ljóst, að því að komast hér á pall. Svo þetta er auðvitað ákveðinn áfangastaður en á sama tíma er þetta líka nýr og mjög spennandi byrjunarreitur,“ segir söngvarinn Ólafur Kjartan Sigurðarson. Hann syngur hlutverk Biterolfs í óperunni Tannhäuser sem var frum- sýnd síðastliðinn þriðjudag á hinni merku Wagnerhátíð, Bayreuther Festspiele í Þýskalandi. Hann hefur einnig skrifað undir samning til nokkurra ára um burðarhlutverk í Niflungahringnum, röð fjögurra ópera eftir Wagner. Þessir samningar við hátíðina eru taldir afar þýðingarmiklir. »34 Spennandi tækifæri - Ólafur Kjartan syngur í Bayreuth Ljósmynd/Jorge Rodríguez-Norton Söngvari Á sviðinu í Bayreuth.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.