Morgunblaðið - 31.07.2021, Page 2

Morgunblaðið - 31.07.2021, Page 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2021 www.kofaroghus.is - Sími 553 1545 TIL Á LAGER Ítarlegarupplýsingarog teikningarásamtýmsumöðrumfróðleik máfinnaávefokkar STAPI - 14,98 fm Tilboðsverð 697.500kr. 25% afsláttur BREKKA34 - 9 fm Tilboðsverð 369.750kr. 25% afsláttur NAUST - 14,44 fm Tilboðsverð 449.400kr. 30% afsláttur VANTAR ÞIGPLÁSS? Afar einfalt er að reisa húsin okkar. Uppsetning tekur aðeins einndag TILBOÐÁGARÐHÚSUM! Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Nú um hásumarið er starfsemi sjáv- arútvegsfyrirtækja í lágmarki og margir bátar í höfn. Við Miðgarð í Grindavík liggja línubátar Vísis, Páll Jónsson GK, Sighvatur GK og Fjölnir GK, og aftar við sömu bryggju eru Vörður ÞH og Áskell ÞH, togskip Gjögurs hf. Vísisbát- arnir fara aftur út til veiða í kring- um 20. ágúst og vinnsla fyrir- tækisins í gang á svipuðum tíma. Í sjávarútvegi miðast flest við nýtt fiskveiðiár sem gengur í garð hinn 1. september næstkomandi. Vísir hf. keypti nýlega togskipið Berg VE af Bergi-Hugin í Grinda- vík og tekur væntanlega inn í út- gerð sína á haustdögum. Sá bátur kemur í stað línuskipanna Jóhönnu Gísladóttur GK, sem tekið verður úr rekstri, og Kristínar GK, sem var lagt á síðasta ári. „Með þessari breytingu lögum við skipastól okkar að kvótastöðu okkar, en heimildir okkar á næsta fiskveiðiári verða skertar um 1.300 tonn. Sú tala er tilsvarandi því sem veiðist á einum bát hjá okkur yfir árið. Uppstokkun var nauðsyn vegna þessara aðstæðna,“ sagði Pétur Hafsteinn Pálsson, fram- kvæmdastjóri Vísis, í samtali við Morgunblaðið. sbs@mbl.is Grindavíkurbátar bundnir við bryggju Morgunblaðið/Sigurður Bogi Esther Hallsdóttir esther@mbl.is Lyfjastofnun hefur ákveðið að hefja sérstaka rannsókn á röskun á tíða- hring kvenna í kjölfar bólusetning- ar gegn Covid-19. Fram kom í Morgunblaðinu á fimmtudaginn að Lyfjastofnun hefði borist alls 270 tilkynningar sem sneru að þrettán einstökum aukaverkunum. Markmið rannsóknarinnar er samkvæmt Lyfjastofnun að leita skýringa á orsökum þessa og veita þeim konum sem um ræðir stuðn- ing og viðeigandi ráð. Gert er ráð fyrir að rannsóknin taki nokkrar vikur. Óháðum sérfræðingum á sviði kvensjúkdóma-, fæðingar- og blóð- storkufræða verður falið að rann- saka tilfellin. Unnið er að því að skipa í hópinn. Þá kemur fram að framkvæmd rannsóknarinnar njóti stuðnings embættis landlæknis og sóttvarnalæknis. Rebekka Ósk Sváfnisdóttir, sem vakti athygli á málinu og stofnaði facebookhóp fyrir konur með rask- anir á tíðum í kjölfar bólusetningar, segist mjög glöð vegna tíðindanna. Hún fékk bréf frá landlækni í gær- morgun þar sem henni var tilkynnt ákvörðunin. „Þetta er allt sem við vildum. Allt sem við óskuðum eftir,“ segir hún. Spurð um væntingar sínar til framhaldsins segist hún vonast til að konurnar verði upplýstar um framgang rannsóknarinnar. „Ég vona að við verðum ekki settar núna á bið í fleiri, fleiri vikur og heyrum ekki neitt,“ segir hún. Fleiri en 1.200 í hópnum Stöðugt bætist í facebookhópinn og telur hann nú meira en 1.200 konur. Konurnar eru með mismun- andi einkenni, en sjálf var Rebekka á blæðingum í 53 daga í kjölfar bólusetningar. Samhliða fékk hún mikla verki í móðurlífið, brjósta- spennu og þreytu. Þrátt fyrir að blæðingarnar hafi stöðvast í vikunni glímir hún enn við mikla túrverki og þreytu. „Allt sem við óskuðum eftir“ - Lyfjastofnun rannsakar röskun tíðahrings kvenna eftir Covid-19-bólusetningu Morgunblaðið/Eggert Bólusetning 270 konur hafa tilkynnt tíðaraskanir til Lyfjastofnunar. Nýi miðbærinn á Selfossi sem opnaður var fyrr nú í júlí hefur vakið mikla eftirtekt og margir gert sér ferð á svæðið til að skoða þar byggð nýrra húsa í gamla stílnum. Fjöldi veitingastaða er við torgið í bænum nýja og þar er vinsælt að setjast niður, fá sér hressingu og rabba við fólk, eins og sást í fyrrakvöld. Ætla má jafnframt að margir skreppi á Selfoss nú um verslunarmannahelgina og rölti í bæinn, þegar engar eru útihátíðirnar. Morgunblaðið/Árni Sæberg Á mannlífstorgi í nýja miðbænum á Selfossi Morgunblaðið kemur næst út þriðjudaginn 3. ágúst. Frétta- þjónusta verður um verslunar- mannahelgina á fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is. Hægt er að koma ábend- ingum um fréttir á netfangið netfrett@mbl.is. Áskrifendaþjónustan er opin í dag, laugardag, frá kl. 8-12. Lokað er á morgun og mánudag. Þjónustuverið verð- ur opnað aftur þriðjudaginn 3. ágúst kl. 7. Netfang áskriftardeildar er askrift@mbl.is. Hægt er að bóka dánartilkynningar um helgina á mbl.is. Auglýsingadeildin er lokuð og verður opnuð aftur þriðju- daginn 3. ágúst kl. 8. Netfang auglýsingadeildar er augl@mbl.is. Fréttaþjón- usta mbl.is um helgina Rafmagn sló út vegna eldinga á stóru svæði í Bláskógabyggð í gær. Svæðið sem um ræðir er frá Efri- Reykjum að Geysi. Ekki er vitað ná- kvæmlega hvenær varð rafmagns- laust en þrumur og eldingar voru á svæðinu seinnipartinn í gær og fram að kvöldmat. „Loftið á svæðinu er mjög óstöð- ugt þarna. Það er svo rosalega hlýtt á yfirborðinu og það verður svo mikið uppstreymi,“ sagði Ingibjörg Jóhannesdóttir, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, í samtali við Morgunblaðið um það leyti sem eld- ingarnar sýndu sig í gær. Það er ekki á hverjum degi sem þrumur og eldingar gera vart við sig hér á landi en að sögn Ingibjarg- ar er það þó hvorki mjög sjaldgæft né óeðlilegt. rebekka@mbl.is Rafmagn sló út vegna eldinga Ljósmynd/Ævar Eyfjörð Sigurðsson Skýrar Eldingarnar sáust vel í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.