Morgunblaðið - 31.07.2021, Síða 4

Morgunblaðið - 31.07.2021, Síða 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2021 ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI Veronika S. Magnúsdóttir Þóra Birna Ingvarsdóttir Ragnhildur Þrastardóttir Níu sjúklingar lágu á Landspítala veikir af Covid-19 í gær, sjö á legu- deildum og tveir á gjörgæslu. 112 innanlandssmit kórónuveiru greind- ust á fimmtudag en mögulega voru fleiri jákvæð sýni tekin þann dag. Sýni sem ber- ast rannsóknar- stofunni seint á kvöldin eru ekki keyrð í gegnum kerfið fyrr en að morgni daginn eftir. Því eru töl- urnar ekki endan- legar fyrr en um eftirmiðdaginn. Þær eru þó ekki uppfærðar á covid.is nema klukkan ellefu dag hvern. 1.066 manns voru í eftirliti Covid- göngudeildar Landspítala í gær, þar af 132 börn. Þrír þeirra sem voru í eftirliti deildarinnar voru skilgreind- ir rauðir í litakóðunarkerfi hennar en 18 einstaklingar flokkuðust gulir. Hinir 1.045 eru skilgreindir sem grænir. Einkenni þeirra sem eru skilgreindir sem rauðir eru alvarleg og eru þeir í mestri hættu á að verða alvarlega veikir og þarfnast innlagn- ar. Þeir sem eru skilgreindir gulir sýna jafnan mikil einkenni Covid-19 en þeir sem eru grænir eru oft ein- kennalitlir. Það getur þó verið mjög mismunandi eftir fólki. Janssen-þegar hafa frekar smitast en aðrir bólusettir Af þeim sem eru fullbólusettir og hafa greinst smitaðir af kórónveir- unni í júlí hafa 345 verið bólusettir með bóluefni Janssen gegn Covid-19 eða 53%. Þetta kemur fram í svari embættis landlæknis við fyrirspurn Morgunblaðsins. Þá voru 168 (26%) bólusettir með bóluefni Pfizer, 102 (16%) með bólu- efni AstraZeneca eða AstraZeneca ásamt mRNA-bóluefni í seinni skammti. Þá voru 25 einstaklingar (3%) í þessum hópi bólusettir með bóluefni Moderna. Þessi hlutföll verða á næstu dög- um greind með tilliti til aldurshópa og verður sú greining birt á covid.is og uppfærð vikulega. Það sem af er júlímánuði hafa 1.059 manns greinst með Covid-19 og voru 39% smitaðra óbólusett. Kamilla S. Jósefsdóttir, staðgeng- ill sóttvarnalæknis, segir að verið sé að skoða hvers vegna hlutfall smit- aðra Janssen-þega er sexfalt hærra en hlutfall smitaðra sem þegið hafa annað bóluefni. Hún telur að þetta geti líklega bæði skýrst af því að Janssen-þegar fari frekar í sýnatöku því þeir séu líklegri til að finna fyrir einkennum og að þeir sem fengið hafa Janssen séu líklegri til að smitast. Þá kemur einnig til skoðunar hvort stöðuna megi rekja til aldurs- röðunar, en það var að megninu til ungt fólk sem fékk Janssen og unga fólkið hefur verið talið gjarnara á hópamyndun en aðrir. Janssen-- þegum mun bjóðast örvunar- skammtur í ágústmánuði. 0 1 0 2 5 10 7 13 10 11 38 56 78 82 95 88 71 123 123 129 112 Heimild: covid.is kl. 11.00 í gær Heimild: LSH 112 ný innanlands- smit greindust sl. sólarhring* 1.080 einstaklingar eru í skimunarsóttkví 2.590 einstaklingar eru í sóttkví 2020 2021 Einstaklingar undir eftirliti Covid-göngudeildar LSH kl. 12.00 í gær Væg eða engin einkenni Covid-19 Aukin einkenni Alvarlegri einkenni, s.s. mikil andþyngsli og hár hiti 120 100 80 60 40 20 0 7.801 staðfest smit alls Fjöldi innanlandssmita frá 28. febúar 2020 106 100 1.066 einstaklingar eru undir eftirliti Covid-göngudeildar LSH 18 af þeim sem eru undir eftirliti flokksat sem gulir 3 flokkast sem rauðir 132 af þeim sem eru undir eftirliti eru börn 9 sjúklingar eru inniliggjandi á LSHmeð Covid-19 2 einstaklingar eru á gjörgæslu 9. 10. 11. 12. 13. 14. 15. 16. 17. 18. 19. 20. 21. 22. 23. 24. 25. 26. 27. 28. 29. Fullbólusettir Bólusetning hafin Óbólusettir Fjöldi innanlandssmita frá 9. júlí eftir stöðu bólusetningar 28. júlí 2021 129 smit *Tölur um fjölda innanlandssmita sl. sólarhring eru ekki endanlegar Langflestir flokkaðir grænir - Tveir á gjörgæslu vegna Covid-19 - A.m.k. 112 smit í gær - Mest af smitum á meðal þeirra sem bólu- settir voru með efni Janssen - Að sögn staðgengils sóttvarnalæknis geta ýmsar ástæður verið fyrir því 2 4 18 16 19 16 26 21 Eftirlitmeð smituðumáCovid göngudeild LSH Fjöldi þeirra sem flokkuðust sem gulir eða rauðir frá 21. júlí Alls fjöldi undir eftirliti frá 21. júlí Fjöld innlagðra frá 21. júlí 1.200 800 400 0 25 20 15 10 5 0 12 8 4 0 18 16 18 4 12 6 20 3 18 Væg eða engin einkenni Aukin einkenni Covid-19 21. 22. 23. 26. 27. 28. 29. 30. 21. 22. 23. 26. 27. 28. 29. 30. 21. 22. 23. 26. 27. 28. 29. 30. 1 2 3 3 3 8 10 9Á legudeild Á gjörgæslu Heimild: Landspítalinn 223 1.066Kamilla S. Jósefsdóttir Smitrakning hefur verið erfið, að sögn Kamillu. Mörg hundr- uð manns hafa þurft að fara í sóttkví á hverjum degi og hún segir enga leið að klára rakn- ingu smita innan sólarhrings eins og æskilegt væri. „Stærsti þátturinn í því hvað þetta breiðist hratt út er hve margir eru ekki í sóttkví við greiningu. Fólk er búið að vera að umgangast aðra fram á seinustu stundu.“ Kamilla segist aðspurð hafa áhyggjur af versl- unarmannahelginni. Það sem skiptir máli, að mati Kamillu, er að fólk hugi að persónubundnum smit- vörnum og sé ekki í stórum hópi ókunnugra. Betra sé að halda sig með þeim sem mað- ur tengist og þekkir og er í góðum samskiptum við. Áhyggjur af helginni ERFIÐ SMITRAKNING Ákveðið hefur verið að snúa aftur til þess að leggja mat á styttingu einangrunar vegna Covid-19 á ein- staklingsgrundvelli, út frá því hvernig veiran hefur hegðað sér. Munu því bólusettir einstaklingar sem teljast heilsuhraustir og hafa verið einkennalausir í þrjá daga að- eins þurfa að vera í einangrun í tíu daga en ekki í tvær vikur líkt og áð- ur. Einangrun smitaðra einstaklinga hefur miðast við fjórtán daga og sjö daga frá síðustu einkennum frá því að Alfa-afbrigði veirunnar var í umferð í vor, að sögn Kamillu S. Jósefsdóttur, staðgengils sótt- varnalæknis. Verður það áfram staðan fyrir þá sem ekki hafa þegið bólusetningu. Reglugerð heilbrigðisráðuneyt- isins um sóttkví og einangrun kveð- ur á um þetta fyrirkomulag en í fylgiskjali hennar stendur hins veg- ar að „almennt hraustir ein- staklingar með engin eða væg ein- kenni geti útskrifast úr einangrun ef liðnir eru að minnsta kosti 10 dagar frá jákvæðu sýni og þeir hafa verið alveg einkennalausir í að minnsta kosti þrjá daga“. thorab@mbl.is Stytta einangrun- artíma bólusettra Morgunblaðið/Sigurður Unnar Einangrun Við innritun á sóttkvíarhótel. Farsóttarhús landsins eru nú nokkurn veginn full af fólki í einangrun. - Tíu dagar í stað tveggja vikna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.