Morgunblaðið - 31.07.2021, Page 11

Morgunblaðið - 31.07.2021, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2021 Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur veitt fyrirtækinu Vöku hf. undanþágu fyrir hluta starfsemi fé- lagsins við Héðinsgötu 2 og má starfsemi þess því halda áfram í ein- hverri mynd. Á meðan unnið er úr kærum sem bárust vegna starfseminnar, sem hafði í för með sér að Heilbrigðiseft- irlit Reykjavíkur felldi úr gildi starfsleyfi Vöku, má félagið starf- rækja hjólbarða-, véla- og bifreiða- verkstæði ásamt sölu varahluta. Enn stendur því sú ákvörðun Heilbrigðiseftirlitsins að fella úr gildi starfsleyfi fyrir móttöku förg- unarbíla og niðurrif þeirra. Forsvarsmenn Vöku hf. segja í fréttatilkynningu að unnið sé hörð- um höndum að því að koma starf- semi félagsins aftur í samt horf. Eins og fram hefur komið í Morg- unblaðinu hafa íbúar í nágrenninu verið mjög ósáttir við starfsemina Íbúarnir kærðu ákvörðun heil- brigðiseftirlitsins um að veita Vöku tímabundið starfsleyfi. Málið fór fyr- ir úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála sem féllst á með íbú- unum að starfsemin samræmdist ekki aðalskipulagi borgarinnar. Samkvæmt því er aðeins gert ráð fyrir léttum iðnaði en það hugtak er hvergi skilgreint með fullnægjandi hætti. - Leyfi fyrir förgun bíla fellt úr gildi Morgunblaðið/Eggert Skilyrði Frá starfsstöð Vöku. Vaka fær und- anþágu SKVÍSAÐU ÞIG UPP FYRIR SUMARIÐ STÆRÐIR 1428 Sundkjóll 15.990 kr Stærðir 42-56 Bikiní haldari 8.990 kr C-H skálar Bikiní haldari 8.990 kr Stærðir 42-54 Verslunin CURVY | Fellsmúla 26 við Grensásveg, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.isSkipholti 29b • S. 551 4422 TRAUST Í 80 ÁR NÝ GARDEUR BUXNASENDING LOKAÐ LAUGARDAG 31. JÚLÍ ÚTSALAN Í FULLUM GANGI OFURTILBOÐ – 50%-70% AFSLÁTTUR Skoðið laxdal.is Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Allar líkur eru á því að júlí- mánuður, sem er senn á enda, verði sá hlýjasti á Akureyri frá upphafi mælinga. Þetta segir Trausti Jóns- son veðurfræðingur. Hitamælingar hafa verið gerðar á Akureyri í 141 ár samfellt. Enn er ekki útséð um hvort með- alhitinn haldist fyrir ofan 14 stigin, en meira en 14 stiga mánaðarmeð- alhiti hefur ekki mælst áður hér á landi svo áreiðanlegt sé. Meðalhiti á Akureyri fyrstu 25 daga júlí- mánaðar var 15,0 stig en heldur hefur kólnað í veðri undanfarna daga. Júlímeðaltalshitametið hér á landi er án vafa 13,7 stig á Hjarð- arlandi í júlí 2019. Vafalítil er tala frá Egilsstöðum í júlí 1955, líka 13,7 stig, segir Trausti. Torfur í Eyja- firði og Hallormsstaður keppa nú við Akureyri í mánaðarhlýindum – og Egilsstaðir og Mývatn ekki langt undan. Sömuleiðis er ekki enn út- séð um hvort meðalhámarkshiti á Hallormsstað verður ofan 20 stig- anna – en það væri líka merkilegur áfangi, bætir Trausti við. Met gætu fallið víða um land Nokkuð vel líti út með að júlí- meðalhitamet verði slegin á all- mörgum veðurstöðvum á landinu. Ágústmánuður á einnig fáeinar, mjög háar meðalhitatölur, vafa- laust eru 13,5 stig á Írafossi 2004 og trúlega eru 13,9 stig á Húsavík 1947 sömuleiðis rétt. Suðvestanlands er hitinn nálægt meðallagi í júlí og hækkar vænt- anlega lítillega síðustu tvo daga, segir Trausti. Síðustu dagar júlí eru hlýir í Reykjavík og fór hitinn yfir 20 stigin um miðjan dag á fimmtudag. Um allt norðan- og austanvert landið er þetta enn hlýjasti júlí- mánuður aldarinnar, sömuleiðis á miðhálendinu, en landið vestan- og suðvestanvert er í kringum 12. sæt- ið af 21. Sólskinsstundir eru mun færri en í meðalári í Reykjavík, en þó fleiri en t.d. bæði 2014 og 2018. Þurrt hefur verið um nærri því allt land, en þó er ekki um metþurrka að ræða. Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Akureyri Bæjarbúar og gestir sleiktu sólina í gær, í orðsins fyllstu merkingu, fyrir utan Brynjuís í suðurbænum. Hitinn fór upp undir tuttugu gráðurnar. Hlýjasti júlí í sögu mælinga á Akureyri - Hlýjasti júlímánuður aldarinnar fyrir norðan og austan Kát Sólveig Benný fékk sér Brynju- ís í gær ásamt foreldrum sínum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.