Morgunblaðið - 31.07.2021, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2021
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10-17 kg
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Sigurður Guðjón Gíslason, formaður
Landeigandafélags Hrauns sf., segir
landeigendur gera ráð fyrir að
svæðið í Geldingadölum verði vin-
sæll áfangastaður til langrar fram-
tíðar. Því sé til skoðunar að byggja
upp innviði með þjónustu til fram-
búðar.
Þegar Morgunblaðið leit við á
gosstöðvunum í vikunni var þar
samankominn fjöldi erlendra ferða-
manna og báru bílastæðin þess
merki. Nú er hægt að leggja á fleiri
stæðum en áður og um leið hefur
skiltum fjölgað þar sem getið er um
gjaldskyldu.
Austan við gönguleiðina var opn-
að nýtt stæði á vegum annarra aðila
(sjá mynd) en því var lokað.
„Það hefur ekki verið mælt hvað
við getum tekið við mörgum bílum
en líklega getum við tekið við nærri
tvö þúsund bílum yfir daginn. Það er
búið að taka stór og mikil tún undir
bílastæði,“ segir Sigurður Guðjón
um framboðið sem anni eftirspurn.
Bílastæðin eru rekin af Landeig-
andafélagi Hrauns sf. en hluthafar í
félaginu er alls átján. Að sögn Sig-
urðar hefur land í eigu Ísólfsskála
einnig verið nýtt undir bílastæði og
þar sé líka gjaldskylda. Rekstur
stæðanna sé samstarfsverkefni
þessara landeigenda en Ísólfsskála-
landið sé í eigu yfir fjörutíu hlut-
hafa.
Rafrænt eftirlit með stæðum
Hægt er að greiða fyrir bílastæð-
in á vefsíðunni parka.is en þar segir
að gjaldið taki mið af dvalarlengd og
að fylgst sé með númerum ökutækja
með rafrænu eftirliti.
Spurður hvort það styttist í að
rukkað verði sjálfkrafa fyrir leigu á
stæðunum, eins og til dæmis í bíla-
kjöllurum í Reykjavík, segir Sig-
urður Guðjón það vera til skoðunar.
„Það þarf að glíma við flækjustig
á mörgum stöðum og það vantar raf-
magn á svæðið, nema hvað það er
rafmagn á bílastæðinu þar sem Ellu-
búð stóð áður,“ segir hann og vísar
til verslunar björgunarsveitarinnar.
Við það bílastæði hafa verið settar
upp myndavélar og segir Sigurður
Guðjón þær á vegum Grindavíkur-
bæjar sem hafi eftirlit með umferð á
Suðurstrandarvegi í báðar áttir.
„Hugmyndin er að vera með svip-
að fyrirkomulag og á til dæmis
Höfðatorgi þar sem bílnúmer eru
mynduð þegar ekið er inn og út úr
bílakjallaranum og ökumenn sem
ekki borga fá sjálfkrafa kröfu.
Best væri að hafa færri stæði
Það er auðvitað erfiðara að við-
hafa slíkt fyrirkomulag á þessum
túnum. Við erum að reyna að standa
eins vel að þessu og kostur er þang-
að til framtíðarskipulag er komið á
svæðið. Það er unnið að breytingum
á skipulagi og þá kemst þetta í betra
horf. Það væri ákjósanlegt að geta
verið með eitt til tvö bílastæði í
mesta lagi og geta hleypt fólki inn á
einum stað og út á öðrum. Þá væri
enda hægt að hafa miklu betri um-
sjón með þessu,“ segir Sigurður en
nú er gjaldskylda á fimm bílastæð-
um. Tekjurnar eru trúnaðarmál.
Spurður hvort starfsfólk verði á
svæðinu segir hann að það verði að
sjálfsögðu einhver þjónusta í sam-
starfi við Umhverfisstofnun sem sé
nú með landverði á staðnum.
Uppbyggingin fram undan verði
væntanlega samstarfsverkefni land-
eigenda, Umhverfisstofnunar og
framkvæmdasjóðs ferðamanna.
Sníða sér stakk eftir vexti
Óvissa um framvindu eldgossins
hafi auðvitað mikil áhrif á verkefnið.
„Það er erfitt að sannfæra fólk um
að fara í tugmilljóna framkvæmdir
og vita ekkert um framhaldið en við
höfum reynt að sníða okkur stakk
eftir vexti og byggja þetta upp sam-
hliða, eins og stendur á skiltunum,
með tekjum af bílastæðunum. Við
erum komin með salerni á svæðið og
erum að fjölga bílastæðum. Það þarf
að hefla vegi, viðhalda bílastæðum
og svo framvegis. Þannig að það er
heilmikil umsjón að halda þessu
gangandi. Þegar landeigendur fá
svona verkefni í fangið þurfa þeir
líka að kaupa sér alls kyns sér-
fræðiþjónustu. Þar með talið hjá
lögfræðingum og verkfræðingum.
Þessi kostnaður hleypur orðið á
mörgum milljónum,“ segir Sigurður
sem staðfestir að tekjurnar hafi veg-
ið upp kostnaðinn. „Já, við erum að
nota þessa fjármuni í uppbyggingu
en þegar menn setja svo mikla fjár-
muni í verkefni vilja þeir eðlilega
einhverja rentu. Þetta er orðinn
fyrirtækjarekstur,“ segir Sigurður
Guðjón, sem er viðskiptafræðingur.
Sjá tækifæri í eldgosinu
Morgunblaðið/Baldur
Skorti leyfi Áformað var að hafa bílastæði á þessu túni suður af Langahrygg. Svæðinu var lokað í bili í fyrradag.
- Landeigendur við Geldingadali íhuga sjálfvirka innheimtu á bílastæðum hjá gosi
- Fulltrúi annars eigendahópsins væntir þess að svæðið verði vinsælt til framtíðar
Greint frá gjaldtöku Eftir því sem bílastæðum fjölgar, þeim mun fleiri skilti greina frá gjaldtöku.
« Greiddum gistinóttum á hótelum
fjölgaði um 108% í júnímánuði sam-
anborið við sama mánuð í fyrra. Þetta
kemur fram í tölum Hagstofunnar. Þá
fjölgaði greiddum gistinóttum um 62%
á gistiheimilum og 37% á öðrum teg-
undum gististaða. Séu tölurnar bornar
saman við árið 2019 nemur fækkunin
hins vegar 55% á hótelum, 43% á gisti-
heimilum og 45% á öðrum tegundum
gististaða.
Greiddar gistinætur á hótelum voru
188 þúsund og fjölgaði þeim í öllum
landshlutum nema á Austurlandi þar
sem samdráttur nam um 3%. Mest var
aukningin á höfuðborgarsvæðinu þar
sem greiddum gistinóttum fjölgaði
gríðarlega, fóru úr 18.600 í júní 2020 í
74.200 í síðastliðnum mánuði.
Gistinóttum á hótelum
fjölgaði um 108%
31. júlí 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 123.88
Sterlingspund 173.05
Kanadadalur 99.36
Dönsk króna 19.791
Norsk króna 14.164
Sænsk króna 14.481
Svissn. franki 136.51
Japanskt jen 1.1301
SDR 176.92
Evra 147.2
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 176.8975
Fyrirtækið Halal ehf., sem rekur þrjá veitingastaði undir
merkjum Mandi í Reykjavík og Kópavogi, hagnaðist um
25,9 milljónir í fyrra, samanborið við 121,6 milljóna hagnað
á árinu 2019.
Ársverkum fjölgar um 20%
Vörusala fyrirtækisins jókst um níu milljónir milli ára.
Rekstrarkostnaður jókst hins vegar um 79,4 milljónir og
nam 361,8 milljónum. Þar af hækkuðu laun og launatengd
gjöld um 43% og námu 76,6 milljónum króna. Ársverkum
fjölgaði samkvæmt ársreikningi úr 10 í 12 milli ára.
Veitingastaður fyrirtækisins í Veltusundi er opinn virka
daga milli 10.00 og 1.00 en um helgar milli 11.00 og 5.30. Í
Skeifunni og Hæðarsmára er opið milli 10.00 og 22.00 á
virkum dögum og 11.00 og 22.00 um helgar.
Launakostnaður fyrirtækisins sem hlutfall af tekjum
var 18% í fyrra en var aðeins 12,9% árið 2019.
Athygli vakti fyrr á þessu ári þegar forsvarsmenn stórra
veitingafyrirtækja, Domino’s og Spaðans, vísuðu til
rekstrar Mandi og töldu með ólíkindum að fyrirtækið gæti
haldið launakostnaðarhlutfalli jafn lágu og reikningar fé-
lagsins vitnuðu um. Önnur fyrirtæki í veitingageiranum
væru föst í 40% hlutfalli eða þaðan af hærra.
Gagnrýnir skattayfirvöld
Nú síðast steig Jakob E. Jakobsson, eigandi Jómfrúar-
innar og stjórnarmaður í Samtökum ferðaþjónustunnar,
fram í þættinum Dagmálum á mbl.is og gagnrýndi skatta-
yfirvöld fyrir að aðhafast ekkert í málefnum fyrirtækisins
þar sem augljóslega væri pottur brotinn í launamálum.
ses@mbl.is
Launakostnaðurinn jókst
- Mandi greiddi 76,5 m. í laun í fyrra
- Ársverkin 12 - Staðirnir þrír
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hagnaður Rekstur Mandi gekk vel í fyrra
« Í júní voru
fluttar út vörur
fyrir 58,7 millj-
arðar króna og
inn fyrir 88,9
milljarða króna.
Vöruviðskiptin
voru því óhagstæð um 30,2 milljarða
króna. Til samanburðar við júní í fyrra
voru reiknuð vöruviðskipti óhagstæð
um 23,3 milljarða á gengi hvors árs fyr-
ir sig. Þetta kemur fram í tilkynningu
frá Hagstofunni.
Vöruskiptajöfnuður síðustu tólf mán-
uði var óhagstæður um 173,5 milljarða
sem er 4,4 milljörðum meira en á tólf
mánaða tímabili þar á undan.
Verðmæti vöruútflutnings í júní jókst
um 11,9 milljarða króna miðað við sama
mánuð á síðasta ári, eða um 25,5%.
Verðmæti vöruinnflutnings jókst um
18,8 milljarða króna í júní miðað við
sama tímabil í fyrra, eða um 26,8%.
Verðmæti vöruútflutnings á tólf mán-
aða tímabili, frá júlí 2020 til júní, var
668,5 milljarðar og jókst um 10,5% á
gengi hvors árs miðað við sama tímabil
ári fyrr. Verðmæti vöruinnflutnings á
sama tímabili nam 842 milljörðum
króna.
Vöruviðskipti óhagstæð
í júní um 30,2 milljarða
STUTT