Morgunblaðið - 31.07.2021, Side 17

Morgunblaðið - 31.07.2021, Side 17
AFP Flöskuvatn Eina drykkjarvatnið sem íbúarnir í Lastras de Cuellar geta svalað þorsta sínum með. Í innan við tveggja stunda akstursfjarlægð frá höf- uðstaðnum Madríd verður hin 76 ára gamla Franc- isca Benitez að bursta tennur með flöskuvatni því drykkjarvatn þorpsins hennar er ekki lengur fyrir hendi. Í þorpinu Lastras de Cuellar í miðri Kastilíu og Leon er vatn óhæft til drykkjar vegna nítrat- og arsenikmengunar. Undan því kvarta íbúarnir sem eru 350 á vetrum en um 1.000 á sumrin. Sams konar skorts á neysluvatni gætir í mörgum þorpum Spánar þar sem jarðvatni er hætt við mengun frá landbúnaði, auk skorts á gæðastjórn og þurrka. Sérhvern mánudag skunda íbúar Lastras niður á aðaltorg þorpsins og birgja sig upp af flöskuvatni; margir hlaða hjólbörur sínar af flöskuvatninu eft- irsótta og trilla því heim um misjafnlega langan veg. Víða í þorpinu dangla kippur tómra vatns- flaska og áróðursborðar til marks um kröfur þorps- búa um að fá aðgang að drykkjarvatni. „Þetta er ekki eðlilegt á 21. öld,“ mótmælti íbúinn Mercedes Rodriguez. Bæjarstjórinn Andres Garcia sagði að fjár- skortur hefði hægt á verkefni sem ella hefði tryggt þorpinu drykkjarvatn fram undir komandi árslok. Í Kastilíu og Leon einni voru 63 bæir og þorp án rennandi vatns í mars sl., að sögn helstu sjónvarps- stöðvar svæðisins. Tölur fyrir landið allt eru ekki fyrirliggjandi. Að sögn heilbrigðisráðuneytis Spánar reyndust 67.050 vatnssýni með öllu óneysluhæf sem tekin voru á mismunandi dögum á sömu svæðum í rann- sókn á vatnsgæðum árið 2019. Magn nítrats í vatni þykir áhyggjuefni en 22% yfirborðs Spánar, eða 506.000 ferkílómetrar, eru berskjölduð fyrir nítr- atmengun vegna jarðvegseiginleika og landbún- aðar, að sögn umhverfisráðuneytisins. agas@mbl.is Leita drykkjarvatns á Spáni - Vatnsból eru víða menguð af arseniki og nítrati á Spáni FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2021 Tilboðið rennur út í dag! Kynntu þér meira á www.sleepy.is Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Geimstöðin alþjóðlega (ISS) á braut um jörðu er óstöðug á sporbaugi sín- um. Ástæðan er óhapp rétt eftir tengingu nýrrar rússneskrar bygg- ingareiningar stöðvarinnar. Fyrir mistök hrukku mótorar hennar fyr- irvaralaust í gang. „Stjórnstöð ISS leiðrétti braut geimstöðvarinnar og virka öll kerfi hennar eins og vera ber,“ sagði bandaríska geimferðastofnunin NASA. Það tókst með því að gang- setja stýrimótora á annarri einingu stöðvarinnar. Er hafin rannsókn á því hvað fór úrskeiðis og hvers vegna. Bæði bandarískir og rússneskir embættismenn segja að geimfararn- ir sjö um borð í stöðinni hafi aldrei verið í hættu. Truflunin á eðlilegri starfsemi ISS-stöðvarinnar átti sér stað nokkrum stundum eftir að Nauka- einingin rússneska tengdist stöðinni í gær eftir átta daga ferð frá geim- skoti. Knýjar einingarinnar fóru óvænt og fyrir mistök í gang klukkan 16:45 að íslenskum tíma með þeim afleið- ingum að stöðin fór 45 gráðum út fyrir svonefnt flughorf sitt. „Gagn- aðgerðir hafa leitt til þess að stöðin hefur endurheimt sitt fyrra flughorf og er nú undir stjórn við góða heilsu,“ segir í færslu NASA á sam- félagsmiðlinum Twitter. Fjarskiptasamband við stöðina rofnaði í nokkrar mínútur vegna óhappsins og leiðréttingarferlisins. Afleiðing atviksins er sú að Nasa og Boeing hafa neyðst til að seinka mannlausu tilraunaflugi Starliner- geimfarsins frá 30. júlí til 3. ágúst hið minnsta. Tafðist ítrekað Nauka er 13 metra löng og 20 tonna þung viðbót við geimstöðina. Var hún tengd stöðinni við hlið ann- arra smíðiseininga Rússa sem þar hafa verið. Upphaflega stóð til að skjóta Nauka á loft árið 2007 en það tafðist ítrekað vegna verkfræðilegra vandamála sem upp komu við þróun einingarinnar. Eftir geimskot í Baj- konúr-geimferðamiðstöðinni í Ka- sakstan fyrir rúmri viku virkuðu hreyflarnir um tíma ekki sem skyldi. Þurfti að virkja sérfræðinga í Moskvu til að leysa vandann. Á end- anum tengdist Nauka geimstöðinni á þeim degi sem ráð var fyrir gert. Með tilkomu Nauka-einingarinnar stóreykst íverupláss stöðvarinnar eða um 70 rúmmetra. Geimfarar munu nýta viðbótina til að fram- kvæma tilraunir ýmiss konar og geyma aðföng. Það nýtist einnig sem hvíldaraðstaða og með viðbótinni nýju fjölgar salernum geimstöðvar- innar um eitt. Með sér flutti Nauka vélmenni í formi stórrar kranabómu sem evrópska geimferðastofnunin ESA lagði stöðinni til. Hún er 11 metra löng og nýtist um allan hinn rússneska enda geimstöðvarinnar. Uppsetning Nauka á sér stað á tímum þar sem Rússar hafa lýst efa- semdum um framtíð þátttöku sinnar í geimstöðvarverkefninu í heild. Benda embættismenn í Moskvu á að margt af rússneskum tækjabún- aði ISS sé meira en 20 ára. AFP Stöðin Nauka að leggjast upp að ISS-geimstöðinni skömmu fyrir óhappið. Geimstöðin óstöðug eftir óhapp - Breytti um legu er hreyflar rússneska hylkisins hrukku óvænt í gang Ný smitbylgja, sem fyrst greindist í borginni Nanjing í Kína, vex hratt en hún hefur þegar slegið sér niður í fimm héruðum og í höfuðborginni Peking. Kínverskir fjölmiðlar segja að þar sé á ferðinni víðáttumesta smit á eftir hinu upphaflega í Wuh- an, þar sem kórónuveiran átti upp- tök sín fyrir hálfu öðru ári. Um 200 manns greindust smitaðir í gær en fyrsta smitið var greint 20. júlí á alþjóðaflugvellinum í Nanjing sem mikil umferð er um. Hefur verið tekið fyrir allt flug um völlinn til 11. ágúst, að því er Global Times hafði eftir heimildarmönnum í gær. Þá hófst í gær skimun á öllum 9,3 milljónum íbúa borgarinnar en yfir- völd í Nanjing hafa sætt gagnrýni fyrir seinagang í þeim efnum. Auk allra íbúa verða gestir borgarinnar einnig skimaðir fyrir kórónuveiru- smiti, að sögn fréttastofunnar Xin- hua. Embættismenn telja að nýja bylgjan tengist Delta-afbrigðinu svonefnda sem er skæðara en önnur afbrigði kórónuveirunnar. Og sú staðreynd að smit hafi greinst á stórum flugvelli geti þýtt að hún hafi dreifst víða. Hafa stjórnendum vall- arins verið veittar átölur og aga- nefnd Kommúnistaflokks Kína sagði eftirlit skorta með vallarstjórninni og hún ástundaði ekki fagleg vinnu- brögð. Skimun hefur leitt í ljós að í gær hafði smitbylgjan nýja borist til 13 borga hið minnsta, þar á meðal til Chengdu og Peking. Hefur miðillinn Global Times í gær eftir sérfræðing- um að þeir telji bylgjuna enn á frum- stigi og kleift ætti að vera að kveða hana í kútinn. Embættismenn í Nanjing segja að af þeim sýktu sé líf sjö í hættu. Ný smitbylgja breiðist út í Kína - Ný smitbylgja í Kína sækir hratt í sig veðrið - Tekið fyrir allt flug í Nanjing AFP Smit Skimað fyrir veirusmiti í kín- versku borginni Nanjing í gær. Hundruð hermanna hafa verið send til borgarinnar Sydney til að hjálpa lögreglunni við að framfylgja neyð- arlokunum vegna Delta-afbrigðis kórónuveirunnar. Smitbylgja sem hófst í júní hefur valdið um 3.000 sýkingum og kost- að níu manns lífið. Sveitirnar verða við æfingar um helgina en taka sér svo stöðu á varðstöðvum á mánudag. Ákvörð- unin hefur mælst misjafnlega fyrir og verið lýst sem óþarfa hörku. Lokunaraðgerðum lýkur 28. ágúst en þær eiga að koma í veg fyrir að fólk yfirgefi heimili sín nema í stuttan tíma til hreyfingar og innkaupa. Þrátt fyrir að ráðstaf- anirnar hafi verið í gildi í fimm vik- ur breiðist veirusmit áfram út í stærstu borg Ástralíu. Tilkynnt var um 170 ný smit í gær. agas@mbl.is ÁSTRALÍA AFP Covid Sýnataka utandyra í Sydney. Herinn til hjálpar Yfirvöld í Lúxemborg hafa sektað netverslunina Amazon um 746 milljónir evra, jafnvirði um 110 milljarða króna, fyrir að hafa haft reglur ESB um persónuvernd að engu. Amazon telur að sektar- ákvörðunin stæðist ekki. Hyggst fyrirtækið kæra ákvörðunina. Neytendasamtök kærðu fram- ferði Amazon og héldu því fram að fyrirtækið safnaði persónulegum gögnum og beitti þeim í leyfisleysi gegn auglýsingamarkhópum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Amazon sætir sektum vegna söfn- unar persónulegra gagna til mark- aðssóknar. Í fyrra sektuðu frönsk yfirvöld fyrirtækið um 35 milljónir evra fyrir að hafa ekki farið að lög- um varðandi vafrakökur sem fylgj- ast með ferðum viðskiptavina net- risans. agas@mbl.is LÚXEMBORG Stórsekta Amazon

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.